Dagblaðið - 05.12.1977, Síða 4
KYNFERÐISGLÆPAMENN
Hríngiöísíma
27022
millikl. 13
oglS
Móðir þakkar fyrir nafnbirtinguna:
VERST AÐ ÞIÐ SKYLDUÐ
EKKIFÁ MYND LÍKA
G.A. hringdi:
Mig langar aðeins til þess að
koma á framfæri þakklæti
mínu til ykkar fyrir nafnbirt-
inguna á kynferðisafbrota-
manninum. Verst þykir mér að
þið skylduð ekki geta útvegað
mynd af honum líka.
Ég er með þrjú börn á skóla-
aldri og er dauðhrædd um
börnin mín. Eg lenti sjálf í þvi
að kynferðisglæpamaður leitaði
á mig í æsku og hafði það skað-
leg áhrif á mig frameftir öllum
aldri. Sá maður náðist en hon-
um var sleppt aftur þannig að
hann lék lausum hala og urðu
fleiri en ég fyrir áreitni hans.
Þessir menn eiga ekkert gott
skilið.
Annars finnst mér að miklu
meira ætti að vera um nafnbirt-
ingu glæpamanna og helzt ætti
•alltaf að birta af þeim myndir.
GERIÐ BRAGARBÓT
Halldór Stefánsson hringdi:
Við sem enn tölum íslenzku
fáum sting í eyrun þegar
drynur í auglýsingatíma sjón-
varpsins röng notkun boðháttar
af sögninni að kaupa. I auglýs-
ingunni verður hún keyptu —
að ég held bíl — hjá bilasölu.
„guffins".
Fprráðamönnum auglýsinga-
stofu sjónvarpsins til ábend-
ingar er réttur boðháttur
kauptu.
Að vísu býst ég ekki við að
þessi vitleysa sé frá þeim
komin, heldur aðsend og flotið í
gegn óbreytt.
En gott fólk! Gerið
bragarbót.
Fanney Fells, gangastúlka á
heilsuhælí NLFt, Hveragerði, 35Þ
ára: Nei, ég er ekki farin til þess
enn. Ég gef svona sjö til átta'
gjafir. Jú, ég fer að drífa í því
bráðum.
SEM GANGA LAUSIR”
Móðir í Keflavík hringdi:
Alveg finnst mér hryllilegt
að þessir kynferðisafbrota-
menn sem undanfarið hefur
verið sagt frá í fréttum skuli
ganga lausir. Þeir komast upp
með að eyðileggja börnin áður
en þeim er refsað.
Eg á þrjá drengi og mig hryll-
ir við tilhugsuninni um þessa
glæpamenn. Börnin okkar eru
hvergi óhult í raun og veru.
Mér finnst nauðsynlegt að
birtar séu myndir af þessum
glæpamönnum til þess að börn-
in geti kannske lært að þekkja
þá og vara sig á þeim. — Þegar
þeim er sleppt úr fangelsi eftir
að þeir hafa afplánað sinn dóm
byrja þeir aftur á sinni fyrri
iðju. samanber þessi sem mis-
þyrmdi litla drengnum við
Hafnarfjörð.
Það er krafa allra foreldra að
gripið verði í taumana og komið
í veg fyrir að þessir glæpamenn
gangi lausir.
Efemia Björnsdóttir skrifstofu-
mær, 19 ára: Nei, ég er ekki
byrjuð ennþá. Það er dálítið mis-
jafnt hvað ég gef margar gjafir.
Jón Asgeirsson tónskáld, 49 ára:
Nei, ekki er ég byrjaður á því. Ég
gef aðeins örfáum jólagjafir,
aðeins þeim allra nánustu og ég
sendi aldrei jólakort. Mér finnst
það ósiður.
Georg Douglas menntaskólakenn-
ari, 32 ára: Jú, ég er einmitt að
kaupa jólagjafir og mér hefur
orðið býsna vel ágengt. Við gefum
svona um tíu til tólf gjafir.
Jón Högnason, Kópavogi,
hringdi:
Hann sagði sínar farir ekki
sléttar af seinni póstþjónustu.
Honum hafði verið sendur
pakki frá Neskaupstað á tíma-
bilinu 15—20. desember í
fyrra. Pakkjnn kom ekki til
skila fyrir jól, — hann er
reyndar ekki'kominn til skila
enn.
Fylgibréfið ey til á böggla-
póststofunni í Beykjavík, en
þar sagðist Jón haía fengið þær
upplýsingar að pakkinn fyndist
ekki. Honum var einnig sagt að
týndir pakkar værú bættir en
lítið fengist út úr því og það
borgaði sig ekki að' standa í
svoleiðis löguðu. í p^akkanum
voru tveir kertastjakar, annar
úr smíðajárni, hinn úr ein-
hverju brothættu efní og því
■var pakkinn sendur serp „brot-
hættur". Þar að auki var bók i
pakkanum. Jón langar til þess
að vita hvernig á að snúa sér í
svona máli.
Þorbjörg Hannesdóttir skrifstofu-
mær, 21 árs: Nei, ég er ekki
byrjuð að kaupa jólagjafir. Eg gef
svona í kringum fimmtán jóla-
gjafir.
Svar:
Kristján Hafliðason yfir-
deildarstjóri bögglapóá,tstof-
unnar upplýsti að þegar pakki
týnist í póstinum, sem kemur
raunar mjög sjaldan fyrih, er
sendandi pakkans sá sem héfur
eftirgrennslanina. Hann verður
að kvarta við viðtökupósthúsið
og skýra frá að þessi pakki
hafi aldrei komið til skila. J£r
þá hafin eftirgrennslan eftjr
pakkanum, sem hugsanleg'a
gæti hafa verið ranglega merktv
ur, en ef í ljós kemur að pakk-
inn sé gjörsamlega týndur
getur sendandi gert kröfur um
aðpósturinn bæti það tjón sem
hann hefur orðið fyrir. Send-
andinn hefur allan umráðarétt
Einar Jóhannesson sjómaður frá
Tálknafirði, 23 ára: Nei, ég er
ekki byrjaður enn. Það fer að líða
að því að maður byrji. Hvað ég
gef margar jólagjafir — ja það fer
allt eftir f járhagnum.
jólapakkinn frá Neskaupstað sem týndist fyrir næstum því ári komi í leitirnar fyrir næstu jói!
yfir sendingunni þar til hún
hefur verið afhent réttum
aðila.
Á öllum pökkum er svokölluð
óbein trygging þannig að
hámarkstrygging á pakka
innanlands og til Norðurland-
anna er kr. 21.900. Ef sannan-
lega hefur verið svo mikið verð-
mæti í pakka sem hægt er að
sýna fram á svo að óyggjandi sé
að hafi tapazt greiðir pósturinn.
Þess ber að geta að sá sem
sendi Jóni Högnasyni pakkann
frá Neskaupstað verður að fara
að drífa í að kvarta yfir týnda
pakkanum, því pósturinn er
ekki skyldugur til þess að
geyma óskilapakka nema í eitt
ár og ef tjónið á að fást bætt
verður að kvarta innan eins árs.
MóðiríKeflavík:
DAGBLAÐHL MANUDAGUR 5. DESEMBER 1977
/í
„MIG HRYLLIR VIÐ TIL-
HUGSUNINNIUM ÞESSA
Spurning
dagsins
ERTU AÐ KAUPA
JÓLAGJAFIR?
(spurt 1. desember)
SKJALDBÖKUPÓSTUR 'SZT
FRÁ NESKAUPSTAÐ —L