Dagblaðið - 21.09.1977, Qupperneq 10
10
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977.
MMBIABW
frfálst, úháð dagblað
Útgefandi Dagblaöið hf.
Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson.
Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar:
Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Simonarson. Aöstoðarfróttastjóri: Atli Steinarsson. Handrit:
Ásgrímur Palsson.
Blaöamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tomasson, Bragi SigurÖsson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur
Sigurösson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson. Katrin Pálsdóttir, Ólafur Geirsson,
Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár.
Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Höröur Vilhjálmsson, Sveinn Þormóösson.
Skrifstofustjori: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkori: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M.
Halldórsson.
Ritstjórn Síöumúla 12. Afgreiösla Þverholti 2. Áskríftir, auqlvsingar og skrifstofur Þverholti 11.
AAslsimi bloðsins 27022 (10 línur). Askrift 1500 kr. í mánuAi innanlands. i lausasolu 80 kr.
eintakiö.
Setning og umbrot: Dagblaöiö og Steindórsprent hf., Armula 5.
Mynda og plötugorö: Hilmir hf. Síöumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 19.
Óbeitáiðnaði
Við nálgumst nú þáttaskil í iðn-
þróuninni. Á næstu fimm árum
mun þjóðin standa eða falla með
því, sem gert verður í iðnaði.
Þetta viðurkenna flestir, en skilja
fæstir.
íslendingum fjölgar stöðugt, án þess að hinar
hefðbundnu atvinnugreinar geti aukið við sig
fólki. í landbúnaði starfa raunar helmingi fleiri
en þörf er á. Og fjöldi starfsfólks í útgerð og
fiskiðnaði takmarkast af þeim afla, sem unnt og
skynsamlegt er að ná.
I rúman áratug hafa það verið viðurkennd,
opinber sannindi, að iðnaðurinn yrði að taka
við verulegum hluta þess fólks, sem kemur á
vinnumarkaðinn á næstu áratugum. En það
getur hann einmitt ekki.
íslenzkur iðnaður er aðeins á fáum sviðum
samkeppnishæfur á erlendum markaði. Yfir-
leitt er framleiðni hans of lítil í samanburði við
hliðstæðar greinar í útlöndum.
Um þessar mundir er því ekki fyrirsjáanlegt,
að hann geti haldið uppi nútímalegum lífs-
kjörum í landinu eins og sjávarútvegur og
fiskiðnaður gátu til skamms tíma, meðan of-
veiðin var ekki farin að hefna sín í alvöru.
Samt verður iðnaðinum að takast þetta. Við
höfum ekki nema í eitt hús að venda, hús, sem
allt of margir hafa þegar komið auga á. Það hús
eru hin auðugu hálaunaríki heimsins, allt frá
Norðurlöndum til Ástralíu, sem menn flýja til
hópum saman.
Iðnkynningarárið íslenzka mátti því ekki
seinna vera. Ellefta stundin er upp runnin. En
það er.kannski ekki nauðsynlegt að kynna
iðnað fyrir almenningi. Fólkið í landinu er
yfirleitt hlynnt iðnaðinum. Hið sama er hins
vegar ekki unnt að segjaum ráðamenn landsins
á síðustu áratugum.
Iðnkynningin nær tilgangi sínum, ef hún
vekur athygli óvinveittra ráðamanna á gildi og
nauðsyn iðnaðar. Stjórnmálamennina má kalla
óvinveitta, af því að þeir hafa hvað eftir annað,
viljandi eða óviljandi, dregið taum annarra
atvinnugreina og á þann hátt þrengt kosti
iðnaðarins.
Þjóðhagsstofnunin viðurkennir í sérstakri
skýrslu, að lánsfé er haldið frá iðnaðinum. Því
er með margvíslegum aðgerðum stjórnvalda
beint til hinna hefðbundnu forréttindagreina,
sem fá það með sérstökum vildarkjörum.
