Dagblaðið - 21.09.1977, Side 4
■1
Lærið
að
fljúga
Flug er heillandi tómstundagaman og
eftirsóknarvert starf. Ef þú hefur
áhuga á flugi þá ert þú velkominn til
okkar í reynsluflug — það kostar þig
ekkert.
Nýkomið:
Kvenblússur,
kvenpils
mikið úrval
ELÍZUBÚÐIN
SKIPHOLTI5
Byggung Kópavogi
Okkur vantar handlangara og verka-
menn í byggingarvinnu strax.
Mikil vinna, gott kaup.
Uppl. i dag og á morgun að Hamraborg 1
3. hæð og í síma 44906
Bílaviðgerðir
Viljum ráða bifreiðasmiði eða rétt-
ingamenn, einnig aðstoðarmann á
málningarverkstæði og lærling í bíla-
smíði og bílamálun.
Bílasmiðjan Kyndill
Súðarvogi 36. — Símar 35051 eða 85040.
Málaskólinn Mímir
Lifandi lungumálakennsla. Mikið um nýjungar. Kvöld-
námskeið — síðdegisnámskeið. Samlalsflokkar hjá Eng-
lendingum. Léttari þýzka. íslenzka fyrir útlendinga.
Franska, spánska, ítalska. Norð'irlandamálin. Hin
vinsælu ensknnámskeið barnanna. Unglingum hjálpað
fyrir próf.
Innritun i sima 10004 og 11109 kl. 1-7 e.h.
Handgref ígóðmálma
Bikara, peninga, bamaramma,
skeiðar, mál, klukkurog margt fleira
HELGISN0RRAS0N
leturgrafari
/Vusturstræti 6., 2. hæð — Sími 29380
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977.
Alviðrudeilan:
Sýslumaður og yfir-
borgardómarinn
fyrrverandi mættu
ekki í réttinum
— deilt um 300 milljdna verðmæti — laxveiðiítök í
Soginu og bezta sumarbústaðaland á Suðurlandi í veði
Sýslumaðurinn í Arnessýslu,
Páll Hallgrímsson, og formaður
Landverndar, Hákon
Guðmundsson, fyrrverandi
yfirborgardómari, sáu hvorug-
ur ástæðu til að mæta fyrir rétti
í fyrradag, er setudómari tók
fyrir kröfu um riftun gjafa-
bréfs til handa Árnessýslu og
Landvernd á jörðunum Alviðru
í ölfushreppi og öndverðarnesi
II í Grímsneshreppi.
Gefandinn, sem er Magnús
Jóhannesson, bóndi, hefur
krafizt ógildingar gjafabréfsins
á þeim forsendum, að mót-
takendur gjafarinnar hafi
vanefnt að miklu leyti og brotið
þau skilyrði, sem sett voru við
gerð bréfsins.
Ljóst, er að hér er deilt um
verulegar fjárhæðir. Jörðin
Alviðra er góð bújörð og hefur
meðal annars veruleg
laxveiðiítök í Soginu.
öndverðarnes II er nær 100
hektarar að stærð og er talið
eitthvert dýrasta og mest eftir-
sótta sumarbústaðaland á
Suðurlandi.
Er af kunnugum talið að hér
sé jafnvel um að ræða
verðmæti upp á 300 milljónir
króna.
Gefandinn reyndi lengi vel
að fá fulltrúa Arnessýlu og
Landverndar til viðræðna um
hinar meintu vanefndiren þeir
syöruðu litlu eða engu tilmæl-
um hans.
Sá hann sér ekki annað fært
en að stefna þeim fyrir dóm-
þing Arnessýslu og var stefna á
hendur þeim gefin út 15. marz
siðastliðinn.
Sýslumaður Arnessýslu vék
úr dómi og var Friðgeir Björns-
son, borgardómari skipaður
setudómari í málinu.
29. júní siðastliðinn var lögð
fram greinargerð af hálfu
Landverndar og Árnessýslu.
Einnig kom gefandin fyrir rétt.
Fulltrúar Landverndar og
sýslunnar mættu ekki.
Næst var málið tekið fyrir 3.
september siðastliðinn, þá kom
Haukur Hafstað framkvæmda-
stjóri Landverndar fyrir
.réttinn en hvorki sýslumaður
Árnessýslu né formaður Land-
verndar.
Enn var réttað í málinu í
fyrradag. Höfðu þeir þá til-
kynnt, sýslumaðurinn og borg-
ardómarinn fyrrverandi, að
þeir mundu ekki mæta þar sem
lögmaður þeirra væri veikur.
Þó mættifulltrúi hans en sjálfir
boðuðu þeir engin lögleg forföll
að mati mótaðila.
Meðal þeirra ástæðna, sem
gefandinn getur um sem for-
sendur fyrir riftun gjafa-
bréfsins, nefnir hann að allar
ákvarðanir og framkvæmdir á
jörðunum skuli vera í höndum
þriggja manna nefndar. í henni
á gefandinn sæti.
Hafa móttakendur gjaf-
arinnar nú um nokkurt skeið
algjörlega hunzað þetta skilyrði
og gengizt fyrir framkvæmdum
án þess að ráðgast við gefand-
ann, Magnús Jóhannesson.
Samkvæmt upplýsingum
Friðgeirs Björnssonar
setudómara í málinu verður
það tekið fyrir aftur næsta
laugardag.
-ÓG.
Flosi Jónsson í gullsmíðabúð sinni. — DB-mynd Fax.
Nýr gullsmiður
á Akureyri
Ungur, sunnlenzkur gullsmiður
opnaði á dögunum guilsmíða-
vinnustofu á Akureyri. Flosi
Jónsson heitir hann og er úr
Kópavogi, sonur Jóns Björnsson-
ar gullsmiðs.
Á Akureyri hefur aðeins einn
gullsmiður verið starfandi fram
að þessu. Án efa verður nóg rúm
fyrir báða, og trúlega munu báðir
hagnast á eilítilli samkeppni.
-FAX-
Nýir banka-
st jórar á Sel-
tjarnarnesi
og Siglufirði
Hilmar Gunnarsson var í gær
ráðinn útibússtjóri Utvegsbanka
íslands í Seltjarnarnesbæ. Hilmar
hefur starfað hjá tJtvegsbankan-
um í 23 ár, lengst af sem gjald-
keri. Undanfarin ár hefur hann
verið aðalgjaldkeri 1 útibúi Ut-
vegsbankans i Kópavogi. Hann er
útskrifaður úr Verzlunarskóla
íslands og er nú 44 ára gamall.
Sigurður Hafliðason var einnig
I gær ráðinn útibússtjóri Utvegs-
bankans á Siglufirði. Hann er
sonur Hafliða Helgasonar, sem
hefur verið útibússtjóri á
Siglufirði. Hefur Sigurður um
árabil starfað við Utvegsbankann
á Siglufirði og tekur þvi við starfi
föður sins.
Nú er enn í byggingu hús Ut-
vegsbankans á Seltjarnarnesi. Er
gert ráð fyrir að byggingunni
verði lokið snemma á næsta ári.
Tekur þá bankinn til starfa þar,
og verður fyrsti bankinn í Sel-
tjarnarnesbæ.
Bankaráð Utvegsbankans
ræður bankastjóra i útibúum sin-
um.
-B.S.
Munið
Smámiða-
happdrætti
RAUÐA
KROSSINS
+