Dagblaðið - 14.12.1977, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977.
5
Herinn borgarvel:
Hús Isl. aðalverktaka að
Höfðabakka 9 rúmlega
1,3 milljarðar að brunabótamati
Islenzkir artalvorktakar sf. ætluðu
að hasla sér völl á franikva'mda-
markadi utan Kvflavíkurvallar.
Af þvi tilofni ákváðu forráða-
menp fvrirtækisins að bvggja yfir
starfsemina i Re.vkjavík. Hugsað
var stórt og árangurinn sést að
Höfðahakka 9, 75 þúsund
rúmmetra bygging að bruna-
bótamati rúmlega 1,3 milljarðar.
— Bygging hóf st þegar við ætluðum að hasla okkur völl á almennum f ramkvæmdamarkaði, segir
Thor Ó. Thorsframkvæmdastjóri
Fasteignir íslenzkra aðalverk-
taka sf., að Höfðabakka 9, eru
1.337 milljóna virði að brunabóta-
mati. Húsnæðið s'em er leigt undir
ýmis konar starfsemi, svo sem
verksmiðjurekstur, skrifstofur,
geymsluhúsnæði og skóla, er sam-
tals 75.015 rúmmetrar samkvæmt
upplýsingum Húsatrygginga
Reykjavíkur.
,,A árunum milli 1960 og 70
höfðu tslenzkir aðalverktakar sf.,
með höndum umsvifamiklar vega-
framkvæmdir á Suðvesturlandi,"
sagði Thor Ö. Thors fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins í við-
tali við DB í gær.
„Fyrirtækið sá um alla steypu-
vinnu við Reykjanesbrautina og
um það bil helming undirbygg-
ingar. Einnig hafði það með
höndum framkvæmdir við upphaf
lagningar Vesturlandsvegar,"
sagði Thor ennfremur.
„tslenzkir aðalverktakar sf„
hófu þessar vegaframkvæmdir að
beiðni þáverandi ríkisstjórnar.
Þar sem svo virtist að fyrirtækið
mundi hasla sér völl á þessum
vettvangi var ákveðið að koma
þaki yfir starfsemina og ráðizt í
framkvæmdir að Höfðabakka 9.“
Thor Ö. Thors var spurður
hvernig fjármögnun slíkra stór-
bygginga sem Höfðabakka 9, sem
að brunabótamati væri rúmlega
1,4 milljarðar, væri háttað.
1 því sambandi benti fram-
kvæmdastjórinn á að Islenzkir
aðalverktakar sf., væru um það
bil aldarfjórðungsgamalt fyrir-
tæki. Taldi hann engan þurfa að
undra að svo gamalt fvrirtæki
hefði eignazt eigið húsnæði.
Thor .sagði að byggingar-
kostnaður fasteignarinnar að
Höfðabakka 9 væri samtals orð-
inn um 400 millj. króna. Verð-
bólgan hefði séð um að lyfta
brunabótamati þess i þá tölu sem
það væri í dag.
Einnig benti hann á að með-
talið í brunabótamati væri verð-
mæti innréttinga, sem væru að
mestu í eigu leigjenda.
Hvers vegna íslenzkir aðalverk-
takar hefðu ekki haldið áfram
frammkvæmdum utan Kefla-
víkurflugvallar svaraði Thor Ö.
Thors því að ýmsir innlendir
verktakar hafi verið byrjaðir
starfsemi og hafi komið upp
óánægja meðal þeirra.
Hafi forsvarsmenn þeirra bent
á að þeir teldu óeðlilegt að vera i
samkeppni við Islenzka aðalverk-
taka sf. sem stæðu einir að fram-
kvæmdum á Keflavikurflugvelli.
„Við tókum rök þeirra til
greina og ákváðum að halda verk-
legri starfsemi fyrirtækisins
innan vébanda Keflavíkur flug-
vallar," sagði Thor Ó. Thors fram-
kvæmdastjóri að lokum.
ÓG
VERZLUNIN VAL
Strandgötu34
Hafnarfiröi
TELPNAKJÓLAR 0G
SK0KKAR, MARGAR GERÐIR.
•
DRENGJA SLÉTTFLAUELSFÖT
Á 1—4 ÁRA
•
DRENGJA BLAZERFÖT
Á 5—12 ÁRA
FJÖLBREYTT ÚRVAL
AF BARNAFATNAÐI
0.FL 0.FL. 0.FL.
LÍTIÐ INN 0G SANNFÆRIZT
NÆG BÍLASTÆÐI VIÐ BÚÐAR-
DYRNAR
Alþýðubandalagið
á Reykjanesi
Gils og
Geir
efstir
Framboðslisti Alþýðubanda-
lagsins í Reykjaneskjördæmi til
næstu alþingiskosninga hefur
verið ákveðinn. Listinn er
þannig skipaður: 1. Gils
Guðmundsson alþingismaður.
2. Geir Gunnarsson alþingis-
maður. 3. Karl Sigurbergsson
skipstjóri 4. Bergljót Kristjáns-
dóttir kennari. 5. Svandís
Skúladóttir fulltrúi. 6. Björn
Ölafsson verkfræðingur 7.
Albína Thordarson arkitekt. 8.
Kjartan Kristófersson vélstjóri
9. Njörður P. Njarðvík lektor
10. Magnús Lárusson húsgagna-
smiður.
Forval Alþýðubandalagsins
sem fór fram í Reykjaneskjör-
dæmi var ekki bindandi en
kjördæmisráðið fylgdi niður-
stöðu þess í skipan efstu sæta.
JH
FÁLKIN N
Ný frábær hljómplata með Mannakorn,
enn betri en sú fyrri.
Á þessari plötu eru tíu ný lög eftir
Magnús Eiríksson og allir textar utan eins
eru eftir hann.