Dagblaðið - 05.12.1977, Page 19
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 5. DESEMBER 1977.
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 5. DESEMBER 1977.
Það fínnast hallærís-
plön út um allt land”
Rætt við Jón Þór og Pál í Fjörefni
Sala á A vítamini hefur aukizt
talsvert upp á síðkastið. Astæðan
er ekki sú að þjóðin sé vannærð
fremur venju og ekki er heldur að
ganga smitandi náttblinda. Þetta
er bara lítið dæmi um mátt aug-
lýsingarinnar.
Síðustu vikur hafa birzt alls
konar skrítnar auglýsingar í einu
dagblaðanna um að Fjörefni A+
sé öllum nauðsynlegt. En þetta er
alls ekki einhver pilluauglýsing
heldur er hljómplötuútgáfan
Steinar hf. þarna að auglýsa
nýjustu plötu fyrirtækisins.
Platan heitir A+ og hljómsveitin,
sem leikur á henni er Fjörefni.
Dagblaðið hitti tvo meðlimi
Fjörefnis að máli fyrir helgina.
Þeir eru Jón Þór Gíslason og Páll
Pálsson og eiga heiðurinn af því
að hafa samið öll lög og flesta
texta plötunnar. Upphafléga átti
hún að verða sólóplata þeirra
tveggja, en þegar fram liðu
stundir myndaðist hljómsveitin
Fjörefni.
Þeir Jón og Páll voru fyrst
spurðir að því, hvort þeir væru
ánægðir með A + . Þeir hugsuðu
sig um stundarkorn og loks
svaraði Páll:
„Já, já. Við erum ánægðir með
hana.“
„Svo sem alveg sáttir við hana,“
bætti Jón Þór við.
„Sjáðu til," sagði Páll, „þegar
frá líður kemur náttúrlega alltaf
eitthvað í ljós, sem hefði mátt
hafa öðruvísi. Maður hlustar
öðruvísi á plötuna þegar hún er
búin heldur en meðan verið er að
taka hana upp.“
Jón: „Þarna spilar náttúrlega
inn í reynsluleysi sumra okkar í
stúdíóvinnu. Við vinnum áreiðan-
lega öðruvísi næst.“
Páll: „Við getum þvi sagt, að
miðað við fákunnáttu okkar þá
getum við verið þokkalega
ánægðir með útkomuna.“
AÐDRAGANDINN
Aðdragandinn að gerð A+ var
nokkuð langur. Það var fyrst
haustið 1976 sem það kom til tals
hjá Jóni og Páli að gera hljóm-
plötu.
Jón: „Þó held ég að þetta hafi
verið búið að liggja í loftinu
miklu lengur. Palli pældi í sínum
lögum og ég í mínum.“
Páll: „Það stóð til á sínum tíma
að ég gerði sólóplötu fyrir Steina
hf. Nú, og Steinar Berg útgefandi
hafði einnig áhuga á'Iögum Jóns
og Óla frænda hans, sem voru
saman í hljómsveitinni Dögg með
mér og fleirum. Málin æxluðust
síðan þannig að ákveðið var að við
slægjum saman í eina piötu og ég
held að það hafi verið farsæl
lausn."
DB: Eru lögin af A+ þá flest
eða öll frá þcim tíma þegar Dögg
starfaði?
Jón: „Nei, alis ekki. Aðeins tvö
lög af A+ voru tilbúin áður en
plötuupptakan kom til tals. Það
eru lögin Farandverkamaður og
Með lögum skal land byggja.
DB: Eruð þið hræddir við það,
hvernig viðtökur platan á eftir að
fá?
Páll: „Auðvitað erum við
hræddir. Það byggist alveg á
viðtökunum, hvort við fáum að
gera aðra plötu.“
Jón: „Ef fyrsta platan gengur
illa, þá gengur mun erfiðar en
áður að fá útgefanda. Eg er
hræddur um að við yrðum að
snara okkur á loðnuvertíð og
kosta síðan allt sjálfir, ef A+ selst
ekki.
FYRIR HVERJA?
Heil plötusíða á A+ er lögð
undir efni um Hallærisplanið.
