Dagblaðið - 23.09.1977, Page 24
Embættismaður iátar
fjárdrátt úr kirkjusjóði
I ljós hefur komið að veru-
legar fjárhæðir hafa horfið úr
kirkjusjóði Landakirkju í Vest-
mannaeyjum á undanförnum
árum. Liggur fyrir játning
gjaldkera safnaðarins, Einars
H. Eiríkssonar, um að hafa
dregið sér féð.
Jóhann Friðfinnsson, for-
maður sóknarnefndar Landa-
kirkju, sagðist í viðtali við DB í
morgun ekki geta sagt annað en
að þarna hefðu átt sér stað
„hrapalleg mistök, svo með
ólíkindum" væri, og ynni
sóknarnefndin nú að því að fá
þau mistök leiðrétt. Hann vildi
ekki nefna tölur í þessu sam-
bandi, en sagði augljóst að um
„verulega fjármuni" væri að
ræða.
Einar Haukur Eiríksson varð
formaður sóknarnefndar og
gjaldkeri safnaðarins 1969.
Nær rannsókn þessa máls, sem
nú er eingöngu f höndum
endurskoðunarskrifstofu N.
Manscher & Co„ allt aftur til
1969. Sl. haust lét Einar
Haukur af störfum sóknar-
nefndarformanns en hélt áfram
að gegna störfum gjaldkera.
Verulegir fjármunir hafa
farið um hendur gjaldkera
sóknarnefndar Landakirkju á
undanförnum árum, m.a. um-
talsverðar bætur frá Viðlaga-
sjóði vegna skemmda, sem
kirkjan og munir hennar urðu
fyrir í jarðeldunum 1973. Um
hendur gjaldkera fara einnig
álögð kirkjugarðsgjöld, sem f ár
munu nema nær fjórum millj-
ónum króna.
Mánuður er liðinn síðan upp-
vfst varð um fjárdráttinn — og
þá m.a. vegna óvarkárni Einars
Hauks Eiríkssonar. Er hann
einnig talinn hafa blandað tals-
vert saman eigin fjármálum og
fjármunum Landakirkju.
Vegna þessa máls mun Einar
Haukur láta af embætti skatt-
stjóra í Vestmannaeyjum innan
skamms, en fjármálaráðuneytið
fylgist nú náið með framvindu
málsins.
Auk skattstjóraembættisins
gegnir Einar Haukur starfi for-
seta bæjarstjórnar Vestmanna-
eyja, og starfi bæjarstjóra
gegndi hann um mánaðartíma á
sl. ári. Hann er og framámaður
í Sjálfstæðisflokknum f Vest-
mannaeyjum.
-OV
VERKSTÆÐIGÖMLUIÐNAÐARMANNANNA TIL SÝNIS
Iðnkynning stendur yfir í
höfuðborginni þessa dagana og
mun það víst ekki hafa farið fram
hjá neinum. Af því tilefni var
opnuð f gærdag iðnminjasýning í
Árbæjarsafni. Eru þar til sýnis
allskyns gömul iðnaðarverkstæði,
svo sem skósmfðaverkstæði, úra-
verkstæði o. fl. Eru þarna jafn-
fram hlutir sem Iðnminjasafns-
nefnd afhenti Þjóðminjasafninu í
fyrra auk eimreiðarinnar góðu,
annarrar þeirrar er gekk ofan úr
GYLFIER
HÆTTUR
öskjuhlið og niður að höfn með
stórgrýti til hafnarframkvæmd-
anna.
Var Iðnminjasýningin opnuð að
viðstöddum ýmsum frammá-
mönnum, borgarstjóranum,
iðnaðarráðherra og forseta Is-
lands, sem opnaði sýninguna.
Árbæjarsafnið er 20 ára um
þessar mundir svo opnun sýning-
ar þessarar er jafnframt til að
minnast afmælisins og grósku
þeirrar sem færzt hefur f safnið á
undanförnum árum.
Sýningin verður opin frá kl.
16.00 til 22.00, um helgar frá kl.
14.00, til 2. október.
