Dagblaðið - 21.09.1977, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977.
Lítil saga um fasteignasala:
Afsal fyrír íbúð ekki afhent
þrátt fyrír að umsamið
verð hafi verið greitt
*«*?£*§«
eignanaust
LAUGAVEGI 96 _J|
(v»ó Stjómubió) VIJV
SIMI 29555 7 ■ \
k
Fasteignaumboðið
Pfisthússtræti 13
simi 14975
»1 Maimir LAruMon 76609
HUSANAÖSTI
-«wJS2'82«4
Það vantar ekki, nóg er af fasteignasölunum. En er allt þar sem
skyldi? Það telur bréfritari ekki.
Afsal skrifar:
Vegna fréttar í Dagblaðinu 5.
þ.m. um hert eftirlit með fast-
eignasölum datt mér í hug að
segja ykkur litla sögu sem
kunningi minn sagði mér um
viðskipti sín við einn slíkan.
Sýnir hún ljóslega vanmátt
viðskiptamanna við fasteigna-
salana:
28. apríl 1976 gerði þessi
kunningi minn kaupsamning
um litla íbúð og greiddi kr.
2.000.000,— við undirskrift,
en afsal skyldi gert 1. ágúst það
ár um leið og eftirstöðvar yrðu
greiddar.
íbúðin var keypt af aðila sem
upphaflega keypti hana af
Raddir
lesenda
Til lesenda
Enn einu sinni þurfum
við að minna þá á, sem senda
okkur línu, að hafa fullt
nafn og heimilisfang eða
símanúmer með bréfutn
sínum. Nú er svo komið að
við höfum hér á ritstjórn-
inni alls konar bréf frá
Jónum og Guðmundum, en
það er bara ekki nóg. Ef þið
viljið að greinar ykkar
birtist þá verður fullt nafn
og heimilisfang að fylgja.
Hægt er að skrifa undir dul-
nefni, ef þess er óskað sér-
staklega.
Þeir, sem hafa ekki séð
greinar sínar hér á siðunum,
vita hér með ástæðuna.
byggingafélagi en varð af
persónulegum ástæðum að
selja hana þá.
Þegar Ieið að afsalsdegi og
kaupandi hafði samband við
fasteignasöluna átti að athuga
málið. En nokkru síðar fékk
fasteignasalinn kaupanda til að
greiða seljanda að mestu skuld
sína við hann þar sem seljandi
var að kaupa aðra íbúð. Sú
greiðsla fór fram tæpum
hálfum mánuði eftir að afsal
átti raunverulega að vera frá-
gengið. Kaupandi átti nú eftir
þetta í miklu símastrlði við fast-
eignasalannogeinkaritara hans
en yfirleitt var ekki nokkur leið
að ná tali af þeim. I tvö skipti
náðist þó í fasteignasalann og
lofaði hann þá hátíðlega að
ganga frá málinu, jafnvel lofaði
hann að hringja til kaupanda
daginn eftir. Nú eru liðnir tæp-
ir 17 mán. frá undirskrift kaup-
samnings og ekkert gerist.
Fyrir 2—3 mán. fékk þessi
kunningi minn lögmann til að
ganga í málið, en fasteignasal-
inn svarar ekki einu sinni bréf-
um hans eða símahringingum.
Þó náði lögmaðurinn (fast-
eignasalinn er auðvitað lög-
maður líka) einu sinni tali af
honum þar sem þeir hittust, og
var þá lofað að láta einkaritar-
ann ganga frá þessu en þrátt
fyrir öll loforðin gengur ekkert.
Þegar kaupsamningur bygg-
ingafélagsins og seljanda er
skoðaður ásamt öðrum gögnum
er sjáanlegt að afsalsdagurinn
1. ágúst 1976 fær ekki staðizt í
kaupsamningnum því að
síðasta greiðsla Húsnæðismála-
stjórnar mundi ekki koma til
útborgunar fyrr en um haustið
og eignin því þinglýst á nafn
byggingafélagsins til þess tíma.
Þá átti eftir að ganga frá afsali
milli byggingafélagsins og selj-
anda. Þrátt fyrir þessa ann-
marka lætur fasteignasalinn
ganga frá slíkum pappírum.
Auðvitað mátti honum á sama
standa þar sem kaupandi (í
trausti þess að allt væri lög-
legt) hafði skrifað undir og
fasteignasalinn gat því hirt
sínar eitt hundrað þúsund
krónur.
