Dagblaðið - 15.11.1977, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 15.11.1977, Blaðsíða 24
Haldið áf ram á f ullum hraða á Grundartanga: EKKISPURNING UM HVORT HELDUR HVENÆR MARKAÐS- MÁLIN VERDA VIÐUNANDI IJB fifálst, úháð daghlað ÞRIÐJUDAGUR 15. NOV. 1977. Framboð Alþýðu- bandalagsins á Austurlandi Ingvar, Stefán og Ingi áfram Framsóknarflokkurinn hélt kjördæmisþing í Norðurlands- kjördæmi eystra á Akureyri ný- lega og að sögn mun þar hafa verið lítið um deiluatriði. Ekki er fyrirhugað prófkjör hjá flokknum þar og verða þeir Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og Ingi Tryggvason í þrem efstu sætun- um, eins og verið hefur. HP ákveðið Lúðvík Jósepsson alþm. og Helgi F. Seljan verða efstir á framboðslista Alþýðubandalags- ins við næstu alþingiskosningar í Austurlandskjördæmi. Listinn er skipaður 10 mönnum. Aðrir fram- bjóðendur eru: 1 3. sæti Hjörleifur Gunnarsson líf- fræðingur, Neskaupstað, Þor- björg Arnórsdóttir húsmóðir, Hala, Suðursveit, Eiríkur Sigurðs- son mjólkurbússtjóri, Vopnafirði, Jón Arnason bóndi, Finnsstöðum, Eiðaþinghá, Guðjón Björnsson kennari, Eskifirði, Birgir Stefáns- son skólastjóri, Tunguholti, Fáskrúðsfirði, Inga Dagbjarts- dóttir verkamaður, Breiðdalsvík, og Baldur Sveinbjörnsson sjómaður, Seyðisfirði. Framboðsnefnd, sem skipuð er fulltruum allra flokksfélaganna í kjördæminu gerði tillögur til kjördæmisráðs um þessi framboð. Voru þau samþykkt samhljóða. BS. Hér er blaðið að berast afgreiðslunni úr prentsmiðjunni. Margar hjálpfúsar hendur eru á lofti. DB-myndir Sv. Þorm. Það var allt annað líf fyrir afgreiðslufólkið að afgreiða blaðið við ný og betri skilyrði í gær. Krakkarnir voru að sjálfsögðu kappkiæddir í frostinu. Afgreiðsla DB flytur um set Afgreiðsla Dagblaðsins hefur flutt um set. Ekki var flutt nema rétt yfir götuna, úr Þver- holti 2 í Þverholt 11, en það hús á Dagblaðið og þar er að finna auglýsingaskrifstofur blaðsins og almennar skrifstofur. Frá upphafi hefur afgreiðsla blaðsins búið við heldur lakan kost i Þverhoiti 2 sem var bráðabirgðahúsnæði sem komið var upp á nokkrum nóttum, rétt um það bil sem Dagblaðið hóf göngu sina. Ætti nú að verða mikil bragarbót á öllum málum afgreiðslunnar, starfsfólks þar og sölubarnanna, sem þar koma daglega til að taka blöðin sín. Rafmagns- skömmtun í Breiðholti — vegna bilunar í jarðstreng Grípa þurfti til rafmagns- skömmtunar í Breiðholti á mesta álagstíma í gærkvöldi, vegna bilunar í háspennustreng rétt neðan við Lóuhóla. Bilun varð í tengimúffu á jarðstreng, sem liggur frá Elliðaám og í Breiðholt. Að sögn Hauks Pálmasonar yfir- verkfræðings Rafmagnsveitu Reykjavíkur varð ekki straumlaust á svæðinu þar sem um svokallaða hringtengingu er að ræða en flutningsgetan er ófullnægjandi á annatíma þannig að grípa varð til skömmtunar. Skömmtunin stóð í l'A-2'Æ tíma, lengst í Hólahverfi. Viðgerð lauk í gærkvöldi. -JH. —segir forstjóri Járnblendifélagsins „Markaðsmál fyrir afurðir járnblendiverksmiðjunnar liggja alls ekki ijóst fyrir og hér er á ferð meira mál en svo, að hægt sé að vera með getgátur eða fullyrðingar, án þess að1 hafa kynnt sér málin,“ sagði Jón Sigurðsson nýráðinn for- stjóri íslenzka járnblendi- félagsins í símtali við DB. Tilefnið var skýrsla tveggja íslenzkra fræðimanna