Dagblaðið - 28.04.1977, Side 13
13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1977.
Iþróttir
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Bikarmeistarar FH lögðu
meistara Vals að velli
— og tryggðu sér sæti í úrslitum annað hvort gegn Þrótti eða
Fram — FH sigraði 25-23
Bikarmeistarar FH sigrðu i
gærkvöld íslandsmeistara Vals í
undanúrslitum bikarkeppni HSÍ
meó 25-23. Þar með er von Vals-
manna um að leika eftir afrek FH
frt slðastliðnu vori, að vinna bæði
deild og bikar, að engu orðin. FH
eygir hins vegar möguleika á að
komast í Evrópukeppni bikarhafa
en það hlýtur nú að teljast lík-
legast til að sigra í keppninni. FH
mætir annaðhvort Fram eða
Þrótti í úrslitum.
Leikur FH og Vals i gærkvöld
var fjörlega leikinn, bæði lið stað-
ráðin í að gefa ekkieftir. Jafnvægi
var í leiknum út leiktímann —
varnir ef til vill ekki sterkar né
markvarzlan góð — en barátta sat
í fyrirrúmi. FH hafði yfir í leik-
hléi 10-9 — og í byrjun síðari
hálfleiks náði FH tveggja marka
forustu — en um miðjan fyrri
hálfleik hafði Valur náð að vinna
forskot FH upp — Og gott betur
— Islandsmeistarar Vals náðu
tveggja marka forustu sjálfir, 17-
15.
. FH náði að jafna 17-17 — Geir
hafði farið út af og hvílt en kom
inn á tvíefldur og dreif spil FH
áfram ásamt Viðari Símonarsyni.
FH náði síðan forustu 19-18 — og
21-19 og sigur FH virtist nokkuð
öruggur í höfn enda fór svo að
bikarmeistarar FH stóðu uppi í
lokin sem sigurvegarar 25-23.
Þar með eru Valsmenn úr leik í
bikarkeppninni — höfðu áður
lagt að velli helztu keppinauta
sína í deildinni, Víking. Síðan
sigruðu Valsmenn Hauka í
Hafnarfirði — en voru stoppaðir
af bikarmeisturum FH í leik sem
ýmsir telja að hafi verið hinn
raunverulegi úrslitaleikur keppn-
innar.
Bikarmeistarar FH voru vel að
sigrinum komnir í gærkvöld. Eins
og svo oft, þegar mikið liggur við,
stóðu leikmenn FH sannarlega
fyrir sínu. Þeir voru drifnir
áfram af góðum leik þeirra Geirs
Hallsteinssonar og Viðars
Símonarsonar og Islandsmeistar-
ar Vals áttu ekkert svar. Þeir
reyndu að taka Geir úr umferð en
gáfust fljótlega upp á því. Vörn
FH var ef til vill ekki ákaflega
traust — né heldur markvarzlan
sannfærandi — en sóknarleik-
urinn þeim mun beittari. Hann
öðru fremur var lykillinn að sigri
FH.
Valur náði sér hins vegar aldrei
verulega á strik. Varnarleikurinn
var alls ekki nógu traustur —
hvað eftir annað opnaðist vörnin
illa — sérstaklega á afdrifaríkum
augnablikum í lok siðari hálfleiks
í hægra horninu. Nokkuð sem FH
nýtti sér vel — og tryggði Hafnar-
fjarðarliðinu sigur. Eins var
markvarzla Vals ekki nógu góð —
en leikmenn börðust en það
reyndist ekki nóg í gærkvöld.
Mörk FH skoruðu: Geir Hall-
steinsson 8, Viðar Símonarson 5,
Guðmundur Magnússon 3, Jón
Gestur, Janus Guðlausson og
Sæmundur Stefánsson 2 mörk
hver. Þeir Auðunn Óskarsson,
Árni Guðjónsson og Guðmundur
Árni Stefánsson skoruðu sitt
markið hver.
