Dagblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 32
VISIR SETUR ALÞYÐU-
BLAMNU ÞUNGA KOSTl
— Leitað eftir pappírsgjöf um f rá norska Verkamannaf lokknum
Vísir krefst þess af
Alþýðuflokknum að hann út-
vegi aðstoð frá Ar-.
beiderpressen, blaðaútgáfu
norska Verkamannaflokksins
og verkalýðsfélaganna, til
rekstrar Alþýðublaðsins og
Visis, sennilega með því að
gefinn verði mikill hluti af
pappír sem blöðin kaupa frá
Noregi.
Benedikt Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins, hefur í þing-
flokknum svarað spurningu um
þetta mál frá Jóni Ármanni
Héðinssyni. Jón Ármann vildi
fá að vita um rekstur
Alþýðublaðsins og samstarfið
við Vísi um útgáfu þess.
Reykjaprent hf., sem gefur út
Vísi, hefur eins og kunnugt er
einnig gefið út Alþýðublaðið að
undanförnu.
í svari Benedikts kom fram,
að Vísir hefði sagt upp
samningnum um þessa útgáfu
Alþýðublaðsins. Viðræður um
endurnýjun samningsins væru
þó á fullri ferð en Vísir gerði
kröfu um aðstoð frá Arbeider-
pressen. Kunnugir telja að með
þvi eigi að reyna að leysa vanda
bæði Alþýðublaðsins og Vísis.
Þá telja kunnugir heimildar-
menn DB að halli á
Alþýðublaðinu verði í ár ekki
undir 13-15 milljónum króna og
líklega mun meiri á næsta ári
Því verði stefnt að. því að fá'
aðstoð frá Norðmönnum, sem
nemi um 40 milljónum á næsta
ári.
Benedikt Gröndal upplýsti á
þingflokksfundinum að Árni
Gunnarsson, ritstjóri Alþýðu-
blaðsins og Bjarni Magnússon,
starfsmaður Alþýðuflokksins,
ættu að fara til Noregs á sunnu-
daginn til að leitahófanoa um
slíkan stuðning. Þeirri ferð var
frestað að ósk Norðmanna.
-HH.
Borgarlög-
maður baðst
lausnar
f rá störf um
Páll Lindal borgarlögmaður
baðst í gær lausnar frá störfum og
var lausnarbeiðni hans samþykkt
á fundi borgarráðs sama dag.
Ástæða lausnarbeiðninnar er að-
gæzluleysi í meðferð innheimtu-
fjár vegna leigu á bilastæðum.
að upphæð tæpar tvær milljónir
króna.
Meginhluti fjárins hefur verið
endurgreiddur borginni. Borgar-f
yfirvöld hafa staðfest þessa frétt
en vilja ekki tjá sig frekar um það
fyrr en framhaldsrannsókn lýkur.
Rauðhólamorðið:
Dómurívikunni
í þessari viku verður kveðinn
upp dómur í máli sem ákæru-.
valdið höfðaði gegn Einari Hirtl
Gústafssyni, sem skaut Halldóru
Ástvaldsdóttur til bana í Rauðhól-
um í ágúst sl.
Einar játaði þegar verknaðinn.
Krafizt er þyngstu löglegrar refs-
ingar en á móti er krafizt lægstu
refsingar. - OV
„Jesús lifir" á Ijósaskilti á Akureyri
Það er víðar jólaös en á
höfuðborgarsva*ðinu og fleiri
„höfuðborgir" en Revkjavik. í
höfuðstað Norðurlands tók FAx.
þessar mvndir í jólaösinni.
Hafnarstrætið er fullskipað fólki
í jólastemmningu og jólaandinn
hvílir yfir öllu.
Eins hreyfils
flugvélfórst
útaf Keflavík
í nótt:
Hreppti mótvind og
varð bensínlaus
— reyna átti að f inna flugmanninn við birtingu i morgun
Litil eins - hreyfils flugvél
fórst í nótt um það bil 19.5
mílur út af Keflavík. í flugvél-
inni var einn maður. Ekki var
vitað í morgun hvort hann
hefði farizt. en í birtingu var
áformað að björgunarþyrla frá
varnarliðinu færi út að flakinu
og maður sigi niður.
Litla flugvélin er af gerðinni
Piper PA-28. Hún var í svoköll-
uðu ferjuflugi frá Bandaríkjun-
um til Evrópu. Hún lagði upp
frá Gander á Nýfundnalandi i
gær og átti að lenda i Reykja-
vík, en hreppti harðan mótvind.
Svo fór að bensín flugvélarinn-
ar dugði ekki til að hún næði
landi.
Það var klukkan 2.58 í nótt
að flugvélin skall í sjónum.
Flugmaðurinn hafði séð
nokkru áður hvernig fara
myndi, því hann sendi út
fieyðarkail. Er flugvélin fórst
var björgunarvél frá hernum
komin að slysstaðnum og sveim-
aði þar yfir. Fljótlega dreif að
nokkra togara, sem fylgdust
með flakinu. 1 morgun þegar
Dagblaðið ræddi við flug-
stjórnarmiðstöðina á Reykja-
víkurflugvélli maraði flugvélin
í hálfu kafi að framan og ekk-
ert lífsmark var að sjá þar.
- ÁT-
Birgir Óskarsson loftskeytamaður á Ögra:
„EKKERT LIFSMARK AÐ SJA VIÐ FLAKIД
— þnr togarar bíða átekta við flugvélina
„Hér er svo sem lítið að sjá.