Óminnisdans-
leikur eftir réttir
Lögreglan á Selfossi var í
nokkrum önnum i nótt. Olli því
fyrst og fremst dansleikur sem
haldinn var í tengslum við ölfus-
réttir. Reyndin varð sú að menn
supu óhóflega mikið og komust á
vald vímu og óminnis. Er hætt við
að ýmsir ballgesta leiti sér í dag
upplýsinga um hvernig þeir hafi
skemmt sér og hvernig dans-
leikurinn hafi farið fram.
Þá voru tveir ölvaðir ökumenn
teknir við akstur gegnum Selfoss
í niðdimmri haustnóttinni. - ASt.
Svona voru skórnir í „de gamle gode dager“, þegar borgarbúar slettu
dönsku og fagmennirnir lögðu sál sína í framleiðsluna. Hér skoða
borgarstjórinn í Reykjavík, forseti íslands, og fleiri opnunargesta
forláta skó, sem framleiddir hafa verið af skósmið.
DB-mynd Bj.Bj.
LEZT AF VÖLDUM SPRENGINGARINNAR
Litli drengurinn sem brenndist
illa í sprengingunni f flugelda-
gerðinni á Akranesi á sunnudag-
inn var er látinn. Hann hét
Magnús B. Helgason, fjögurra ára
gamall. Magnús litli var ásamt
föður sínum f húsinu, þegar
sprenging varð, en faðir hans,
Helgi Guðmundsson, var eigandi
flugeldaverksmiðjunnar. Hann
lézt á sunnudaginn af völdum
sprengingarinnar. - JBP
— eftir 32ár ístór-
pólitískum stormum
Dr. Gylfi Þ. Gíslason, prófessor
og alþingismaður, tilkynnti á
fundi með stjórnum Alþýðu-
flokksfélaganna í gærkvöldi.að
hann myndi ekki gefa kost á sér
til frekari þingsetu. Hann hefur
setið á Alþingi f 32 ár, ráðherra f
15 ár. Fyrir þremur árum átti dr.
Gylfi frumkvæði að þvf, að Bene-
dikt Gröndal, alþingismaður, tók
við af honum í formennsku
Alþýðuflokksins. Ákvörðun sfna
nú kveður dr. Gylfi vera f beinu
framhaldi af þvf.
Eftir sem áður kveðst dr. Gylfi
ætla að berjast fyrir málstað
Alþýðuflokksins og halda áfram
afskiptum af stjórnmálum. Þá
stendur hugur hans til enn
frekari ritstarfa á vettvangi
fræðigreinar sinnar í viðskipta-
fræðum og jafnframt á fleiri
sviðum.
-BS.
ALVANALEGT AÐ EFTIRLITSMENN
AKIUM LEIKVELLINA
— Drengurinn sem ekið var yf ir lézt í gær
Eggert Magnússon.
Drengurinn sem varð undir bfl
á leikvelli við Faxaskjól f Reykja-
vfk á þriðjudaginn lézt f gjör-
gæzludeild Borgarspftalans í gær.
Hann hét Eggert Magnússon, níu
ára gamall, til heimilis að Furu-
grund 62 i Kópavogi. Hann komst
ekki til meðvitundar eftir slysið.
Við slíkan atburð vakna ýmsar
spurningar, svo sem sú, hvort
ætlazt sé til að umferð bifreiða sé
um leiksvæði. Þau eru til þess sett
að börn hafi við eitthvað að vera
og leiki sér ekki á götum.
„Það er alveg ljóst, að ekki
hefur verið farið nægilega gæti-
lega þarna,“ sagði Gísli Björnsson
lögreglumaður hjá SRD. „Við»
yfirheyrslur hefur komið í ljós, að
alvanalegt er að eftirlitsmenn aki
inn á leiksvæðin."
Eftirlitsbílnum var ekið lötur-
hægt um völlinn, er slysið varð.
Eggert litli var að leika sér á
vegasalti, en hefur einhverra
hluta vegna fallið og varð undir
afturhjóli bflsins.
Gísli Björnsson kvað það vera f
höndum borgarverkfræðings að
setja reglur um hvernig eftirlits-
menn leikvalla ættu að haga sér
við störf sín. Ljóst væri, að málið
þyrfti að taka til gaumgæfilegrar
athugunar.
