Dagblaðið - 23.09.1977, Blaðsíða 9
PACM.AÐIÐ. KÖSTUDACíUK 23. SLiPTKMBER 1977.
9
Fulltrúar neytenda í
sexmannanefnd hjálparvana
Vegna hinna miklu verö-
hækkana á landbúnaðarvörum
haföi Dagblaðiö samband við
einn þriggja fulltrúa neytenda í
sexmannanefnd, Gunnar Hall-
grímsson, sem tilnefndur er af
Sjómannafélagi Reykjavíkur.
Gunnar sagði að fulltrúar neyt-
enda væru heldur hjálparvana
gagnvart þessum hækkunum,
því þær stöfuðu af lögbundnum
kauphækkunum til bænda. Þá
stafar hin mikla kjöthækkun af
hækkun sláturkostnaðar, sem
reiknaður er út einu sinni á ári.
Hins vegar var ekki gengið
að neinum kröfum framleið-
enda um nýjan verðlagsgrund-
völl, heldur sættust menn á
framreikning eftir tölum frá
Hagstofunni.
„Vandinn er,“ sagði Gunnar,
„að fulltrúa neytenda hefur
dagað uppi í nefndinni. Enginn
vill við þá kannast. ASI dró
einn fulltrúa út úr nefndinni
fyrir nokkrum árum. Það er
hálfgerð Ioddaramennska að
vilja ekkert við þessa nefnd
kannast, en lýsa því sfðan yfir
að fulltrúar verkalýðsins eigi
að hafa áhrif á verðlagninguna.
Það er erfitt hlutskipti að vera
fulltrúi neytenda í sexmanna-
nefnd, sérstaklega þar sem
launþegasamtökin hafa af-
neitað henni og mótmæla síðan
verðhækkunum án þess að gera
nokkuð raunhæft í málinu. Ef
við gerum vel fyrir neytendur
er talið að við séum að vinna
gegn bændum og ef við gerum
vel við bændur er talið að við
vinnum gegn neytendum. Eg
held að fulltrúar neytenda geri
mest gagn með því að fjalla um
kröfur milliliða, enda finnst
kaupmönnum lítið, sem kemur
i þeirra hlut fyrir söluna.
Það eru allir óánægðir með
þetta eins og það er, en það
gerist samt ekkert í málinu. I
fyrra var skipuð nefnd til að
endurskoða þetta kerfi, og þar
áttu m.a. sæti Björn Jónsson
forseti ASl og Gunnar Guð-
bjartsson formaður Stéttar-
sambands bænda, en það hefur
ekkert heyrzt frá þeirri nefnd.“
- JH
/
Hrasaði
áUm-
ferðarmið*
stöðinni
— og stakkst í gegnum
rúðu
Það sjys varð á Umferðarmið-
stöðinni um miðjan dag í fyrradag
að kona á leið út úr húsinu
hrasaði um mottu er var þarna á
gólfinu og stakkst með höfuðið f
gegnum rúðu við dyrnar.
fc’ór konan með höfuð og háls í
gegnum rúðuna og skarst illa. Var
hún flutt I slysadeild og þar búið
að sárum hennar.
- BH
„Gleymdu” skipa-
— íþað minnsta 10 farskip íeigu
Islendinga auk Eimskip, Hafskip
og SÍS
„Peðin hafa Ifka sína
þýðingu eins og einhver sagði
og sama má segja um farskip í
eigu „litlu" skipafélaganna.
Stundum finnst manni jafnvel
að þau séu gleymd en hafa samt
sína þýðingu ekki sfður en skip
„stóru“ félaganna," sagði Finn-
bogi Kjeld framkvæmdastjóri
skipafélagsins Vfkur hf.
I það minnsta 10 farskip eru
gerð út af ýmsum aðilum hér á
landi, auk skipa Eimskipa-
félagsins, Hafskips og SÍS.
Mörg þessara skipa hafa
mjög lítið haft viðkomu hér
heima. Má til dæmis nefna
Hvalvik, sem er f eigu Vfkur hf.
