Dagblaðið - 07.06.1977, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1977
Fyrst virkjað—síðan rannsakað:
Umfangsmiklar rannsóknir vegna
hönnunargalla í Lagarfossvirkjun
_ . _____ enn
Byssur — skotf æri — Veiöistangir o.m.f I.
jJPóstsendum — Viðgerðaþjónusta
SPORTmagasínið
GOÐABORG
Grensásvegi 22 — Símar 81617-82125
Um miðjan mánuðinn hefjast
tilraunir með iíkan af Lagarfoss-
virkjun, sem verið hefur í smíð-
um í Straumfræðistöðinni í
Keldnaholti. Líkanið var smíðað
svo rannsaka mætti hugsanleg
áhrif hönnunargalla í virkjuninni
á rennsli Lagarfljóts og lifríki
þess.
Þessi hönnunargalli, sem menn
eru ekki sammála um hversu
alvarlegur sé — er talinn vera
yfirfallið á stíflunni, sem stendur
hærra en náttúrlegur farvegur
fijótsins gerði áður.
Eftir að Lagarfossvirkjun var
tekin í notkun fyrir liðlega
tveimur árum varð mönnum ljós
hættan á ýmsum umhverfisvanda-
málum, sem virkjunin gæti haft í
för með sér. Er nú í gangi
umfangsmikil umhverfis-
rannsókn á virkjunarsvæðinu og
nágrenni fljótsins. Erumniður-
stöður úr þeim rannsóknum eiga
að liggja fyrir í sumar. Tilraunir
Straumfræðistöðvarinnar verða
gerðar jafnhliða.
í yfirfallinu er ráðandi
þversnið (þröskuldur) að
minnsta kosti metra hærra en það
var áður í fljótsbotninum. Hefur
það haft í för með sér að vatns-
borð Lagarfljóts fyrir ofan stíflu
hefur hækkað nokkuð — nóg til
að heimamenn tóku að óttast um
lífríki vatnsins: laxinn og dún- og
eggjatekjuna. Þá hefur aukið á
vandann, að eftir að virkjunin var
tekin í notkun var byggð brú yfir
stífluna, og eru stólpar hennar
taldir hamla eðlilegu vatns-
rennsli. Upphaflega var gert ráð
■í.-ir.ifcHrri'.^ YFiRLITSMYND AF LAGARFOSSVIRKJUN
LA6ARFLJÓT
U«S<Kt»íí£W«
það liggur þvert á meginstraum-
stefnuna," sagði Guttormur þegar
fréttamaðurDB ræddi við hann.
„Það sama er að segja um brúar-
stólpana, þeir eru ekki byggðir
með tilliti til straumstefnu.
Vatnið beygir í næstum níutiu
gráður á yfirfallinu og síðan aftur
nær níutíu gráður. Þarna hamla
stólparnir gegnumrennslinu, og
raunar virkar byggingarlagið í
heild hamlandi. Það getur haft
sín áhrif á lífríki vatnsins, þótt ég
vilji ekkert um það fullyrða.
Björn Erlendsson tækni-
fræðingur, sem haft hefur um-
sjón með smíði líkansins af
Lagarfossvirkjun, sagði í samtali
við fréttamann blaðsins, að
markmið líkanstilraunanna, sem
hefjast ættu um miðjan júní, væri
að kanna hvort yfirfallið kæmi til
með að valda tregðu á rennsli,
þannig að vatnshæð yrði of mikil
inn eftir dalnum í miklum
flóðum. Yfirvallið væri byggt nær
þvert á farveginn og ráðandi
þversnið í hinum nýja farvegi
væri hærra en náttúrlegur far-
vegur hefði verið áður.
„Tilraunirnar verða gerðar
þannig, að athugað verður
hvernig farvegurinn var áður,
hvernig hann er nú, og í hverju
breytingin er fólgin. Þannig
komumst við að kjarna þess
vanda, sem talað er um,“ sagði
Björn Erlendsson.
Það var Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen, sem
annaðist hönnun mannvirkja og
verkfræðiþjónustu virkjunar-
innar. DB leitaði þar upplýsinga
hjá Sigurjóni Helgasyni verk-
fræðingi sem sagði að líkans-
tilraunirnar væru liður í
umhverfisrannsókn við fljótið, er
staðið hefði í 1-2 ár. ,,Það hefur
komið upp viss röðugleiki á að
ákvarða vatnshæð og rennsli,“
sagði Sigurjón, „enda er nær
útilokað í þessu tilfelli að ákvarða
það með reikningslegum
aðferðum." Sagði hann að krafizt
væri óvenju nákvæmra vatns-
mælinga og ylti þar á
sentimetrum, sem gætu haft mik-
ið að segja fyrir lífríki vatnsins.
„Ég spái engu um útkomu þessara
athugana," sagði Sigurjón Helga-
son, „niðurstöður þessara
rannsókna ættu að liggja fyrir í
sumar.“
Sú spurning vaknar, hvort ekki
sé óeðlilegt að gera líkan nýrrar
virkjunar eftir að hún er byggð.
Straumfræðistöðin var ekki til
þegar hafizt var handa um
virkjun Lagarfoss, en líkan Búr-
fellsvirkjunar hafði verið smíðað
í Noregi. Hönnun Lagarfoss-
virkjunar var því ekki byggð á
tilraunum, heldur með
„reikningslegum aðferðum.'1
Sigurjón Helgason segir það
ekki vera skoðun Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen, að þau
hönnunaratriði sem vikið hefur
verið að séu gailar á virkjuninni.
Sagði hann að enginn hefði hreyft
mótmælum áður en virkjunin var
byggð, og hefði þó verið gerð full
grein fyrir vatnsborðhækkuninni.
„Það lá alltaf ljóst fyrir að þarna
þurfti að byggja vatnsmiðlun,"
sagði hann. „Það var ekki fyrr en
eftir að þessum framkvæmdum
var lokið að nefnd heimamanna
mótmælti umfangi bygginganna
og krafðist rannsóknar á hugsan-
anlegum áhrifum virkjunarinnar
á lífríki Lagarfljóts." -ÖV.
fyrir svokölluðu „frjálsu yfir-
falli", þ.e. engri brú við stífluna.
Brúarstólparnir eru allt að
helmingi lengri en venja er, og
byggðir með það fyrir augum að
hægt yrði að setja 1 þá stífluloka
(sem gert var), en ekki með tilliti
til straumstefnu, að sögn
Guttorms Sigurbjarnasonar
jarðfræðings, sem náið hefur
fylgzt með rennsli fljótsins.
„Yfirfallið er þannig byggt, að
Bflamálarar
Viljum ráða bilamálara eða menn vana
bílamálun strax.
Uppl. ísímum 35051 og85040
Vantar umboðsmann á
Vopnafirði
Upplýsingar í sfma 97-3188 Vopnafirði
og 92-22078 Reykjavík
mmiAÐw