Dagblaðið - 07.06.1977, Qupperneq 2
1
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNl 1977..
VIÐ LIFUMIVELMEG-
UN ÞRATT FYRIR ALLT
Einar Ingvi Magnússon Heiðar-
gerði 35 skrifar:
Vafalaust hafa aliir heyrt
talað um verðbólguna hér á
landi og e.t.v. haft óþægindi af.
Varla má inn í verzlun koma án
þess að óánægjuraddir heyrist
yfir dýrtíðinni og á matsölu-
stöðum borgarinnar er verð-
bólgan oft á tíðum eitt aðalum-
ræðuefnið yfir dýrri máltíð-
inni. Af öllu þessu tali má ráða
að þessi plága sé að ganga af
tslendingum dauðum. En svo
einfalt er málið ekki.
íslendingar vaða ekki lengur
í velmegun heldur eru þeir
djúpt sokkiiir í hana. Þeir
teljast ekki lengur fátækir,
heldur skipa þeir flokk ríkari
þjóða. Hér á ég við islenzku
fjölskylduna sem hefur nóg
handa á milli- Það liggur við að
sparifé til sólarlanda sé talið
ein af frumþörfunum. Það líður
enginn tslendingur skort nú á
tímum, svo hvað á allt þetta tal
að þýða.
Það vantar ekki kaupendur
þótt vörur hækki upp úr öllu
valdi. En úti í víðri veröld er til
fólk sem lifir í sannkölluðum
fátækrahverfum. Þar lifa betl-
arar, soltin beinaber börn og fl.
Kæmi ekki smáhjálp frá okkur
sér einkar vel fyrir illa stadda
meðbræður okkar.
Ég vil þess vegna koma á
framfæri tillögu. Ef hver og
einn legði fram andvirði einnar
vínflösku á ári og sleppti þar
með einum föstudegi úr ríkinu.
Peningunum mætti síðan koma
til Rauða krossins eða Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar. Hvernig
væri að neita sér um glaðning-
inn eina helgi og gleðja aðra i
staðinn? Ef dæma má eftir
drykkjuvenjum okkar tslend-
inga myndi safnast hér umtals-
vert fé.
Bréfritari vill gefa eina vín-
flösku til hjálpar bágstöddum
úti í heimi.
REYKINGAR ERU FRALEITT
ATHÆFIOG ÓVERJANDI
B.I. hringdi:
Hann vildi koma því á fram-
færi vegna skrifa gegn áróðri
gegn reykingum, sem birtist í
. DB 27. maí sl. að tóbaksneyzla
er í raun óverjandi. Reykingar
eru svo fráleitt athæfi. Einnig
er allt of lítil áherzla lögð á
eldhættu vegna reykinga.
Margir húsbrunar eru vegna
reykinga og jafnvel manntjón
hafa orðið.
Þó að reykingamenn telji
reykingar sitt einkamál er
Götur Kópavogs í molum
Bifreiðarstjóri skrifar:
Bifreiðarstjórinn var vægast
sagt óhress yfir ástandi gatna í
Kópavogskaupstað. Flestar
olíumalarbornar götur eru að
molna niður og því lítið annað"
að gera en að fara með veghefil
á það sem eftir er, ef veghefill
er þá til, þvi lítið sést til slikra
tækja á malargötum
kaupstaðarins. Frágangi gatna
er mjög ábótavant, skurðir og
gjótur viða. Lítið er um gang-
stéttir og því víða erfitt að kom-
ast, bæði fyrir bíla og gangandi
vegfarendur.
*
Eina vonin er að einhver bót
verði á næstunni vegna
kosninganna næsta vor, en
venjan er að eitthvað gerist um
þær mundir.
<C
Olíumölin molnar víða upp og
verður næstum ókeyrandi eftir
þeim götum, sem verst eru
farnar.
langt því frá að svo sé. Sóða-
skapur mikill fylgir reykingun-
um og mengun fyrir aðra.
Reykingamaðurinn sem
skrifaði í DB bar saman vín og
tóbak og það er rétt að vín er
oft til óþurftar, en tóbakið er
það alltaf.
