Dagblaðið - 10.12.1977, Page 10

Dagblaðið - 10.12.1977, Page 10
10 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1977 BIABIB mmt. áháð dagblað Útgefandi Dagblaðiö hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Aðstoðarfréttastjóri: Atli Steinarsson. Handrit: Asgrimur Pálsson. Blaöamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Gissui Sigurðsson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Katrín Pálsdóttir, Ólafur Geirsson, ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljosmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Höröur Vilhjálmsson, Sveinn Þormóösson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkorí: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Ritstjórn Síðumúla 12. Afgreiösla Þverholti 2. Áskriftir, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aðalsimi blaðsins 27022 (10 línur). Áskríft 1500 kr. á mánuði innanlands, í lausasölu 8j) kr eintakið. Setning og umbrot: Dagblaðið og Steindórsprent hf., ^rmúla 5. Myndaog plötugerð: Hilmirhf. Síðumúla 12. Prentuh: Árvakur hf. Skeifunni 19. > Ottinn við kristjánskuna ■ Margir útvegsmgnn og sjómenn eru hræddir við kristjánskuna, kenningar Kristjáns Friðriks- sonar iðnrekanda. Þeir hafa litið svo á, að tillögum hans um stjórn- un veiða og auðlindaskatt sé beint gegn útveginum. Ætlunin sé að drepa útveginn og byggja iðnað upp í staðinn. Þetta er mis- skilningur, sem byggist á því, að þessir menn hafa aldrei gefið sér tíma til að kynna sér kenningar Kristjáns til hlítar. Fleiri mæla með auðlindaskatti en Kristján Friðriksson. Félag íslenzkra iðnrekenda hefur margsinnis lagt til, að auðlindaskattur verði lagður á sjávarútveginn. Iðnrekendur hafa með réttu bent á forréttindi annarra atvinnu- greina, það er landbúnaðar og sjávarútvegs, á ýmsum sviðum. Bjarni Bragi Jónsson, hag- fræðingur Seðlabankans, er meðal þeirra, sem hafa nefnt auðlindaskatt sem hugsanlega leið í framtíðarskipulagi efnahagsmála. En Kristján Friðriksson kemst með kenningum sínum miklu lengra en að mæla með auðlindaskatti. Því fer fjarri, að hann leggist gegn sjávarút- vegi. Hann bendir á, hvernig afli getur stórauk- izt. ,,Með núverandi stefnu, það er með því að beita of stórum flota, með því að drepa megin- hluta fisksins sem uppeldisfisk, til jafnaðar ekki hálfvaxinn, og með vanrækslu í iðnaðar- uppbyggingunni stefnir þjóðin beint inn í skuldasöfnun, fátækt og lífskjaraskerðingu allra þjóðfélagsþegnanna,“ segir Kristján. Við þekkjum nú þegar skuldasöfnunina, smáfiska- drápið, sem stefnir þorskstofninum í voða, og vanræksluna í uppbyggingu iðnaðar. Því getur enginn á móti mælt. Allir ábyrgir aðilar í sjávarútvegi hvetja til stóraukinnar fiskvernd- ar og minnkunar þorskafla. Það, sem Kristján Friðriksson gerir, er að tengja friðunarstefnu við beitingu auðlindaskatts til uppbyggingar bæði útvegs og iðnaðar. Kristján Friðriksson er ekki einn um að sýna fram á, hvernig megi stórauka afla með minnk- un sóknar um nokkurt skeið. Stefnt verði að því, að fiskurinn verði ekki veiddur fyrr en hann hafi náð því, sem Kristján kallar ,,hag- kvæmri slátrunarstærð“. Veiðum á uppeldis- fiski verði hætt. Þessar kenningar eru í sam- ræmi við kenningar fiskifræðinga. Einmitt á svipuðum grundvelli hafa beztu menn barizt fyrir stóraukinni friðun. Kristján Friðriksson stefnir með þessu ekki að niðurskurði útvegs, heldur fær hann út, að með því megi auka aflann um 300 þúsund tonn á ári og auka gjaldeyristekjur um 45 milljarða króna. Af þessu munu leiða stórauknar tekjur fólks í sjávarútvegi, þegar litið er á landið sem heild. Kristján vill, að aðrir njóti góðs af og því skuli hluti en aðeins hluti af þessum auknu tekjum tekinn með auðlindaskatti og honum meðal annars varið til að efla iðnað, einkum á þeim svæðum, sem þarfnast uppörvunar vegna friðunar uppeldisfisksins. Kristján segir, aö fiskvinnslustöðvar sunnanlands og vestan muni mjög bæta sinn hag og norðan- og austan- lands muni fólk hafa sama fis'kmagn og nú og hinn nýja iðnað að auki. Fólk í sjávarútvegi þarf því sízt að óttast kristjánskuna. Pólland: Ahrif kaþólsku kirkjunnar aukast stöðugt — ætlar hún að styðja landbúnaðarumbætur stjómar Giereks? Vi Fyrir skömmu voru tveir pólskir leiðtogar staddir í Róm. og báðir ræddu þeir við Pál páfa. Mennirnir voru Edward Gierek forustumaður pólska kommúnistaflokksins og Stefan Wyszinskij kardináli og for- ystumaður kaþólsku kirkjunnarí Póllandi. Flestum finnst að þessir menn eigi fátt sameiginlegt í skoðunum en báðir hafa þeir komizt að þeirri niðurstöðu að