um járn- hvenær það gerist,“ sagði Jón. Jón kvaðst á förum utan i næstu viku og þá myndi þessi mál bera á góma, auk annarra er járnblendiverksmiðjuna varðar. Kvaðst Jón ekki orðinn nægilega kunnugur öllum málum enn til að geta rætt þau opinberlega, en náin samvinna yrði höfð við fjölmiðla um mál- efni verksmiðjunnar og myndi hann því skýra frá gangi máls- ins fljótt eftir heimkomuna. „Það er hins vegar ljóst,“ sagði Jón, „að sveiflan til óhag- stæðari markaða er orðin lengri en reiknað var með,“ Jón Sigurðsson sagði að bygg- ing járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga gengi nú með fullum hraða. Allar tíma- áætlanir varðandi byggingu hennar hefðu staðizt svo og kostnaðaráætlanir. ASt. blendiverksmiðjuna, dökkar markaðshorfur fyrir afurðir hennar og slæmar horfur yfir- leitt, svo og sjónvarpsfrétt um sömu mál sem byggð var á ummælum yfirmanns Þjóð- hagsstofnunar. „Hvað sem um markaðsmálin má segja nú, eru sérfræðingar sammála um að það sé ekki spurning um hvort markaður- inn verður viðunandi, heldur Mývatnssveit: Fjórir litlir skjálftar Neyðarblys yfir Reykjavík Neyðarblys sást á lofti yfir Reykjavík klukkan rúmlega sjö í gærkvöldi. Bárust um þetta nokkrar tilkynningar bæði til Tilkynningarskyldu SVFÍ og lög- reglunnar. Aðeins mun hafa verið um eitt blys að ræða en til- kynningarnar voru misjafnar um staðsetningu, eftir því hvar sjónarvottar voru staddir er þeir sáu blysið. Er búið var að bera saman allar bækur virðist ljóst að blysinu hafi verið skotið upp af landi í eða nálægt hverfunum næst Elliðaánum. Er hér um ljót- an leik að ræða, sem almenningur þyrfti að aðstoða yfirvöld við að upplýsa. Grunaðir um milljóna- þjófnað Tveir menn hafa undanfarið verið í gæzluvarðhaldi vegna meintrar aðildar að þjófnaði sem framinn var í íbúð í Bakkaseli i Breiðholti. Þar var stolið úr mannlausri íbúð um eða yfir milljón krónum í peningum og verðbréfum. Þeir sem inni eru hafa neitað öllum sakargiftum og er nú langt liðið á gæzluvarðhaldstíma þeirra. Njörður Snæhólm yfirlögreglu- þjónn sagði í morgun að stöðugt væri unnið að rannsókn ýmissa þjófnaðarmála, m.a. á skartgripa- þjófnaðinum á Frakkastíg. Var hann bjartsýnn á að það mál væri að upplýsast, jafnvel í dag, en vildi ekkert frekar um málið segja. -ASt. Drengurinn lá eftir ígötunni Um klukkan 5 í gær fékk lög- reglan á Akureyri tilkynningu um að 10 ára gamall drengur lægi í götunni á Þingvallastræti móts við Möl ogsand.Reyndist ekki um alvarlegt siys ao ræða er að var gáð, drengurinn óbrotinn en marinn og bólginn á fæti. Var það þó svo slæmt, að hann fékk ekki að fara heim eftir skoðun Talið er nokkuð víst að vörubifreið sem leið átti um götuna hafi slegizt utan í drenginn i hálkunni og þá jafnvel verið með keðjur á. Vörubílstjórar sem áttu þarna Ieið um og haft hefur verið sam- band við, urðu einskis varir. -ASt. Aðeins fjórir litlir skjálftar höfðu mælzt á mæla skjálfta- vaktarinnar í Mývatnssveit frá bvi um kl. sjö í gærkvöldi. Einn skjálftanna í nótt mældist um tvö stig, en annars var allt þar rólegt. Einhver aukning kom í skjálftana í gær og fyrrinótt, en þeir hafa hjaðnað aftur. í gær vari öskubylur í Mývatnssveit en þar er mun betra veður í dag. HP -ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.