Dagblaðið - 07.06.1977, Síða 1
3. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 7. JÍINI 1977— 12I.TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11,* AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — IAÐALSIMI 27022
r
v
Hönnunargalli í Lagarfoss-
virkjun talinn ógna lífríkinu
Hönnunargalli i Lagarfoss-
virkjun er talinn hafa átt sinn
þátt í flóðinu, sem varð í Lagar-
fljóti fyrir helgina. Flóðið
hefur nú sjatnað.
Um miðjan mánuðinn hefjast
tilraunir með líkan af Lagar-
fossvirkjun. Er verið að ljúka
smíði líkansins í Straumfræði-
stöðinni í Keldnaholti.
Þessi hönnunargalli er talinn
vera yfirfallið á stíflunni. en
það stendur hærra en náttúr-
legur farvegur fljótsins gerði
áður. Eru nú einnig í gangi
umfangsmiklar umhverfis-
rannsóknir við Lagarfljót, enda
óttast heimamenn og aðrir að,
virkjunin geti — og hafi — haft
alvarlegar afleiðingar á lífríki
Lagarfljóts.
Líkan af virkjuninni var ekki
byggt áður en virkjunarfram-
kvæmdir hófust, heldur var
byggt á reikningslegum niður-
stöðum verkfræðinga.
-ÓV.
—sjáfréttábls.4
✓
Samningar í sjálfheldu
Nú þegar sumarið er komið
og sólin vermir okkur er fátt
skemmtilegra en að bregða
sér i sund og busla sér til
hressingar. Krakkarnir fá
sér kút og kork, að maður
tali nú ekki um sundgler-
augu, og bregða sér á sund-
námskeið að læra galdurinn.
-JH.
DB-mynd Hörður Vilhjálms-
son.
Verkfall í
álverinu
20. júní
Tiu verkalýðsfélög hafa
komið sér saman um að boða
til sólarhrings verkfalls i ál-
verinu i Straumsvik mánu-
daginn 20. þessa mánaðar.
Með þessu vilja félögin
reka á eftir samningum.
Dugi þetta verkfall ekki, er
ætlunin að þvi verði haldið
áfram.
Ailsherjarverkfall um
land allt ú að hefjast þriðju-
daginn 21. júní.
Fundur með stjórnendum
álversins mun verða i dag,
þar sem tilkynnt verður um
verkfallsboðunina.
-HH
Samningarnir eru komnir í
sjálfheldu, sem erfitt verður
að koma þeim úr.
Hvorugur aðili mun telja sig
geta hreyft sig nokkuð t bili.
Atvinnurekendur segjast hafa
leikið sinn leik með tilboðinu í
fyrradag. Þess vegna verði
ekki krafizt af þeim, að þeir
leiki nýjan leik. Alþýðusam-
bandsmenn segja hins vegar,
að tilboð atvinnurekenda sé
skref aftur á bak. I bezta til-
viki þýði það, að menn hjakki t
sama fartnu. Tilboð atvinnu-
rekenda kalli því ekki fram, að
Alþýðusambandsmenn komi
til móts við þá með því að
draga úr kröfum sínum.
Eini ljósi punkturinn er, að
samningamenn telja nú yfir-
leitt, að sérkröfurnar muni
ekki hindra málin úr þessu.
Nokkrir aðilar, svo sem málm-
iðnaðarmenn, rafvirkjar og
byggingamenn að minnsta
kosti að hluta, hafa ekki fallizt
á að leysa sérkröfur með jafn-
gildi 2,5 prósenta kauphækk-
un. En líklegt er talið, að þeir
muni gera það eins og hinir.
Eigi eitthvað að ganga með
aðalkröfurnar, telja samninga-
menn, að frumkvæði verði að
koma frá sáttanefnd eða ríkis-
stjórn, svo að samningamenn
fari að ganga samhliða. Ríkis-
stjórnin hefur boðað aðila til
fundar í dag og kann þá að
koma betur fram, hvað er í
hennar ,,pakka“.
- HH
Áhrif yfirvinnubannsins:
Vinnutíminn skikkanlegur
— en kaupið fyrir hann
er allt of lágt
Sjábls.8
Glnpaverk ó gerfl og framin
Gvuflsa reiknast mörg og ill;
„amen" segir ekki Amin
alltaf þogar Bretinn vill.
(Helgi Hós.)
Amin ætlartil
Bretlands
— sjá erl. fréttir
ábls.6-7
■ ■
Oryrkjar
borga hærri
húsaleigu
en gerist á
almennum
markaði
Sjábls.9
Ódýrara að
gefa rollu-
eigendum í
þéttbýli
kjöt allt árið
— en að hafa rollur
þeirra lausar
ígörðum
Sjá bls. 9