Dagblaðið - 21.09.1977, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977.
Menntamálaráðherra:
Lízt vel á
Vídishúsið
„Já, ég er kunnugur þessu
húsi frá gamalli tíð,“ sagði Vil-
hjálmur Hjálmarsson mennta-
málaráðherra í viðtali við DB er
hann var spurður að því hversu
kunnugur hann væri húsinu
sem nú stendur til að gera að
aðsetri menntamálaráðuneytis-
ins, Víðishúsinu að Laugavegi
166. Kvaðst hann oft hafa
komið í húsið á fyrri árum er
kunningi sinn starfaði þar og
einnig hefði hann nýlega farið í
skoðunarferð um húsið. „Mér
leizt vel á húsið og þar eru
miklir möguleikar fyrir hendi
til að koma sér vel fyrir,“ sagði
Vilhjálmur „litlar breytingar
þarf að gera á innréttingum
þess hluta hússins sem gert er
ráð fyrir að Ríkisútgáfa náms-
bóka taki fyrir sig.“
Vilhjálmur var inntur eftir
því hvort honum fyndist
kaupverð hússins, 259
milljónir, ekki fullhátt. Kvaðst
hann eiga erfitt með að leggja á
það sjálfstætt mat, það væri
mál sérfræðinganna.
Húsakaup ráðuneyta fara
aðeins um hendur viðkomandi
ráðuneytis, svo og fjármála-
U__
ráðuneytisins, að sögn mennta-
málaráðherra, og síðan endan-
lega fyrir Alþingi. Ríkis-
stjórnin sem slík hefur ekki
afskipti af þessu máli og er
þetta sá háttur sem á hefur
verið hafður við húsakaup
ráðuneyta til þessa. Ef um er að
ræða húsnæði fyrir Stjórnar-
ráðið hefur þriðja ráðuneytið,
forsæfisráðuneytið, einnig
afskipti af málinu.
Heimild er til í síðustu fjár-
lögum, nokkuð rúm, sem
kveður á um að Ríkisútgáfu
námsbóka sé heimilt að fjár-
festa í húseign en heimildar
Alþingis fyrir húsakaupum til
handa menntamálaráðuneytinu
verður þá væntanlega leitað á
þingi því er kallað hefur verið
saman til fundar mánudaginn
10. október nk. BH
Vilhjálmur vili í Víðishús —
þá verða full not fyrir aragrúa
af alls konar verkfærum því
húsið er naumast fokhelt-að
dómi sérfræðinga hans i
byggingarlist.
Reykjahlíð:
EKKERT HEITT VATN í GÓÐA VEÐRINU
SKJALDHAMRAR
ÍVASA
„Það var ekkert sem benti til
þess að veggurinn kynni að
springa," sagði Þorsteinn Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Kísiliðj-
unnar, í viðtali við Dagblaðið, en í
gær. brast veggur einnar þróar-
innar þar og streymdi mikið af
vatni og jarðvegi út. Við það
skemmdist hitaveituæðin úr
Bjarnarflagi til þorpsins við
Reykjahlíð á þrjátíu metra kafla.
„Við finnum ekki fyrir miklum
titringi hér en það hafa komið
einstöku kippir sem án efa hafa
haft áhrif á þrærnar," sagði
Þorsteinn ennfremur. „Hins
vegar teljum við að veggirnir hafi
skemmzt í umbrotunum hér um
daginn, í þá kunni að hafa komið
gliðnun og spruiigurnar fyllzt af
vatni.“
Unnið hafði verið að viðgerð á
hitaveitunni í allan gærdag og átti
henni að vera lokið undir kvöldið.
Veður var hins vegar hið fegursta
norðaniands í gær, sólskin og
a.m.k. fimmtán stiga hiti og fundu
menn því ekki tilfinnanlega fyrir
heitavatnsskortinum.
HP
Skjaldhamrar Jónasar Árna-
sonar voru frumsýndir í Vasaleik-
húsinu í Finnlandi fyrr i þessum
mánuði. Eyvindur Erlendsson
leikstýrir verkinu sem er sýnt í
pyðingu Inger Pálsson. Gagri-'
rýni finnskra blaða hefur mjög
verið á eina lund, mjög jákvæð:
„Leikhúsið var fullsetið áhorf-
endum, sem skemmtu sér hjartan-
lega út alla sýninguna....Leik-
húsið hefur vissulega byrjaó með
,,succé“, segir í einu þeirra,
Vasabladet.
Litur:
Ljósbrúnt leður
Litur:
Cognacbrúnt
leður
Stœrðir:
Nr. 36—41
Stœrðir:
Nr. 36—41
Stœrðir:
Nr. 36—41
Stœrðir:
Nr. 36—41
Litur:
Ljósbrúnt leður
Litur:
Ljósbrúnt leður
Stœrðir:
Nr. 36—41
Stœrðir:
Nr. 36—41
Stœrðir:
Nr. 36—41
Verð kr. 15.950
Stœrðir:
Nr. 36—41
Verð kr. 14.430
ITOLSK „SUPER”-TIZKA - LEÐURSTIGVEL - FOÐRUÐ
Skóverzlun Þórðar Péturssonar Kirkiustræti8vAustunöit
Sími 14181 — Póstsendum