Jú. afturhluti vélarinnar
stendur upp úr sjó og fram yfir
vægi. sem eru heilir. Fram-
hlut'nn er hins vegar á kafi,“
sagði Birgir Óskarsson loft-
‘skevtamaður á togaranum
Ögra, er Dagblaðið ræddi við
hann laust fyrir klukkan níu i
morgun.
Birgir sagði að nú væru þrír
togarar við flak litlu flug-
vélarinnar, það er Haraldur
Böðvarsson og Ingólfur Arnar-
son auk Ögra. Þeir lýsa upp
flakið, þar sem það marar í
sjónum. í nótt voru togararnir
Vigri og Snorri Sturluson
einnig við vélina, en þeir eru
nú á innleið.
Er ögri kom að flakinu um
19.5 míTur út af Keflavík
klukkan hálf fimm í nótt voru
hinir togararnir þar fyrir.
Birgir sagði að þeir hefðu þá
fundið lítinn mannlausan gúm-
björgunarbát, sem talinn væri
vera úr flugvélinni.
„Nei, við höfum ekkert lífs-
mark séð þarna,“ svaraði Birgir
Óskarsson spurningu blnt.. „Hér
er andskotans óveður, úrkoma
og ölduhæð mikil. Þeir á
Haraldi Böðvarssyni ætluðu að
reyna að ná flakinu upp í nótt,
en það var ógerlegt, — það er
orðið svo óreglulegt sjólagið
nérna."
-ÁT-
SÍDUSTU FRÉTTIR:
Þyrla frá varnarliðinu fór
um klukkan 11 frá Keflavíkur-
flugvelli og átti maður að síga
frá þyrlunni niður að flug-
vélinni. Veður hafði þá lægt
nokkuð frá því í morgun. Óskar
Þór Karlsson hjá Slysavarna-
félaginu taldi litlar líkur til
þess að flugmaðurinn væri enn
á lífi eftir hrakningana.
-ÁT-
frfálst, óháð daghlað
MIÐVIKUDAGUR 14. DES 1977.
Elduríbát
í gærkvöldi kviknaði í Von SH
199, þar sem báturinn !á við
Grandagarð í Reykjavík. Slökkvi-
liðið var kallað út kl. 20.35 og
þegar það kom á staðinn var tölu-
verður eldur í vélarrúmi bátsins
og mikill reykur. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn með vatni, en
talsverðar skemmdir urðu í vélar-
rúminu, rafmagnstafla, einangr-
un og leiðslur brunnu og
skemmdir urðu af hita. Eldsupp-
tök eru ókunn, en báturinn var
mannlaus. Von SH er 64 lestir að
stærð, smíðaður 1943 úr eik.
- JH
Slökkviliðið
gabbað
Slökkviliðið var gabbað í útkall ]
i Fífusel i gær. Ekki var hægt að
komast að því hvaðan gabbið kom
þar sem linan, sem hringt var í, j
hélt ekki og því var ekki hægt að ]
rekja það. Það er þó hald þess |
sem svaraði að unglingur hefði
hringt. Það þarf varla að taka það .
fram hvílíkur háskaleikur það er |
að gabba slökkviliðið. Að sögn I
slökkviliðsmanna hefur þaj
minnkað mikið að slökkviliðið sé
gabbað, sérstaklega eftir að I
brunaboðar voru lagðir niður.
Það er helzt að reykskynjarar, '
sem eru mjög nákvæmir, fari í
gagn, ef reykt er nálægt þeim eða i
reykur frá brauðrist berst að |
þeim.
- JH
„Vonzkuveð-
ur í dag"
„Það verður vonzkuveður í dag,
það er óhætt að segja,“ sagði Páll
Bergþórsson i morgun. ,,í morgun
voru 10 vindstig við suðurströnd-
ina og 12 á Stórhöfða. Loftvogin
stendur afar lágt. Þetta þýðir að
það hlýtur að vera feiknalegur
sjógangur, þar sem lika er mjög
stórstreymt. Þar sem vindur
stendur nærri því beint af suðri
má búast við látum við suður-
ströndina og þeir á Eyrarbakka
og Þorlákshöfn ættu að vera við
öllu búnir. Lægðin gengur yfir
smátt og smátt og þá snýst vindur
í suðvestan. Með storminum
verður haglél eða slydda."
Tillaga um að fella fj
niður heimild til a
kaupa
áVíðishúsinu
„Fellt verði niður heimildar-
ákvæði í fjárlagafrumvarpinu um
kaup á húsinu nr. 166 við Lauga-
veg,“ segir efnislega f breytingar-
tillögu, sem þeir Lúðvík Jóseps-
son og Ragnar Arnalds fluttu á
Alþingi í gær.
Mæltu þeir með röksemdum
fyrir tillögu sinni.
Með vissu er vitað að Karvel
Pálmason lýsti sig fylgjandi til-
lögunni. Sagði hann að sér hefði
aldrei litizt á þessi húsakaup og
hefði sú afstaða sín ekki breytzt.
Annarri umræðu um fjárlaga-
frumvarpið lauk um kl. 3 sl. nótt.
Átkvæðagreiðsla um breytingar-
tillögur og síðan frumvarpið með
áorðnum breytingum eftir aðra
umferð verður kl. 2 í dag.
■ BS
Konafyrirbfl
Kona varð fyrir bíl á Hring
braut kl. rúmiega 23 í gærkvöldi
Konan var á leið suður yfir Hring-
brautina á gangbraut er hún lenti
fyrir bíl á vesturleið. Meiðsli kon
unnar eru ekki mikil. . jh