Hinum megin eru síðan lögin
Farandverkamaður. Þú, I læra-
læk, Disco dans og Meiri sól. —
Þeir Páll og Jón voru spurðir að
því til hverra A+ höfðaði helzt.
Þeir litu hvor á annan, ekki alveg
viðbúnir að svara þessari spurn-
ingu. Loks sagði Jón:
„Það verður bara að koma í
ljós. Efni textanna, sérstaklega á
Hallærisplanssíðunni, höfðar
fremur til unglinga en fullorð-
inna. Það er þó engin vísbending
fyrir því að þeim, sem eru orðnir
eldri en fjórtán ára, þurfi að
leiðast platan."
Páli: „Ég held að A+ hljóti að
höfða til þeirra, sem hafa gaman
af rokki, — aldurinn skiptir ekki
máli.“ Og hann bætti við: „Ég er
mjög sorgmæddur yfir stöðu
unglinga í þjóðfélaginu þessa:
dagana. Skemmtiaðstaða þeirra
er til dæmis fyrir neðan allar
hellur. Ég held að það væri bezt
fyrir alla aðila ef fólk fæddist
tvitugt að aldri. Þá væri málið
ekki eins flókið.
Við verðum mjög ánægðir, ef
við fréttum að A+ verði til þess
að farið verði að ræða frekar öll
þessi óteljandi unglingavanda-
mál, — að efni textanna fái
einhverja, til dæmis foreldra, til
að hugsa svolítið."
HALLÓ ALLS STAÐAR
Upphaflega áttu aðeins tvö lög
ÁSGEIR
TÓMASSON
Enn á jörðinni” er komin iít
Hljómplatan Enn á jörðinni
er komin á markaðinn. Flytj-
endur eru hljómsveitin
Deildarbungubræður. A plöt-
unni eru tíu lög, öll eftir Axel
Einarsson og Arna Sigurðs-
son.
Enn á jörðinni er önnur
plata bræðranna frá Bungu.
Fyrsta platan kom út fyrir
jólin í fyrra og bar nafnið Saga
til næsta bæjar. Utgefandi
beggja platnanna er fyrirtækið
Icecross.
Nýju plötunni fylgja nokkur
orð frá útgáfufyrirtækinu, þar
sem sérstaklega er vakin
athygli á boðskap þeim, sem
fram kemur i laginu jákvæður
miðlínumaður. Þar er bent á
nýja vídd í stjórnmálum, það
er Upp og niður.
Hljómsveitina Deildar-
bungubræður skipa nú Axel
Einarsson, Arni Sigurðsson,
Kristinn Sigurjónsson
Ólafur Kolbeins.
og
AT
af A+ að fjalla um Hallærisplanið
en þeim fjölgaði í fimm meðan
platan mótaðist. Meðlimir
Fjörefnis fylgdust að sjálfsögðu
vandlega með framvindu mála á
Halló og áreiðanlega hafa þeir
vonað í hjarta sínu að ástandið
þar breyttist ekki til batnaðar
fyrr en platan væri komin út. —
Én höfðu meðlimir Fjörefnis
sjálfir farið á Hallærisplanið?
Páll: „Jú, ég hef komið þangað.
Reyndar stóð ég ekki við frá átta
til þrjú um nóttina, en þó nógu
lengi til að sjá, hvað var að gerast
þar. Nú, — á tímabili var skrifað
mikið um ástandið í blöðin og það
hafði að sjálfsögðu mikil áhrif á
efnisvalið hjá okkur.
„Jólastrengir” eru komnir út:
„ Verðugur minnis-
varði um Hljóm-
plötuútgáfuna hf. ”
—segja útgefendumir sem telja að
fyrirtækið verði að hætta störfum
umáramótin
FJÖREFNI A HALLÆRISPLANINU —
Hljómsveitin er nú þegar farin að íhuga
Það er eflaust fjöldi fólks, sem
heldur að vandræðaástandið á
Hallærisplaninu sé liðið undir
lok, bara af því að blöðin eru
mikið til hætt að skrifa um lætin
þar. Mér skilst að lögreglan hafi
farið fram á að ástandið væri ekki
auglýst upp til að það yrði ekki
„töff“ að vera vandræða-
unglingur á planinu."