„Þessu skipulagi hefur fylgt ósveigjanleiki í
skiptingu lánsfjár milli greina og nokkurt mis-
ræmi í lánakjörum. Hvort tveggja hefur
áreiðanlega hamlað gegn því, að lánsfébeindist
með eðlilegum hætti til þeirra fram-
leiðslugreina, sem til lengdar eru arðbærastar
fyrir þjóðarbúið,“ segir í skýrslu stofnunar-
innar.
Misrnununin i lánum og lánakjörum er súleið,
sem áhriíaríkast hefur haldið iðnaðinum niðri.
En hugarfarið er hið sama á öðrum sviðum.
Iðnaðurinn verður að borga hærri launaskatt
og aðstöðugjald en aðrar greinar, svo sem
viðurkennt er í framangreindri skýrslu
Þjóðhagsstofnunar.
Þessu verður að linna, ekki bara bráðum,
heldur nú þegar. Iðnaðurinn þarf jafnrétti á
við aðra. Hann þarf peninga til að byggja sig
upp og efla framleiðni sína, svo að þjóðin búi
við góð kjör og vilji ekki flýja til annarra landa.
r
Fordæma þá sem
reyna að breyta
þjóðfélaginu
með ofbeldi
— íþeirra hópi eru Heinrich Böll, Rudi Dutschke og
Herbert Marcuse
Aðkoman var ekki fögur eftir að Rauða breiðfylkingin hafði haft Hans Martin Schleyer á brott með
sér. Gerð var árás á bíl hans og feildir öryggisverðir sem gættu hans.
Ránið á vestur-þýzka iðnjöfr-
inum Hans Martin Schleyer
hefur að vonum orðið til þess
að margir hafa látið í ljósi álit
sitt á þeim hætti sem „Rote
Armee Fraktíon", eða Rauða
breiðfylkingin, hefur til að
vekja athygli á sér.
Oft hafa hinir ýmsu frammá-
menn, t.d. rithöfundar og heim-
spekingar, verið gagnrýndir
vegna þess að þeir styddu starf-
semi vinstrisinna. Það hefur
jafnvel verið sagt að þeir
styddu hryðjuverkastarfsemi
þessara samtaka, eins og t.d.
Baader-Meinhof samtökin.
Fordœmir þó sem
reyna að breyta
þjóðfélaginu
með ofbeldi
Nóbelsverðlaunahöfundur-
inn Heinrich Böll, sem er
þekktur fyrir gagnrýni sina á
þýzkt þjóðfélag, hefur sagt að
nann fordæmi pá sem reyna að
koma af stað breytingum eða
reyni að breyta þjóðfélaginu
með ofbeldi. Böll hefur tvívegis
að undanförnu fordæmt ránið á
Hans Martin Schleyer. Hefur
hann tvívegis á stuttum tíma
nýverið ritað greinar um þetta
mál í þýzka blaðið Die Zeit.
Böll, sem er 59 ára að aldri,
hefur meira en fordæmt ránið á
Schleyer, hann hefur skrifað
skilaboð til ræningjanna og
beðið þá að láta af því að hóta
að taka mannslif ef kröfum
þeirra verði ekki fullnægt.
Talið er að Böll hafi ritað
greinar sínar vegna þeirra
ásakana sem þýzkur stjórn-
málamaður lét falla í hans garð
og þeirra sem stutt hafa starf-
semi ýmissa hópa sem hafa lýst
sig andvíga ríkjandi skipulagi.
Stjórnmálamaðurinn sagði að
þeir menn sem það hefðu gert
skyldu nú reyna að hafa
ræningjana ofan af þvi að
myrða Schleyer.
Fyrrverandi
stúdentaleiðtogi
fordœmir aðgerðirnar
Það eru fleiri sem hafa látið í
sér heyra vegna ráns Rauðu
breiðfylkingarinnar á Schleyer.
