Dagblaðið - 25.04.1977, Qupperneq 24
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 25. APRÍL 1977.
28
Jón Valur Gunnarsson sem lézt
15. apríl sl. var fæddur 12.
nóvember 1909 að Velli i Hvol-
hreppi. Foreldrar hans voru
Gunnar Jónsson frá Stóra-Hofi
Kangárvallasýslu og Jónína
Þorkelsdóttir, Öseyrarnesi Eyrar-
bakka. Tónlistin átti stóran hluta
í lífi Jóns og var hann orgelleikari
f ýmsum kirkjum í Rangárvalla-
sýslu fram á síðustu daga, laga-
smiður var hann einnig ágætur og
stjórnaði kórum á sínum yngri
árum. Árið 1939 kvæntist Jón
Ingibjörgu Jónsdóttur frá Bol-
holti í Rangárvallasýslu. Konu
sína missti Jón fyrir nokkrum
árum. Þeim varð tveggja barna
auðið, sem eru Svala, gift Erni
Bergssyni skipasmíðameistara,
og Jónína, gift Jóni Benediktssyni
vélsmíðameistara. Jón var jarð-
settur að Breiðabólstaðarkirkju í
Fljótshlíð sl. laugardag.
Rósa Oddsdóttir frá Flatey sem
lézt 15. apríl sl. var fædd í Eski-
holti í Borgarfirði 5. október 1890.
Foreldrar hennar voru Oddur
Jónsson og kona hans, Guðfinna
Þórðardóttir. Voru þau hjón bæði
borgfirzkrar ættar. Árið 1919
giftist Rósa Jóni Jónssyni trésmið
frá Lundi í Þverárhlíð. Bjuggu
þau lengst af í Flatey. Þau eign-
uðust tvær dætur, Jakobínu og
Áslaugu, en einnig ólu þau upp
Guðrúnu, dóttur Jóns af fyrra
hjónabandi, og Guðfinnu Þóru,
bróðurdóttur Rósu. Einn son
eignaðist Rósa áður en hún
giftist, Kristján bónda í Ferjukoti
í Borgarfirði. Arið 1953 fluttu þau
Rósa og Jón til Vestmannaeyja,
Þar lézt Jón árið 1959. Síðustu
árin dvaldist Rósa á Hrafnistu.
Halldór Víglundsson sem lézt 15.
apríl sl. var fæddur 11. júní 1911.
Hann var ráðsmaður við Alþýðu-
skólann á Eiðum. Eftirlifandi
eiginkona Halldórs er Gróa
Salvarsdóttir.
Hafdís Lilja Halldórsdóttir sem
lézt 31. marz sl. var fædd 21. októ-
ber 1940. Foreldrar hennar voru
hjónin Halldóra Þórðardóttir og
Halldór Runólfsson húsasmiður.
Vorið 1959 giftist hún Andrési
Jónssyni frá Hellissandi og
þangað fluttu þau og hófu
búskap. Þeim hjónum varð fimm
barna auðið og eru þau: Halldór
Pétur á nítjánda ári, Sólveig 16
ára, Jón Bjarni 15 ára Páll á 14 ári
og yngst er Halldóra Kristín 12
ára.
Karl Guðmundsson rafvélameist-
ari sem lézt 15. apríl sl. var
fæddur 30. desember 1898. Hánn
var fæddur og uppalinn í Króki á
Rauðasandi. Foreldrar hans voru
hjónin Guðrún Einarsdóttir
Thoroddsen og Guðmundur Sig-
freðsson. Karl fór til náms að
Hvanneyri 1923 og lauk þaðan
búfræðiprófi 1925. Hér syðra
stundaði hann rafvélastörf hjá
Ormsbræðrum og fleirum, en
stundaði auk þess fleiri störf. Um
1930 varð hann sýningarstjóri í
Tjarnarbíói og svo í Háskólabíói,
en samhliða gegndi hann rafvéla-
störfunum sem hann lagði aldrei
á hilluna með öllu. Hinn 19. júní
1926 giftist Karl Margréti Tómas-
dóttur frá Hróarsholti í Arnes-
sýslu. Þau bjuggu alla sína hjú-
skapartíð í Reykjavík. Þau eign-
uðust níu börn, fjórar dætur og
fimm syni, sem öll lifa og eru
fyrir löngu uppkomin. Karl
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 1.30.
Herdis Katrín Magnúsdóttir
Fögrukinn 12 Hafnarfirði verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðar-
kirkju mánudaginn 25. apríl kl. 2
e.h.
Sigurður Kristján Stefánsson
bifvélavirki Rauðagerði 14,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 26. apríl kl. 3
e.h.
Magnús G. Waage Asgarði 61, lézt
21. apríl.
Jósefína Jósefsdóttir Birkimel 8
var jarðsungin í morgun kl. 10.30.
