Dagblaðið - 05.12.1977, Side 14
DAGBLAÐIÐ. MANUDÁGUR 5. DESEMBER 1977. i
.." " M'"\
Nígeríusamningarnir:
Samningar og lífshættir
Nú að undanförnu hafa birzt
fréttir i blöðum af reynslu
nefndar skreiðarframleiðenda,
sem fór til Nígeríu í von um að
fá staðfestingu á samningum,
sem gerðir voru um sölu
skreiðar. Fréttirnar voru ekki
góðar. Nígeríustjórn neitaði
ekki að taka við umsaminni
skreið, heldur vildi hún fresta
kaupum á vörunni. í tæknilegu
máli nígerískrar viðskipta-
mennsku heitir þetta svar ,,að
setja pressu á náungann1'.
Samningsnefndin á næsta
leikinn, og þar sem enginn
annar markaður sést, er hún á
flæðiskeri stödd. Hún verður að
taka tillit til hinna bágu lífs-
kjara í Nígeríu, sem þýða að
jafnvel ráðherrar þarlendis
eiga erfitt með að sjá fyrir fjöi-
skyldum sínum, og borga fyrir
þá eyðslu, sem fylgir stöðum
háttsettra manna í svo ríku
landi. Nefndin á að sýna ráð-
herranum samúð í þessu ljóta
ástandi, svo að hann komist í
gott skap, geti snúið sér að
verkefnum sínum og gleymt
persónulegum erfiðleikum
sínum við að kaupa annan Benz
eða Volvo handa fjölskyldunni.
Flesta lesendur mun nú
renna grun í að ég sé að tala um
að MUTA ráðherranum. Að
sjálfsögðu. En áður en þeir
hrópa á íslenzku ríkisstjórnina
um að vísa mér úr landi, bið ég
þá vinsamlegast að leyfa mér að
lýsa minni stöðu í þessu máli.
DRENGSKAPURINN
Eg er fæddur og alinn upp í
Bretlandi, þar sem hreinskilni
hefur verið í hávegum höfð
nógu lengi til að eiga orðtæki í
málinu svo sem málsháttinn
„honesty is the best policy“, eða
„hreinskilni er bezt i reynd“.
Og þegar einhver svíkur,
orðum við það svo: „He’s not
playing the game“ — „hann
leikur ekki samkvæmt
reglum“.
Ekki er Bretland eina rlkið;
af vestrænum löndum, þar sem
slíkur hugsunarháttur ríkir.
Bandaríkin hafa líka sín orð-
tæki, og maður þarf ekki að
leita lengi í íslenzkum forn-
ritum til að komast að því, að
drengskapur er mikils metinn
eiginleiki eða lífsháttur.
Að vísu hafa Bandaríkin sín
Watergate- og Lockheedmál, og
ekki er það óþekkt, hvorki i
Bretlandi né á íslandi að spill-
ing snerti viðskipti. En þegar
slík vanvirða kemur í dagsins
ljós í þessum löndum, er það
strax hneyksli, og eru aðilar
heppnir að sleppa með að segja
af sér, en oftar fara þeir beina
leið í steininn.
Ég fagna því. Þannig á það að
vera. Þegar drengskapur er
lífsmátinn, verða þeir, er lifa
samkvæmt honum, að vera sem
allra harðastir gagnvart þeim,
er spila á traust þeirra drengi-
legu.
En — eins og kristin trú er
ekki trú alls heimsins, svo og er
drengskapur ekki í eins
miklum hávegum hafður alls
staðar og hér. 1 enskum orðtök-
um eru orðin ,,múta“ og „spill-
ii)g“ tengd saman í venjulegri
samtengingu eins og t.d. „salt-
kjöt og baunir“, í þeim skiln-
ingi að það eru tveir aðilar i
mútugjöldum, annars vegar sá,
sem býður, og hins vegar sá,
sem þiggur. Þeir eru báðir,
hvor í sínu lagi, sekir, en sá,
sem býður, hefur stærri sektar-
hluta — að hafa reynt að spilla
heiðarlegum manni.