Erfiðleikar þessa kunningja
mins vegna þessa máls eru
miklir, en hann er sjúklingur
og kemst ekki einu sinni milli
húsa hjálparlaust. Hann hefur
ekki getað fengið lán út á fast-
eignina til að létta undir með
sér þar sem eignin er enn þing-
lýst á nafn byggingafélagsins.
Haft hefur verið simasamband
við byggingafélagið og seljanda
og er þar sagt að á þeim standi
ekki, allir pappírar tilbúnir
hvenær sem óskað er. Lög-
maður kaupanda hefur fullt
umboð til að ganga frá pappir-
um fyrir hann, og á engu
stendur NEMA fasteigna-
salanum.
Því er spurt I lokin — er ekki
brýn nauðsyn til að þjóðfélagið
verndi viðskiptamenn slíkra
manna.
Hringið
fsána
83322
M. 13-15
Sá einhver
stuld á
barnavagni?
Kristín Gunnarsdóttir,
Baldursgötu 6, hringdi og
bað DB að koma þeim óskum á
framfæri að þeir sem sáu, er
barnavagni var stolið frá henni
fyrir utan Baldursgötu 6, háfi
samband við sig eða lögregluna.
Það var á miðvikudaginn að
barnavagninum var stolið með
sængurfötum og öllu tilheyr-
andi. Hann er gulur á litinn
með dökkbláum skermi,
skyggni og rönd á hlið, þriggja
ára gamall. Lögreglan hefur
lýsingu á manninum sem stal
vagninum en hann finnst ekki
og ekki vagninn heldur. Eru
því allir þeir, sem eitthvað vita,
beðnir að hafa samband við
Kristínu eða lögregluna.
Þegar horfzt er í augu vlð svona
hund skilur maður hræðslu
sumra við hunda.
V.
HUNDAEIGENDUR -
TIL 0KKAR HINNA
Inga Helgadóttir skrifar:
Vegna skrifa 0840-8343 þann
15.9. langar mig að benda á að
á þeim stöðum sem hundahald
er bannað er ekki ætlazt til að
utanbæjarmenn komi með
hunda sína og þar af leiðandi er
ekki nauðsynlegt fyrir verzlun-
areigendur að setja upp bann-
skilti fyrir hunda enda hlýtur
alltaf að vera óæskilegt að fara
með hunda eða önnur dýr inn í
verzlanir, og þá sérstaklega
matvöruverzlanir.
I framhaldi af þessu vildi ég
gjarnan benda hundaeigendum
á að það eru til margir menn
sem hræðast hunda og það á
bæði við um börn og fullorðna.
Þar sem ég er ein af þessu fólki
vil ég biðja hundaeigendur um
að sýna okkur vissa tillitssemi.
Eg bý í vesturbænum, nánar
tiltekið í Sörlaskjóli, og er svo
óheppin að í hverfinu hér í
kring eru að minnsta kosti 5
hundar/tikur. Ég hef reynt að
kynnast þessum hund-
um/tikum svolítið í þeirri von
að hræðsla min gagnvart þeim
dofni en þvi miður lýtur
hræðsian engri skynsemi né
rökum svo að í hvert sinn er ég
TAKIÐ TILLIT
mæti hundi (sérstaklega ef
hann er laus) verð ég bara að
taka þeim kvölum, sem óttah-
um fylgja. Eina ráðið fyrir mig,
ef ég vil losna undan því, er að
fara hvergi og verð ég~að
viðurkenna að oft tek ég þann
kostinn. Vil ég beina þeim til-
mælum til hundaeigenda að
þeir láti ekki hunda sína vera
lausa að þvælast.
Að endingu vil ég benda
þeim á, sem ekki skilja slíka
hræðslu við hunda, að líta í
eigin barm og athuga hvort
ekki leynist þar hræðsla gagn-
vart einhverju, t.d. köttum,
rottum o.s.frv. og ef svo er, að
reyna að hugsa sér hvernig
þeim liði ef þeir þyrftu að
upplifa þann ótta mörgum sinn-
um á dag.
Ég vil taka það skýrt fram að
þrátt fyrir óttann hef ég f sjálfu
sér ekkert á móti hundum sem
slíkum en hundaeigendur eru
oft á tíðum æði hugsunar- og
kærulausir.
r
Landsmálasamtökin STERK STJ0RN Laugavegi 84 > Sími 13051 Opiðkl. 5-7 alladaga