Dagblaðið - 13.09.1977, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1977.
7
Erlendar
fréttir
Gierek og
D’Estaing
ræða af-
vopnun
Kosningar íNoregi:
Flokkur
Nordli vann
þingsæti
Norski verkamannaflokkur-
inn verður við völd næstu
fjögur árin, eftir mikinn
ko.sningasigur í þingkosningun-
um í Noregi 1 gær.
í nótt átti aðeins eftir að telja
nokkur atkvæði. Verkamanna-
flokkurinn og stjórnarflokk-
arnir þrír hafa nú alls 77 þing-
sæti. Þrátt fyrir að sigurinn
hafi ekki verið stór er litið á
úrslit kosninganna sem mikinn
sigur fyrir flokk Odvars Nordli
forsætisráðherra, formanns
Verkamannaflokksins.
Flokkurinn hafði 62 þingsæti a
síðasta þingi.Á 42 árum hefur
Verkamannaflokkurinn verið í
stjórn í öll þessi ár nema sjö.
Annar sigurvegari í kosning-
unum er Hægriflokkurinn einn
þriggja flokka í bandalagi
borgaraflokkanna. Flokkurinn
bætti við sig mörgum þingsæt-
um. Hann hafði 29 en hefur nú
42 þingsæti. Sósíalistaflokkur-
inn missti 15 þingsæti, hefur nú
aðeins eitt.
Talið er að sigur Verka-
mannaflokksins byggist að
nokkru leyti á því hver stefna
flokksins hefur verið í atvinnu-
málum.
Nordli forsætisráðherra Noregs getur verið ánægður með úrsiit
kosninganna. Hann lýsti því yfir að hann sæi ekki ástæðu til
stjórnarskipta eftir að tæp 80% atkvæða höfðu verið talin.
Lauda heims
meistari
— um 150 þúsund manns horfðu
á Grand Prix keppnina á Ítalíu
Forsætisráðherra
Póllands, Edward Gierek, er
nú i opinberri heimsókn í
Frakklandi. Gert er ráð fyrir
að Gierek og forsætis-
ráðherra Frakklands,
Valery Giscard d’Estaing,
hafi með sér þrjá fundi.
Væntanlega verður rætt um
afvopnun og takmörkun
vopna í heiminum.
Frakkland hefur ekki
tekið þátt i afvopnunarvið-
ræðum frá því snemma á
sjötta áratugnum. Eftir að
Frakklandsforseti hitti
Carter Bandaríkjaforseta og
Bresnev forseta Sovét-
ríkjanna að máli í sumar,
hefur Frakklandsstjórn
tekip upp þráðinn í af-
vopnunarviðræðum að nýju.
Talið er að Frakkland skýri
stefnu sína í þessum málum
fyrir fleiri ríkjum bráðlega,
t.d. Bandaríkjunum, Sovét-
ríkjunum, Kína og Bret-
landi.
Talsmaður stjórnarinnar
hefur sagt að Giscard muni
greina Gierek frá þvi að
Frakkar ætli nú að taka þátt
í afvopnunarviðræðunum í
Genf í Sviss.
Niki Lauda, austurríki
ökuþórinn, hefur hreppt titilinn:
Heimsmeistari í kappakstri, þetta
árið. Þetta er í annað sinn að
Lauda verður heimsmeistari.
Úrslit i Grand Prix
kappakstrinum, sem fór fram á
Italíu, urðu kunn á sunnudag.
Það var Bandaríkjamaður sem
sigraði í keppninni en Lauda varð
í öðru sæti og það mun duga
honum til þess að ná þessum eftir-
sótta titli sem margir kappar slást
um og hætta lífi sínu fyrir á
kappakstursbrautum. Lauda þarf
eitt stig í viðbót til að ná þessu
marki en hann á eftir að taka þátt
í þrem keppnum, einni í Kanada,
annarri í Bandaríkjunum og
þeirri þriðju í Japan. Enginn
annar kappakstursmaður er
nærri honum í stigatölu.
Mario Andretti frá Banda-
ríkjunum sigraði Lauda í Grand
Prix á Ítalíu, en það munaði 17
sekúndum á köppunum.
Um 150 þúsund manns horfðu á
kappaksturinn í Monz og hvöttu
Lauda og Andretti til dáða. Menn
klifruðu upp á alls kyns
auglýsingaskilti og annað til að
geta séð betur yfir kappaksturs-
brautina. 14 ára drengur lézt
þegar 15 metra hár pallur hrundi
og um 50 manns særðust en fólkið
hafði klifrað upp á pallinn sem
þoldi ekki þungann og féll niður.
Bandaríkin hafa samið við Panamastjórn að hún taki yfir skurðinn árið 2000.
„Rússar ná Panamaskurði”
—segir Ronald Reagan fyrrum ríkisst jóri
íKaliforníu og lízt ekkert á blikuna
Fyrrverandi ríkisstjóri í
Kaliforníu, Ronald Reagan, segir
í viðtali við blaðið Newsweek að
ef Panamastjórn ákveði að taka
við skurðinum árið 2000 muni
Bandaríkin lenda i sömu
vandræðum og Frakkar og
Bretar í sambandi við Suezskurð-
inn.
Reagan segir í viðlalinu að það
þýði ekkert að hugsa þannig að
Bandaríkin geti alltaf tekið við
yfirráðum yfir skurðinum aftur
þegar landið hefur einu sinni
látið skurðinn af hendi við
Panamaríki.
„Við vitum að Panama hefur
gott samband við Kúbu og að
Rússar voru þar i júlí. Ef Panama-
ríki ákveður að halla sér að Sovét-
mönnum endar með því að þeir fá
yfirráð vfir skurðinum," sagði
Ronald Reagan.
Grænland:
Stefna EBE
harðlega
gagnrýnd
—formaður héraðsst jórnarinnar
segir stefnu bandalagsins
óviðunandi ífiskveiðimálum
Lars Chemnitz, sem er for-
maður héraðsstjórnarinnar á
Grænlandi, hefur gagnrýnt
harðlega stefnu Efnahags-
bandalags Evrópu gagnvart
Grænlandi. Þeir sem sitja í
héraðsstjórninni koma til með
að sitja í heimastjórninni, sem
hefur verið ákveðið að taki við
árið 1979.
Grænland gekk í Efnahags-
bandalagið með Danmörku árið
1973, þrátt fyrir að
Grænlendingar væru mikið á
móti þvi.
Á fundi sem haldinn er á
hverju hausti i héraðsstjórn-
inni lét formaðurinn Chemnitz
í ljós þessa skoðun sína. Hann
sagði að stefna Efnahagsbanda-
lagsins í fiskveiðimálum við
Grænland væri algjörlega
óviðunandi fyrir landið. Hann
lagði til að Efnahagsbandalagið
beitti stefnu sinni á Grænlandi,
ef atkvæðagreiðsla félli banda-
laginu í hag þar.
Chemnits hefur verið álitinn
fylgjandi Efnahagsbanda-
laginu, þar til nú að hann gagn-
rýndi það harðlega í ræðu
sinni.
A strondinni eru hús sem þetía algeng. byggðin er höfó næst
ströndinni svo að seni stytzt sé að fara þegar sótt er á miðin.