En þar sem lífshátturinn
byggist ekki á drengskap, þar
sem mútugjöld eru eins og
önnur eðlileg laun, er varla
hægt að tala um ad hafa spillt
drengilegum manni. Maðurinn
var spilltur, eins og við
myndum orða það, frá skóla-
dögum eða frá bernsku.
En ekki myndi hann taka svo
til orða. Þetta er vaninn hjá
honum. Viðskipti fara ekki
fram, án þess að gjafir fari frá
einum aðila til annars. Þegar ég
vann í Nígeríu um tíma, sá ég
vikulega um að borga viðskipta-
vinum fyrir vörur eða
þjónustu. Ég man ekki eftir að
nokkur útborgunardagur liði
án þess að einhver viðskipta-
vinanna kæmi til min með bréf-
poka. I pokanum var venjulega
áfengisflaska — konlak —
eftir að það uppgötvaðist að það
væri uppáhaldsdrykkurinn
minn. Þetta var mér gefið fyrir
að hafa gert, að mínu áliti, ekki
annað en það, sem starf mitt
útheimti, en að þeirra dómi
greiða. Mér var ráðlagt, að ég
skyldi þiggja þessar gjafir,
vonandi ekki af þvi að ég væri
‘spilltur, heldur vegna þess að
annars myndu þeir líta á mig
sem fábjána. Það myndi hafa
verið lítillækkandi fyrir mig
persónulega og fyrirtækið
reyndar líka, hefði ég neitað
þessum gjöfum. í slikum til-
vikum er ekkert annað að gera,
ef maður vill skipta við svona.
Kjallarinn
James A. Wilde
„spillta” þjóð, en að taka tillit
til staðreynda bera sig að sem
á bæ er títt og borga mútu-
gjöldin.
AD FÁ ÖKUSKÍRTEINI
Í NÍGERÍU
Eins og áður var sagt, hefi ég
unnið í Nígeriu og viðar, þar
sem slíkt gerist og verð að
viðurkenna að það olli mér
ókæti að þurfa að taka þátt í
mútugjöldum, en það var eina
leiðin til að koma áfram
verkum fyrirtækisins. Til að
nefna eitt dæmi: Þegar ég vann
í Nigeríu, kostaði ökuskírteini
um kr. 600.-, en maður sá ekki
skirteinið innan sex mánaða.
Það var ekkert sem hét alþjóð-
legt ökuskírteini. Ef að maður
vildi fá skírteinið fyrr, var
hægt að fá það innan tveggja
vikna fyrir kr. 600.- í leyfisgjald
og kr. 900,- í ,,útgjöldum“. Það
kom fyrir, að maður lenti i
árekstri innan þessara tveggja
vikna áður en skírteinið hans
hafði verið afgreitt. Þá var
mögulegt að fá skírteinið dag-
sett áður en slysið varð fyrir kr.
600.- í leyfisgjald og kr. 19.400,-
í „útgjöldum”, en ég tók alls
engan þátt i þeim kaupum.
Það er ekki of sterkt að segja
að hvert leyfi, sem þörf er á
lögum samkvæmt f Nígeríu, sé
eiginlega heimild fyrir þann,
sem veitir leyfin til að prenta
sína eigin peningaseðla. Væri
það kannski ekki skynsamlegra
að sendinefndin færi aftur til
Nígeríu án opinbers starfs-
manns, og talaði við ráðherrann
einan um þetta vandamál, með
þeim mögulegu afleiðingum að
framleiðendurnir skipti sín í
milli „leyfisgjöldum” upp á 10
milljónir króna. Geta þeir þá
sett á móti þeim útgjöldum
•gjaldeyri fyrir þjóðina, sem
nemur 6 milljörðum króna. Og
munu framleiðendurnir,
bankar eða stjórnin, sem tekur
á móti gjaldeyriqpm, vera verri
menn fyrir að hafa engin fylgi-
skjölfyrir þessar 10 milljónir?
