Dagblaðið - 23.08.1977, Page 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. AGUST 1977.
9
Prófkjör framsóknarmanna á Vestfjörðum:
FYLGISTEINGRÍMS
JAFNTRAUST OG
VESTFJARÐABJÖRGIN
En Gunnlaugur Finnsson vann
óvæntan sigur um annað sætið
Fylgi Steingrims Hermanns-
sonar meðal framsðknarmanna
á Vestfjörðum virðist jafn-
traust og Vestfjarðabjörgin.
Hann bar höfuð og herðar yfir
aðra I prófkjöri framsóknar-
félaganna á Vestfjörðum, en
því lauk um helgina.
En togstreitan stendur um
annað sæti og þá milli tveggja
manna, sem báðir vilja hreppa
hnossið og berjast hat-
rammlega til sigurs.
1 prófkjörinu bar Gunnlaug-
ur Finnsson frá Hvilft, vara-
þingmaður flokksins, sigur úr
býtum. Hlaut hann um 100 at-
kvæðum meira en Ölafur Þ.
Þórðarson, Súgandafirði, til
annars sætis á lista Framsókn-
arflokksins. Kom þessi mikli
sigur Gunnlaugs yfir Ölafi
nokkuð á óvart, þvi Olafur
hefur sótt mjög fast eftir 2.
sætinu á listanum.
Ölafur Þ. Þórðarson hlaut
alls 270 atkv. en þau skiptust
verulega milli efstu sæta
listans.
Jónas R. Jónsson frá Melum 1
Hrútafirði, sem skipaði 5. sæti á
listanum við siðustu kosningar,
varð nú í 4. sæti í prófkjörinu,
en Bogi Þórðarson, sem skipaði
4. sæti á lista flokksins við
síðustu kosningar gaf nú ekki
kost á sér.
í prófkjöri framsóknar-
félaganna á Vestfjörðum munu
rúmlega 600 manns hafa at-
kvæðisrétt. Atkvæðisréttar
neyttu 360 manns. -ASt.
Blaðað í skattskránum:
Hvað greiða
flugforstjór
ar í skatt?
Fyrir nokkrum dögum var birtur listi yfir opinber gjöld
nokkurra æðstu starfsmanna Flugleiða.
Mistök urðu við uppsetningu lista, sem fylgdi greininni og
birtum við því fréttina aftur vegna nokkurra áskorana lesenda DB.
Við byrjum á 3 forstjórum þess
fyrirtækis og síðan koma 5 fram-
kvæmdastjórar aðaldeilda. For-
stöðumenn deilda eru 15 hjá
Flugleiðum en auk þeirra birtum
við opinber gjöld tveggja yfirflug-
stjóra Flugfélags íslands og Loft-
leiða.
En það eru fleiri flugfélög og í
lokin eru það forstöðumenn
þriggja „litlu“ félaganna. Þeir
Helgi Jónsson (Flugskóli Helga
Jónssonar), Elíeser Jónsson
(Flugstöðin) og Guðjón Styrkárs-
son lögmaður og aðaleigandi
Vængja hf.
Sá siðastnefndi hefur reyndar
áður verið á dagskrá í skattaþátt-
um DB og sögðum við þá frá þeim
ánægjulegu tíðindum að hagur
hans hefði mikið batnað frá
siðasta ári.
Við verðum því miður að taka
öll orð okkar í þá veru aftur.
Af skattskránni virðist enga
ályktun vera hægt að draga um
tekjur eða afkomu hins ágæta
forustumanns Flugfélagsins
Vængja.
Þær upphæðir sem lagðar eru á
hann samkvæmt skattskrá bera
með sér, að skattar hafa verið
áætlaðir en ekki útreiknaðir sam-
kvæmt framtali. Þess vegna getur
vel verið að afkoma lögmannsins
verði jafn slæm þetta árið sem
og í fyrra.
STULKAN
í NÆSTA
HÚSI
NÝTUR
SÓLAR
Sumarið var síðbúið sunnan-
lands en gægðist þó loks fyrir
horn. Þegar sólar nýtur eru húsa-
garðar og svalir fullar af fólki —
oftar en ekki kvenfólki — sem
liggur ábúðarfullt uppíloft og
sogar að sér birtu og yl.
Meðal þeirra einn sólardaginn
fyrir skemmstu var „stúlkan í
næsta húsi“ við R.Th.Sig., ljós-
myndara DB, sem tók þessa
skemmtilegu mynd á bak við
gardínuna i stofu mömmu sinnar.
