Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.11.1977, Qupperneq 4

Dagblaðið - 15.11.1977, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ._ÞRIÐJUDAGUR_15.N0VEMBER 1977. Raddir lesenda eru á bls. 2-3 og 4 Bflaviðgerðir og atvinnurekstur í íbúðarhverf um er VÆGAST SAGT HVIMLEIÐ STARFSEMI Maður nokkur hringdi og kvartaði undan bílaviðgerðum sem fram fara í bílskúrum og við íbúðarhús í íbúðarhverfum. Kvartaði maður þessi sérlega undan bílaviðgerðarbílskúr í Blesugrófinni. Sagði hann að mikið ósamræmi væri í þvi þegar íbúar hverfanna væru að reyna að snyrta til í kringum sig og byggð væru ný og falleg hús á meðan svona starf- semi væri leyfðí íbúðarhverfum. Þessi Blesugrófaríbúi er ekki einn á báti í þessu tilliti. í mörgum snyrtilegum hverfum í borginni má sjá gömul bílhræ standa við hús og alls kyns ónæði hlýzt af bílaviðgerðum langt fram eftir kvöldi. Sums staðar eru líka verkstæði í kjöllurum og bíl- skúrum, þar sem vinnuvélar eru í gangi og trufla íbúana, fyrir utan sóðaskap sem skapast oft vegna ýmiss konar starfsemi. Það er kannski of mikið sagt að starfsemi þessi sé leyfð, — hún virðist samt látin óátalin. En hún er óneitanlega mjög hvimleið. » Víða um borgina er rekin ýmiss konar starfsemi í skúrum og skýlum sem hróflað er upp án þess að huga að til hverra lýta slíkt getur verið umhverfinu. Víða er mikill sóðaskapur sam- fara ýmiss konar þjónustustarf- semi í bílskúrum í ibúðarhverf- um. Blaðburðarbörn óskaststrax við: TJARNARGÖTU SUÐURGÖTU HÁTÚN MIÐTÚN MMBIADIÐ Sími27022 Meirapróf Óskum eftirað ráöa vanan bifreiðar- stjóra með meirapróf. Uppl. ísíma 92-2095 Hraðfrystihús Keflavíkur hf. fHvað segir Matihsas j um fjárlögin? \ Heimdallur SUS hoðar til fundar metl Mattbiasi V. Mathiesen fjármálaráðherra þriðjudaginn 15. nóv. kl. 20.30. Fundurinn verður haldinn í Sjálfstce.ðishúsinu, Valhöll, Háaleitisbraut I. A fundinum mun fjármálaráðherra ræða itm fiárlaga- frumvarpið og svara fyrirspurnum. Nýlega gerði stjórn SUS ályktun um fjárlagafruim arpið, þar sem meðal annars var sagt, að ríkisstjórnin hefði ekki sett fram heildartillögur um samdrátt í ríkis- búskapnum og að fjárlagafrumvarpið tæki ekki tillit til sjónarmiða Landsfundar Sjálfstæðisflokksins í því efni. Ennfremur kom fram i þcssari ályktun stjórnar SUS, að takist ekki að ná fram stefnu Sjálfstæðisflokksis um sam- drátt í umsvifum hins opinbera, sé erfitt aö réttlæta áframhaldandi stjórnarsamstarf. — Hvað segir fjármálaráöherra um þessi atriði? Komið á fundinn og heyrið svör ráðherra! ______________________Stjórn Heimdallar SUS. Háir tollar rýra tekjur ríkissjóðs af filmuinnf lutningi —segir Hilmar Helgason forst jóri Agfa- umboðsins í annars mjög skilmerkri grein Adolfs Karlssonar umfilmuverð á íslandi kemur fram m‘ög leiðin- legur misskilningur, sem má rekja til viðtals við mig í Dag- blaðinu þann 27. október sl. Segir þar, að ef lækka eigi filmuverð á Islandi verði Kodak að ríða á vaðió og lækki þeir, myndi Agfa gera það einnig. Hið rétta er, að é'g tjáði blaðamanni Dagblaðsins, Atla Steinarssyni, að það eina, sem gæti lækkað verð erlendis frá væri verðstríð, sem gæti hafizt með því t.d. að Kodak lækkaði sín útflutningsverð um 20% fyrir- varalaust. Að sjálfsögðu mundi Agfa ekki una slíku og lækka sín verð einnig, þar sem það er stefna þeirra að glata aldrei markaðs- hlutföllum, sem unnizt hafa. En að þetta gerðist er með ólíkind- um, sérstaklega ef tekið er tillit til hins rótgróna markaðar hér á