Dagblaðið - 28.04.1977, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28.
frýálst, nháð dagblað
Utgcffandi Dagblaöiö hff.
Framkvæmdastjóri: Svoinn R. Eyjóifsson. Ritstjórí: Jónas krístjánsson.
fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjórí ritstjornar:
Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. AÖstoöarffrottastjóri: Atli Steinarsson. Safn: Jón
Sævar Baldvinsson. Handrit: Ásgrímur Pálsson.
Blaöamonn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Ema V. Ingólfsdóttir, Gissur
fSigurösson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jakob Magnússon, Katrín Pálsdóttír, Krístín Lýös-
S^óttir, ólafur Jónsson, ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Bjamleifur Bjarnleifsson,
iHöröur Vilhjálmsson, $veinn Þormóösson.
Skrifstofustjóri: Olafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn t»orleifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M
'falldórsson.
Áskriftargjald 1100 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 60 kr. eintakiö.
Ritstjóm SiÖumúla 12, sími 83322, auglýsingar, áskríftir og afgreiösla Þverholti 2, sími 27022.
Setning og umbrot: Dagblaöiö og Steindórsprent hf.. Ármúla 5.
Mynda-og plötugerö: Hilmirhf., Síöumúla 12. Prentun: Arvakur hf., Skeifunni 19.
Allir við sama borð
Dagblaðið og margir fleiri aðil-
ar hafa á undanförnum mánuðum
lagt mikla og vaxandi áherzlu á, að
afnema beri forréttindi
skömmtun í lánakerfinu og að
staðinn eigi að láta markaðsöflin
um að beina fjármagninu í þá
staði, þar sem það gefur beztan arð og hæstu
vexti.
Seðlabankinn stendur nú andspænis miklum
vanda á þessu sviði. Annars vegar frystir hann
nú 25% af sparifé innlánsstofnana, sem er
hæsta leyfilegt mark. Og hins vegar fer þetta fé
í rauninni ekki til frystingar og er því ekki
stjórntæki í peningamálum eins og til er ætlazt.
Peningarnir eru notaðir til endurkaupa bank-
ans á afurðalánum þeirra atvinnuvega, sem
forréttinda njóta.
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, fjallaði
um þennan vanda í ársfundarræðu sinni í
síðustu viku. Vék hann að háværum kröfum,
einkum frá landbúnaðinum, um aukningu af-
urðalána. Ef orðið yrði við þessu, þyrfti aukna
frystingu og þar af leiðandi yrði minna afgangs
til atvinnuvega á borð við iðnaðinn.
Sagði Jóhannes, að nú væri um tvo kosti að
velja:
„Fyrri kosturinn er ... aukning almennrar
bindiskyldu og enn frekari útfærslu afurða- og
birgðalánakerfisins til þeirra atvinnuvega, sem
taldir eru þurfa mest á þeim að halda ... Mundi
hún enn auka þann hlut heildarútlána, sem
veittur væri með sjálfvirkum hætti án mats á
raunverulegri lánsþörf hverju sinni.
Jafnframt yrði bæði þrengdur kostur allra
annarra lántakenda og dregið úr ráðstöfunar-
rétti stjórnenda banka og sparisjóða á. því
fjármagni, sem innstæðueigendur hafa trúað
þeim fyrir. Eftir þessari leið væri því stefnt út í
enn meiri og formfastari skömmtun lánsfjár en
við höfum hingað til átt við að búa.
Mesta f lugslys sögunnar:
Svörtu kassarnir
leiða ýmislegt í
Ijós
— rannsókninni á þeim er þó enn ekki lokið
—niðurstöðu er ef til vill að vænta síðar f
vikunni
Enn liggja ekki fyrir niður-
stöður rannsóknarnefndar sem
kannar orsakir flugslyssins
mikla á Kanaríeyjum á dögun-i
um. Þó hefur málið einfaldazt
mjög og beinist rannsóknin í
raun og veru að einni
spurningu. Hvers vegna flug-
stjóri KLM þotunnar, Jacob
Louis Veldhuyzen van Zanten,
hóf flugtak áður en Pan Am
þotan var komin út af flug-.
brautinni.
í síðustu viku unnu flug-
málasérfræðingar að þvf að
Þetta eru „svörtu kassarnir" svokölluðu, sem eiga að leiða sérfræðinga í allan sannleika um orsakir
mesta flugslyss sögunnar. Þarna koma þeir til Washington.
