Dagblaðið - 13.09.1977, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 13.09.1977, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞKIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1977 11 tvöfaldazt. Verkamaöur með meðallaun sem eyddi fjörutíu Krónum á dag til að komast til vinnu, þarf nú að eyða 140 krónum. Það fara því um fimmtán prósent meðal- launanna í ferðirnar einar. Það er því vart að furða þó að almenningur bölvi leigubil- stjórum í sand og ösku. — 80 prósent samgangna í landinu fara fram í leigubílum. — En þeir yppta bara öxlum og benda á hversu hátt bensínverðið sé. Þeir fá 20 lítra fyrir 620 krónur. Það er langtum ódýrara en gerist og gengur í Evrópu en fyrir Líbana er þetta hreinasta okur. I rústunum af markaðshverfi Beirútborgar (souk), þar sem eitt sinn var furðulegt völund- arhús eldgamalla smágatna, prútta viðskiptavinirnir og verzlunarfólkið um allt milli himiris og jarðar. Þessi verzlunarmáti er þeim eigin- leikum háður að þá borgar fólk það fyrir vöruna sem því finnst sanngjarnt. Síðan borgara- styrjöldinni lauk er sanngirnis- markið orðið mun hærra. Avextir ög grænmeti hafa tvöfaldazt L verði því bændur geta, ef þeir vilja, selt alla framleiðslu sína til nágranna- landanna þar á meðal Sýrlands. AIls staðar í markaðshverf- inu rífs fólk yfir verðlaginu. „Fyrir stríðið,“ segir kona nokkur, „borgaði ég 65 pistara fyrir kilóið af sítrónum (um 40 kr.).“ „Fyrir stríðið". Það er sama hvort rætt er við kristna menn eða múhameðstrúar. -Fyrir stríðið kostuðu vörurnar minna. Fyrir stríðið lifðu kristnir menn og múhameðs- trúarmenn saman í sáft og sam- lyndi. Fyrir stríðið var allt betra. . Þá 19 mán. sem stríðið stóð í Líbanon þurfti þjóðin að þola margt. Nær 60 þúsund manns létu lífið, hundruð þúsunda urðu heimilislausar og tjón á mannvirkjum og tapaðar tekjur námu um 12 milljörðum dollara. Iðnaðurinn í landinu varð fyrir alvarlegum skakka- föllum. Flestar verksmiðjur í hæðunum fyrir utan Beirút voru eyðilagðar. Ferðamanna- straumurinn, sem gefur hvað mestar gjaldeyristekjur af sér, lá niðri á meðan borgara- styrjöldin var háð. Þrátt- fyrir alla eyði- legginguna er allt óðum að færast í eðlilegt horf á ný, þótt það verði aldrei sama horfið aftur. Enduruppbygging og fjárfesting verður að bíða þar til pólitísk lausn er fundin, en á meðan beðið er færist líf al- mennings í hversdagslegra horf. Léttiðnaður í landinu er einna fyrstur til að taka við sér. Hann gefur nú af sér um tvo þriðju hluta þess sem hann gerði fyrir stríð. Verzlanir og veitingahús í Beirút opnuðu fljótlega eftir að friður var saminn og nú er borgin óðum að verða höfuðborg Araba- ríkjanna á nýjan leik, hvað neyzlu varðar. Þeir útlendingar sem heimsækja Líbanon eftir strlðið verða að greiða hátt verð fyrir vörur og þjónustu. Þeir hafa heldur enga tryggingu fyrir því að stríð brjótist ekki út á nýjan leik. Mörg fyrirtæki fluttu sig um set til Aþenu eða landanna við Persaflóann. Sumir fóru jafnvel ennþá lengra. Þeir þora ekki að koma aftur. Jafnframt hindrar hátt verðlag marga I að snúa til baka. En erlend fyrirtæki hafa auga með landinu. Að undan- förnu hafa til dæmis Alþjóða gjaldeyr'issjóðurinn, Alþýðu- bankinn og Kuwaitsjóðurinn til efnahagslegrar uppbyggingar I Arabararíkjunum heimsótt landið, svo að nokkrir séu nefndir. Financial Times Á atkvæðaveiðum með óbyggðastefnu Nú að undanförnu hafa borgaryfirvöld Reykjavíkur og pólitískar kllkur þar ráðist á byggðastefnuna, sem bölvald I atvinnumálum borgarinnar. Árinni kennir illur ræðari. Það má nú segja. Það verður að telja furðulegt að sæmilega vitibornir menn skuli láta sér sllka vitleysu um munn fara. Auðvitað er þetta ekki byggðastefnunni að kenna að neinu leyti. Miklar framfarir í borginni Það vita allir að miklar fram- farir hafa átt sér stað á höfuð- borgarsvæðinu á undanförnum árum. Ekki eru mörg ár síðan Breiðholtið og Arbæjarhverfi voru móar og melar og ekkert annað. En þarna hafa nú risið stórar blokkir; sem gerðu fólki kleift að eignast íbúðir. Á Artúnshöfðanum hefur lika risið iðnaðarhverfi. Allt eru þetta framfarir og margt fleira. Að kasta skít I