Dagblaðið - 15.11.1977, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. NÖVEMBER 1977.
A meðan páskahelgin siðasta
leið í rólegheitum fyrir flesta
átti Hannelore Burghardt í
miklu sálarstríði við að flýja
yfir landamærin frá Austur-
Þýzkalandi til vesturs. Hún og
tvö börn hennar voru falin í
farangursgeymslu bifreiðar
sem ók yfir landamærin sem er
vandlega gætt af vopnuðum
vörðum. Hér fer á eftir saga
Hannelore sem hún trúði
blöðum nýlega fyrir:
Þar sem við lágum í skottinu
á bílnum í kuldanum og
þrengslunum rúmaðist aðeins
ein hugsun í kollinum á mér:
„Við megum ekki hreyfa okkur,
við megum ekki hreyfa okkur"
en hjartað barðist svo í brjóst-
inu á mér að ég hélt ég væri að
kafna.
Við vissum að þetta var
hættulegt. Ef við næðumst við
þetla yrðum við sett í margra
ára fangelsi þ.e. ég og vinur
minn frá Vestur-Þýzkalandi,
Peter Yussuf. En það sem verra
væri, börnin yrði tekin af mér
og komið i fóstur.
En við ákváðum að flýja til
Vestur-Þýzkalands. Það var
áhætta sem við tókum, en við
töldum hana þess virði.
Þetta var á páskadag og
Peter hafði ekið yfir landa-
mærin til þess að eyða helginni
fyrir austan. Við höfðum fyrir
löngu ákveðið að gifta okkur og
lifa saman í Vestur-Þýzkalandi.
Fimm sinnum hafði ég sótt um
leyfi til þess að flytjast yfir
landamærin en jafnoft hafði
■mér verið neitað um það. Við
vissum bæði að þýðingarlaust
væri að sækja um hjúskapar-
leyfi því okkur yrði neitað um
það líka.
Um nóttina eftir páskadag
vakti ég því sofandi börnin og
við fórum öll út í bílinn. Um 30
mílur frá landamærastöðinni
fórum við út af veginum og ég
og börnin fórum aftur í skott-
ið og lögðumst þar fyrir, eða
hnipruðum okkur saman er víst
réttara að orða það. Kathy var
Hannelore Burghardt með Kathy og Jens litla í farangursgeymslu
bílsins sem þau flúðu í.
þá níu ára og Jens litli 6 ára.
Peter hafði sagt mér að hann
ætlaði að nota útvarpið sem
merki. Hann ætlaði að hafa það
í gangi þar til við vorum rétt
komin að landamærunum. Þá
ætlaði hann að slökkva og þá
urðurn við að vera algjörlega
hljóð og grafkyrr. Hann ætlaði
svo að kveikja aftur þegar við
værum komin yfir landamærin.
Það fór mjög illa um okkur í
'skottinu. Ferðin til landamær-
anna tók 25 mínútur. Annar
fótur minn var upp við bensín-
brúsa sem var mjög kaldur. En
ég hefói þess vegna viljað vera
þarna miklu lengur bara fyrir
það eitt að komast yfir. Allt í
einu þagnaði útvarpið. Eg
heyrði verðina ganga um og
tala. Þeir sþurðu Peter ein-
hverra spurninga en ég heyrði
ekki svör hans. Einn varðanna
heyrði ég blístra rétt við eyrað
á mér. Seinna sagði Peter mér
að hann hefði staðið með hönd-
ina á skottlokinu á meðan,
aðeins nokkrar tommur frá
okkur.
Eg var dauðhrædd um að
börnin gerðu einhvern hávaða.
Eitt sinn opnaði Jens litli
munninn eins og til að segja
eitthvað en Kathy var snögg að
setja hönd sína yfir munn hans.
Hjartað barðist um í brjósti
mér og ég svitnaði heil ósköp.