Jón Pétur Jónsson og .Jón
Karlsson skoruðu 4 mörk hvor
fyrir Val, Þorbjörn Guðmunds-
son, Björn Björnsson, Bjarni Guð-
mundsson og Stefán Gunnarsson
skoruðu 3 mörk hver. Gísli
Blöndal, Bergur Guðnason og
Gunnsteinn Skúlason skoruðu sitt
markið hver.
Leikinn dæmdu þeir Gunn-
laugur Hjálmarsson og Karl
Jóhannsson. h halls.
Páll meistari í
30 km. göngu
Um helgina var haldið í Blá-
fjöllum Reykjavíkurmeistaramót
í 30 km skíðagöngu en skíðadeild
Hrannar sá um keppnina —
Reykjavíkurmeistari varð Páll
Guðbjörnsson frá Skíðafélagi
Reykjavíkur á 144.25 mínútum.
Bragi Jónsson úr Hrönn varð
annar á 156.51 mínútu og þriðji
félagi Braga úr Hrönn — Valur
Valdimarsson á 160.11 mínútum.
Fjórði varð síðan Páll Krist-
mundsson úr Skíðafélagi Reykja-
víkur á 179.54 mínútum.
það þýðir ekki - Auðvitað ekki. Eg —-
að stinga höfð- held þú þarfnist mín
inu í sandinn ekki. Þú hefur alltaf
l T 'ygreitt úr slíkum málum
sjálfur.
Danir velja
gegn
Pólverjum
Danir leika við Pólverja á
sunnudag i undankeppni Heims-
meistarakeppninnar og fer
leikurinn fram á Idrætsparken í
Kaupmannahöfn. Danir hafa val-
ið lið sitt —og vantar þrjá þekkta
leikmenn í liðið — allt atvinnu-
menn. Þar er fyrstan að nefna
Henning Jensen, sem leikur með
Real Madrid á Spáni, en hann
hefur átt við þrálát meiðsli aó
stríða í vetur. Og Danir verða að
vera án Benny Nielsen og Morton
Olesen, en þeir leika báðir með
Molenbeek í Belgíu. Molenbekk
vill ekki láta þá lausa þar sem
félagið hefur ekki náð að tryggja
sér sæti í UEFA-keppninni næsta
keppnisímabil, en það var slegið
út úr keppninni í undanúrslitum
af Atletico Bilbao — 1-1 í Belgíu
— 0-0 á Spáni.
En landsliðshópur Dana er:
Birger Jensen, FC Brugge, Benno
Larsen, Augsburg, Johnny Han-
sen, Vejle, Niels Tune, St. Pauli,
Fleming Ahlberg, Frem., Henn-
ing Munk Jensen, AAB, Lars Lar
sen, Frem., Per Rönt-Ved Werd-
er, Bremen, Ole Björnmose,
Hamburger SV, Heino Hansen,
Munster, Jan Höjland, Munchen
1860, Ole Rasmussen, Hertha
Berlin. Allan Simonsen, Borussia
Mönchengladbach, Fleming Lund,
Essen, Jan Sörensen, Frem og
Ove FIindt-Berg, Karlsruhe.
Fyrirtækja-
keppni í
borðtennis
Fyrirtækja- og stofnanakeppni
í borðtennis á vegum Borðtennis-
sambandsins verður haldin
10—15. maí nk. Hverju fyrjrtæki
eðá stofnun er heimilt að senda
fleiri en eitt tveggja manna lið og.
verður keppnin með Corbillom
fyrirkomulagi. Þátttaka kostar
5000 kr. fyrir liðið. Þátttökutil-
kynningar berist fyrir 5. maí í
síma 82322, Ragnar Ragnarsson,
og 81810, Sigurður Guðmundsson.
VAÐ-
STÍGVÉL
Verð
1495.-
Stærðir:
27-34
BREIÐH0LT
BREIÐHOLT
Leikföng
Æfingagallar
Verð f rá 3995.-
Vörur fyrir
hestamenn
Fótboltar
frá kr. 440.-
Viðleguútbúnaður t.d.
svefnpokar frá kr. 4.800.-
Fótboltaskör
Strigaskór
Verð frá 513.-
Veiðivörur
Sportvöruverzlun Póstsendum
Ingólfs Oskarssonar Louhoium 2-6 - sm 75020