Dagblaðið - 13.09.1977, Page 1
Þreyttustu gestir
Loftleiðahótelsins
r———^
Höfðu ekki
sofiðnema
6 klst. frá
þvíáföstudag
Hlýjar viðtökur biður þeirra
loftbelgsbrotsmanna Abruzzo og
Anderson á Hótel Loftleiðum. Úti
á hlaði tók Helga Ingólfsdóttir
fulltrúi á móti þeim og bauð þeim
inn, þar sem stóð hótelstjórinn
Eriing Aspelund og bauð þeim
fria dvöl á Loftleiðahótelinu og
bað þá vel að njóta.
Þeir félagar fengu litla hvíld
fyrstu klukkutímana því stanz-
lausar símahringingar voru til
þeirra víðs vegar að úr heiminum
Á miðnætti tókst Erling Aspe-
lund að fá Abruzzo til að koma í
slysadeild Borgarspítalans. Voru
þar saumuð 4 spor í skurð sem
hann hlaut á eyra. Það sár hlaut
hann við að rekast á stiga í lend-
ingu belgsins á ísafjarðardjúpi.
I hótelinu var einnig, Irving
Rantanen fulltrúi bandarísku
Þennan skjöld bar Ioftbelgurinn, skrásetningarnúmer belgsins er á
honum og nafn hans Double Eagle. 1 poka sem félagarnir björguðu
m.a. var talsvert af sérstimpluðum pósti, merki í tilefni flugsins og svo
hafði einhver beðið þá fyrir vínflösku yfir hafið!
-DB-myndir Sv. Þorm.
„Hér er allt til reiðu sem við getum veitt og þið eruð gestir Hótels Loftleiða," sagði Erling Aspelund
hótelstjóri er hann tók á móti loftbelgsmönnum. Við hlið Erlings er bandarískur sendiráðsmaður, sem
m.a. bauð þeim ný vegabréf ef á þyrfti að halda. DB-mynd Sv. Þorm.
uppl. þjónustunnar sem bauð
þeim aðstoð m.a. ný vegabréf
hefðu þeir týnt sínum fyrri. Svo
var ekki, þau voru þurr og klár á
sínum stað.
Þeir Abruzzo og Anderson urðu
svo hvíldinni fegnir loksins er
hún fékkst. Þeir höfðu ekki sofið
nema u.þ.b. sex klukkustundir
síðan þeir lögðu upp frá Marsh-
field s.l. föstudag.
ASt.
Forysta íslands undir Ólöfu komin
Ölöf Þráinsdóttir sat í gær-
dag í nær 10 tíma við skákborðð
og hafnaði einbeitt jafnteflis-
boðum þýzku skákkonunnar
Berglitz. Sigri Olöf, hefur
tsland náð forystu í 6-landa
keppninni í Lukkuborg. Olöf
lék biðleik í gærkvöldi. Staðan
var flókin:
ÓLÖF: Kóngur á c-3, hrókar á
al og a3, biskup á d3, peð á c4,
d5, e4 og f2.
BERGLITZ: Kóngur á b6.
hrókur á a8, riddari a5, biskup
a g4 og peð á b3, d6, e5, f3 og
h5.
SJA NANAR A BAKSIÐÚ
Geirfinnsmálið:
Enn frekari dómsrannsókn, yfirheyrslur og
vitnaleiðslur að kröfu verjendanna
Yfirheyrslur, vitanleiðslur
og samprófanir í Geirfinnsmál-
inu hefjast að nýju í dag eftir
nokkurt hlé sqmkvæmt kröfu
verjenda þeirra manna sem
sitja í fangelsi og sakaðir eru
um að vera valdir að dauða
Geirfinns Einarssonar og
Guðmundar Einarssonar.
Rannsóknarmenn hafa sett
saman heildarmynd af at-
burðum þeim er leiddu til
dauða þessara manna. Þrátt
fyrir framburði sem oft hafa
verið mjög á reiki er sú mynd
sem helzt er byggt á gerð á
grundvelli þeirra framburða.
Á grundvelli þeirrar heildar-
myndar, sem fengizt hefur eru
banamenn og aðildarmenn
ákærðir til refsingar. Hefur
verið stefnt að því að
málfutningur í sakadómi
hefjist ekki síðar en í nóvember
næstkomandi.
Sem fyrr segir hafa fram-
burðir hinna sökuðu manna
verið mjög á reiki og í þeim
beinar mótsagnir. I sumum
veigamiklum atriðum ber svo
alvarlega á milli að verjendur
hinna sökuðu gæzlufanga, telja
brýna og óhjákvæmilega
nauðsyn bera til þess að t ltekin
atriði séu enn á ný rækilega
skoðuð.
Furðulegt samræmi hefur
verið um framburði og frásagn-
ir um atburði sem reynzt hafa
uppspuni og tilbúningur frá
rótum. Þá hafa gæzlufangarnir
ekki síður ýmist staðhæft eða
dregið til baka staðhæfingar
um atvik, sem eru þættir f
heildarmyndinni sem ákærur
styðjast við og lögð eru til
grundvallar þeim.
Ef ekkert nýtt kemur nú
fram við yfirheyrslur, vitna-
leiðslur og samprófanir, má
telja víst að mál þessi verði
tekin til flutnings fyrir saka-
dómi. -B.S.