Dagblaðið - 07.06.1977, Síða 7
DACBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNt 1977.
Z-
Amin ætlar
til Bretlands
—þrátt fyríryfirlýsingar um að
hann mum halda sig heima
Ufíandaútvarpið hafði það í
nærkvöld eftir áreiðanlVguln
heimildum innan stjórnar Idi
Amins, að hann hygðist halda
til Evrópu í dag með flugvél.
Utvarpið kvað það ætlun forset-
ans að lenda i einhverju landi
nálægt Knglandi og fara síðan
þangað með báti og sitja sam-
veldisráðstefnuna. sem hefst á
morgun.
Krétt þessi vakti mikla furðu
Breta jafnt sem annarra sem
h.vggjast sitja ráðstefnuna.
Aðeins sólarhring áður hafði
útvarpsstöðin í Uganda til-
kynnt, að Amin hygðist ekki
sækja Bretland heim að þessu
sinni sakir andstöðu gest-
gjafanna. Verkamanna-
flokkurinn i Bretlandi hefur
sætt miklum þrýstingi frá þing-
mönnum og fleirum, sem
krefjast þess, að Amin láti ekki
sjá sitt svarta fós i Englandi
vegna magnaðs orðróms um að
hann hafi staðið fyrir fjölda-
morðum á þegnum sípum. —
Þessum orðrómi neitar Amin.
Þrátt fyrr frásögn Ugandaút-
varpsins um að Amin væri í
þann veginn að leggja af stað til
Evrópu. voru Bretar í gærkvöld
í miklum vafa um, hvort Amin
myndi i raun og veru koma til
London. í Kenya þótti orðalag
fréttarinnar nokkuð óvenju-
legt. því að hingað til hefur
útvarpið haft allar fréttir sínar
um Amin beint frá karlinum
sjálfum. Nú voru hins vegar
bornar áreiðanlegar heimildir
fyrir fréttinni.
Idi Amin tók völdin í Uganda
fyrir sex árum, er ráðstefna
samveldislandanna fór fram í
Singapore. Eorsetinn hefur
aldrei setið slíka ráðstefnu, en
margoft lýst þvi yfir að hann
hygðist líta við í London og
óska Elisabetu drottningu til
hamingju með afmælið, —
hvort sem Bretum líkaði það
betur eða verr.
í tilefni fréttarinnar um Idi
Amin, sendi Helgi I-Ióseasson
— þjóðkunnur trésmiður —
Dagblaðinu eftirfarandi visu:
Amin Ugandaforseti i sínu fegursta skarti. Hann hyggst nú fara til
London, þrátt fyrir fyrri fregnir um, að hann hafi hætt við þá
fyrirætlan.
Glæpaverk ó gerð og framin
Gvuðsa reiknast mörg og ill;
„amen“ segir ekki Amin
alltaf þegar Bretinn vill.
Galli í bremsukerfi
60 þús. nýrra Saab
Saab ’75. Skyldi þessi vera með bremáugalla?
Sænsku Saab-verksmiðjurnar
eru þessa dagana að innkalla sex-
tíu þúsund ársgamla Saab-99
vegna galla í bremsukerfinu, að
því er segir í sænska Aftonbladet
fyrir nokkrum dögum. Hefur
blaðið eftir fulltrúa Saab-
verksmiðjanna, að innköllunin sé
„fyrirbyggjandi aðgerð“.
Segir blaðið að einungis sé um
að ræða Saab-99 árgerðir 1975 og
1976. Ekki er talað um að meðal
þessara sextíu þúsund bíla séu
útflutningsbilar, en sagt að allir
Saab-eigendur hafi að undan-
förnu fengið bréf frá verksmiðj-
unum, þar sem lagt er til að panta
þegar í stað tíma hjá viðurkenndu
Saab-verkstæði og láta laga
bremsugallann.
Galli þéssi er í því fólginn, segir
Aftonbladet, að splitti getur
losnað í fóthemli með þeim afleið-
ingum að bremsurnar hætta að
virka.
