Dagblaðið - 05.12.1977, Blaðsíða 22

Dagblaðið - 05.12.1977, Blaðsíða 22
26 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1977. Hvemig losna má við ótta Margir eru þeir sem fyllast ótta við allt mögulegt án þess að aðrir en þeir sjái nokkra einustu ástæðu til þess. Lofthræðsla er þarna algengust en síðan kemur hræðsla við að fljúga og þá hræðsla við að tala í margmenni. A útlensku nefnist svona hræðsla phobia og hefur því orði oft verið slett á íslenzku og talað um ,,fóbiu“. Sálfræðingurinn Manuel J. Smith, sem er starfandi sál- fræðingur í Bandaríkjunum, hefur nú gefið fólki nokkur ráð til þess að forðast svona hræðslu og miðar þá við sjálfan sig. Ástæðuna til óskynsamlegrar hræðslu segir hann fyrst og fremst vera slæma reynslu ein- hvern tímann áður. Því geti verið gott ráð að tala um þessa hræðslu sína við einhvern og læra með því að hætta að vera hræddur. Sjálfur segir Smith eitt sinn 4C Gott ráð gegn lofthræðslu. Að vega salt uppi á einhverju. Fyrst er byrjað á því sem lágt er í loftinu en síðan hækka menn sig smám saman. hafa lent í þeirri raun að flugvél sem hann var í í stríðinu hrapaði eftir að hafa hlekkzt á í flugi. Eftir það þorði hann ekki einu sinni út á flugvöll. Eitt sinn ætlaði hann og vinur hans að fara og horfa á kappakstur einn sem var hinum megin í Bandaríkjun- um. Vinurinn var búinn að panta flugvél á leigu fyrir þá báða og talaði mjög fjálglega um þær fögru stúlkur sem biðu þeirra hinum megin í landinu. Smith lét því til leiðast að fljúga með honum. Áður en þeir héldu af stað þurfti vinurinn auðvitað að reyna flugvélina með þvi að taka á henni alls kyns beygjur og jafnvel að snúa henni á hvolf. Aumingja Smith sat bara með öndina í háls- inum en þorði ekki að viðurkenna að hann væri skelfingu lostinn. En þegar þeir svo loksins flugu af stað fékk vinurinn honum það mikið af verkefnum að hann var fljótur að gleyma hræðslunni. Hann þurfti að fylgjast nákvæm- lega með því sem gert var og taka ákvarðanir um næsta skref hverju sinni. Eftir þetta segist Smith aldrei hafa verið hræddur í flugvél. Nú segist hann vita og skilja nákvæmlega hvað það er sem um sé að ræða og hann gæti þess ávallt að hafa nóg að gera í loftinu. Bezta ráðið telur hann því vera að hafa nóg að gera og það að læra hvað það sé sem stjórni lögmálum þess sem maður er hræddur við. Þeir sem til dæmis eru haldnir ótta við kynlíf, segir hann.eiga einfaldlega að kynna sér meira um það og þá hverfi hræðslan. Maðurinn skapar sér að miklu leyti sinn eigin ótta og sömuleiðis eigi hann að getá læknað hann líka sjálfur ef hann vill. Auðvitað getur verið gott að leita til ein- hvers vinar og fá hann til þess að standa með sér í lækningunni. Þessi vinur mætti alveg eins hafa það starf að vera læknir, sál- fræðingur eða atferlisfræðingur. Langflestireða um 95% manna telur Smith að geti læknað sig af eigin ótta og jafnvel á mjög skömmum tíma En ekki vita allir hvernig bezt er að fara að og er þá gott að leita til sérfræðinga. Smith mælir einnig með því að menn reyni að beina huganum að einhverju öðru en því sem þeir hræðast. Ef þeir eiga til dæmis að gera eitthvert stórvirki sem þeir óttast að þeir ráði ekki við er bezta ráðið að hugsa ekkert um það heldur að hlakka til einhvers annars sem gott er og gleðilegt. Þó ekki væri annað en það að borða góðan mat. Menn geta sigrazt á óttanum, það er einungis spurning um vilja. DB-þýddi og endursagði. Verzlun Verzlun Verzlun ANDARTAK Hér kemur auglýsing um nýjar bækur frá BÓKAMIÐSTÖÐINNI innanskamms Takjð eftir Eruð þið í vandræðum með jólagjöfina? Ef svo er, lítið þá inn hjá okkur. Við höfum mikið úrval af gjöfum handa þeim er hafa áhuga á rafeindafræði t.d. bækur og einfaldar sem flóknar rað- einingar. Gefið góða iærdómsrika jólagjöfí ár. Sameindhf. Grettisgötu 46, sími 21366 Trésmiðja Kópavogs & Auðbrekku 32 Sími40299 Verzlunin ÆSA auglýsir: Seljuin guileyrnalokka i i með nýrri tækni. Notum dauðhreinsaðar gullkúlu Vinsamlega pantið í sima 23622. Munið að úrvalið af tfzkuskart i,'lpun um er i /LsU. Á ANDARTAK Hér kemur auglýsing um nýjarbækur frá BÓKAMIÐSTÖDINNI innanskamms Kigum glæsilegt úr- val af póleruðum smáborðum m/- hlómaútflúri i borð- plötu. Einnig rokóko-horð m/út- skurðl og/eða Onix borðplötu. Sendum um allt land. Síminn er 16541. cNÝÍa, SólstuFgcrói W LAUGAVEGI 134w REYKJA' < ANDARTAK Hérkemurauglýsing um nýjar bækur frá BÓKA MIÐSTÖÐINNI innanskamms Snyrtiborðálager • sérsrr.íðum: Konungleg hjónarúm öll húsgögn, kla'ðiskápa og baðskápa. Sérhúsgögn IngaogPéturs Brautarholti 26 — Simi 28230. Skrifstofu SKRIFBQRD VönduÓ sterk skrifstofu ikrif- borð i þrem stærðum. Á.GUÐMUNDSSON Húsgagnaverksmiöja, Auóbrekku 57, Kópavogi, Simi 43144

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.