Dagblaðið - 05.07.1977, Síða 7

Dagblaðið - 05.07.1977, Síða 7
I) V.;Ul, \f)H). l>Klt)JUI)A(iUR 5. JULl 1977. 7 Pakistan: BYLTIWG HERSINS — Ali Bhutto ífangelsi, ásamt öðrum stjórnmálamönnum — allt rólegt í landinu segir útvarpið í Pakistan Ginzburg handtekinn Alexander Ginzburs, sovézki andófsmaóurinn, hefur verió tekinh fastur í Moskvu. Ilann á yfir höfói sér allt að 10 ára fangabúðavist. Hann er einn þeirra sem stjórn Carters hefur barizt f.vrir að fá lausan opinber- lega. Það var félagi Ginzburgs, sem skýrði frá því að hann hefði verið handtekinn. Hann sagði að hann hefði verið sakaður um andsovézk- an áróður. Ginzburg er einn af Helsinkihópnum svonefnda. Hann hefur verið formaður samtaka, sem hafa það á stefnuskrá sinni að aðstoða fangelsaða andófsmenn og fjölskyldur þeirra. Hann hefur einnig stutt Alex- ander Solzhenitsyn. Mannræningi á Kennedy- flugvelli: Skaut á fjóra menn — særditvotil ólífis Ungur svertingi sagðist orðinn þreyttur á meðferð þeirri sem hann yrði að þola i Bandaríkjunum og rændi þess vegna áætlunarbifreið með 24 farþegum og neyddi hana til að aka út á Kenndy- flugvöll. Þar krafðist hann þess að fá afhentar sex milljónir dollara og flug- vélar til að fara með sig til Kúbu. Stóð í stappi við mann- ræningjann í um tíu tíma frá hádegisbili í gær og lét hann áætlunarbifreiðina aka út á flugbrautir hvað eftir annað. Skaut mannræning- inn á fjóra menn, særði tvo til ólífis og aðrir tveir voru fluttir i sjúkrahús. Flugvél, tilbúin til að fara til Kúbu, var ræst og tilbúin til flugtaks.en til þess kom ekki að hún yrði notuð þar sem mannræninginn gafst upp áður. Pakistan: Flóð Mikil flóð urðu í borginni Karachi i Pakistan, eftir mestu úrkomu, sem komið hefur þar í 41 ár. í flóðunum fórst 271 maður. Herinn var kvaddur til hjálpar til að hreinsa til eftir þessa miklu monsúnrigningu. Heilbrigðisyfirvöld í Karachi hafa hafið bólusetningar til að reyna að koma i veg fyrir að farsóttir breiðist út. Flóðið hefur m.a. valdið því að óökufært er um sum stræti borgarinnar og hefur þurft að loka vegum. Það tók einnig með sér 60 þúsund tunnur af efnum, sem notuð eru í olíuhreinsunar- stöð í borginni. Hernum hefur nú tekiz.t að safna saman þessum tunnum, sem næstum tveggja metra háar öldur rifu úpp. Að minnsta kosti 200 mm úrkoma varð á 12, tímum. Þetta varð til þess að Lyari- og Malir- áin sem renna í gegn um borgina og eru venjulega mjög vatnslitlar, flæddu langt yfir bakka sina og tóku með sér '.ýbýli þess fólks. sem bjó á árbökkunum. Ali Bhutto fagnar eftir kosningasigur i marz. Stjórnarbylting hefur verið gerð í Pakistan og forsætisráð- herra landsins Zulfikar Ali Bhutto hefur verið settur í fangelsi ásamt öðrum ráða- mönnum. Þessar fréttir komu í útvarpinu í Pakistan um klukkan þrjú í nótt. Utvarpið hélt dagskrá sinni fyrir utan tilkynninguna um byltinguna sem var gerð af hernum. Síðustu vikur hafa farið fram viðræður milli Alf Bhutto for- sætisráðherra og stjórnarand- stöðunnar, sem í eru níu stjórn- málaflokkar, um það hvernig skuli haga nýjum kosningum. Stjórnarandstæðingar krefjast