Dagblaðið - 28.04.1977, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 28.04.1977, Blaðsíða 12
Iþróttir Bþróttir DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. APRlL 1077. Iþróttir Iþróttir Iþróttir N-írar stein- lágu í Köln! Heimsmeistarar V-Þýzkalands sigruðu N-íra 5-0 Heimsmeistarar V-Þýzkalands unnu stórsigur á N-lrum í Köln í gærkvöld — 5-0. Já, vissulega stórar tölur en þær gefa ekki al- íslandsmót íborðtennis Islandsmeistaramótið í borð- tennis verður haldið dagana 30. apríl og 1. maí nk. í Laugardals- höll. Mótið hefst laugardaginn 30. apríl kl. 14. Fyrst verður keppt í tvíliðaleik karla og tvíliðaleik unglinga 15—17 ára og 13—15 ára. Tvíliðaleikur kvenna hefst kl. 15 og einliðaleikur old boys. Tvenndarleikur hefst kl. 17 og einliðaleikur unglinga yngri en 13 ára. Úrslit í tviliðaleik karla verða ca kl. 15.30. Á sunnudag 1. maí hefst mótið kl. 10 með einliðaleik unglinga 13—15 ára. Kl. 10.30 hefst einliða- leikur unglinga 15—17 ára. Kl. 14 hefst einliðaleikur í meistaraflokki og 1. flokki karla. Kl. 15 hefst einliðaleikur stúlkna. Úrslitaleikir sunnudagsins verða ca kl. 1G—17. Leiknar verða 3—5 lotur í meistaraflokki en annars 2—3 lotur. í tvíliðaleik kvenna er keppt allar við allar en annars er mótið útsláttur eftir 2. tap, nema unglingaflokkur sem er með ein- földum útslætti. veg rétta mynd af gangi leiksins — í 55 mínútur héldu írar sínu. Vörn íra var traust — Jennings frábær í marki og Alan Hunter í miðju varnarinnar traustur. Og George Best spilaði af yfirvegun á miðjunni — sannarlega fátt sem benti til stórsigurs. En þá urðu írum á slæm mistök — Arsenal-leikmaðurinn Sammy Nelson handlék knöttinn innan vítateigs — að því er virtist alveg að ástæðulausu. Rainir Bohnhof skoraði af öryggi úr vítaspyrn- unni — og allar flóðgáttir opnuð- ust. Aðeins fjórum mínútum síðar skoruðu V-Þjóðverjar sitt annað mark — Klaus Fisher, sem lék sinn fyrsta landsleik skoraði með skalla eftir fyrirgjöf Bohnhof, •sem lék stórvel á miðjunni. Og hinir dyggu áhorfendur þurftu ekki að bíða lengi eftir næsta marki. Jennings varði stórvel þrumuskot frá Flohe en hélt ekki knettinum og Dieter Muller fylgdi vel eftir og skoraði. írska liðið var alveg brotið — og tvö mörk á síðustu mínútum tryggðu stórsigur V-Þjóðverja — Fisher, sem lék sinn fyrsta landsleik skoraði með skalla og Flohe átti lokaorðið er hann skoraði eftir fyrirgjöf. V-Þjóðverjar léku i fyrsta sinn í sjö ár án fyrirliða síns, Franz Beckenbauer, — en Berti Vogts sem tók við fyrirliðastöðunni leysti það hlutverk vel af hendi og sannaði að maður kemur í manns stað — þó auðvitað verði skarð Beckenbauer vandfyllt. Skotar sigruðu Svía í Glasgow Skotar sigruðu Svía 3-1 í vin- áttulandsleik þjóðanna, sem fram fór á Hampden Park í Glasgow í gærkvöld. Skotar höfðu ávallt undirtökin — og pressuðu stíft allan leikinn en frábær mark- varzla Hellstöm í marki Svía kom í veg fyrir fleiri mörk — auk þess sem Nordquist og Roy Anderson voru kiettar í vörn Svía. Manchester City leikmaðurinn Asa Hartford opnaði markareikn- ing Skota þegar hann skaut góðu skoti frá vítateig. Knötturinn hafnaði í stöng og fór þaðan í bak Hellströms og í netið. Þannig var staðan í leikhléi 1-0, en fljótlega í síðari hálfleik jafn- aði Wendt fyrir Svía. Hann fékk sendingu frá Sjöberg og skaut góðu skoti af 20 metra færi. Fn svo stóð ekki lengi — Kenny Dalglish náði forustu fyrir Skota - hann skaut góðu skoti sem fór í varnarmann og framhjá Hell- ström. Aðeins sjö mínútum fyrir leiks- lok gulltryggði annar Celticleik- maður sigur Skotá. Joe Craig, sem kom inná sem varamaður, skall- aði knöttinn framhjá Hellström. Áhorfendur voru 20 þúsund — en næsti leikur Skota verður gegn Tékkóslóvakíu í september. íþróttir Liverpool hefur átt eindæma velgengni að fagna í vetur — en á þessari mynd sjást tveir ieikmenn sem ekki gátu leikið í gærkvöld vegna meiðsla — John Toshak skorar gegn Arsenal og Steve Heighway horfir á. Liverpool tryggði sætið á Wembley! —með öruggum sigri gegn Everton ígærkvöld 3-0—og rauði herinn f ærist því nær markinu að sigra í þremur stórmótum Liverpool — sem nú stefnir á hið ómöguiega í Englandi — sigur í Evrópukeppni meistaraliða, ensku 1. deildinni og bikarnum, steig mikilvægt skref til að láta drauminn rætast er liðið sigraði nágranna sína Everton 