Dagblaðið - 05.12.1977, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 5. DESEMBí^R 1977.
3
Móðir í Mosfellssveit:
„Ekki virðist hafa tilætluð áhrif að
loka kynferðisglæpamenn inni"
IVIóðir í Mosfellssveit skrifar:
Hvað er eiginiega að gerast i
landinu? Er allt að verða snar-
vitlaust? Daglega má lesa i
blöðunum fréttir af kynferðis-
glæpamönnum sem misþyrma
bæði litlum drengjum og telp-
um. Þetta er hræðilegt.
Við vitum ekki hvar þessir
glæpamenn ná í næsta fórnar-
lamb sitt, — inni í höfuðborg-
inni, á Vífilsstaðaveginum, á
Vesturlandsvegi, á Reykjanes-
brautinni, í Hafnarfirði
eða....
Nú er orðið algengt að krakk-
ar „fari á puttanum“ eins og
það er kallað. Ég á sjálf tvo
drengi og ég veit að þeir fara
iðulega á milli borgarinnar og
heimabyggðarinnar á þennan
hátt. Það gera líka fleiri, — það
hef ég séð og oft tekið bæði
stráka og stelpur upp í bílinn'
þegar ég hef verið á ferð.
Ef þetta er ekki lengur hægt,
— vegna þess að börnin vita
aldrei hvers konar maður það
er sem situr undir stýri, þá er
kominn einum of mikill stór-
borgarbragur á lífið hér.
En hvað á að gera við svona
menn? Það virðist ekki hafa
tilætluð áhrif að loka þá inni í
fangelsi. Þeir byrja aftur þegar
þeim er sleppt út. Hvernig væri
að vana þá? Þessir menn eru að
fremja glæp, — en ekki er vist
að þeir ráði fullkomlega gerð-
Brýna verður fyrir börnum að fara ekki upp í bíia til ókunnugra manna.
um sínum. Þetta er áreiðanlega
einhvers konar hryllilegur
sjúkdómur, og væri þá ekki
þessum mönnum greiði gerður
með því að vana þá.
Greinilegt er að eitthvað
verður að taka til bragðs og það
sem allra fyrst.
Raddir
lesenda
eru
einnig
ábis.4
n
-
Fyllt lamb
í tjkitium 1 rti n
tilv.tlinn. góðúí
Áttuvoná
gesturn?
Ómlssandl
matreiðslubók
i þessari nýju matreiðslubók er fjöldi
uppskrifta að völdum réttum sem mat-
reiddir eru þegar eitthvað stendur til,
t.d. þegar von er á gestum, eða búa
skal til sérrétti handa fjölskyldunni.
Vinstra megin á hverri opnu inni í
bókinni er stór litmynd af réttinum til-
búnum, en á hægri blaðsíðu eru upp-
skriftirnar ásamt litmyndum sem sýna
handtökin við undirbúning og gerð
réttanna — sem sagt augljós og
greinargóð lýsing.
I bókinni eru 360 stórar og smáar lit-
myndir og sem sýnishorn af réttum
má nefna: Fiskrétti — kjúklinga, —
svínakjöt — piparsteik — súpur —
brauð og eftirrétti.
Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir hús-
mæðrakennari þýddi bókina, stað-
færði og sannprófaði réttina.
Bók, sem á heima í eldhúsi hvers
heimilis.
SETBERG