Dagblaðið - 05.12.1977, Side 20

Dagblaðið - 05.12.1977, Side 20
24 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 5. DESEMBER 1977. „Ég var ástkona Sjakalans — hættulegasta manns í heimi” Greinin í People vakti mikla athygli. Hér sést Inger með hana á —segir Inger Weile Inger var smurbrauðsdama þegar hún og Simon Spies voru saman. Eftir að þau skildu reyndi hún að fremja sjálfsmorð. héldu svo til Bandaríkjanna 1 október spurði Carlos hvort hann mætti fá íbúðina þeirra lánaða. Þvi neitaði Inger ein- dregið. Samt sem áður ók hann þeim á flugvöllinn og kvaddi „Hann var sannur heiðurs- maður, gjafmildur og mjög rólegur.“ Svona lýsir hin danska Inger Weile einum af slnum mörgu elskhugum. Sá sem svona góðan dóm fær var að eigin sögn verzlunarmaður frá Líbanon en í raun og veru var hann skæruliðaforinginn Carlos eða öðru nafni Sjakal- inn. Eftir honum hefur verið: lýst um allan heim sem hættu- legasta manni veraldar. En Inger er á annarri skoðun og hana hefur hún opinberað í bandaríska tímaritinu People. Inger var ástmær Sjakalans i hálft ár eftir því sem hún segir sjálf. Aður hafði hún slegið sér upp með hinum fræga pipar- sveini Simon Spies. Hún segir að sér hafi verið með öllu ókunnugt um að Carlos væri eftirlýstur enda lesi hún blöð af lítilli nákvæmni. Hann sagði Inger að hann væri verzlunarmaður frá Líbanon og héti Johnny. Hvert ættarnafnið væri vildi hann ekki segja. Raunverulega heitir Carlos Ilich Ramirez Sanchez og er frá Venezuela. Þau Inger hittust í Paris árið 1974. Hún segist hafa orðið ástfangin við fyrstu sýn og telur slikt hið sama hafa verið með hann. Þau skildu í október sama ár en þá fór Inger til Bandaríkjanna með vinkonu sinni. Þegar þau hittust var Inger^ nýhætt að vera með Spies. Þá' hafði hún reynt að fremja sjálfsmorð og verið hætt komin. Strax og hún hafði jafnað sig að mestu hélt hún til Parísar þár sem ástin blossaði á ný. Inger leigði sér íbúð i fjölbýlishúsi ásamt vinkonu sinni. 1 næstu íbúð bjó Carlos. Eitt kvöldið var mikill gleðskapur í báðum ibúð- unum og þá kom ,,Johnny“ yfir til stúlknanna til þess að fá ísmola. Inger fylgdi honum svo yfir í íbúð hans og samband þeirra hófst.- Carlos var ósínkur á fé. Hann bauð þeim Inger og vinkonunni á dýr veitingahús og keypti gjafir handa þeim. Hann var alltaf vel til fara og bar sig eins og heimsmaður. Þegar Inger og vinkonan í október fór Inger ásamt vinkonu sinni til Bandarikjanna. Carlos ók þeim á flugvöilinn þar sem þessi mynd var tekin. B*»W»*d* Eina myndin sem til er af Carlos. Sumir telja að í raun- inni sé alltaf um sinn hvorn manninn að ræða og að enginn einn „Carios“ sé til. Inger sína með kossi. Eftir það fékk hún tvö bréf frá honum. Hann skrifaði meðal annars að hann hefði greitt fyrir hana rafmagnsreikning sem hún hafði skilið eftir sig. Átta mánuðum eftir að þau Inger og Carlos skildu leiddi kunningi Carlosar lögregluna á slóð þeirra .og íbúðin í París fannst. Carlos var þó snöggur að koma sér undan og löggan sat eftir með sárt ennið. Þegar Inger kom til Dan- merkur árið 1975 reyndi hún að finna „Johnny“ en henni varð ekkert ágengt, engu var. líkara en að jörðin hefði gleypt hann. Ennþá vissi hún ekki hver hann raunverulega var. Það var ekki fyrr en um jól að sannleikurinn rann upp fyrir henni. Þá sá hún af tilviljun fréttamynd í sjónvarpinu þar sem andlitsmynd af Carlosi kom fram. Þegar hún sá mynd- ina hrópaði hún upp yfir sig „Guð, þetta er Johnny" og eftir það fylgdist hún vel með því sem um hann var sagt. Enginn veit núna hvar hægt er að finna Carlos. Mörg þeirra verka sem hryðjuverkahópar hafa staðið fyrir hefur honum verið kennt um. Þar má til dæmis nefna ránið á olíuráð- gjöfunum á ráðstefnunni i Vín árið 1975 og ránið á flugvélinni sem lent var á Entebbe flug- velli en ísraelsmenn tókst að ná burtu. Lítið hefur þó heyrzt um Carlos þetta árið og er engu likara en að hann sé ekki lengur ofan jarðar. Sú tilgáta hefur jafnvel komið fram að Carlos hafi aldrei verið til eða að margir menn standi að þeim morðum og ránum sem honum er kennt um. SNARKRULLAÐ HÁR, STÓRAR TÖSKUR OG PEYSUR MEÐ V HÁLSMÁU í TÍZKU INNKAUPATÖSKUR OG SNARKRULLAÐ HÁR Töluverðar andstæður þrífast nú í tfzkuheiminum. Þó virðist se*n línan sé nokkuð að þyngjast og dökkir litir að koma i stað þeirra ljósu. Kvenfötin fá á sig herralegri blæ og grófari. Þetta sést bæði á klæðaburði og hár- greiðslu. Hlemmistórar töskur eru nú aftur að komast í tfzku. Þessar töskur voru hér fyrrum mest notaðar til innkaupa af húsmæðr- um en nú hafa ungu stúlkurnar «c V hálsmáiið á að vera anzi flegið. þær upp á punt. Töskurnar eru í raunihni það stórar að hafá verður litla tösku innan í þeim til þess að geyma í lykla og annað smádót. Sfðan er gott pláss fyrir alls kyns föt og blöð og bækur' sem konum finnst að þær þurfi stöðugt að burðast með. Óþarft er að taka það fram hvað svona töskur eru hentugar fyrir mæður ungra barna sem ennþá pissa I bleiur. Jafnvel má hafa koppinn með sér líka. Töskur þessar eru úr ýmsum efnum. Leður er mjög vinsælt en líka segldúkur, bast, vinyl og önnur gerviefni. Segldúkstösk- 1» t krullurnar má setja kamba af ýmsu tagi en þess þarf þó ekki.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.