Dagblaðið - 21.09.1977, Page 6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAÍIUR 21. SEPTEMBER 1977.
Suður-Afríka:
Vorster forsætisráðherra gagnrýnir
Breta og Bandaríkjamenn fyrir
afskipti mála
Forsætisráóherra Suður-
Afrlku, John Vorster, hefur
boöað til kosninga 30. nóvem-
BOLTAR
ber fyrir hvíta þegna landsins.
Með þessu gengur hann þvert á
vilja Bandaríkjamanna og
Breta sem vilja að svartir í
landinu fái hlutdeild í stjórn
landsins.
Vorster hefur valið þennan
dag og notað tækifærið til að
efna til kosninga, meðan
leiðtogar stjórnmálaflokka
hvítra vita ekki í hvorn fótinn
þeir eiga að stíga.
Þjóðarflokkur Vorsters
hefur mikinn meirihluta á
þingi eða 132 þingsæti. Alls eru
171 sæti á þingi Suður-Afríku.
Vorster hc-fði ekki þurft að
efna til kosninga næstu 18
mánuði.
Forsætisráðherrann hefur
neitað því að uppþot 1 landinu
út af dauða eins leiðtoga
blökkumanna, Steve Biko, hafi
haft nokkur áhrif á ákvörðun
hans. Biko lézt í fangelsi fyrir
niu dögum og er talið að dauða
hans hafi ekki borið eðlilega að.
„Stjórnir sumara landa halda
að þær geti ráðskazt með innan-
ríkismál Suður-Afríku eins og
sín eigin,“ sagði forsætis-
ráðherrann á blaðamannafundi
í Pretoríu 1 gær. „Þið hafið ef-
laust tekið eftir þvl að ég hef
orðið að gefa þeim orð í eyra
vegna þessarar afskiptasemi
þeirra," sagði Vorster.
Rétt til að kjósa hafa 2.25
milljónir hvítra manna 1 Suður-
Afríku.
Útilíf
FÓTBOLTAR
/
Royal star gúmmíhúðaður
leðurbolti kr. 3.820.-
fnter^*
Top star plasthúðaður
leðurbolti kr. 2.710.-
Sport King plasthúðaður
leðurbolti kr. 2.870.-
Sport King „artificial“
Nýtt: leðurlíki kr. 3.660.-
HANDBOLTAR
Leðurhandboltar
Kr. 2.740.
BLAKBOLTAR
Leðurblakboltar
kr. 7.450.-
Glœsibœ. Simi 30350.
Tölvur ekki allar til góðs
Þessa dagana þinga stærstu
iðnaðarþjóðir heimsins í Vín I
Austurríki og fjalla á fundum sln-
um um tölvur. Rætt er um
hvernig stemma megi stigu við
því að alls konar persónulegar
uplýsingar um fólk, sem til er á
tölvuspjöldum, falli í hendur
þeirra, sem ætla að nota þær í
óheiðarlegum tilgangi.
Nokkur Evrópuríki hafa í
hyggju að feta I fótspor Svía og
Vestur-Þjóðverja og setja ströng
lög í sambandi við tölvur. Tekið
verður fyrir hvernig koma á í veg
fyrir að upplýsingar um ein-
hverja ákveðna persónu komist út
fyrir landamæri einhvers
ákveðin's lands.
Sá sem skipuleggur þessa
ráðstefnu heitir Hans-Peter
Grassman og hann sagði að bæði
almenningur og stjórnvöld væru
viss um að tölvuupplýsingar væru
oft á tíðum notaðar í óheiðarleg-
um tilgangi og mál væri komið til
að fjalla um hvernig hægt væri að
koma í veg fyrir sllkt.
Nýjar sendingar af,
vinsœlu fótlagaskónum
ó konur sem karla
Póstsendum
samdægurs.
Sími 18519
Domus Medica
Egilsgölu 3
Á barnum — í bílnum
einn dýrasti bfll íheimi afhentur eiganda sínum nýlega
Einn dýrasti bíll heimsins
hefur nýlega verið afhentur
eiganda sínum. Hann var af
tegundinni Rolls Royce og kost-
aði um 33 milljónir króna.
Kaupandinn er ríkisbubbi frá
Dubai, Bhatia Karani að nafni.
Hann pantaði alla aukahluti í
bílinn sem hægt er að fá. í
honum er svo auðvitað sími,
fullkomnasta gerð af hljóm-
tækjum og sjónvarp, en það
teljast nú orðið sjálfsagðir
hlutir í svona bíla. Að auki
hefur eigandinn pantað sér bar
í bílinn ef hann kynni að langa
I einn Iéttan á ferðum sínum í
honum.
Sextíu manns unnu að smiði
bílsins í 18 mánuði.
Gullsmiði hefur þurft til
aðstoðar vegna þess að bíllinn
er skreyttur gulli svona hér og
hvar. Hann vegur um tvö og
hálft tonn.
Young fer villur vegar
— í sambandi við f riðarumleitanir í Suður-Af ríku,
segirGeorge Ball
Fyrrverandi stjórnarmaður I
Bandaríkjunum, sem þjónaði I
forsetatíð Kennedys og Johnsons
hefur skrifað blaðagrein I
„Atlantic Monthly" þar sem hann
segir að Bandaríkjamenn fari
ekki rétt að í sambandi við
málefni Suður-Afríku.
Hann gagnrýndi sérstaklega
sendiherra Sameinuðu þjóðanna,
Andrew Young. „Young heldur
að hægt sé að nota sömu aðferðir I
Suður-Afríku og blökkumenn
nota 1 Ameríku," sagði George
Ball. Því miður, segir Ball, eru
hvítir menn ekki eins hugsandi
og hvltir menn voru I Banda-
ríkjunum árið 1960. Við munum
aðeins gera erfiðará fyrir
samningaviðræðum blökkumanna
og hvítra í Suður-Afríku, ef við
notum sömu hugtök þar og hér
heima í Bandaríkjunum, sagði
Ball. Hann tók það sérstaklega
fram að Bandaríkjamenn ættu
ekki að vera að státa sig af betra
siðgæði en Suður-Afríkumenn.
Andrew Young sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum.
Styrkið og fegríð líkamann
Nýtt 4ra vikna námskeið í megrunar- og friiarleikfimi
hefst 29. september
Innritun og upplýsingar alla virka daga
kl. 13-22 ísíma 83295.
Sturtur — Ijos — gufuböð — kaffi — nudd.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32