Kom það ekkert hingað til
lands fyrstu tvö árin. A þeim
tfma fór skipið vfða og flutti
margskonar varning. Nefndi
Finnbogi Kjeld að skipið hefði
komið til Bandarfkjanna,
Kanada, Lagos f Nfgerfu, auk
þess sem það hefði töluvert
siglt í Miðjarðarhafinu og milli
Evrópuhafna.
Auk Hvalvfkur á Vfkur hf.
einnig Eldvík, sem mest hefur
verið f flutningum á salti og
saltfiski.
Guðmundur Ásgeirsson
framkvæmdastjóri Nesskips
hf., sagði að flest þessara litlu
skipafélaga væru byggð upp af
mönnum, sem áður hefðu verið
skipstjórar eða yfirmenn á far-
skipum. Taldi. Guðmundur að
ástæðan fyrir þvf að skipin
væru mest f flutningum er-
lendis væri algjört aðstöðuleysi
þessara skipafélaga f Reykja-
vfkurhöfn,
Sagði hann að sá háttur að
uppskipunaraðstaða væri nær
öll í eigu eins skipafélags, væri
sjaldnast tfðkaður erlendis.
Þau mál hefðu þróazt hér á
löngum tfma en þrengdu mjög
möguleika annarra skipafélaga
en þess, sem réði yfir nær.allri
löndunaraðstöðunni.
Nesskip hf. eiga farskipin
ísnes, Suðurland og
Vesturland.
Islenzk kaupskip hf. á og
rekur Berglind og f eigu Karls
Jónssonar er Hansa Trade, sem
reyndar er enn skráð f Singa-
poure.
Hvalvfk, Berglind og Hansa
Trade eru systurskip og
rúmlega 3000 brúttólestir.
Tvö skip eru á vegum Skipa-
miðlunar Gunnars Guðjóns-
sonar. Edda sem er i eigu Jsa-
foldar hf., og Mávur en hann á
hlutafélagið Pólarskip á
Hvammstanga.
Þorvaldur Jónsson skipa-
miðlari á og gerir út farskipið
Svaninn.
A öllum þessum skipum eru
fslenzkar áhafnir og hefur svo
verið þrátt fyrir að þau hafi
sum hver verið lengi að
heiman.
Verkefni hafa verið næg og
til dæmis sagði Guðmundur
Ásgeirsson að hann hefði
öruggt ársverkefni fyrir skip
sitt Isnes og sá samningur yrði
væntanlega framlengdur.
Finnbogi Kjeld sagði að af-
koman gengi nokkuð f bylgjum.
„Árin- 1973 ’74 og jafnvel
1975 voru góð, og farmgjöld
hagstæð. Þá var mikið smfðað
af skipum og sfðustu tvö ár
hafa verið erfiðari enda farm-
gjöld fremur lág, þó ekki skorti
verkefni fyrir skipin,” sagði
Finnbogi.
Mörg þessara skipa munu
keypt með leigukaupasamning-'
um. Eru þau ekki skráð á
islenzka skipaskrá fyrr en í það
minnsta þriðjungur kaupverðs-
ins hefur verið greiddur.
ÖG
Sköli
Emils
Kennslugreinar:
Munnharpa,
harmóníka,
melodika,
píanó—orgel—gítar.
Emil Adólfsson Nýlendugötu 41, sími 16239.
Mólaskólinn Mímir
Lifandi tungumálakennsla. Mikið um nýjungar. Kvöld-
námskeið — síðdegisnámskeið. Samtalsflokkar hjá Eng-
lendingum. Léttari þýzka. íslenzka fyrir útlendinga.
Franska. spánska, ítalska. Norðurlandamálin. Hin
vinsælu ensk:<námskeið barnanna. Unglingum hjálpað
fyrir próf.
Innritun i síma 10004 og 11109 kl. 1-7 e.h.
Handsaumaðar ítalskar leður
karlmannamokkasí nur
Sérstaklega mjúkarog þægilegar