Ekki verri en þeir eru fyrir að'
hafa skipt við múhameðstrúar-
menn, en margir í ríkisstjórn-
inni þarlendis eru þeirrar
trúar.
Eitt viðvörunarorð: Sam-
kvæmt þeim kvikmyndum, sem
ég hefi séð, er reglan
„helmingur út og hinn helming-
inn að viðskiptum loknum“.
James A. Wilde
Bogahlíð 16
Tími orða liðinn —
tfmi athafna kominn
^ ^
EFTIR PRÓFKJÖR 0G
SKOÐANAKÖNNUN
SJÁLFSTÆÐISFLOKiíSINS
í REYKJAVÍK
Prófkjör og skoðanakönnun
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík hefur leitt ýmislegt í ljós,
m.a. að 7500 af 10,000, er tóku
þátt i prófkjörinu eru því fylgj-
andi, að Bandarikjamenn greiði
gjald fyrir aðstöðu þá, er þeir
hafa hér á landi fyrir herlið sitt
á Miðnesheiði. 1 ljós kom
einnig, aó formaður Sjálf-
stæðisflokksins, forsætisráð-
herrann, nýtur ekki þess
trausts, er búast mætti við að
sá maður nyti sem gegnir þeim
stöðum og störfum, sem hann
gerir. Það er út af fyrir sig ekki
óeðlilegt, öllu fremur eðlilegt i
lýðfrjálsu landi þar sem
frjálsar kosningar eru við-
hafðar, að stjórnmálamenn
sigri og tapi, þar kemur til mat
kjósenda á mönnum og störfum
þeirra.
í blaðaviðtali við einn
væntanlegan frambjóðanda
eftir prófkjörið, hafði hann við
orð, er rætt var um útkomu
ráðherranna úr prófkjörinu, að
þetta væri viðvörun kjósenda
til ráðherra flokksins. Þegar
þetta er skrifað er liðinn rúmur
hálfur mánuður frá prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins og má
segja, að aðeins sé farið að rofa
til hjá öðrum ráðherranum,
sem fékk viðvörunina, Gunnari
Thoroddsen iðnaðarráðherra.
Hann hefur nú lýst því yfir að
eðlilegt væri að Bandaríkja-
menn færu nú að greiða ýmis
gjöld, sem þeir hafa ekki verið
krafðir um hingað til. Þeir 7500
þátttakendur í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins, sem voru því
hlynntir að Bandaríkjamenn
greiði hingað aðstöðugjald, geta
óskað Gunnari Thoroddsen til
hamingju með þá uppgötvun
sína, að nú sé komið að skulda-
dögunum, og nú skuli þeir fara
að greiða. En um leið vaknar sú
spurning, hvað eru forustu-
menn þjóöarinnar búnir að
„snuða" íslenzku þjóðina mörg
undanfarin ár, ef nú á árinu
1977 er allt í einu hægt að fara
að láta Bandaríkjamenn greiða
þau ýmsu gjöld og skatta, sem
Gunnar Thoroddsen á að hafa
nefnt samkvæmt Vísisgrein 28.
nóv. sl.? Einnig má óska
Gunnari Thoroddsen iðnaðar-
ráðherra til hamingju með það,
að hann skuli heyra og sjá
skoðanir 7500 kjósenda Sjálf-
stæðisflokksins. Það sama er
ekki unnt að segja um sjálfan
formanninn og forsætisráð-
herrann.
F0RMADUR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Formaður Sjálfstæðisflokks-
ins heyrir ekki og sér ekki
sjónarmið og viija þess hóps, er
tók þátt í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins.