kosninga vegna þess að þeir segja að þær síðustu séu ekki gildar þar sem Bhutto hafi. falsað kosningatölurnar. A tímabili fannst mönnum þessar viðræður ætla að ná einhverju fram og jafnvel Bhutto var búinn að gefa yfirlýsingar um að hann samþykkti nýjar kosn- ingar. Utvarpið í Pakistan segir að allt sé rólegt í landinu og stjórnarbyltingin hafi verið gerð án þess að gripið hafi verið til vopna. Vörður hefur verið settur við allar mikil- vægar byggingar og eins er vörður í borgum landsins. Zulfikar Ali Bhutto Fyrrverandi forsætisráð- herra, Zulfikar Ali Bhutto, er 49 ára að aldri. Hann var for-' sætisráðherra árið 1971 þegar Pakistan var í stríði við Ind- verja og sama ár lýsti Austur- Pakistan yfir sjálfstæði og heitir nú Bangladesh. Eftir stríðið við Indverja var landið illa statt og Bhutto einsetti sér að reyna að ná því upp úr þeim öldudal sem það var t. Lands- menn eru um 65 milljónir, flestir ólæsir. Árið 1973 sór Bhútto embættiseið sem fyrsti for- sætisráðherra landsins. Pakistan hafði verið einræðis- ríki í 13 ár og æðsti maður landsins forseti. Bhutto trúði á kenningar sósialista, þrátt fyrir það að hann sé afkomandi ríkrar fjölskyldu. Bhutto er menntaður á Vesturlöndum. Hann lauk lagaprófi frá Oxford og stundaði einnig laganám i Bandaríkjunum. Hann samdi nýja stjórnar- skrá fyrir landið sem er mjög sniðin eftir trúarbrögðum landsmanna sem eru múhameðstrúar. Bhutto varð fyrst ráðherra 1 stjórn Ayub Khan árið 1958 og árið 1966 varð hann utanríkis- ráðherra, en sagði af sér vegna vanheilsu, eins og það var orðað. Það mun þó vera réttara að hann hafi farið og samið við Indverja í því stríði sem Pakistanar áttu í í Kasmír- héraðinu. Bhutto hefur setið í fangelsi fyrr, eða árið 1968. Þá var lýst yfir neyðarástandi í landinu og Bhutto sat inni í þrjá mánuði. Eins og fyrr segir hafði Bhutto verið gagnrýndur mjög af stjórnarandstöðunni á síð- ustu mánuðum og hafði hann samþykkt að láta fara fram nýjar kosningar í október í ár vegna þeirrar gagnrýni. Pakistan Pakistan varð ríki fyrir 30 árum. Það varð til vegna trúar- bragðadeilna á Indlandi. Það voru Hindúar og múhameðstrú- armenn sem deildu. Þeir siðar- nefndu tóku sig upp og héldu til lands þess, sem nú nefnist Pakistan. Milljónir manna fluttu búferlum og er talið að (pessir fólksflutningar séu með peim mestu í heimi, að minnsta kosti á siðari árum. Þetta gerðist svo að segja í sama mund og Indverjar fengu sjálfstæði. I ágúst 1947 fékk Pakistan sjálfstæði sitt. en áður en það fékkst höfðu milljónir manna fallið í bardögum. Það var Mohammed Ali Jinnah, sem var bæði hershöfðingi landsins og forseti. Hann lézt árið 1948 og varð það mikið áfall fyrir þjóðina. Arió 1955 var svo stofnað ríkið Pakistan og ný stjórnar- skrá gerð. Þá tók við embætti Mirza og var hann hers- höfðingi og forseti landsins. Hann hafði völdin á hendi í tvö ár. Þá tók við Ayub Khan, stjórnandi hersins. Það var upphaf þrettán ára einræðis í landinu. I stjórn hans tók Bhutto fyrst sæti og hefur verið nálægt stjórnun landsins síðan.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.