Dagblaðið - 13.09.1977, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1977,
8
/*
Gosbrunnurinn í endanlegt horf næsta sumar:
VINDSHLLIR OG UOS
SKEMMD AF FIKTIBARNA
Kostnaður við gosbrunninn í
Tjörninni mun nú nema nálægt
sex milljónum króna eftir að
settir hafa verið upp 3 steinar
en á einum þeirra er kopar-
plata sem segir til um gefanda
gosbrunnsins, Replogle sendi-
herra Bandaríkjanna á tslandi
frá 1969 til 1972.
Upphaflega var settur á gos-
brunninn mjög næmur vind-
skynjari sem átti að ráða því
hvenær skrúfað væri fyrir og
frá gosbrunninum. En vind
skynjari þessi var hafður það
lágt yfir jörðu að börn komust
brátt í tækið og hafa gert það
óvirkt með fikti sínu. Einnig
voru í tengslum við vindskynj-
arann ljós þau er lýstu upp
gosbrunninn í fyrrasumar en i
sirmar hafa ljósin verið óvirk.
Fyrirhugað er næsta sumar að
flytja hinn næma vindskynjara
út í Tjörnina til að börn séu
ekki að fikta í honum og má þá
búast við gosbrunninum strax á
næsta vori, þráðbeinni bunu
upplýstri í mörgum litum.
BH
Neskaupstaður:
TILFINN ANLEGT TJÓN ÞEGAR
BÍLSKÚR BRANN
Tilfinnanlegt tjón varð í gær-
dag á Neskaupstað, þegar eldur
kom upp í bílskúr við íbúðarhús á
Hólsgötu. Húsið á sjómaður, sem
gerir út lítinn fiskibát, og geymdi
hann mikil verðmæti í bílskúrn-
um, m.a. 3 balla af nælonþorska-
netum, 30 uppsett net og nýtt
vélhjól sem ungur piltur á heimil-
inu átti. Allt eyðilagðist þetta
ásamt ýmsum öðrum munum fjöl-
skyldunnar. Slökkviliðið réð
niðurlögum eldsins og kom í veg
fyrir að meira tjón yrði á húseign-
unum.
-FÞ/JBP
JAFNRÉTTIÐ LIFI - Á BÁÐA BÓGA
Með jafnrétti hlotnasl konum
ekki eingöngu sæla heldur
einnig nokkrir erfiðleikar.
Fyrir nokkrum árum hefði
verið talið næsta furðulegt að
kona skipti um dekk á bil en nú
á tímum verða þær að láta sig
hafa það eins og annað. Ilún
Ragnbeiður (). Davíðsdóttir lög-
regluþjónn mátti því láta sig
hafa það að skipta um hjól-
barða á lögreglubílnuin á
meðan liigregluþjónarnir sem
með henni voru sinntu öðrum
skyldustörfum. Ekki virðist
Ragnheiður taka þetta nærri
sér, að minnsta kosti brosti hún
fallega til Sveins Þormóðs-
sonar.
- DS
Tilf ærslur innan
fjármálaráðuneytis
— Höskuldur Jónsson ráðuneytisstjóri,
Þorsteinn Geirsson skrifstof ustjóri
Höskuldur Jónsson viðskipta-
fræðingur og skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu hefur verið
skipaður ráðuneytisstjóri sama
ráðuneytis frá 1. nóvember nk.
Staða ráðuneytisstjóra var aug-
lýst í síðasta mánuði þegar Jón
Sigurðsson ráðuneytisstjóri ákvað
að kveðja og taka við starfi sem
framkvæmdastjóri Málmblendi-
verksmiðjunnar.
Ein umsókn barst og var hún
frá Höskuldi Jónssyni. Hann er
rétt liðlega fertugur að aldri.
Stöðu Höskuldar mun Þor-
steinn Geirsson taka, en Þor-
steinn er núverandi deildarstjóri
tolladeildar ráðuneytisins. Þor-
steinn er lögfræðingur að mennt,
36 ára gamall.
- JBP
Landinn spjararsig:
Matstaður í
New York
í baðstof ustíl
Eigandinn ung fslenzk kona
„Að koma inn til Palsson's á
heitu sumarkvöldi er eins og að
koma í vin í eyðimörk. Það er
dásamlegur staður sem útilokar
ys og þys strætisins." Þessi lýsing
er tekin úr blaði einu í New York
og þar lýsir Sylvia Robinson
nýjum veitingastað, fullkomnu
umhverfi og gómsætum réttum
sem eru á boðstólum. Þeir sem
eru ábyrgir fyrir staðnum eru
Robert Anzelowitz og Sella Pals-
son, sem raunar heitir Sesselía
Pálsdóttir og er dóttir hjónanna
Páls S. Pálssonar lögmanns og
Guðrúnar Stephensen.
Veitingastaðurinn Palsson’s
býður upp á ýmsa þjóðlega
norræna rétti og eru flestir
sjávarréttirnir komnir frá Is-
landi, svo sem reyktur silungur
kavíar, gravlax, marineruð sild og
fleira lostæti. Þá má ekki gle.vma
hangikjötinu, óvenjulegu sælgæti
með sérstöku bragði.
Þá stendur í greininni að inn-
réttingar séu hannaðar af Sellu,
sem er innanhúsarkitekt, og þá er
veggteppi gert af systur hennar,
Sigþrúði.
Dagblaðið hafði samband við
Sigþrúði, en hún er nú stödd á
heimili foreldra sinna í stuttu
leyfi, en fer brátt til náms ytra.
Hún sagði að Sella ætti staðinn að
þremur fjórðu, en hann var
opnaður 4. júli sl. Hún sér um
allan rekstur og bókhald en áður-
nefndur Robert um eldhús og
mannaráðningar. Veitingastaður-
inn er innréttaður i baðstofustíl
og matsalurinn tekur 60 manns.
Sigþrúður sagði að reksturinn
hefði gengið vel og staðurinn
hefði vakið hrifningu. Töluvert af
fastagestum sækti staðinn og
einnig leikarar frá Broadway.
Hún sagði að grein þessi hefði
birzt i sjónvarpsblaði, West Side
TV Shopper, sem dreift væri
ókeypis á vesturhlið Manhattan í
allt að tveimur milljónum ein-
taka.
- JH