Bruggað ur
kynfærum dádýra
FRAMLEIÐSLA
NÝS
YNGINGARLYFS
HAFIN ÍKÍNA:
Kínverjar hafa nýlega keypt
frá Nýja Sjálandi k.vnfæri eitt
þúsund karldýrs-dádýra. Þau
verða notuð til að hrugga
hressingarlyf sem á að halda í
skefjum ótímabærri hrörnun“.
að þvi er sendiráð Nýja
Sjálands i Kína sagði fyrir
skiimmu
Keyndar hyggjast Kínverjar
hafa fleiri efnishluta í þessum
yngingarelexir sínum en
kviðsvið dádýra. Hundar og
selir eru nú ekki lengur óhultir
um sína leyndustu líkamsparta.
Eftir þvi sem stendur á
flöskumiðum yngingarelexírs-
ins er hann nærandi og „styrkir
heilafrumurnar, hætir minnið
og eykur kyngetuna." Hann er
helzt ætlaður fólki sem er orðið
gamalt fyrir aldur fram, hefur
sár í kringum miðhlutann og er
fölt i andliti, að þvi er segir
ennfremur á flöskumiðanum.
Að sögn embættismanna i
nýsjálenzka sendiráðinu er
vonazt til þess að árleg sala á
dádýralimum verði um tiu
þúsund stykki áður en langt um
líður.
Innflutningsfyrir
tækitilsölu
Til sölu er lítió innflutnings- og um-
boðsfyrirtæki á sviði þungavinnuvéla,
bifreiða og varahluta. Lítill lager, góð
greiðslukjör, ýmis skipti möguleg.
Fyrirtækjaþjónustan,
Austurstræti 17, sími 2-66-00
Kagnar Tómasson, hdi.
Ritari
Manneldisráð óskar eftir að ráða rit-
ara hálfan daginn frá og með 1. júlí
næstkomandi. Kunnátta í vélritun,
ensku og einu Norðurlandamáli nauð-
synleg. Frekari upplýsingar hjá land-
lækni, sími 27555.
Umsóknir óskast sendar skrifstofu
landlæknis fyrir 15. þ.m.
Framkvæmdastjórí
Trésmiðja Austurlands h.f. Fáskrúðs-
firði óskar að ráða framkvæmdastjóra
frá 1. sept. nk. Umsóknum með
upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf óskast skilað til formanns
félagsstjórnar, Helga V. Guðmunds-
sonar, Fáskrúðsfirði fyrir 1. júlí nk.
Up^l. eru veittar í símum 97-5220 og
97-5221.
Hafnarvörður
Staða hafnarvarðar við Sauðárkróks-
höfn er laus til umsóknar, frá og með
1. júlí nk.
Um fullt starf er að ræða og verða
launakjör í samræmi við almenna
samninga fyrir bæjarstarfsmenn eftir
launaflokki B-8.
Jafnframt er staða hafnarlóðs laus til
umsóknar.
Nánari upplýsingar veita bæjarstjóri
og skrifstofustjóri.
Umsóknir skulu berast á bæjarskrif-
stofur fyrir 15. júní nk.
Bœjarstjóri
Bióreikningur
Iffeyrissjóðs-
iðgjalda
er lifeyrissjóður þeirra sem ekki eiga samningsbundna
eða iögbundna aðild að öðrum lífeyrissjóði. Skrá um
aðila þá er réttindi áttu i sjóði þessum um sl. áramót.
liggur frammi hjá ríkisféhirði dagana 15.—30. júní. í
skránni er að finna nöfn sjóðfélaga, upphæð iðgjaids er
þeir hafa greitt og atvinnurekendur þeira svo og áunnin
stig tii réttinda í sjóðnum.
Reglugerð fyrir Biðreikning iífeyrissjóðsiðgjalda er föl
hjá ríkisféhirði.
Athygli er vakin á ákvæðum iaga nr. 9/1974 um að öilum
launþegum sé rétt og sk.vlt að eiga aðild að lífeyrissjóði
samkvæmt þeim reglum sem settar eru um iðgjalda-
greiðslur í reglugerð viðkomandi sjóðs. Biðreikningur
lífeyrissjóðsiðgjalda tekur til launþega, frá 16 ára aldri
til 75 ára aldurs.
Stjórn „Biðreiknings lífeyrissjóðsiðgjalda"