Dagblaðið - 11.08.1977, Side 3

Dagblaðið - 11.08.1977, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. ÁGUST 1977. 3 N. Hugleiðing um illkynjað æxli ríkisbáknið Spurning dagsins Hvað hefðir þú gert hefðir þú fundið peningabrúsa þýzka rœningjans Lugmei- ers? Gunnar Gunnarsson skrifar: Þó þú vinnir tólf mánuði á ári færðu ekki nema tiu mánuði borgaða. Hinir tveir fara beint i skatta, eða 1 /6 allrar starfsorku þinnar. Það þýðir að eftir 60 Til lesenda Enn einu sinni þurfum við að minna þá á, sem senda okkur línu, að hafa fullt nafn og heimilisfang eða símanúmer með bréfum sínum. Nú er svo komið að við höfum hér á ritstjórn- inni alls konar bréf frá Jónutn og Guðmundum, en það er bara ekki nóg. Ef þið viljið að greinar ykkar birtist þá verður fullt nafn og heimilisfang að fylgja. Hægt er að skrifa undir dul- nefni, ef þess er óskað sér- staklega. Þeir, sem hafa ekki séð greinar sínar hér á síðunum, vita hér með ástæðuna. ára starf ertu búinn að þræla i 10 ár kauplaust. Svo þegar þú ert búinn að borga skattinn þinn og kaupir þér eitthvað fyrir afganginn af peningunum heldur þú áfram að margborga skatt af þínum skattlögðu tekjum. T.d. kaupir þú þér bíl og borgar 90% toll til ríkisins, 20% söluskatt til ríkisins, gúmmígjald af dekkjunum sem fylgja bílnum, þungaskatt við skráningu bílsins og svo heldur áfram, t.d. borgar þú veggjald af bensíni, sem á að renna óskipt til vega- ' gerðar, en gerir það ekki o.s.frv. o.s.frv. Spurningin er auðvitað sú, hve mikið af tekjum fólks fer i rauninni til ríkisbáknsins, kannski 90% eða meira? Það væri athugandi fyrir einhvern stærðfræðing.... nei fyrir ein- hverja tölvu að reikna það út. Hve mikið af tekjum fólks fer i rauninni til rikisbáknsins? Myndin sýnir starfsmann skattstofunnar taka við skatt- framtölum borgaranna. Gra-na hyltingin. Njólar og græn bylting Ingimundur Sæmundsson skrifar: Það er víst fallegra að sjá njólabreiður en vel hirta mat- jurtagarða að áliti borgaryfir- valdanna. Við Skiidinganes voru áður matjurtagarðar fólks en síðan var ákveðið að koma grænu byltingunni á þar við síðustu kosningar. Síðan græna byltingin hófst þrífst þar mittishár njóli. Njólinn er að vísu grænn en það eru jú kál- jurtirnar líka. Meðan engar framkvæmdir eru virðist skyn- samlegra að rækta matjurtir þarna en að leyfa njólanum að vaxa þarna engum til gleði. Hið sama gildir um Njarðar- götuna út í Skerjafirði. Þar eru spildur sinn hvorum megin götunnar í algerri órækt og mætti gjarnan nota þær til ein- hverra arðbærra hluta. Umgengni við ísaksskóla Helga Magnúsdóttir, Bólstaðar- hlíð, hringdi. Helga vildi vekja athygli á slælegri umgengni við Isaks- skólann. Þar er girðingin brotin niður, allt í glerbrotum og hluti af túninu hefur verið sleginn en ekki rakaður. Sem sagt hroðaleg útgerð á skólanum. Tónabær er við hliðina á skól- anum og þaðan berst ýmis ósómi, svo sem glerbrot og fleira. Þessi skóli var til fyrir- myndar þegar ísak Jónsson stjórnaði honum og því er leiðinlegt að sjá svona um- gengni. I lok mánaðarins koma börnin í skólann og þá ættu þeir sem hlut eiga að máli að sjá sóma sinn í að koma hlutun- um í lag. Guðrún Gunnarsdóttlr, vlnnur hji Öryggiseftlrlitinu: Það er nú það. Ætli ég hefði ekki látið lög- regluna fá þá í von um góð fund- arlaun. Jóhann Jóhannsson bifvélavirfci: Ætli ég hefði ekki látið lðg- regluna fá þá. Ég held varlaaðég hefði notað þá sjálfur. Guðmundur Þórarinsson iðnaðar- maður: Ég hefði reynt að koma þeim fyrir á einhvern arðbæran hátt. Það er nú hægt að kaupa ýmislegt fyrir þessa peninga. Baldvin Matthfasson söiumaður: Ég hefði farið með þá eins og skot til lögreglunnar, en hins vegar hefði ég þegið fundarlaun. Guðrún Gísladóttir kennari: Því er vandsvarað. Ætli maður hefði ekki skilað þeim til lögreglunnar. Ég hefði ekki viljað hafa það &. samvizkunni að vera með þetta fé. Sigurgeir Arnason bíistjóri: Nú veit ég ekki. Þetta er erfið spurning. Ætli maður myndi ekki skila þeim til yfirvalda. V

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.