Dagblaðið - 05.12.1977, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 05.12.1977, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1977. Arabaleiðtogar: IRAK FOR UT AF TRIPOUFUNDINUM —ekki samstaða gegn Egyptum Fundur Arabaleiðtoga i Tripoli, höfuðborg Lfbýu, til að ákveða aðgerðir gegn Egyptum sem hyggjast ræða við fulltrúa ísraelsmanna í Kairó næstu daga, fór út um þúfur í dag. Gekk fulltrúi íraks þá af fundi og vildi ekki fallast á ^hug- myndir Líbýu, Alsír, Sýr- lands, Suður-Jemen og Palestínumanna. Vildi fulltrúi íraksstjórnar hafa aðgerðirnar mun strangari en ákveðið var. Þrátt fyrir andstöðu Íraks ætla hinar þjóðirnar að undir- skrifa samkomulagið, sem verða mun í sex liðum. Meðal atriða eru algjör stjórnmálaslit við Egyptaland, flutningur á höfuðstöðvum Arababandalags- ins frá Kairó og þar til flutning- um væri lokið mundu engir fundir verða haldnir. Ríkin, sem undirrita ætla Tripolisamkomulagið ætla að gera gagnkvæman varnarsamn- ing, þannig að ef ráðizt verði á eitt þeirra jafngildi það árás á þau öll. Einnig er ætlunin, að flytja höfuðstöðvar samtaka Arabaríkja. Þau hafa mjög lítið starfað að undanförnu en í sam- tökunum eru Egyptaland, Sýrland og Líbýa. Þrátt fyrir að öll ríkin sem sóttu Tripolifund- inn nema írak hafi komizt að samkomulagi vantar allan hernaðarlegan mátt til að fylgja raunverulegri einangrun eftir. Fjarvera íraks setur þar stórt strik í reikninginn að sögn sér- fræðinga. Helzta atriðið, sem telja má að náðst hafi fram á ráðstefn- unni er að samtök Palestínu- flóttamanna ákváðu að samein- ast á fundinum. Hingað til hefur samkomulag verið stirt milli tveggja höfuðhópa Palest- ínumanna. Malasía: Eitt hundrað létust er þota fórst eftir rán Eitt hundrað manns fórust þegar Boeing 737 þota frá Malasiu hrapaði þar í landi nálægt þorpi að nafni Kampung Ladang. Að sögn björgunarmanna sem komu á slysstað í nótt mun vélin hafa tætzt í sundur og enginn komizt lífs af. Ekkert hefur fundizt heillegt en líkamshlutar og brak úr vélinni dreift um stórt svæði. Þotunni, sem var á leið frá ferðamannanýlendu í Malasíu til höfuðborgarinnar, Kuala Lumpur, var rænt og tilkynnti flugmaðurinn það skömmu eftir flugtak. Sagði hann vera þar á ferð japanska Rauða her- inn með handsprengjur og fleiri vopn. Tilkynnti flug- maðurinn að hann mundi stefna til Singapore en skömmu síðar hvarf þotan af ratsjár,- skermum en þá átti hún aðeins ófarna 90 kílómetra á ákvörðunarstað. Meðal farþega munu hafa verið um það bil tuttugu út- lendingar. Þar á meðal var sendiherra Kúbu í Malasíu, einnig landbúnaðarráðherra Malasiu. Ekki er ljóst hver tilgangur flugræningjanna hefur verið en japanski Rauði herinn hefur framið nokkur flugrán til að krefjast þess að félagar þeirra yrðu látnir lausir úr fangelsum víða um heiminn. Astæðan fyrir því að þotan hrapaði svo skyndilega til jarðar er með öllu ókunn. Miklir erfiðieikar voru við að leita þeirra týndú í rústum húsanna í Gautaborg eftir aurskriðuna miklu tsíðustu viku. Eins og gioggt má sjá á myndinni verður ekki aftur búið í þessum húsum enda er allt í óvissu hvort nokkurn tímann verður byggt aftur á því landsvæði sem Tuvehvcrfið stendur á. Miðafríkuríkið: BOKASSA KRYNDURAÐ HÆTTINAPOLEONS Bokassa keisari Mið- Afríkuríkisins krýndi sjálfan sig'og konu sína í gær að hætti Napoleons Bonaparte en þann mann dáir hinn nýi keisari