Aðalbjörg Björnsdóttir sem
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu
Akureyri 19 þ.m. verður jarð-
sungin frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 26. apríl kl. 13.30.
Valgeir Benediktsson Hrafnistu
lézt 21. apríl á Landakotsspítala.
Kirkjufélag
Diqranesprestakalls
helður fund í safnaðarheimilinu við Bjarn-
hólastíg í kvöld kl. 20.30. Björgvin Sæmunds-
son bæjarstjóri ræðir um staðsetningu kirkju
og safnaðarheimilis í austurbæ. Jón H. Guð-
mundsson skólastjóri sýnir kvikmynd. Kaffi-
veitingar.
Melavöllu r kl. 19. ðeykjavíkurmótið í knatt-
spyrnu meistaraflokkur, Þróttur — KR.
Leiklíst
Nemendaleikhúsið
sýnir Undantekningin og reglan — (Jrræðið
eftir Brecht í Lindarbæ í kvöld kl. 20.30.
Sjólfstœðisfélögin
í Fella- og Hólahverfi
halda félagsfund i kvöld kl. 20.30 að
Seljabraut 54 (húsi Kjöts og fisks).
Félag sjólfstœðiskvenna
í Árnessýslu
heldur fund í kvöld kl. 20.30 að Tryggvagötu
8 Selfossi.
Landsmólafélagið Fram
í Hafnarfirði heldur almennan fund í kvöld
kl. 21 í Sjálfstæðishúsinu i Hafnarfirði.
Félag ungra
sjólfstœðismanna
I Mýrasýslu heldur aðalfund í Hótel Borgar-
nesi í kvöld kl. 21.
Félag sjólfstœðismanna í
Skóga- og Seljahverfi
heldur almennan félagsfund í kvöld kl. 18.00
að Seljabraut 54. Kosning landsfundarfull-
trúa.
lÍÍÍil
Fundur um jafnrétti
Kvenréttindafélag tslands efnir til fundar
um jafnrétti innan fjölskytdu — jafnrétti á
vinnumarkaði þriðjudaginn 26. apríl 1977 að
Hallveigarstöðum kl. 20.30.
Framsögumenn verða Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir, Gestur ólafsson, Guðrún Gisla-
dóttir og Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir.
Almennar umræður.
Fundurinn er opinn öllum.
Félag kaþólskra
leikmanna
heldur fund í Stigahlíð 63 í kvöld kl. 20.30.
Sagt verður frá Matt Talbot, irskum drykkju-
manni, sem tókst að rifa sig upp úr áfengis-
neyzlunni og helga líf sitt Guði. Fundurinn er
opinn öllum almenningi.
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
heldur fðlagsfund að Hótel Sögu i Súlnasal i
kvöld kl. 20.30. Fundarefni eru kjaramálin og
öflun verkfallsheimildar.
Hjúkrunarfélag íslands,
Reykjavíkurdeild,
heldur fund í kaffiteríunni Glæsibæ i kvöld
kl. 20.30. kynnt verður framhaldsnám
hjúkrunarfræðinga. Nemendur úr náms-
braut H.í. kynna hjúkrunarnám á háskóla-
stigi.
Kvenfélag Hreyfils
Fundur þriðjudaginn 26. apríl kl. 20.30 í
Hreyfilshúsinu. Rædd verða félagsmál og
fleira.
Digranesprestakall
Kirkjufélag Digranesprestakalls heldur fund
í Safnaðarheimilinu við Bjamhólastíg
mánudaginn 25. apríl kl. 20.30. BjCrgvin
Sæmundsson bæjarstjóri ræðir um kirkju og
safnaðarheimili í austurbæ (staðsetningu).
Jón H. Guðmundsson sýnir kvikmynd.
Kaffiveitingar. Nýir félag'ar velkomnir.
Kvennadeild
Slysavarnafélags íslands
Afmælisfundur Kvennadeildar Slysavarna-
félags Islands í Reykjavík verður fimmtu-
daginn 28. apríl og hefst kl. 7. Góð skemmtiat-
riði. Félagskonur eru beðnar að tilkynna
þátttöku í síma 32062 fyrir miðvikudags-
kvöld.
Stjórnin.
Aðalfundur Snarfara
Aðalfundur Snarfara, félags sportbáta-
eigenda, verður haldinn þriðjudaginn 26.
apríl og hefst kl. 21 stundvíslega í húsakynn-
um Slysavarnafélags Islands á Grandagarði.
Lagabreytingar og venjuleg aðalfundarstörf.
Aðalfundur
Hörpukonur halda aðalfund að Lækjargötu
32 Hafnarfirði þriðjudaginn 26. apríl kl.
20.30.