Jón: ,,En einu má ekki gleyma
og það er að það eru fleiri
Hallærisplön á landinu en þetta
eina sanna í miðbæ Reykjavíkur.
Lítum bara á nágrannabæina. í
Garðabæ safnast unglingarnir
sarnan í sjoppunni við Vífilsstaða-
veginn, í Hafnarfirði eru þau á
Essósjoppunni og við Aðalstöðina
í Keflavík. Þannig mætti lengi
telja. Og þó að ástandið á Halló í
Reykjavík leysist þá er enn eftir
að útrýma Hallærisplönum út um
allt land.“
NÆSTA PLATA
DB: Þið segizt vera reiðubúnir
að gera aðra plötu. Eru lögin á
hana tilbúin?
Jón: „Það ætti ekki að vera
vandamál. Við Palli eigum
talsvert af lögum í pokahorninu.
Nú, og síðan semur Nikulás
Róbertsson og einnig Asgeir
Óskarsson. Nei, við ættum frekar
að lenda í vandræðum með að
velja úr.“
DB: Þetta þýðir þá, að Fjörefni
á eftir að starfa saman óbreytt frá
því sem nú er.
Fæðingarhríðir A+
gerð nýrrar plötu.
hafa árelðanlega verið óvenjulega miklar. —
DB-mynd Harður Vilhjálmstoir
Páll: „Já, við eigum eftir að
halda hópinn allir sex.
Þegar maður fer að hugsa um,
hvernig Fjörefni varð til og
hvernig A+ komst loksins á
markaðinn, þá hafa þetta áreiðan-
lega verið óvenju miklar
fæðingarhríðir. í upphafi átti
platan bara að vera með okkur
Jóni og gamla Eikin hafði tekið að
sér að leika undir. Síðan breyttist
sú hljómsveit mjög og þá
fengum við Nikulás, Jóhann
Þórisson, Örn Hjálmarsson gítar-
leikara og Olaf Kolbeins tromm-
ara til að leika með okkur. Síðan
fóru tveir þeir síðastnefndu til
Svíþjóðar og ætluðu að slá í gegn
þar. Eftir nokkra mæðu duttum
við loks niður á Tryggva Hubner
og Ásgeir Óskarsson og þannig
skipaðir tókum við A+ upp.
Platan sjálf varð fyrir miklum
töfum loksins eftir að búið var að'
taka hana upp. Önnur hliðin var
eyðilögð gjörsamlega eftir að hún
hafði verið skorin. Einhverra
hluta vegna komst skítur að
henni. svo að vinna varð allt upp
aftur. Þá var skollið á verkfall á
tslandi, svo að plötumiðarnir
stoppuðust hér heima. Seint og
um síðir fréttum við loksins af því
að allt væri tilbúið og þá bilaði
Cargolux flugvélin, sem átti að
flytja hana heim. Við biðum að
lokum spenntir eftir því, hvort
flugvélin hrapaði, þegar platan
kom loksins til landsins. En hún
hafði þetta samt af.“
DB: Við vorum að tala um nýju
plötuna. Hvernig verður hún?
Jón: ,,Góð.“
Páll: „Fyrir utan það, þá á hún
að fjalla um sex stráka í þorpi úti
á landi, sem gæti til dæmis heitið
Dritvík. Þeir vasast hver í sínu
starfinu. Einn er í bræðslunni,
annar á kaupfélagsskrifstofunni
og svo framvegis.
Þessir strákar stofna hljóm-
sveit og æfa og leika á fullu á
böllunum. Hápunktur frægðar-
ferils hljómsveitarinnar verður,
þegar hún kemur til Reykjavíkur
og fær að spila í pásu á Röðli.“ —
Fjörefni, takk fyrir...
AT
„Við höfum ekkert sparað til
að gera þessa plötu sem bezt úr
garði. Ef svo fer, að við verðum
að hætta rekstri Hljómplötuút-
gáfunnar um áramótin, þá
viljum við geta bent á verðugan
minnisvarða um fyrirtækið, —
plötu, sem við getum verið
stoltir af.“
Svo fórust Magnúsi Kjartans-
syni — einum eigenda Hljóm-
plötuútgáfunnar hf. — orð, er
hljómplatan „Jólastrengir" var
kynnt blaðamönnum á fimmtu-
daginn. Hann var beðinn um
frekari áréttingu á orðum
sfnum.