FORSTJÓRAR FLUGLEIÐA HF. Tekjusk. Eignask. Útsvar Bamab. Gj.samt.
AJfrefl Elíasson 3.188.980 193.330 1.214.000 48.750 4.547.569
Sig. Helgason 1.119.983 633.633 503.900 48.750 2.208.766
öm Johnson 2.047.244 272.401 964.200 3.283.845
FRAMKVÆMDASTJÓRAH ADALDEILDA FLUGLEIÐA HF.
Ðnar Hslgason 832.457 24.110 516.400 1.372.967
Hörflur Sigurgestss. 1.201.066 549.700 121.875 1.872.641
Jóhannes Einarss. 1.629.468 315.952 608.200 121.875 2.431.745
Jón Júlíusson 932.325 107.254 459.900 1.499.479
Martin Petersan 1.076.715 97.307 459.800 48.750 1.682.572
FÓRSTÖÐUMENN DEILDA FLUGLEIÐA HF.
Gunnar Helgason 969.372 70.764 407.200 268.125 1.179.211
Finnbj. Þorvaldss. 977.089 120.432 458.100 121.875 1.433.746
Sveinn Sæmundson 395.733 32.360 285.100 48.750 664.443
Þórannn Jónsson 845.667 12.701 399.700 48.750 1.209.318
Halldór Guflmundsson 840.860 51.380 403.700 1.295.940
Grótar Br. Krístjánss. 1.005.126 23.585 455.200 195.000 1.288.911
Sig. Matthíasson 935.355 31.140 400.600 1.367.095
Hans Indrífiason 568.847 1.761 347.700 195.000 723.308
Birgir Þorgilsson 897.945 30.324 416.300 1.344.569
Gylfi Sigurfinnason 520.003 314.700 195.000 639.703
Jakob Sigurflsson 451.040 6.617 306.200 763.857
Flemming Hólm 858.878 17.355 427.100 121.875 1.425.208
Gufim. W. Vilhjálms. 516.044 11.053 322.800 121.875 728.022
Birgir Einarsson 595.632 12.766 438.900 48.750 998.548
Bjöm Theódórsson 396.379 372.300 768.679
YFIRFLUGSTJÓRAR FLUGLEIDA HF.
Jóh. R. Snorrason 1.394.744 25.823 659.000 121.875 1.957.692
Ásgeir Pótursson 1.896.916 45.797 735.800 48.750 2.727.263
FORUSTUMENN 3 „LITLU" FLUGFÉLAGANNA
Gufljón Styrkársson 1.438.618 573.680 528.000 121.875 2.418.423
Helgi Jónsson 57.090 156.400 195.000 18.490
Elíeser Jónsson 478.876 34.097 323.700 48.750 787.923
FJÁRPLÓGSSTARFSEMI -
„Þess vegna er full ástæða til
að vara alvarlega við
Innhverfri íhugun og starfsemi
hennar. Hún á ekkert erindi
hingað til lands. Það er alger
fölsun á staðreyndum þegar
henni er lýst svo að hún sé
aðeins sakleysisleg ytri
tækniieg meðferð til að læra
slökun og afslöppun til þess að
geta betur mætt streitu og
erfiðleikum daglegs lífs. Hún
hefur trúarlegan grundvöll
þegar hún er brotin til mergjar.
Þessi trúarlegi grundvöllur er
sóttur í indversk spekirit
Hindúismans og er í algerri
andstöðu við kenningar
kristinnar trúar" (undirst.
blm).
Þessi orð eru tekin úr nýlegu
hefti af Orðinu, timariti
guðfræðinema. Þar ritar Jónas
Gíslason lektor við Guðfræði-
deildina grein sem hann nefnir
Innhverf íhugun, hvað er það?
Sýnir Jónas, að eigin sögn,
fram á það með ýmsum rökum,
að innhverf íhugun sé trúarlegs
eðlis þrátt fyrir fullyrðingar
ýmissa forstöðumanna
hreyfingarinnar um að svo sé
ekki. Vitnar Jónas m.a. í ýmis
helgirit hreyfingarinnar, sem
eru skrifuð á sanskrít. Þegar
búið er að þýða ritin sem
enginn hefur fram til þessa
skilið nema forstöðumaður
Innhverfrar íhugunar kemur í
ljós, að sögn Jónasar, að ákaft
ákall á leiðsögn guðsins Brama
er þar að finna. Jónas segir þó
að flestir þeir sem læra
íhugunina geri sér enga grein
fyrir því hvað þarna sé á ferð
og hyggi þeir að aðeins sé um
merkingarlaus orð að ræða, orð
sem séu til þess eins ætluð að
auka slökun hugans.