landi. Verðstríð yæri sennilega .eingöngu hugsanlegt, ef um nýja tmleiðslu væri að ræða. Ennfremur segir í fyrrgreindu íðtali, að ég telji mig flytja inn aðeins" 200.000 filmur á ári. Hér er ennfremur um ranghermi að ræða, því miður. Hið rétta er að ég sagði Atla það ágizkun mína, að til íslands væru fluttar inn um það bil 200.000 Color- Negative filmur (litfilmur f. pappír) af öllum gerðum á ári. Mörgum kann að finnast ég öeðlilega seinn til að leiðrétta framangreindan misskilning, sem og Atli bauðst til að gera er ég benti honum á hann. En sökin er mín, því ég tjáði Atla, að hér væri um svo augljósan misskilning að ræða, að ekki þyrfti að leiðrétta hann. Epilog Miklum tíma og fyrirhöfn hefur verið eytt í að skrifa um filmuverð á Islandi og sýnist sitt hverjum. Þegar í upphafi tók ég þá ákvörðun að blanda mér ekki í það mál, enda skorti ekki svar- greinar við grein prófessors Gísla. Er Atli Steinarsson átti síma- viðtal við mig um grein Gísla, umreiknaði ég fyrir hann búðar- verð í Þýzkalandi á Agfa filmum niður í útflutningsverð til okkar og komst að nákvæmlega sömu niðurstöðu og Adolf Karlsson gerir, eða að hér er ekki um neitt óeðlilegt að ræða, nema að við gjöldum markaðssmæðar okkar, sem gerir það að við komum aldrei til með að njóta magnaf- sláttar. En hafi fyrrnefnd skrif vakið athygli stjórnvalda á að G.Ó. skrifar: I lögum um almennar tryggingar er ákvæði, sem kveður svo á, að ef bótaþegi dvelur lengur á sjúkrahúsi en 4 mánuði samtals á tveggja ára tímabili, skuli hann missa bætur sínar að undanskildum kr. 5000.00, sem teljast vasapeningar og hann fær greiddar meðan hann dvelur á sjúkrahúsinu. . Nú er ég einn af þessum óláns- mönnum, sem er 75% öryrki og kerfið hefur lent á með fullunt þunga. Saga mín er þannig. Af því að ég er kvæntur og kona mín útivinnandi, fékk ég skerta tekju- tryggingu kr. 18.260.00 ásamt örorkubótum kr. 30.490.00 á mánuði. Þessar bætur eru teknar af mér þegar ég fer inn á sjúkra- hús vegna sjúkdóms þess er hrjáir mig, enda alltaf með kvót- ann fullan, en ég þarf venjulega að fara tvisvar á ári inn á sjúkrahús. Nú er svo komió, að konan min varð að hætta að vinna úti vegna sjúkdóms sem hefur hrjáð hana. Fæ ég ekki einu sinni kr. 5.000.00 í vasapeninga, vegna þess maðkurinn í mysunni er þeirra, er vel. Það er augljós staðreynd, að filmur eru allt of hátt tollaðar til að innflutningur þeirra skapi þær tekjur fyrir ríkissjóð, sem æskilegt væri. Hilmar Helgason. að kona mín er talin fyrirvinna heimilisins. Nú er fjölskyldu minni ætlað að lifa á sjúkradag- peningum eiginkonu minnar. En dæmið er ekki svona einfalt. Vegna sjúkdóms eiginkonu minnar, er hefur hrjáð hana frá árinu 1968. hefur hún örorkulíf- eyri frá Tryggingastofnun ríkisins kr. 22.873.00 á mánuði. Þessi upphæð dregst frá dag- peningum, sem Sjúkrasamlagið greiðir henni, þannig að hún fær greiddar kr. 450.00 á dag, en hjá Sjúkrasamlaginu virðist hún ekki vera talin fyrirvinna heimilisins, alla vega fær hún ekki greitt neitt vegna barns okkar sem er undir lögaldri. Af sjúkradagpeningum konu minnar kr. 13.500.00 ásamt kr. 15.600.00 barnalífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins eða af 29.100.00 á mánuði er fjölskyldu minni ætlað að lifa. Nú hefði ég gaman af að sjá fólk lifa af þessum bótum. Nei, ég hef ekki efni á að lifa með þennan sjúkdóm, sem hrjáir mig enda lét ég útskrifa mig i snarheitum af spitalanum. ER ÞETTA HÆGT?

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.