byggðastefnuna er blekking ein til þess að draga dul á að þarna hefur raunverulega verið illa stjórnað. Nú þegar líður að kosningum keppast pólitísku klíkurnar um að auglýsa sig á ýmsan máta, þar á meðal þennan. Forsenda byggðastefnu Hvers vegna hefur byggða- stefna verið I málefnasamningi núverandi og fyrrverand ríkis- stjórna? Það virðist mér vera vegna þess að ráðamönnum þjóðarinnar var og er ljóst að landið verður allt að byggjast upp. Fyrir nokkrum árum voru mörg byggðarlög mjög illa stödd. Atvinnuleysi og ömur- legur mórall sem skapaðist við rothöggið þegar síldin var búin. Nú hafa mörg þessi byggðarlög tekið kipp I framförum og vel- megun. Það skal þakka byggða- stefnunni og störfum Fram- kvæmdastofnunar ríkisins ásamt heimamönnum á þessum stöðum. Enn eru samt mörg byggðarlög eftir þar sem rikir tímabundið atvinnuleysi eftir árstímum. En að tala um að byggðastefnan hafi gengið of langt er kjaftæði. Vmsir ónéfndir spekingar hafa verið með Imugust á uppbyggingu einstakra byggðarlaga. „Þetta borgar sig ekki. Betra er að láta þetta fara I eyði,“ segja þessir fuglar. Eg hef hvergi séð það út- reiknað að Breiðholt borgi sig. Kannski einhver hinna lærðu spekinga vildi vera svo vænn að reikna út hagkvæmni Breið- holts miðað við sjávarpláss úti á landi. Það má alveg eins segja að Breiðholt hafi aldrei átt að verða til eins og að segja að byggðastefnan hafi gengið of langt. Það segir bara enginn vegna þess að það er bara heimskulegt. Auðvitað verður hvort tveggja að haldast I hendur. Það er ekki endalaust hægt að þenja út þjónustuiðnað sem hefur svo engu að þjóna. „Misvœgi" atkvœðagildis Fyrir skemmstu voru nokkrir hálffiðraðir pólitíkusar á höfuðborgarsvæðinu að þvæla um það hversu óréttlátt það væri að atkvæði úti um lands- byggðina gildi meir til alþingis- kosninga heldur en atkvæði á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Þarna var „klíku-pólitík“ á þessu svæði að verki. Byggða- stefnan er tekin meðal annars vegna þess að þingmenn kjör- dæmanna úti um land hafa margfalt fleiri sveitarfélögum að sinna heldur en þingmenn höfuðborgarsvæðisins og komast ekki yfir verkið. Þótt fjarlægðin geri fjöllin blá og mennina mikla, þá skapar fjar- lægðin milli þingmanns og sveitafélags sambandsleysi milli þessara aðila sem ein- hvern veginn verður að vega upp á móti. En að fara að tala um óréttlæti 1 þessu sambandi er út I hött. Kjallarinn Óréttlœti Oréttlæti er að það skuli vera tífalt dýrara að tala I slma úti á landi. Það er líka óréttlæti að þurfa að borga allt að fimmfalt hærra verð fyrir að kynda hús úti á landi. Hiti (varmi) er eitt form orku, rafmagn annað, vatnsorka er líka orka og úr Krístinn Pétursson vatnsorkunni fáum við raforku með virkjun. tJr olíunni fáum við orku með þeirri efnabreyt- ingu sem við köllum bruna. Við kaupum bensín á bílinn á sama verði hvar sem er á landinu. Það er réttlæti. öll orka keypt til almennra nota, svo sem húsahitunar, lýs- ingar og svo framvegis, ætti að vera jafndýr hvar sem er á landinu. Heitt vatn er uppspretta orkulindar úr jörðinni. Þetta er náttúruauðlind sem við fslend- ingar eigum allir. Eða hvað? Það væri tilvalið sem sparnaður í ríkisbúskapnum að öll orkumál (raforka, heita- vatnsorka) væri samræmd undir eina stofnun, orkustofn- un, og allar hitaveitur og raf- magnsveitur felldar undir þessa stofnun. Þar væri verði svo jafnað og selt pr. hitaeiningu til húsahit- unar og svo framvegis. Þetta tal um orku er nú útúrdúr til þess að lesendur skilji meininguna. Óréttlæti er það ennfremur að íbúar landsbyggðarinnar borga mikiu hærra vöruverð heldur en Reykjavíkingar. Og jafnframt hærri söluskatt því honum er smurt á eftir að flutningskostnaði og álagningu hefur verið bætt við. Svo mætti lengi telja. En ég læt þetta nægja. Léleg fjármálastjórn borgarstjórnarinnar Haustið 1974 sat ég ráðstefnu Sambands sveitarfélaga sem fulltrúi þess sveitarfélags er ég á heima I. Aðalmál þeirrar ráð- stefnu var gerð fjárhags- áætlana fyrir sveitarfélögin. Til fyrirmyndar var höfð fjárhags- áætlun borgarinnar árið 1974. I marz 1975 kom svo I fréttum I fjölmiðlum að borgin hafi