Aróður gegn tóbaksreyking-
um getur ekki orðið of mikill á
meðan reykingar eru eins mikl-
ar og raun ber vitni.
ÞAKKAR OLAFI
KETILSSYNI
Þjóðvegurinn frá Brúarhlöð-
um að Gullfossi og Geysi hefur
að undanförnu vægast sagt
ekki verið í sem beztu ásig-
komulagi, bifreióar með ferða-
menn sátu þar iðulega fastar og
komust ekki áfram nema með
mikilli fyrirhöfn.
1 maímánuði einum saman
hafa farið þessa leið um þrjú
þúsund erlendir ferðamenn svo
leiðsögumenn fóru þess á leit
við Vegagerðina að vegurinn
yrði lagfærður. Vegagerðin sá
sér ekki fært að gera við
þennan þjóðveg, svo Ölafur
Ketilsson sérleyfishafi tók sig
til og mokaði sjálfur upp úr
forarvaðinu og lét keyra möl
ofan í veginn, á eigin kostnað.
Vildum við leiðsögumenn og
bílstjórar færa Ölafi okkar inni-
legustu þakkir fyrir framtakið
sem hefur orðið ferðamönnum
á leið að Gullfossi og Geysi til
mikilla hagsbóta.
Margrét K. Sigurðardóttir
leiðsögukona.
V
Að velja verstu leiðina
— nýrnaveikin á Laxalóni
í Dagblaðinu í gær birtist
ritsmíð eftir son Skúla Páls-
sonar á Laxalóni, sem er ætlað
að vera svar við grein minni
hér í blaðinu 25. maí sl„ er bar
heitið Hvað er að gerast á Laxa-
lóni? Tilefni mitt til hins stutta
greinarkorns var það að hér í
blaðinu höfðu í tvígang birst
fullyrðingar og áróður frá
hendi Skúla Pálssonar í sam-
bandi við Laxalónsstöðina og þá
atburði sem þar hafa verið að
gerast. A hinn bóginn hafði
ekkert birst um málið frá hendi
opinberra aðila. Taldi ég því
rétt að gera úttekt á málinu og
önnur sjónarmið fengju að
koma fram en birst höfðu lil
þessa.
Ljóst er við skoðun þessa
máls, að þvi miður hefur Skúli
Pálsson valið verstu leiðina
sem hægt var að hugsa sér,
þegar hann komst að raun um
að sjúkdómur herjaði á fiskinn
i stöðinni. í stað þess að gera
yfirviildum aðvart og hlýta því
ráði sem nauðsynlegt væri að
grípa til, heldur hann málinu
leyndu og laumast til útlanda,
vafalaust í þeirri von að geta
komið vandanum yfir á fóður-
salan er átt hefði að selja
honum ónýta og skemmda vöru.
Þetta hefur mér dottið í hug því
verri hlut hefði ég ekki ætlað
þessum manni, þó að reynslan
af honum hafi ekki verið góð
fyrr í sambandi við rógsiðju
hans um langt árabil gagnvart
veiðimálayfirvöldum.
Því næst verður vikið að
greininni 31. maí. Greinar-
höfundur hrekur ekki eitt
einasta atriði sem fram kom í
grein minni. Hins vegar viður-
kennir hann að það hafi verið
Skúli Pálsson sjálfur sem fór
með sjúk laxaseiði til Noregs
vorið 1976 án þess að gera yfir-
völdum hér aðvart um sjúk-
dóminn, eins og honum bar
skylda til lögum samkvæmt. Og
gcrðist því lögbrjótur. Astæðan
til þess var sú að vondir menn
skipa Fisksjúkdómanefnd!
segir greinarhöfundur.
í öðru lagi víkur greinarhöf-
undur að bréfi frá hinum
norska sérfræðingi frá 7. júní
1976 og skýrir aðeins frá einu
atriði af tveimur í bréfinu. Hitt
atriðið, sem hann nefndi ekki,
hljóðar þannig: „Við erum ekki
sammála hvernig skýra eigi
breytingar, sem rætur eiga að
rekja til smitunar af ólæknandi
sjúkdómi, sem við getum ekki
fundið með þeim aðferðum,
sem við noturn." Þess ber að
geta að Norðmenn þekkja ekki
þennan sjúkdóm, nýrnaveiki,
en hins vegar var hann
greindur á Keldum 1969, þegar
hann kom upp í eldisstöðinni
við Elliðaár.
