Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 05.07.1977, Qupperneq 2

Dagblaðið - 05.07.1977, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. JULl 1977. /* SAM og sjónvarpið V Svo mœlir Hvíthaus Sigurður A. Magnússon (hér eftir nefndur SAM) heitir maður sem undanfarið hefur geystst fram á ritvöllinn, salt- vondur, til þess að andmæla (kollega?) mínum, SVART- HÖFÐA, að hann skuli leyfa sér að mæla gegn gerðum Rit- höfundasambandsins sem SAM mun vera potturinn og pannan í. SAM er rithöfundur og það hefur oft vakið furðu mína hvernig ýmsir menn fara að því að verða rithöfundar, eða öllu helclur hvernig þeir öðlast þann rétt að kalla sig því nafni. Svarthöfði telur rithöfunda vera stétt og telur þá vera á villigötum vegna afstöðu Norræna rithöfundaráðsins til hins tilvonandi gervihnattar. En athugum nú þessa svoköll- uðu ,,stétt“ nánar. Til þess að um einhverjar „stéttir" geti verið að ræða þurfa þeir, er til einnar stéttar heyra, að hafa (helzt) stundað eitthvert nám, í tiltekinni iðn, og verða síðan félagar í stéttar- félagi. Rithöfundar þurfa ber- sýnilega ekki að standa í slíku, þeir verða allt í einu, bara rit- höfundar. Illindi SAM eru tvenns konar. Annars vegar finnst honum það vera skerðing á mál- frelsi að mega ekki ata menn óhróðri og skít eftir vild og þurfa að standa ábyrgir gerða sinna. Hins vegar er SAM ákaf- lega hræddur við tilkomu gervi- hnattarins, sem í vændum er, og telur nú sænsku menningar- kiámi stefnt í voða ef menn geta innan tíðar sjálfir valið það sjónvarpsefni er þá lystir. Mér er sagt að SAM hafi dvalið nokkra mánuði í Banda- ríkjunum í boði þeirra fyrir ,,westan“. Ég geri fastlega ráð fyrir því að SAM hafi einhverju sinni lit'íð í amerískt sjónvarp þá er hann var westra, þótí hann ef til vill geri iitið úr þvi, af eðlilegum menningar- ástæðum. SAM talar enn um „dátasjón- varpið" sem hann væntanlega álítur að muni kollsteypa allri íslenzkri menningu ef þessi gervihnöttur kemst á loft. En SAM veil betur. Það hefur enginn haldið því fram að sjónvarp í Bandaríkj- unum, né heldur það sem sjón- varpað var frá Keflavík, sé til nokkurrar fyrirmyndar. t bandarísku sjónvarpi er að sjálfsögðu að finna lélegt en einnig gott efni en' munurinn er bara sá að i Bandarikjunum borga menn ekkert fyrir afnotin og líki manni ekki efnið er úr óteljandi mörgu öðru efni að velja. Á íslandi hafa menn engra kosta völ og oft er það, sem maður freistast til þess að horfa á, vegna vöntunar á öðru (annarri stöð), það lélegt að maður sársér eftir þeim tíma sem fór i að glápa í kassann. SAM er haldinn ólæknandi andúð á Bandaríkjamönnum og -er næsta furðulegt að hann skuli hafa þegið boð þeirra um að dvelja fyrir westan. Það getur vel verið að Bandaríkja- menn hafi að dómi SAM lítið af sams konar menningu og Norð- urlöndin en landnám hvítra manna þar er líka ekki ýkja gamalt miðað við Norðurlanda- menninguna? sem að sjálf- sögðu er ævagömul. Það er svo annað mál að maður eins og SAM skuli ekki sjá neitt annað en norræna menningu, en kannski hafa þeir hvorki rithöfundafélag eða rithöfundaráð þarna fyrir westan. Allir vita nöfn þeirra manna, sem venjulega eru kallaðir 60- menningarnir, og á hvern hátt þeir reyndu að koma tslandi úr NATO. Það tókst þeim ekki en þeir höfðu áhrif á það að Kefla- vikursjónvarpinu var lokað og að mörgum þeim, er vegna heilsu sinnar höfðu mikla afþreyingu af Keflavíkurstöð- inni, er nú meinuð þessi sak- lausa ánægja. Það er hins vegar víst að menningu okkar var engin hætta búin af Keflavíkurstöð- inni né heldur móðurmálinu okkar. I Danmörku horfa menn jöfnum höndum á danskt og sænskt sjónvarp án þess að vitað sé að menriingu þessara landa sé nokkur hætta búin. t Luxembúrg horfa menn á þýzkt, franskt og belgískt sjón- varp, auk þess frá Luxembúrg, og finnst ekkert til um. Islenzka sjónvarpið hefur algerlega brugðizt vonum manna. í sjónvarpinu átti að kenna tungumál og allt innlent efni átti að vera til mikils menningarauka fyrir þjóðina. Þetta hefur heldur betur farið á annan veg og er nú ljóst orðið að sjónvarpið okkar er að verða algerlega ónotandi. Sífellt er endurtekið efni vegna þess að sjónvarpið hefur ekki ráð á því að kaupa efni utanlands, nema þá (kannski) í skiptum fyrir norrænt/íslenzkt efni, en það mun vera hagstætt fyrir okkur fjárhagslega. ...