Aðalfundur
byggingarsamvinnufélags kennara verður
haldinn fimmtudaginn 28. apríl kl. 20.30 í
skrifstofu félagsins Þingholtsstræti 30. Dag-
skrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Fjórfestingarfélag íslands
Aðalfundur Fj^rfestingarf?lags Islands árið
1977 verður haldinn að Hótel Sögu, Bláa sal,
fimmtudaginn 28. apríl kl. 17. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða af-
hentir á skrifstofu Fjárfestingarfélagsins að
Klapparstíg 26.
Mólverkasýning
í Bogasalnum
Karl T. Sæmundsson sýnir 36 olíumálverk og
ollupastelmyndir I Bogasalnum. Myndirnar
eru málaðar á sl. tveimur og hálfu ári.
Sýningin er opin daglega kl. 14-22 til 1. maí.
Karl hefur einu sinni áður sýnt verk sln I
Bogasalnum.
Kjorvalsstaöir: Austursalur: Sýning á verkum
Jóhannesar Kjarvals. Vestursalur: Sýning á
verkum Hauks Dór og Þorbjargar Höskulds-
dóttur
Tiikynn
Fréttatilkynning fró
Kvenréttindafélagi
íslands
Kvenréttindafélag lslands efnir til fundar að
Hallveigarstöðum við Túngötu þriðjudaginn
26. april nk. kl. 20.30. Fundarefni er jafnrétti
innan fjölskyldu — jafnrétti é vinnumarkaði.
Framsögumenn verða Aðalheiður Bjam-
freðsdóttir, formaður starfsmannafélagsins
Sóknar, sem mun segja frá könnun á lífskjör-
um Sóknarkvenna 1976, er félagið gekkst
fyrir og nýlega er komin út^jGestur Ólafsson,
arkitekt, flytur erindi er haiin nefnir Jafn-
rœöísfjölskyldur, Guðrún Gisladóttir, bóka
safnsfræðingur. segir frá ráðstefnu. sem hún
sótti I Svíðþjóð á síðastliðnu ári á vegum
ráðherranefndar Norðurlandaráðs þar sem
fjallað var um jafna stööu kynjanna inni é
hoimilum og utan og Guðrún Sigríður Vil-
hjálmsdóttir, B.A. I þjóðfélagsfræðum, fjall-
ar um þróun atvinnuþétttöku giftra kvenna é
íslandi.
Að loknum framsöguerindum verða um-
ræður. Fundurinn er öllum opinn og áhuga-
fólk um jafnréttis- og jafnstöðumál er hvatt
til að koma.
Ljósmyndir frá aðalfundi KRFÍ 16. marz sl.
munu liggja frammi og verður hægt að panta
eftir þeim.
Allt þetta ár, 71. starfsár KRFl er I gangi
söfnun til eflingar Menningar-og minningar-
sjóði kvenna. Á aðalfundinum safnaðist
drjúg upphæð og eru allir velunnarar sjóðs-
ins minntir á söfnunina, sem á að árétta að I
ár voru liðin 70 ár frá því að Briet Bjarnhéð-
insdóttir stofnaði Kvenréttindafélag Islands.
Skíðalyftur
í Blófjöllum
eru opnar sem hér segir
"Láugardaga og sunnudaga frá 10—18
Mánudaga og föstudaga frá 13-19
Þriðjudaga. miðvikudaga og fimmtudaga frá
13-22.
Upplýsingar um færð og hvort lyftur s‘eu
opnar er hægt að fá með því að hringja i
simsvara 85568.
Kattaeigendur,
vinsamlegast merkið ketti ykkar.
iiiiiiiiiiiiiiMiiMiiiiiiiiiiMiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimuiiiiiiiiimimiiiiiiiiiii
Framh.af bls.27
Hreingerningafélag Reykjavikur.
Teppahreinsun og hreingerning-
ar. Fyrsta flokks vinna. Gjöriö svo
vel að hringja í síma 32118 til aó
fá upplýsingar unt hvað hrein-
gerningin kostar. Sími 32118.
ökukennsla
Ökukennsla—Æfingatímar.
Kenni á Austin Allegro 77.
Ökuskóli og prófgögn ef óskað er.
Nokkrir nemendur geta byrjað
strax. Gísli Arnkelsson, sími
13131.
Okukennsla—Æfingatímar:
Aöstoða við endurnýjun ökuskír-
teinis, kenni á Allegro 77,- öku-
skóli og ])rófgi)gn ef óskað er.
Magnús llelgason, simi 66660.
(ikukennsla
Kenni á Gortinu. Nemendur geta
hyrjað strax, einnig bifhjóla-
kennsla. I’áll Garðarsson, simi
44266.
La‘riö að aka bil
á skjótan og öi tiggan Íiáll. Sigurð-
ur Þormar (ikukeiinari Simar
40769 og 71641 og 72214
Mazda 323 de luxe
árg. 77. Lærið að aka þessum
lipra létta og kraftmikla bíl. Öku-
skóli og prófgögn ef óskað er.