viðræður verði að vera þeirra á milli. Hvort sem þessum forustumönnum líkar betur eða verr þarfnast þeir hvor annars. Kommúnistaflokkur Pól- lands hefur lengi átt í mikl- um erfiðleikum og virðast þeir síður en svo fara minnkandi. Menntamenn eru óánægðir og verkamenn ekki síður. Aukin tengsl þessara stétta hafa ekki minnkað vanda stjórnarinnar. Efnahagsmálin hafa stöðugt verið stórvandamál og hefur það orðið einna ljósast í matar- skorti í landinu. Landbúnaður Póllands er orðinn mjög forn- aldarlegur og orðið mjög brýnt að endurbæta vinnubrögð við hann. Ríkisstjórnin hefur gert margar tilraunir til að hækka verð á landbúnaðarvörum en án mikils árangurs. I hvert skipti, sem slík hækkun hefur staðið fyrir dyrum, hefur legið við uppreisn í landinu. Forveri Giereks í starfi, Wladislav Gomulka, varð fyrir barðinu á einni slíkri mótmæla- aðgerð vegna hækkunar á mat- vælum og hrökklaðist frá völdum. Þetta veit Gierek og hefur reyndar orðið fyrir slík- um mótmælaaðgerðum sjálfur. Þess hefur eínnig þótt gæta nokkuð meðal ungra Pólverja að þeir trúi lítt á kennisetning- ar kommúnista og er áhuga- leysi um flokkinn meira en forustumönnum hans gott þykir meðal þeirra. Kaþólska kirkjan lætur ekki neinn bilbug á sér finna þrátt fyrir háan aldur. Hún hefur verið sterk um aldir í Póllandi og forustumönnum komm- únista hefur skilizt að bar- átta gegn henni borgar sig engan veginn. Á Staiínstiman- um var stöðugur ófriður milli kirkju og kommúnista en síðan hefur kirkjan fengið að vera í friði. Að vísu hafa henni verið settar ýmsar skorður i lögum en þó svo að boðun orðins fari eitt- hvað út fyrir ströngustu túlkun laganna er ekkert aðhafzt. Páll páfi er millieöngumaður í samningaviðræðum pólska kommunistaflokksins og kaþólsku kirkjunnar þar í landi. Belgar— GJAF1R SKULU Færeyingar: YÐUR GEFNAR Nú loksins er runninn upp sá dagur, þar sem allir aðilar og stofnanir, sem snerta íslenzkan sjávarútveg, eru á einu máli um stefnu og aðgerðir i verndun íslenzku fiskveiðilögsögunnar gagnvart útlendingum. Þing Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands, fundur Lands- sambands íslenz.kra útvegs- manna og fundur Fiskifélags íslands, sem öllum er nýlokið, samþykktu að gera bæri tafar- laust ráðstafanir til þess að segja öllum samningum við út- lendinga upp nú þegar. Hér er ekki eingöngu á ferðinni álit þessara meginstofnana sjávar- útvegsins heldur einnig allrar íslenzku þjóðarinnar. Þrátt fyrir þetta hefur komið upp sú staða, að nokkrir stjórnmála- menn vilja halda í þessa samninga við útlendinga, og hafa meira að segja lýst því yfir. að það beri ekki að losa sig við samningana. Sótt hafa verið til þess ýntis rök. sem ekki eitt fær staðist athugun. Þessar þjóðir með samninga eru Norð- menn, Belgar og Færeyingar. Er nú rétt að athuga stöðuna gagnvart hverri þjóðinni fyrir sig og jafnframt vera minnugir þeirrar yfirlýsingar ráða- manna, að ekki kæmu til greina neinir fiskveiðisamningar nema á grundvelli „gagn- kvæmra fiskveiðisamninga." N0RÐMENN Hverjar eru svo efndirnar? Norðmenn láta ekkert á móti þcim fiski, sem þeir hafa fengið og fá nú hjá okkur. Reynt hefur verið að benda á, að síldin ætti hugsanlega eftir að koma upp og ganga sinn gamla stóra hring í Norðaustur-Atlantshafinu. t því sambandi má vitna í viðtal við Bolle sjávarútvegsmálaráð- herra Noregs. í vikunni. cr hann var spurður um þetta atriði, að ekki var hann bjart- sýnn á, að það kæmi til þess á næstunni. Vitað er að ta'kni er fyrir hendi að nýta þennan fisk- stofn sem heimastofn í Noregi. þannig að aldrei framar komi til þess að hann fari sína hring- ferð norðúr með Noregi, Spitz- bergen, Jan Mayen, ísland, Færeyjar, Vestur-Noregur. Það er fæðuskortur og stofn- stærðin, sem orsökuðu ferða- lagið. Nú, þegar stofninum er haldið í ákveðinni stærð, koma, ekki til nauðsynjar ferðalags- ins, nákvæmlega eins og ef nægjanleg beit og jafngóð að gæðum væri í byggð fyrir þá stofnstærð sauðfjár, sem tslendingar hafa átt, þá hefði aldrei komið til þeirra ferða- laga, sem rekstur á afrétt er. Því láta Norðmenn ekkert á móti, og þvi er engin forsenda fyrir samningum við þá. Rétt er að benda hér einnig á eitt atriði, sem ekki hefur_ verið rætt, en það eru lúðuvciðar Norðmanna við Island. sem þyrfti að gefa sérstakan gaum, og er vísbending til íslenzkra útvegsmanna um að nýta lúðu- veiðar betur en gert er og nýta þá markaði, sem Norðmenn nýta nú i Sviþjóð. Norðmcnn eru nú orðnir oliufurstar Norðursins. með traustari efna-

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.