V
/*
Haldið til móts
við heilbrigði
Hin leiðin stefnir til gagnstæðrar áttar, þar
sem markaðsöflin ... verði látin ráða mun meira
en nú um útlánadreifinguna... I fyrsta lagi yrði
að stefna að þvi að tryggja eigendum sparifjár,
sem raunverulega fjármagna útlán bankanna,
sómasamlega ávöxtun á fé sínu, ... í öðru lagi
þyrfti að stefna að því að jafna lánskjör sem
mest, þannig að hætt yrði að ýta undir eftir-
spurn með óeðlilega hagstæðum lánskjörum.
Með þessum hætti gæti tvennt áunnizt.
Annars vegar ætti útlánageta bankakerfisins
að geta aukizt verulega, en hins vegar ætti
lánsféð að nýtast betur til arðbærs rekstrar og
fjárfestingar, þar sem allir sætu við sama borð
og eðlilegir raunvextir væru greiddir af öllu
lánsfé.“
Síðan sagði Jóhannes: „Það er skoðun banka-
stjórnar Seðlabankans, að reynsla undanfar-
inna ára vitni bezt um nauðsyn þess að fara í
vaxandi mæli inn á síðari leiðina.“
Þessi yfirlýsing frá Seðlabankanum markar
tímamót í fjármálum þjóðarinnar. Með henni
hefur bankinn lagt sitt lóð á vogarskál fjár-
hagslegs jafnvægis og efnahagslegra framfara.
Veri hann þar velkominn.
Fjölmargir tslendingar segja
það í dag að þeir hreinlega
muni ekki lifa af að komast
ekki í tvær sólarlandaferðir á
ári. Sumarferð til Mallorca í
Miðjarðarhafi og vetrarferð til
Kanaríeyja undan Afríku-
ströndum.
Það kann líka að vera, að hafi
menn vanið sig á að fá bessa
vetraruppbót á heilsu sína þá
er erfitt að slíta sig frá þeim
vana.
Það er og mikið gleðiefni,
hversu margir af eldri'
kynslóðinni treysta sér í slíkar
ferðir í fylgd einhvers ættingja.
Það liggur stundum við að hinir
eldri séu sprækari en unga kyn-
slóðin og sæki fastar lysti-
semdir lífsins þann stutta tíma
sem dvalið er á suðurslóðum.
Framtiðarverkefnið er að
leigt sé gistihUsnæði einhvers
staðar á suðlægum slóðum fyrir
ykkur sem eldri eruð. Rætt er
um að hafa dvölina fimni til sjö
vikur í senn, enda þrjár vikur
of stuttur timi fyrir ykkur, sem
óvön eruð miklum ferðalögum
og snöggum breytingum. '
Það tekur venjulega viku að
venjast loftslaginu og umhverf
inu, mataræðinu o.s.frv.
Sé þetta hugsað af alvöru, má
spara þjóðinni mikinn pening,
en eins og þið öll vitið er mikill
skortur á gistirými á elliheimil-
um landsins. Gistirýmið er dýrt
Kjallarinn
Friðrik Á. Brekkan
og eins og svo réttilega er á
bent hjá forstjóra Grundar, er
full nauðsyná þvíaðnýtasem
drýgst það pláss sem tnögulegt
er fyrir langlegusjuklinga.
Það væri jákvætt ef hægt væri
að losa pláss á dvalarstofn-
unum þessar fimm til sjö vikur,
sem rætt var um að fólk myndi
dvelja á erlendu hressingar-
hæli og taka þá inn á meðan
aðra dvalargesti. Síðan er
komin hringrás og verður þetta
til þess að létta á kerfi þessara
stofnana. AndrUmsloftið
verður léttara. Dvalarfólkið
sem kemur heim Ur sólskins-
ferð ræðir við hina um ferðina
og er í því mikil uppörvun og
endurkviknar margur vonar-
neistinn við það. Jafnvel
gætu margir sem snUa heim Ur
slíkri ferð snUið heim til sinna
eigin heimilafullirnýjum þrótti.
Þetta er allt mögulegt. Þið
vitið að þið eigið kröfu á okkur
sem yngri eru. Þið byggðuð
stoðirnar undir þá tiltölulega
almennu velferð sem er í dag.
Við getum að sjálfsögðu lagt
fram þann erlenda gjaldeyri
sem þarf. Þið skulið ekki vera
hrædd um að þetta takist ekki.
Það þarf aðeins að koma réttum
aðiljum í raunsæjan skilning
um þetta nauðsynjamál.
Við notum þá aðferð að segja
þeim að þeir muni sjálfir njóta
góðs af þessu á morgun.
Friðrik Asmundsson-Brekkan,
kaupmaður.