mest allra. Nýi keisarinn, sem var tuttugu og þrjú ár í franska hernum kom aftur á heima- slóðir árið 1960 þegar ríkið fékk sjálfstæði. Sex árum síðar tók hann öll völd í sínar hendur og setti David Dackó forseta frá völdum. Bokassa vildi þó forðast iill óþarfa vandræði við valdatökuna og gerði fráfar- andi forseta að ráðgjafa sínum og heldur sá stöðunni ennþá. Mikið var um dýrðir við krýningarathöfnina í gær, sjálfur kom Bokassa keisari ásamt eiginkonu sinni til at- hafnarinnar í sérsmíðuðum vagni sem dreginn var af átta gráum gæðingum sem kontu all aJe^FfrtrFTá k k 1 a n d i. Mið-Afrikuríkið er nijög fá- tækt land og ríkir Bokassa þar, sem algjör einvaldur. Talið er að stór hluti þjóðartekna ríkis- ins þetta árið fari til greiðslu kostnaðar vegna krýningar keisarans. Erlendar fréttir Kalifomía: Þykjast kvennamorð- ingjarnir vera lögreglumenn? Lögreglan í Los Angeles í Kali- forníu hefur handtekið mann einn, sem hún grunar að hafa átt einhvern eða allan þátt í tíu morðum á ungum konum, sem framin hafa verið þar síðustu sex vikur. Hinn handtekni er tuttugu og fjögurra ára og var hann hand- tekinn á vinnustað sínum, fata- verzlun, og ákærður fyrir þjófn- að. Við leit í bifreið hans fannst kvenfatnaður af ýmsu tagi sem lögreglumenn töldu að gæti bent til tengsla fangans við morðin á konunum. Öll hafa morðin verið þannig áð fórnardýrið hefuT vérið kyrkt og misþyrmt kynferðislega. Vitni hafa gefið sig fram, sem segjast hafa séð konuna sem síðast fannst myrt þar sem hún fór að svartri og hvítri bifreið í fylgd tveggja manna. Er jafnvel álitið, að hún hafi talið sig vera I fylgd lögreglumanna en lögreglan í Kaliforníu notar bifreiðir, sem eru svartar og hvítar. Mikill ótti hefur gripið um sig í Los Angeles, sérstaklega í þvi út- hverfi borgarinnar, þar sem líkin hafa flest fundizt. Sérstök lög- reglusveit hefur verið sett á stofn til að rannsaka málið. Hafa konur verið hvattar að hafa bifreiðir sínar læstar, þegar þær eru við keyrslu og stöðva ekki á fáförnum stöðum. Hafa konur jafnvel verið varaðar við að nema staðar vegna bifreiða sem virðast vera lög- reglubifreiðir nema aðyel athug- uðu máli. _________________ Bretland: Níu hundruð tíma í plötu- búrinu Brezkur plötusnúður, John James, setti í gær nýtt met í að vinna sem plötusnúður í sam- fleytt 900 klukkustundir. James vann afrekið á veitingastað í Lon- don en það var að nokkru leyti framkvæmt í auglýsingaskyni til styrktar rannsóknum á lömunar- veiki. Fyrra metið í plötusnúðastarf- inu .var 800 klukkustundir, sem Mark Gundelman átti. Samkvæmt reglum Heimsmeta- bókar Guinness má ekki leika lög af stórum hljómskífum nema í mesta lagi helming tímans. Ítalía: Stórforstjóri og tveir bankastjórar ífjármála- hneyksli Forstjóri þriðja stærsta efna- vöruf.vrirtækis Italíu. Nino Rowelli, var sviptur vegabréfi sínu i fyrradag að kröfu opinbers ákæranda. Opinber rannsókn fer nú fram á fjárhagsstöðu fvrirtækisips a« - -hlf^.lnlpnuai-trtekimTgum og 'svikum þar að lútandi. í það minnsta tveir banka- stjórar ítalskir eru einnig að ein- hverju leyti taldir flæktir i málið. Vitað er að stór hluti þess fjár- magns. sem efnavörufyrirtækið hefur yfir að ráða, hefur kontið frá bönkúm, sem þeir stjórna. Forstjórinn Rowelli hefúr neitað öllum ásökunum á hendur sér og fyrirtækinu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.