„Jú, við teljum að rekstur
fyrirtækisins gangi ekki nógu
blómlega eins og stendur til að
það borgi sig að halda þessu
áfram. Við höfum alltaf átt við
erfiðleika að etja frá upphafi
og nokkrir félagar flúið af
hólmi af þeim sökum. Nú er svo
komið að við þörum ekki lengur
að vona að við eigum eftir að
rétta úr kútnum. Við leggjum
því allt okkar undir á „Jóla-
strengi“ og treystum því að al-
menningur veiti plötunni þær
viðtökur, sem við teljum að hún
eigi skilið."
Annar eigandi Hljómplötuút-
gáfunnar, Jón Ólafsson, upp-
lýsti að ef platan ætti að standa
undir framleiðslukostnaði yrði
hún að seljast í um 5.500
eintaka upplagi.
„Upptaka plötunnar tók 240
tíma,“ sagði Jón. „Reyndar tals-
verður tími í alls kyns tilraunir
í kringum upptökurnar til þess
að sem beztur árangur næðist.
Annars var skurður plötunnar
einnig óvenju dýr. Við tókum
þá ákvörðun að láta alvöru
fyrirtæki vinna verkið og leit-
uðum til Atlantic í Bandaríkj-
unum. Verkið, sem kostar að
öllum jafnaði ekki nema 80-90
dollara, kostaði okkur 700
dollara.
Með þessu teljum við tryggt
að upptakan, sem var vandað til
hér heima eins og frekast var
kostur, komi nú fullkomlega til
skila. Allt of algengt er, að
góðar plötur séu skemmdar
með handahófskenndum
skurði.“
Stjórn upptökunnar á „Jóla-
strengjum" var í höndum
Jónasar R. Jónssonar. Heiður
af útsetninguin á Karl Sighvats-
son. Á annarri hlið plötunnar
eru létt jólal’ög, en á hinni var
Iögð höfuðáherzla á að ná fram
stemmningu um helgi jólanna.
Fjöldi flytjenda kemur fram á
plötunni, bæði söngvarar, og
hljóðfæraleikarar. Umslagið
hannaði enskur myndlistar-
maður, Miles Parnell.
AT
Jón Ólafsson og
Magnús Kjartans-
son forkólfar
Hljómplötuútgáf-
unnar hf. Ekkert
var til sparað að
gera „Jólastrengi"
sem bezt úr garði,
þar eð platan kann
að verða sú síðasta
sem fyrirtækið
gefur út.
DB-mynd: Höröur Vilhjálmsson.
Póstsendum
pumn
Æfingaskór
AVALLT EITTHVAÐ NYTT!
Handboltar (minir dömu- og herra)
íþróttatöskur
Póstsendum
pumn
\
Fram, Valur, Liverpool,
KR, Man. City o. fi. gerðir
%
-A'.
/ELOUR
ÍD.BALL
Iþróttatöskur
m
pumn
m
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 — Sími 11783
Karate-og'
júdóbúningar
Hrí
Út um qraino
qrundu.
QrQCim)
i o
Ný plata meó vísum
úrVísnabóbinni
Frábært framlag Gunnars Þórðarsonar, Björgvins Halldórssonar
og Tómasar Tómassonar. Vísurnar, þulurnar ög þjóðkvæðin,
sem Vísnabókin geymir, eru löngu orðin alþjóðareign. Fyrri
platan með vísum úr Vísnabókinni, EINU SINNI VAR, naut
meiri vinsælda en dæmi eru til um íslenska hljómplötu. Öhætt
er að fullyrða, að nýja platan, ClT UM GRÆNA GRUNDU, er
ekki síður líkleg til vinsælda og langlífis en hin fyrri.
VISNABÓKIN er nýkomin út í 6. útgáfu og hafa
þá verið prentuð af henni yfir fjörutíu þúsund
eintök, enda er þessi afar vinsæla þók löngu
orðin sjálfsögð eign á heimilum landsins.
itiuii)
e'TfT' m w-a 'W'
Bræóraborgarstíg 16, Sími 12923-19156