í þriðja lagi minnist greinar-
höfundur á bréf frá norska sér-
fræðingnum dags. 22. septem-
ber 1976 og gerir sig þá sekan
um sömu kórvilluna og um
fyrra bréf og þó verri. Dregur
alrangar ályktanir af efni
bréfsins. Sú sjúkdómsgreining
sem fram kemur í bréfinu gerir
ekki annað en að staðfesta sjúk-
dómsgreiningu hinna íslensku
sérfræðinga á Keldum. Skora
ég á greinarhöfund að birta
bréf þetta hér í Dagblaðinu, svo
að lesendur megi sjálfir dæma
um í þessu efni. Það er vissu-
lega lærdómsríkt að Sk. P.
stakk bréfi þessu undir stól
þegar opinberir aðilar kröfðu
hann sagna um það hvað farið
hefð'i milli hans og norska sér-
fræðingsins, eftir að allt komst
upp um sl. áramót um gerðir
Sk. P. vorið 1976. Skúli skýrði
aðeins frá bréfinu frá 7. júní.
Það er fyrst fyrir stuttu að f.vrr-
greint bréf frá 22. september er
birt í Morgunblaðinu og víst er
að þá hefur Sk.P. verið orðinn
aðþrengdur. Öhætt er því að
segja að myndin hafi skýrst enn
betur með grein þessari í
Dagblaðinu 31. maí. — Nú
virðist einungis vanta inn í
myndina upplýsingar um það
hyort Sk.P. hafi beðið hinn
norska sérfræðing um að þegja
yfir þvi að hann hafi komið
með hin sjúku laxaseiði til
Noregs? Væntanlega stendur
ekki á svari.
t fjórða lagi er upplýst að
Sk.P. hefur selt úr stöð sinni
fisk eftir að hann vissi um sjúk-
dóminn þar. Um það vitnar
salan til eldisstöðvar i ölfusi og
vatnsfalls þar, þó að ekki sé
fleira upp talið. Þó er vitað að
sumarið 1976 hefur Sk.P. selt
seiði til margra aðila.
Ég get ekki séð hvað það á að
sanna að erlendur aðili hafi
viljað kaupa regnbogasilungs-
hrogn frá Laxalóni, þrátt fyrir
vitneskjuna um nýrnaveiki í
stöðinni. Upplýst hefur verið að
smitberar geti verið heil-
brigðir, eins og sagt er, og
virðist regnbogasilungur á
Laxalóni því getað hafa gegnt
þvi hlutverki. En hversu lengi
er ekki vitað? Hvort frans-
menn vilja kaupa hrogn héðan
til að klekja út og ala fisk í
eldisstöð til slátrunar skiptir
okkur, með verðmætustu teg-
undir vatnafiska, lax, urriða og
bleikju, engu máli. A hinn
bóginn sýna svona leikbrögð í
áróðri vel hvernig hægt er að
segja í öðru orðinu: „Okkur eru
allar bjargir bannaðar. Yfir-
völdin ofsækja okkur og hrjá,"
eða „Við getum selt allt þrátt
fyrir vonsku yfirvalda."
Að lokum. Ég satt að segja
hef ekki geð í mér til þess að
elta frekari ólar við greinina í
Dagblaðinu 31. maí um nýrna-
veikismál. En ég vil þó segja að
ég kann því afar illa þegar
greinarhöfundur gerir mér upp
hugsanir og reynir að litillækka
mig persónulega í augum les-
enda, þó að hann viti að ég hefi
þá skoðun að menn eigi að fá að
svara sjálfir þegar á þá eða
þeirra stofnun er ráðist, en
skríði ekki í skjól annarra eða
láti öðrum eftir að leika einleik
og bletta og sverta mannorð
stofnana og manna. eins og
Skúli Pálsson hefur lengst af
gert.
1. júní 1977.
Einar Hannesson
fulltrúi
veiðimálastjóra.