samið við Seðlabankann um 550 milljóna króna lán til fimm ára vegna skuldasöfnunar borgarinnar við bankann árið 1974. Þarna þurfti engan byggða- sjóð til að leysa vandann. Önnur sveitarfélög hefðu vafa- laust þegið samskonar lán frá Seðlabankanum. Það ætti heldur ekki að vera erfitt fyrir iðnað á þessu svæði eða jafnvel borgina sjálfa að snapa lán til framkvæmda með banka á hverju götuhorni I miðbænum. Það myndu allavega vera inn- lend lán. Borgarstjórinn þarf ekki að öfunda útgerð af lánum Byggðasjóðs því það eru þýzk lán og markið stígur en islenzka gengið slgur. Þvílíkt dýrðarián. Nú heyrist talað um borgar- leikhús og borgarbókasafn fyrir samtals um þrjá milljarða. Þetta er sjálfsagt nauðsynleg fjárfesting og arðbær. Um það skal ekki dæmt. 1 annan stað má svo nefna það að borgarstjórinn kann ekki að gera út. Kaup BUR á spönsku 1000 tonna togurunum sanna það. Aldrei hafa verið keypt jafn vonlaus fiskiskip til útgerðar og þessar blikkbeljur enda reknar með bullanJi tapi. Fiskurinn úr þessum togurum er lika með verri hráefnum. Engir fiskikassar notaðir heldur er fiskinum mokað með kvlslum úr stíunum I löndunar- mál, eins og var gert um alda- mótin. Ég segi blikkbeljur því þessi skip þola ekki siglingu 1 Is. Þetta getur borgarstjórinn sannprófað og komið róandi til baka á gúmmibátnum. Fyrir hvern þessara togara hefði verið hægt að kaupa einn og hálfan af gerðinni 400-500 tonn ef tekið er inn I dæmið allur aukakostnaður sem var þegar þessi skip komu til landsins, þvl byrja þurfti á þvi að breyta heilmiklu áður en þau voru nothæf. Borgarstjórinn ætti að hafa svolítið fleiri „hámenntaða sér- fræðinga" á sínum snærúm. Þá hefðu þeir kannski komið að notum við þessi skipakaup. Það væri áreiðanlega hollt fyrir borgarstjórnina að drífa sig til Vestfjarða og kynna sér útgerð. Vœlukjóar Væl borgarstjórnarinnar um fyrirsjáanlegt atvinnuleysi hefur við lítil rök að styðjast. Þessir menn eru bara að auglýsa sig og rembast hver um sig að sýnast beztur „verndari borgarinnar gegn byggða- stefnubölinu," Það er ekki byggðastefnunni að kenna þótt borgarstjórnin kunni ekki að gera út. Það er hægt að sanna það að borgin hefur hagnazt á byggðastefnunni. í hvert sinn sem framkvæmdir á einhverju meiriháttar hefjast úti á landi þurfa framkvæmdaaðilar að Dyrja á að hlaupa milli Pontíu- sar Pílatusar og Heródesar I borginni og hver tekur sinn skatt. öll verkfræðiþjónusta, opinber þjónusta og fleira er staðsett I Reykjavík. Borgin fær svo 11% af vinnulaunum þeirra er þjóna I það og það skiptið I formi útsvarstekna. Siðan þarf að leita tilboða hjá fyrirtækjum staðsettum I Reykjavík úm efniskaup. Þá fer fjármagnið til Reykjavíkur aftur sem fengið var. Fyrirtækið sem seldi efnið var með nokkra menn 1 vinnu og þar halaði borgin aftur inn 11%, plús veltugjöld af fyrir- tækinu. Nú eí menn eru svartsýnir þá geta sveitarfélög úti um íand llka málað fjandann á vegginn. Hvað gerist ef þorskveiðar verða stöðvaðar um lengri eða skemmri tíma? Þá verður at- vinnuleysi út um land. En sveitarstjórnarmenn út um land ætla greinilega að leysa þennan vanda án þess að vera háskælandi framan I alþjóð. Áfram með byqgðastefnu Nú skal byggðastefnu haldið áfram þótt borgarstjórnin tár- felli. Það er ekkert við því að gera annað en rétta henni vasa- klút. Fólk á Reykjavíkur- svæðinu er ekkert á móti byggðastefnu, nema það sé rangt upplýst með . lævlsum áróðri. Reykjavík er falleg borg og geta Islendingar allir verið stoltir af þvi að eiga snyrtilega höfuðborg, Sjávarútvegur er undirstaða þess að búandi sé I þessu landi Þessi aðaltekjulind þjóðarinnar hefur verið hlunnfarin að þvl leyti að það vantar menn með verk- og tæknifræðimenntun og stórauknar hafrannsóknir og rannsóknir á nýjungum I fisk- iðnaði. Þær stofnanir, sem með þessar rannsóknir fara I dag, eru vel reknar en þar vantar meiri fjárveitingar. Þetta ætti borgarstjórnin að íhuga þvl framtlð landsins veltur á þvl að þessari grundvallartekjulind verði stjórnað af raunsæi og fiskistofnarnir verði ekki ofnýttir. Kristinn Pétursson sjómaður Bakkafirði

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.