Dagblaðið - 05.12.1977, Síða 2
2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1977.
sending!
KUREKA
HELDUR STÓRGLÆPUR
SEMHARTÁAÐ
TAKAÁ”
segir bréf ritari
1623-9259 skrifar:
Eg get nú ekki lengur orða
bundizt yfir þessum síendur-
teknu kynferðisafbrotum
sem nú virðast vaða uppi í
skjóli laga og reglu. Einn af-
brotaniaðurinn hafði það af að
nauðga tveim litlum stúlkum
með nokkurra daga millibili.
Hví var hann ekki i gæzluvarð-
haldi? Fyrir annað eins hafa
menn verið settir inn.
Ef það eru einhverjir af-
brotamenn sem ekki ætti að
sýna neina linkind þá eru það
þessir. Þeir hljóta að vera svo
andlega brenglaðir að hættu-
legt er að láta þá ganga lausa.
Andleg heilsa barns sem er
nauðgað getur stórskaddazt og
jafnvel aldrei orðið söm á eftir.
Einhver afbrotamannahjálp
rýkur sjálfsagt upp út af þess-
um skrifum mínum og segir að
fyrir alla menn geti komið að
hrasa. Veit ég það vel. En
nauðgun á börnum er engin
hrösun, það er stórglæpur sem
hart ber að taka á. Mér finnst
til dæmis sjálfsagt að af öllum
mönnum sem teknir eru fyrir
afbrot af þessu tagi verði birt
flennistór mynd i dagblöðum
og þess getið hvernig hegðun
þeirra er og hefur verið svo
menn megi betur vara sig á
þeim.
Eins ættu í öllum skólum þar
sem börn og unglingar sækja
nám að hanga myndir af kyn-
ferðisafbrotamönnum og ætti
að vara börnin mjög við þeim.
Það verður ekki aftur tekið ef
einhverju þeirra er nauðgað.
Sagt var í frétt DB að maður-
inn sem misþyrmdi drengnum
eftir að hafa komið fram vilja
sínum við hann hefði áður
verið tekinn fyrir afbrot svip-
aðs eðlis fyrir 10 árum. En
hvers vegna í ósköpunum var
þá ekkert eftirlit með þessum
manni? Hvað gerir Skilorðs-
eftirlit ríkisins? Eg hélt að það
ætti að passa upp á svona menn
og hafa þá að einhverju leyti
undir eftirliti.
Og hvar er maðurinn núna?
Hann hefur játað á sig verknað-
inn. Gengur hann kannski
laus? Ef svo er þá veitir sannar-
lega ekki af að vara við honum,
eða á hann að skaða fleiri börn í
viðbót?
Með notkun platínuluusu transistor-
kveikjunnar losnar þú við aigengustu,
gangsetningarvandamál og kald-
aksturstruflanir — auk þess sem
ÞÚ SPARAR
örugglega allt frá 9 krónum á bensínlítra. (Meðaltal sem
miðast við 93 kr. pr. ltr.) En hvað spararðu þá á 2000
lítrum?
Bættu við þetta kostnaði á platínum, þétti og vinnulaun-
um — jafnvel bílkostnaði vegna þess að bíllinn fór ekki í
gang — og þá hefurðunokkrahug'mynd um hvers virði er
að aka
MEÐ Lumenition
ri "APirpriKC
Skelfunni 3e*Simi 3*33*45
Athæfi kynbrenglaðra:
Herðum viðutiögin og
beitum læknismeðferð
Faðir úr Kópavoginum
hringdi og lýsti vanþóknun
sinni á þeim barnaþuklurum og
nauðgurum, sem komið hafa
fram úr myrkrinu undanfarið.
Athæfi þessara manna er viður-
styggilegt og skemmir- þau
börn sem fyrir verða varan-
lega. Beita verður hörðum
viðurlögum gegn afbrotum sem
þessum og læknismeðferð þar
sem hennar er þörf. Blöð ættu
að birta nöfn og myndir af þess-
um mönnum, þeim og öðrum til
viðvörunar.
Þá verða foreldrar að brýna
fyrir börnum sínum að fara
ekki upp í bíla til ókunnugra
manna og gera þeim ljósa hætt-
una, sem þvi getur verið sam-
fara. Tökum höndum saman
gegn þessum viðbjóði.
„KYNFERDISAFBROT
ERU EKKIHRÖSUN
— Jæja, ég er ttlbúinn, segir Júlli jólamús, — ég
skal setja hermennina saman.
— Geturðu það, Júlli? Það væri vel þegið, segir
jólasveinsstrákurinn.
— Nei, þetta er alltof erfitt fyrir þig.
— Alls ekki, segir Júlli, — það er ekkert i heimin-
um, sem er of erfitt fyrir litla jólamús.
— Maður þarf ekki annað að gera en stinga höfð-
um, handleggjum og fótum inn i götin. Þetta verða
fínar jólagjafir. Ég verð að flýta mér að setja fleiri
saman — þvi nú eru bara 19 dagar til jóla.