- ÁT-
fijálst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 23. SEPT 1977.
Engin rök
fyrir
vikningu
dómara
— segir Hæstiréttur
Hæstiréttur staðfesti í gær úr-
skurð þess efnis, að Gunnlaugur
Briem, sakadómari, víki ekki sæti
sem dómsformaður í sakadóma-
málinu: Ákæruvaldið gegn
Tryggva Rúnari Leifssyni o. fl.
Hilmar Ingimundarson hrl.
krafðist þess að dómformaðurinn
viki sæti af þeirri ástæðu að hann
væri ekki óvilhallur í málinu.
Voru færð þau rök fyrir kröfunni
um vikningu dómsformannsins að
hann hefði með tilteknum hætti
synjað Tryggva Rúnari um að
ræða einslega við verjanda sinn.
Gekk um þessa kröfu úr-
skurður á þann veg, að dómarinn
skyldi ekki vfkja sæti. Var þess-
um úrskurði skotið til Hæstarétt-
ar. Hæstiréttur telur í dómi sfn-
um að engin frambærileg rök séu
komin fram fyrir þvf, að aðgerðir
dómsformanns beri vott um að
hann líti vilhallt á málavöxtu.
Mál þetta dæmdu hæstaréttar-
dómararnir Magnús Þ. Torfason,
Ármann Snævarr og Benedikt
Sigurjónsson.
Rannsókn málsins hefur legið
niðri meðan beðið var dóms
Hæstaréttar. Verður henni nú
fram haldið. Áður en til fyrr-
nefndrar kröfu kom var áformað
að málfutningur skyldi hefjast
hinn 3. október. Er enn ekki
vitað hvort áform um þá dag-
setningu hefur breytzt.
-BS.
Engin hætta
af geisla-
virkri úrkomu
„Þetta er algjörlega hættulaust
og allmörg ár síðan hætt var að
mæla geislavirkni í úrkomu hér á
landi,“ sagði Páll Theódórsson
eðlisfræðingur er DB spurði hann
um hættu á að geislavirk úrkoma
gæti fallið hér á landi. I fréttum í
gær var greint frá þvf að Banda-
rfkjamenn ættu von á að geisla-
virk úrkoma mengaði jarðveginn
víðs vegar f Bandaríkjunum eftir
kjarnorkusprengjuna sem
Kínverjar sprengdu 17.
september sl.
„Geislavirknin umvefur alla
jörðina og fer f kringum hnöttinn
á um það bil þremur vikum,“
sagði Páll.
„Þessi geislavirkni er svo lítil
að hún gerir engan skaða. Það var
langtum meiri geislavirkni í úr-
komu hér þegar Rússar og Banda-
ríkjamenn voru að sprengja sfnar
öflugu kjarnorkusprengjur fyrir
nokkrum árum.“
Einnig sagði Páll að fregnir af
miklum barnadauða í sambandi
við geislavirka úrkomu væru
beinlínis hlægilegar.
-A.Bj.
$•
Þórarinn vill bíða átekta
„Ég álít málið þannig vaxið
að það þurfi nánari athugunar
við,“ sagði Þórarinn Þórarins-
son alþingismaður og formaður
þingflokks Framsóknarflokks-
ins í viðtali við DB er hann var
inntur eftir skoðunum hans á
kaupum ríkisins á Vfðishúsinu.
Segir Þórarinn f forystugrein
Timans f gær að sér vjrðist eðli-
legast að kaupverð hússins
veðri athugað nánar óg
ákvörðun um kaup frestað þar
til Alþingi kemur saman.
„Það sem ég skrifa þarna er á
mína eigin ábyrgð og segir
ekkert til um afstöðu þing-
flokksins. Það er dálftið at-
hyglisvert að tveir fyrrverandi
fjármálaráðherrar (Gunnar
Thoroddsen og Halldór E. Sig-
urðsson) skuli hafa lýst sig and-
víga kaupunum," sagði hann.
Þegar að þvf kemur að kaup
Víðishússins verða lögð fyrir
Alþingi munu þingflokkarnir
hver um sig, og þá einnig Fram-
sóknarflokkurinn, fjalla um
málið og þá fyrst verður afstaða
þeirra ljós. - BH