Mótmœli
1 tilefni af grein Jónasar
hefur Innhverfa íhugunar-
félagið gefið út frétta-
tilkynningu þar sem orðum
hans er harðlega mótmælt. Þar
segir m.a.: „Innhverf íhugun er
einföld huglæg tækni til að
þroska fullt andlegt atgervi
mannsins og líkamlega heilsu á
eðlilegan hátt. Hún er iðkuð
tvisvar sinnum á dag 15-20 mín.
í senn. Tæknin byggist ekki á
kennisetningum heldur á
grundvallarlögmálum
mannshugans og er því
algerlega óháð trúarbrögðum
og lífsskoðunum “ (undirstr.
blm). Mótmælir fél’agið „þeim
rakalausu og ósönnu fullyrðing-
um“ sem Jónas setur fram.
Að sögn Reynis Santuar, eins
kennara hreyfingarinnar af
þrem, hugleiddi hreyfingin
jafnvel að fara í mál við Jónas.
Málið var borið undir
Maharishi Mahesh Yoga, for-,
mann hreyfingarinnar og sagði
hann orðrétt að þvi er stendur í
fréttatilkynningunni:
„Þeir sem taka mark á orðum
þessa prests þyrftu að gera sér
grein fyrir því hvers þeir fara
á mis i heilbrigði og llfs-
hamingju. Þeim sem trúa presti
skal ráðlagt að halda sig frá
Innhverfri íhugun þar eð þeir
kjósa heldur að þjást í von um
að gullna hliðið ljúkist upp
fyrir þeim á efsta degi. Þeim
sem trúa presti er ráðlagt að
hefja ekki iðkun Innhverfrar
ihugunar ef ske kynni að þeir
lentu í neðra. Hreyfingin er
ekki í aðstöðu tii að verjast
svo barnalegum umsögnum
(undirst. blm) en þeir sem
fylgja kenningum klerks skulu
minntir á að athuga hvaða
framfarir verða i lífi þeirra."
Með fréttatilkynningunni frá
Innhverfa íhugunarfélaginu
fylgja staðhæfingar þriggja
bandariskra presta þar sem
þeir fullyrða skriflega að inn-
hverf íhugun eigi ekkert skylt
við trúarbrögð af neinni
tegund. Einnig var blm. sýnd
kennslubók I innhverfri
Ihugun. Þar rita formála tveir
heimsþekktir menn, Hans
Selye sem er einn fremsti
sálfræðingur heims í þeirri
grein er fjallar um áhrif streitu
á mannslíkamann, og Buck-
mester Fuller vinur okkar
Islendinga. Þeir staðhæfa báðir
að hreyfingin eigi ekkert skylt
við trúarbrögð.
Svar
Við þessu hefur Jónas svar I
grein sinni. Þar segir hann að
það sé ekki von að menn geri
Sér grein fyrir trúargrundvelli
hreyfingarinnar því „beinlínis
er tekið fram að engin
ástæða sé til að gjöra mönnum
sem hefja íhugun grein fyrir
þvi hvert hún leiði að lokum ef
menn haldi henni áfram".
Peningar
önnur hlið málsins sem deilt
er um eru fjármál hreyfingar-
innar f kringum innhverfa
íhugun. Jónas drepur á það i
grein sinni að árlegar tekjur
Yoga séu taldar nema sem
svarar 1200 milljónum
íslenzkra króna, það er að segja
tekjur af vígslu nýnema einna,
aðrar tekjur eru þar ótaldar. I
nýlegri grein i tímaritinu Time
er einnig komið inn á þessi mál
og þar er sagt frá nýrri
söluvöru hreyfingarinnar, þvl
að læra að fljúga.
Þessu hefur hreyfingin
einnig mótmælt harðlega og
segir þar að samtökin starfi án
ágóða fyrir almenningsheili.
Ekki skal neitt fullyrt um það
hér en það er víst að hver
nýnemi sem vigður er þarf að
greiða sem svarar vikulaunum
sínum við vígsluna (21 þús. hér
á landi) og rennur það fé til
Gúra Dev, sem er gælunafn
Yoga.
Flestir muna eflaust eftir þvi
þegar hinir einu sönnu Bftlar
settust við fætur Gúrus og
námu fræði hans. Siðan þá
hefur hreyfingin orðið að
heimsveldi en f greininni i
Time er fullyrt að þvl heims-
veldi fari hnignandi. Deilur um
hreyfinguna gætu þó aukið veg
hennar á ný. -DS.