Vinsamlegast hringið og látið
skrá yður fyrr en seinna. Sigurð-
ur Gíslason, sími 75224.
Okukennsla—Æfingatimar.
Kenni á Mazda 929 árgerð 77 á
skjótan og öruggan hátt.Ökuskóli
og öll prófgögn ef óskað er. Nýir
nemendur geta byrjað strax. Frið-
rik A. Þorsteinsson, sirni 86109.
Okukennsla —æfingatimar.
Geí bætt við mig nemenó
Kenni á Mazda 616 árg. 76, óku-
skóli og öll prófgögn ef óskað er.
Jóhanna Guðmundsdóttir, simi
30704.
Ökukennsla — Æfingatímar.
Kenni akstur og meðferð bifreiða,
kenni á Mazda 818 — ökuskóli og
öll prófgögn ásamt litm.vnd í öku-
skirteinið ef óskað er. Helgi K.
Sesseliusson. sími 81349.
Ökukennsla—Æfingatimar.
Kenni á Toyota Mark II árg. 76.
Ökuskóli og prófgögn fyrir þá
sem vilja. Nokkrir nemendur geta'
hyrjað strax. Ragna Lindberg,
sími 81156.
1
Þjónusta
i
Vantar þig aðstoð
í garðinn? Veitum alhliða garð-
þjónustu. Látió fagmenn vinna
verkið. Uppl. í síma 35596 eftir kl.
19.
Teppalagnir, viðgerðir
og breytingar, vanur maður.
Uppl. í síma 81513 eftir kl. 7 á
daginn.
Húsbyggjendur ath.
Höfum til sölu milliveggjaplötúr,
5,7 cm steinrör til skolplagna og
gúmmíþéttihringi, gagnstéttar-
hellur, litaðar og ólitaðar. Ekið til
kaupenda á Reykjavíkursvæðinu.
Bjalli hf. steiniðja, Hellu, simi
99-5890.
Sprunguviðgerðir.
Þéttum sprungur í steyptum
veggjum með silicon, kýtti, tökum
einnig að okkur ýmsar breytingar
og glerísetningar. Uppl. í síma
22992 eftir kl. 7.
Málningarvinna úti og inni,
greiðslufrestur að hluta. Uppl. í
síma 86847.
Húsbyggjendur ath.
Höfum til sölu milliveggjaplötur,
5,7 og 10 cm steinrör til skolp-
lagna og gúmmíþéttihringi, gang-
stéttarhellur, litaðar og ólitaðar.
Ekið til kaupenda á Reykjavíkur-
svæðinu. Bjalli hf. steiniðja,
Hellu, sími 99-5890.
Húsdýraáburður til sölu,
gott verð, dreift ef óskað er.Uppl.
í síma 75678.
Garðeigendur athugið.
Utvega húsdýraáburð, dreift ef
óskað er. Tek einnig að mér að
helluleggja stéttir og laga. Uppl. í
sima 26149. "
Höfum opnað
fjölritunarstofu að Efstasundi 21,
vönduð fjölritun, smækkum,
stækkum. Fljót og góð afgreiðsla.
Offsetfjölritun hf, Efstasundi 21,
sími 33890.
Ilúsdýraáburður.
Ökum húsdýraáburði á lóðir.
Odýr og góð |)jömist;i. l'ppl. i
sima 28195.
Bólstrun, síml 40467;
Klæðum og gerum við bólstruA
húsgögn. úrval af áklæðuin. Uppl.
i síma 40467.
Húsdýraáburður.
Ökum húsdýraáburði í garða og á
lóðir, dreift úr ef óskað er. Uppl. í
sima 38998.
Húsdýraáburður til sölu.
[Dreift úr ef ós’kaö er. Góð
umgengni. Sími 42002.
Garðeigendur.
Tek að mér vegghleðslur í skrúð-
görðum, útvega hraunhellur,
einnig brotstein, 2 gerðir, litaða
og ólitaða, hentugir í blómaker og
veggi. Tilboð eða tímavinna. Ární
Eiríksson, sími 51004.
Málningarvinna.
Öll málningarvinna. flisalagnir og
múrviðgerðir. Upplvsingar í síma
71580 eftir kl, 6e.h.
Sjónvarpseigendur ath.
Tek að mér viðgerðir i heimahús
um á kvöldin, fljót og góð þjón
usta. Pantið í sima 86473 eftir kl
5 á daginn. Þórður Sigurgeirsson.
útvarpsvirkjameistari.
Húsaviðgerðir.
Tökum að okkur gluggaviðgerðir,
glerísetningar og alls konar inn-
anhússbre.vtingar og viðgerðir.
Uppl. i sírna 26507.