3-Ö á Maine Road i Manchester. Sigur Liverpool var sanngjarn — þó tvö marka Liverpool hafi ekki komið fyrr en á 5. siðustu mínútum leiksins. Þar með missti Everton af tækifæri sínu til að komast í úrslitin á Wembley — tækifæri sem Everton hefði í raun ekki átt að láta sér úr greipum ganga á laugardag er liðið var mun sterkari aðilinn í leik liðanna. En meistarar Liverpool voru ekkert á að gefa eftir í gærkvöld. Þaó fór aldrei á milli mála hvort liðið var sterkara — hinar rauðu skyrtur Liv- erpool virtust mun fleiri en bláar skyrtur Everton. En þaó þurfti mjög umdeilda víta- spyrnu til að koma Liverpool á bragðið. Dómari leiksins dæmdi víta- spyrnu þegar Mike Pejic brá David Johnson — leikmenn Everton mótmæltu kröftuglega en ekkert dugði — Phil Neal skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni. Liverpool náði betri tökum á leikn- um í síðari hálfleik. Og meistarar Liverpool áttu sannarlega að fá víta- spyrnu er einn leikmanna Everton handlék knöttinn greinilega innan vítateigs en dómari leiksins veifaði áfram. En það kom ekki að sök — tvö mörk á síðustu 5 mínútum leiksins gulltryggðu sigur Liverpool. Fyrst skoraði Jimmy Case með þrumuskoti fyrir utan vítateig og síðan skallaði Ray Kennedy knöttinn í netið — 3-0. Liverpool mætir því Manchester United á Wembley — og hljóta meist- arar Liverpool að vera sigurstrang- legir þar — velgengni liðsins í vetur hefur verið makalaus þó enn geti liðið staðið uppi án sigurs í nokkurri keppni. Manchester City veitir Liver- pool harða keppni í deildinni — úr- slitaleikurinn á Wembley gegn United verður erfiður — og þá ekki síður úrslitaleikurinn gegn Borussia Mönchengladbach i Róm í Evrópu- keppni meistaraliða. Það var í þriðja sinn í gærkvöld, sem Liverpool og Everton mættust í undanúrslitum bikarkeppninnar — og ávallt hefur Liverpool borið hærri hlut. Fyrst léku liðin í undanúrslitum árið 1950 — þá sigraði Liverpool 2-0 — og hver skyldi þá hafa skorað fyrra mark Liverpool. Jú, Bob Paisley sem nú er framkvæmdastjóri Liverpool og mun leiða lið sitt á Wembley 21. maí. Síðan mættust liðin 1971 — og þá sigraði Liverpool 2-1 — eftir að Alan Ball hafði náð forustu fyrir Everton en Alun Evans og Brian Hall svöruðu Knattspyrnukappinn frægi Johan Cruijff hefur nú ákveðið að leika að minnsta kosti eitt ár í viðbót með Barcelona á Spáni. Upphæðin sem Cruijff fær er svimandi — en áður hafði verið tilkynnt að Johan Neeskens, landi hans, hefði gert samning við hið fræga félag í Kata- lóníu. Barcelona berst nú harðri baráttu við Atletico Madrid um spánska meistaratitilinn en nú eru aðeins eftir 4 umferðir í spánsku 1. deild- inni — og forusta Atleiico Madrid 2 stig. Atletico Madrid tapaði illa fyrir Burgos 0-2 — ósigur sem fylgdi i kjölfar 0-3 ósigurs liðsins i Hamborg og virðist sá leikur í undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa hafa sett liðið úr jafnvægi. Á sama tíma vann Barcelona stórsigur gegn Celta. En lítum á úrslitin á Snáni um síðustu helgi: Racing — Las Palmas 2-1 fyrir Liverpool. í úrslitum bæði þessi ár mætti Liverpool Lundúnaliðinu Arsenal — og í bæði skiptin mátti Liverpool sætta sig við ósigur — tekst þeim að sigra í þetta sinn? Þá fór einn leikur fram í 2. deild. — Nottingham Forest sigraði.Oldham 3-0 og komst við það í þriðja sætið I 2. deild. Þá léku landslið Skotlands og Englands u-21 árs landsleik á Bramall Lane í Sheffield — og England sigraði 1-0 með marki blökku- mannsins, Laurie Cunningham. Real Madrid — Real Betis 0-1 Malaga — Elche 2-3 Saiamanca — Espanol 2-1 Atletico Bilbao — Real Sociedad 4-2 Barcelona — Celta 4-0 Hercules — Valencia 2-1 Seville — Real Zaragoza 4-1 Burgos — Atletico Madrid 2-0 Staðan eftir 30 umferðir — Atletico Madrid 41 stig — Barcelona 39 — Atletico Bilbao 35 — Salamanca 32 — Real Betis 32. Nú er orðið nokkuð Ijóst að hið fræga félag, Real Madrid kemst ekki í Evrópukeppni í fyrsta sinn frá því að keppnin var sett á laggirnar en liðið tapaði óvænt 0-1 á heimavelli Atletico Bilbao — eina spáqska liðið sem komst í úrslit Evrópukeppni — UEFA-keppninnar, vann góðan sigur á Real Sociedad en undanfarið hefur stjarna félagsins farið stöðugt hækk- I andi. Ovænt tap At- letico Madrid —og Barcelona er nú tveimur stigum á eftir Madridliðinu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.