þá örgustu klám- og svinarísmynd sem sézt hefur á skerminum okkar.“ Enginn millivegur er til Einar Ingvi Magnússon skrifar: Biblíuna er að finna einhvers staðar á flestöllum heimilum hér á landi. En það er bara ekki nóg ef hún er ekki lesin en látin rykfalla i einhverri bókahill- unni. Svo er heldur óforskamm- að að ætla að bíða með að kynna sér boð hennar og bönn á elliár- unum því „tími og tilviljun mæta okkur öllum" eins og hún segir. Auk þess er Biblían okk- ur leiðbeiningahók fyrir lífið frá guði. Nú til dags lifir fjöldi manns í blekkingarheimi andatrúar- innar. Það er mjög sorglegt að heyra gamalt fólk, sem vill þjóna guði eins og Biblían boð- ar hann, játa trú á lífið eftir þetta og framliðna ástvini sína sem eiga að taka á móti þeim eins og andatrúin segir frá. Það er orðið svo nú til dags að stundum dregst fólk óafvit- andi inn í ýmislegt sem virðist vera svo saklaust en er hræði- leg synd i augum guðs. Sem dæmi má nefna stjörnuspár, spákonur, drauma og miðla sem er sjálfsagður hlutur í lífi fólks. Hjá guði eru þeir sem aðhyllast þó ekki sé nema eitt af þessu ,litla“, sem upp er talið hér, ,guði andstyggilegir". Mér finnst að prestar og sóknarnefndarmenn ættu að at- huga stórmál sem þetta því eins og þeir, þ.e. prestar, ættu að vita er enginn millivegur til. Við getum ekki bæði þjónað guði og satan með það fyrir augum að komast sem þjónar guðs í hans Paradís. Þess vegna ætti kirkjan að brýna meira fyrir fólki þetta mál því hér er um líf og dauða að tefla í upprisu á komandi dómsdegi. Hvers vegna er svo algengt að fólk leiti til andanna í vanda- málum sínum? Þó segir Biblían okkur að andarnir og satan og þá öll hans illu verk séu ekki eilíf „heldur munu eydd verða" í eldi á hinum æðsta degi. Væri ekki skynsamlegra að leita til guðs, okkar skapara, sem gefur eilíft líf öllum þeim sem á hann trúa heldur en að leita til hinna dauðu vegna hinna lifandi? Annars ,,vil“ ég ekki hafa þetta bréf lengra, því mörgum finnast önnur málefni hærra upp hafin, en guð sagði alltaf að við „skyldum heldur fara eftir hans boðorðum en mannanna boðum“ og við vit- um að allt sem við þurfum að Það er ekki nóg að eiga Biblíuna heldur verður að lesa hana og breyta eftir því sem í henni stendur. vita stendur í bók guðs, Biblí- unni. Eftir lestur hennar lærir maður að breyta rétt og virki- lega að gera það með glöðu geði. Það er engin lygi sem prestarnir segja: „Hamingjuna er að finna í guðs orði“. í því sambandi er rétt að minna á það að við höfum svo sem ekki farið varhluta af sænsku menningunni er sjón- varpið sýndi þ. 14. janúar sl. þá örgustu klám- og svínarís- mynd sem hefur sézt á skerm- inum okkar. SAM og hans sálufiélagar kalla þetta víst menningu, bara af því að það var sænsk mynd. Eg vil leyfa mér að endur- táka það að mér finnst sumt bandarískt sjónvarpsefni ekki sérlega vandað en það er aldrei LJÓTT. Klám sést aldrei og ég hefi aldrei heyrt sjónvarpsþul tilkynna að efnið, sem í vændum var, VÆRI EKKI VIÐ HÆFI BARNA. Mikið er um skot og hvelli í kúrekamyndun- um (sem eru þeirra fornsögur) en ávallt er það hið illa sem verður undir að lokum og sýnt er og sannað AÐ GLÆPIR BORGA SIG EKKI. Mér hefur stundum dottið í hug hvernig fornsögurnar okkar tækju sig út á skermin- um með Flosa í broddi fylk- ingar, og verið væri að kljúfa menn t HERÐAR NIÐUR eða eitthvað ennþá verra. Mikla TÖMATSOSU þyrfti ef slík mynd yrði tekin í litum. Vafalítið þætti slík mynd ekki vera við hæfi barna og ekki heldur taugaveiklaðs fóiks. Hvíthaus

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.