Rudi Dutschke, sem var foringi
stúdenta á árunum fyrir 1970,
hefur lýst sig andvígan þeirri
ofbeldisbylgju sem gengið hafi
yfir Þýzkaland að undanförnu.
Hann hefur fordæmt þær
starfsaðferðir sem Rauða breið-
fylkingin notar og sagt að
þannig hafi vinstrisinnaðir
——
Andreas Baader, Guðrún Ensslin og Jan-Carl Raspe, meðlimir í
Baader-Meinhof hreyfingunni, þau sitja nú öll í lifstíðar fangelsi.
Ræningjar Sehleyers krefjast þess að þau verði látin laus ásamt
átta öðrum föngum.
andvígan þeim baráttuað-
ferðum sem borgarskæruliðar
nota. „Ofbeldi leiðir ekki til
sósíalisma," segir Rudi. „Við
vitum vel hvað ofbeldi
kapítalistanna er og það er
engin lausn að leysa það af
hólmi með öðru ofbeldi," segir
fyrrverandi leiðtogi róttækra
stúdenta.
Prófessor Marcuse hefur
sagt um rán Schleyers að það
leysi ekki neitt að taka einstakl-
inga úr umferð með ein-
hverjum hætti, eins og Rauða
breiðfylkingin hefur gert með
því að myrða Bubach og Ponto.
Kapitalískt þjóðfélag heldur
áfram að vera til og því er ekki
breytt með því að taka einn eða
tvo menn úr umferð. Því hefur
Marcuse sagt að hann sé algjör-
lega á móti þeim starfsað-
ferðum sem Rauða breið-
fylkingin notar og aðrir borgar-
skæruliðar einnig. Hann sagði
að miklar likur væri á þvl að
svona aðgerðir stuðluðu enn
meir að því að kapítalistar
kúguðu borgarana í þeim þjóð-
félögum sem þeir stjórna.
Einhver stuðningur
í hóskólunum
Blað sem gefið er út af
stúdentum í háskólanum í
Göttingen lýsti því yfir að það
væri æskilegt að losna við
menn eins og saksóknarann
Siegfried Buback. Þetta olli
hneykslun almennings. Ný út-
gáfa af sama blaði lýsir sig
ánægða með ránið á Schleyer
og segir að það sé sama hvort
hann lifi saurugu lífi eða hvort
hann deyi ógeðfelldum
dauðdaga. Lögreglan hefur
reynt að hafa uppi á höfundum
greinanna og hefur leitað i
híbýlum stúdenta. Ekkert
hefur fundizt við þá leit og höf-
undarnir hafa ekki fundizt enn.
KP
byltingarsinnar aldrei hugsað
sér að vinna að málefnum
sínum.
Herbert Marcuse, sem er
einn upphafsmanna
nýmarxisma og mikill áhrifa-
maður á stúdenta og vinstri-
menn í Þýzkalandi, hefur for-
dæmt morðin á Buback og
Ponto, sem Rauða breiðfylking-
in hefur staðið fyrir. Einnig
hefur hann fordæmt ránið á
iðjuhöldinum_Schleyer og sagt
að ofbeldi væri ekki
vinnuaðferðir vinstri manna.
„Fjöldinn er ó
móti ykkur“
Fórnardýr borgarskærulið-
anna í Þýzkalandi sýna glöggt
hvar þeir telja að ráðast eigi að
kerfinu. Þeir hafa myrt sak-
sóknara, bankastjóra eins
stærsta banka í Þýzkalandi og
nú síðast var það formaður at-
vinnurekanda sem varð fyrir
barðinu á skæruliðunum.
Helmut Schmidt kanslari
hefur talað um Schleyermálið í
sjónvarp og þar sagði hann.
„Þið eruð á rangri leið og fólkið
er á móti ykkur,“ þegar hann
ávarpaði ræningja Schleyers.
Rudi Dutschke notaði oft
róttækar aðferðir til að koma
skoðunum stúdenta á framfæri
en hann hefur lýst sig algerlega