Dagblaðið - 23.09.1977, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1977.
9
---------------------------
Áskorun til Ríkisútvarpsins:
Hættið að spila 9 útlendar
plötur móti hverri 1 íslenzkri
—að minnsta kosti meðan iðnkynning er í gangi
I tilefni iðnkynningarinnar
langar mig að gera þá tillögu til
Ríkisútvarpsins að það geri
nokkra breytingu á hlutfalli
Islenzkra og útlendra hljóm-
platna sem þar eru spilaðar.
Það hlutfall er nú 9:1 — þ.e.
níu útlendar hljðmplötur eru
spilaðar á móti hverri einni
islenzkri allt árið um kring.
Hljómplötuiðnaðaðurinn á
íslandi er yngsta iðngrein
okkar og byggir afkomu slna að
verulegu leyti á samstarfi við
útvarpið. Nú mætti það breyta
stefnu sinni í þessu máli — þó
ekki væri nema rétt á meðan
iðnkynningin stendur.
2531-9818.
Hálfkláraður hraun-
kanturinn eyðileggur
Leitt er til þess að vita að þessi fallegi hraunkantur og malbikuðu bíiastæðin þar fyrir ofan eigi eftir
að eyðileggjast, aðeins vegna dugieysis í framkvæmdum. (DB-mynd Sveinn Þorm.)
EKKIFYRSTIH El MSM EIST AR ATITILLÍSLEN Dl NGS
bflastæðin
Þorkell Asbjörnsson skrifar:
Eg get ekki lengur orða
bundizt vegna sérlega fallegrar
hraunhelluhleðslu sem ég sé á
ferðum mínum dagsdaglega til
og frá vinnu, en nú er svo
komið að ég bíð aðeins eftir því
að hellur þessar hrynji alveg.
Hieðsla sú sem þarna um
ræðir er á gatnamótum
Grensásvegar og Bústaðavegar
og er neðan við bifreiðastæði
Endursýnið
Rocky Horror
Picture Show
0691-0580 hringdi:
Mig langar svo mikið að kvik-
myndin Rocky Horror Picture
Show verði endursýnd í nokkra
daga í einhverju kvikmynda-
húsanna. Hún var sýnd bæði í.
Nýja Biói og suður í Hafnar-
firði en af ástæðum, sem ég
hirði ekki um að nefna, missti
ég og margir sem ég þekki af
henni í bæði skiptin. Vildi ekki
einhver vera svo vænn?
þau er tilheyra hinum ný-
byggðu blokkum við Espi-
gerðið. Fyrir nokkrum árum
var gengið svo afskaplega
snyrtilega frá bílastæðum
þessum, þau malbikuð og snyrt
afar mikið til. Var m.a. steyptur
kantur allt í kringum þau.
Síðan var byrjað á að hlaða þar
svo afar fallegan hraunhellu-
kant, en hætt í miðju kafi.
Við sem eigum ferð þarna
um dagsdaglega álitum að fljót-
lega yrði aftur byrjað á kant-
hleðslu þarna, en ekkert gerist.
Er nú svo komið að brátt munu
hin vel malbikuðu bilastæði
hrynja niður ef ekki verður að
gert og gengið I að ljúka við
hraunkantinn.
Er það miður að sjá hvernig
hlutir sem þessir geta farið af
eintómum slóðaskap, eða hvað
svo sem það er sem liggur að
baki þvi að þarna er ekki lokið
við hleðsluna.
Frú ein sem ekki vildi láta
nafns síns getið hringdi til þess
að finna að því að talað væri um
heimsmeistaratitil Jóns L.
Arnasonar eins og hann væri
fyrsti heimsmeistaratitill sem
íslendingur hefði nokkru sinni
hlotið. Þetta sagði frúin ekki
rétt. Nefndi hún sem dæmi því
til sönnunar að Guðmundur
Hermannsson varð heims-
meistari I kúluvarpi öldunga
1972 I Köln. Frúin sagðist alls
ekki gera þetta til þess að rýra
afrek Jóns L. heldur skyldi
fremur hafa það sem sannar
reyndist.
Landsmálasamtökin STERK STJORN Laugavegi 84 - Sími 13051 Opiðkl. 5-7 alladaga
Opiðtil kl.7 íkvöld
9-12 laugardag