Hann heyrir ekki raddir 7500
flokksmanna sinna. Hann
heyrir ekki raddir sveitar-
stjórnarmanna utan af lands-
byggðinni. Hann heyrir ekki
raddir ungra sjálfstæðis-
manna. Er þetta lýðræði? Er
Sjálfstæðisflokkurinn sá
flokkur hér á landi, þar sem
lýðræði hefur verið mest í
heiðri haft? Ef svo er, þá virðist
núverandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins frekar eiga
heima i öðrum stjórnmála-
flokki. Flokki sem ekki
viðhefur prófkjör, né leyfir
skoðanakannanir stuðnings-
manna sinna. Á sama tíma og
rofar til hjá iðnaðarráðherra,
syrtir að hjá forsætisráðherra.
VERÐMIÐI
Á ÍSLANDI
Sá mikli fjöldi Islendinga,
sem vill, að Bandaríkjamenn
greiði aðstöðugjald vegna veru
sinnar hér, er fólk, sem vill
vera sjálfstætt fólk. Fólk, sem
vill tsland fullvalda og sjálf-
stætt. Fólk, sem ekki sættir sig
við þá betlistarfsemi, sem
landsfeðurnir stunda nú í bönk-
um og lánastofnunum erlendra
þjóða. Það væri vissulega
ánægjulegt, ef íslenzka þjóðin
væri svo vel efnum búin, að
hún gæti tekið þátt f vörnum-
hins frjálsa heims án endur-
gjalds, en svo er því miður ekki,
að minnsta kosti ekki um sinn.
Ekki meðan hvert mannsbarn á
tslandi skuldar sex hundruð
þúsund í gjaldeyri erlendra
þjóða.
Kjallarinn
Eðvarð Árnason
Sjálfsbjargarhvöt þarf
hvorki einstaklingur né þjóð-
félag að skammast sfn fyrir.
Það er ekki skömm fyrir hús-
eiganda, sem á í fjárhags-
vandræðum, að leigja hluta af
húsi sfnu. Það gerir hann af.
sjálfsbjargarhvöt. Ef hann á
hinn bóginn sýndi enga sjálfs-
bjargarhvöt, ætti hann á hættu
að missa hús sitt. Þótt hús-
eigandinn geri þetta er hann
ekki að setja verðmiða á hús
sitt, ■ en hús hans gæti fengið
verðmiða setta á, af lána-
drottnunum, ef hann bjargaði
sér ekki sjálfur. Af þessu litla
dæmi má álykta, hvað getur
hent Isiand, ef síórbokkaháttur
þröngsýnna manna ræður.
Manna, sem ekki eru lengur f
tengslum við vilja þjóðar-
heildarinnar. Það á ekkert að
selja, aðeins að taka gjald fyrir
afnot.
TÍMI ATHAFNA
Nú er hægt að telja tfmann í
mánuðum, þangað til kosningar
verða. Þann tíma verður að
nota vel. Allt það fólk, sem vill
gera endurreisn á fslenska
þjóðfélaginu, verður að þjappa
sér saman. Það má enginn láta
blekkjast af því ráði, sem
forsætisráðherra gaf f sjón-
varpsviðtali nú fyrir skömmu,
að beita útstrikunum. Með
þeim aðgerðum fæst enginn úr-
lausn á vandamálunum. Það er
aðeins ein úrlausn til að fyrir-
byggja, að lánardrottnar er-
lendra lánastofnana’ setji
verðmiða á Island, og það er, að
til komi nýtt lýðræðissinnað
framboð. Framboð, sem gæti
hýst fólk úr öllum flokkum.
Fólk, sem hefði það aðeins -að
markmiði að endurreisa þjóðar-
búskapinn. Þar þarf að koma til
fólk úr öllum stéttum. Þar
vantar múrara til að múr’a
nýjan og traustan hornstein.
Þar vantar stýrimann til að
verja íslensku þjóðarskútuna
brotsjóum. Hún getur ekki
lengur rekið stjórnlaus undan
veðri og vindum.
Eðvarð Arnason
bifreiðarstjóri