Dagblaðið - 28.04.1977, Síða 6

Dagblaðið - 28.04.1977, Síða 6
6 Miðstöð Benz- viðskiptanna Göður MB 608D1973 lengri gerð til sölu. Ekinn aöeins um 70 þ. km, innfluttur í árslok 1976. Nýspraut- aöur, hliöarhurö. Góður og fallegur Markaðstorgið Einholti 8, sími 28590. Kvöldsími 74575. Kassagerð Reykjavíkur auglýsir Viljum ráöa letterpressprentara og offsetprentara til starfa nú þegar. Mötuneyti á staðnum, ódýrt fæði. Hafið samband við Halldór. Kassagerð Reykjavíkur Kleppsvegi 33. Sími 38383. Smurbrauðstofan BJORNINN Njólsgötu 49 — Simi 15105 Vélamenn Vanur gröfumaður óskast strax. Sími 50877. L0FT0RKA SF. 1X2 1X2 1X2 33. leikvika — leikir 23. apríl 1 í)77. Vinningsröd: Xll — 122 — XXI — XI1 1. VINNINGUR: 11 réttir — kr. 338.000.00 31042 2. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 20.700.00 734 7010 30989 31504 31505 31854 40209 Kærufrestur er til 16. maí kl. 12 á liádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboösmönnum og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fvrir 33. leik- v'iku verða póstlagðir eftir 17. maí. (1ETRAUNIR — Iþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK AKIÐ SJÁLF CAR RENT AL SERVICE SÍMIfTEL.) 43631 NÝIRVW1200L 0PIÐ FRÁ KL 8-22 0G UM HELGAR SMIÐJUVEGI17 SÍMI43631KÓPAV0GI Tilkynning f rá Rafveitu Hafnarf jarðar Rafmagnsnotendur vinsamlega at- hugið að afgreiðslutími Rafveitu Hafnarfjarðar breytist frá og með 2. maí nk. og veróur opið sem hér segir: Mánudaga — föstudaga 9.15—15.45, laugardaga lokað. Athygli er vakin á því að afgreiðslan verður þá opin í hádeginu. Rafveita Hafnarfjarðar. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1977. Enn um Watergate: Rannsakaður verði upplýsingaleki Lögfræðingar þriggja aðal- mannanna í Watergate-málinu, óskuðu nýlega eftir því við hæstarétt í Bandaríkjunum að fá að ræða um óvenju mikinn upplýsingaleka frá réttinum sjálfum. Það eru lögfræðingar þeirra John Mitchells, Bob Haldemans og John Ehrlich- mans, sem hyggjast ávinna sér frest vegna þess að upplýsingar hafa borizt um, hvernig hæsta- réttardómararnir hyggist taka á máli þremenninganna. — Allir þrír eiga þeir um 30 mán- aða fangelsi í vændum. Þó að hæstiréttur hafi enn ekki kveðið upp úrskurð um, áfrýjun lögfræðinganna, hefur þó þegar frétzt eftir krókaleið- um að dómararnir hafi með fimm atkvæðum gegn þremur hafnað henni. Mitchell og Haldeman ganga lausir um þessar mundir, en Erlichman er þegar byrjaður að afplána tuttugu mánaða fangelsisvist sína. Lögfræðingarnir þrír báðu réttinn um tíu daga frest til að koma kvörtun sinni áleiðis. ! raun og veru þýðir það ekki annað, en að skjólstæðingar þeirra fá enn tíu daga frest til að fara í fangelsi. Lík Bandaríkjamannanna voru sett í dökkar viðarkistur á Kanaríeyjum og síðan fluttar til heimaslóða fólksins. *- - N0FUHAR 114 manns voru jarð- settir i e/ffu ígær Bflar Mercedes Bens 280 SE árg. 1970 í algjörum sér- flokki, alls konar skipti. Fiat 128 special árg. 1976. Volvo 144 árg. 1974, ekinn aðeins 24 þúsund km, einn sá allra bezti. Willys Wagoneer árg. 1976, ekinn 17 þúsund km. Scout árg. 1974, alis konar skipti. Toyota Corolla station árg. 1975, nýinnfluttur. Audi 100 LS árg. 1974, ekinn 25 þús. km. Volkswagen árg. 1973-’74, úrvalsbilar. Morris Marina árg. 1974 Datsun 120 A Sport árg. 1974, mjög vel með far- inn. Audi árg. 1973, sjálfskiptur með topplúgu. Peugeot 504 dísil árg. 1975, vel með farinn einkabíll. bilqsglQ GUÐMUNDAR Bergþórugötu 3 — Reykjavik Simar 19032 & 20070 Útför eitt hundrað og fjórtán manns—er fórust í flugslysinu á Kaliforníu í síðustu viku — fór fram í Santa Ana í Kaliforníu i gær. Ógjörningur reyndist að þekkja líkin endanlega í sundur, svo að þau voru öll jarðsett í eins kistum, hvítum að lit með eina rauða rós og skartalsrauðan borða á lokinu. Allir voru hinir látnu farþegar í Pan American flugvélinni, sem hollenzk KLM þota ök á. Útförin fór fram í kirkjugaroi, sem er aðeins í 40 mílna fjarlægð frá flugvellinum, þar sem fólkið lagði upp í Miðjarðarhafsför sína, sem aldrei var farin. Við útförina þjónuðu prestar frá kaþólsku og mótmælenda- kirkjunni og sömuleiðis ísraelskur rabbíni. Um það bil tvö þúsund manns voru viðstaddir. Pan Am flugfélagið sá ættingjum hinna látnu fyrir fari allt frá ísrael, Miami, New York og Chicago — Greftrun líkanna tekur um það bil tvo daga. IDIAMIN HEIMSÆKIRZAIRE — og gefur hermönnum Mobuto brennivín Amin Ugandaforseti heim- sækir að öllum líkindum starfs- bróður sinn, Mobutu Sese Seko í Zaire í dag. Mobutu er nú staddur í bænum Lubumbashi í suðurhluta landsins. — Amin heimsótti reyndar Zaire um síðustu helgi. Nú hyggst hann kanna víglínuna i dag. Amin hefur lofað Zairestjórn allri aðstoð, sem hann geti látió af hendi til að stjórnin geti hreinsað Shaba-hérað af upp- reisnarmönnum. I gær til- kynnti útvarpið i Uganda að Amin hafi fyrirskipað að birgðum af mat og drykk — þar á meðal bjór og Uganda-gini — verði komið til stjórnarhers»ns í Zaire. Útvarpið hafði það eftir áreiðanlegum heimildum að Amin hafi borizt til eyrna að það væru helztu vörurnar sem skortur væri á á vígvellinum. AMIN: Owffur vinum Mnum gjafir.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.