Dagblaðið - 27.07.1977, Side 23
DAOBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAC'.UR 27. JULI 1977.
23
Utvarp
Útvarp kl. 20.20 á sumarvöku:
biadið
er smáauglýsinga blaðíð
LJTIHATIÐ
að Ulfljótsvatni um verslunarmannahelgi
Forsala aðgöngumiða er hafín
Flugfélag íslands veitir 20% afslátt til og frá
Reykjavik gegn framvisun aögöngumiöa.
Sögu/egur róður
— upp kom eldur og maður féll fyrir borð
„Já, hann gekk heldur illa og
sögulega fyrir sig, róöurinn sá,“
sagði Haraldur Gfslason fyrrum
formaður í Vestmannaeyjum sem
samdi erindi er hann nefnir Brot-
sjór og eldur og flutt verður í
útvarpið á sumarvökunni í kvöld.
Fór Haraldur í róður þennan
undir lok sumarvertíðar í maí
1941. Siglt var út frá Heimaey og
vildi Haraldur ekki róa, en út-
gerðarmaðurinn þrýsti svo fast á
að róið yrði að hann lét undan.
Voru þeir þá á línuveiðum á um
25 tonna báti, sem þótti afar
heppileg stærð þá. Var þá farið út
að kveldi og línan lögð, beðið
fram eftir nóttu og haldið inn um
morguninn, hét það að liggja með
línu.
I ferð þessari var teflt á tæp-
asta vað, fengu bátsverjar yfir sig
mikinn brotsjó og lagðist bátur-
inn á hliðina. Enn meira gerðist í
hinni sögulegu sjóferð þegar upp
kom í bátnum eldur og einn báts-
verja féll útbyrðis.
Á þessum árum, stríðsárunum,
var fiskirí hjá bátum allt í kring-
um landi nokkuð gott því heims-
styrjöldin, sem þá stóð*sem hæst,
veitti fisknum í sjónum vernd
fyrir ágangi veiðiskipa.
-BH
Kristján Jónsson leikari ætlar að
lesa i útvarpið í kvöld um hina
sögulegu sjóferð sem Ilaraldur
Gíslason fór á stríðsárunum.
Útvarpkl. 20.00: ^
Kristinn Hallsson og Árni
í Reykjavik verða miðar seldir i sölutjaldi i Austurstræti ásamt
Rauðhettu bolum og húfum kl. 12-21.
Þá verða miðar seldir á eftirtöldum stöðum:
ísafirði, Akureyri, Húsavik, Egilsstööum, Vestmannaeyjum,
Borgarnesi, Akranesi, Keflavik, Selfossi.
Verð aðgöngumiða kr. 5.000.
Islenzk einsöngslög eru á dag-
skrá útvarpsins i kvöld klukkan
20.00. Ætlar þar Kristinn
Hallsson óperusöngvari að syngja
nokkur lög við undirleik Árna
Kristjánssonar. Heldur er ósenni-
legt að Kristinn sé á þessari mynd
að syngja íslenzkt einsöngslag,
öllu líklegra að þarna sé hann að
syngja ástarsöng úr léttri, ítalskri
óperu.
Með hverjum aðgöngumiða fylgir
getraunaseðill með 5 léttum
spurningum. Á mótinu verður
dregið úr réttum úrlausnum og
vinningshafi verður nýjum Austin
Mini rikari.