En ég var ákveðin í að flýja
skyldum við hversu erfitt sem
það væri. Mér fannst við stoppa
þarna heila eilifð. Við lágum
þarna algerlega hreyfingarlaus.
Við vissum að landamæraverð-
irnir voru ekki vanir að opna
farangursgeymslur á bílum
sem rétt skutust yfir landa-
mærin, en við gátum aldrei
verið viss.
Vél bílsins fór í gang seint
og um síðir. Og þegar honum
var ekið í burt fór útvarpið
aftur af stað. Á þessari stundu
vissi ég að við vorum frjáls.
Þvilíkur léttir.
Strax og við vorum komin
yfir landamærastöðina vestan
megin ókum við að veitingastað
og bíllinn stanzaði. Við fórum
upp úr skottinu og vorum svo
glöð að við kunnum okkur ekki
læti. Þetta er sú ánægjulegasta
stund sem ég hef lifað.
DS-þýddi.
Fimleikamaðurinn Elvard
Johansson átti leið um Tui-
leries garðinn í París þegar
hann rak augun í þessa styttu
sem virtist bjóðast til að rétta
honum hjálparhönd við að
standa á höndum. Og hann
ákvað að þiggja boðna aðstoð og
lófar steinmannsins og fim-
leikamannsins mættust svo
óaðfinnanlegt var.
DS-þýddi.
Flótti frá Austur-Þýzka-
landi í skotti bis
Framleiðum eftirtaldar
gerðir:
Hringstiga, teppa-
stiga, tréþrep, rifla-
jórn, útistigc úr úli
og pallstiga.
Margar gerðir af
inni- og útihand-
riðum.
VÉLSM1ÐJAN
JÁRNVERK
ARMtlLA 32 — StMI 8-
46-06.
Kynniðyðurokkarhagstæða verð
Skemmtilegar
krossgátur
Nýjar
krossgátur
°g
nr. 11 komnarút.
brandarar
N\JAR
KROSS
um
NR.
Fæst íöllum helztu
söluturnum og
kvöldsölustödum
íReykjavik
ogútumlandiö.
Einnig iöllum
meiriháttar
btíkaverzlunum
uríi landiö allt
SAKAMÁLA-
SÖGUR
Ógn næturinnar
Týnda konan
Ástkona satans
Féll á sjálfs síns bragði
Síðasta verk
lögreglustjórans
Gleðikonan fagra
FÁST í BÓKA- OG BLAÐSÖLUSTÖÐUM
SIIIBU SKIŒM
Islenzkt Hu0 oti Handierk
STUÐLA-SKILRÚM er léttur veggur, sem samanstendur af
stuðlum, hillum og skápum, allt eftir þörfum á hverjum stað.
SVERRIR HALLGRÍMSSON
Sml8a*tofa,Trönuhrauni 5. Sfmi: 51745.
Vérzlunin ÆSA augiýsir:
Setjum gulleyrnalokka i eyru
með nýrri tækni.
Notum dauðhreinsaðar guilkúlu
Vinsamlega pantið í sima 23622.
Munið að úrvalið af tfzkuskart
gripunum er i vLSU.
I622.
ZÁ
f
Austurlenzk
undraveröld
opin á í
Grettisgötu 64 j
SIMI 11625
Skrifstofu
SKRIFBORD
Vönduð sterk
skrifstofu ikrif-
borð i þrem
stæróum.
Á.GUÐMUNDSSON
Húsgagnaverksmiðja.
Auðbrekku 57. Kópavogi, Simi 43144
MOTOROLA
Allernalorar i híla og liála, 6712/24/32
volla.
I’lalínulausar Iransislorkveikjur i flesla
bila.
HAUKUR & ÓLAFUR HF. \npiila 32. Sími 37700.
Þungavinnuvélar
Vllar gerðir og stierðir vinnuvéla og vörubíla á söluskrá.
Ulvegum úrvals vinnuvélar og bila erlendis frá.
llarkaðslorgið. Einliolli 8. simi 28500 og 74575 kvöldsimi.
% —