Dagblaðið - 19.12.1977, Síða 1
f
i
i
i
i
i
i
i
$
i
i
i
i
i
i
NU ER FROST A FRONI
Áð
í sn jó-
skafli
Þeir bræður, Vilhelm og
Skúli Ágústsson, eigendur Bíla-
leigu Akureyrar og bifreiða-
stjórinn Kristján Grant, allir
frá Akureyri, hafa undanfarin
ár farið nokkrar ferðir á vetri
hverjum með varning til veður-
athugunarfóiksins í Sand-
búðum.
Eina slíka ferð fóru þeir
félagar síðastiiðinn þriðjudag,
en eins og greint var frá í DB
urðu þeir fyrir miklum töfum
af völdum veðurs og komust
ekki aftur til byggða fyrr en á
fimmtudagskvöld.
Þessa mynd af þeim
bræðrum tók Kristján er þeir
áðu á ieiðinni og má segja að
hún minni menn á þann kulda,
sem nú hrjáir landsmenn í
myrkasta skammdeginu.
HLAUPANDIMEÐ BÍLA UM ALLAN BÆ
„Menn eru hlaupandi með bíla
hér um allan bæ,“ sagði Friðgeir
Axfjörð, fréttaritari DB á Akur-
eyri í morgun. ,,En veðrið er
fallegt, heiðskírt og nánast logn
og það veldur þvi að menn eru
almennt ekki komnir í síðu nær-
buxurnar, en það er helzta merki
um vetrarkomu hér. Allir sendi-
bílar voru uppteknir við að draga
bíla, en frostið var 18 stig í
murgun, kaldasti dagur
vetrarins."
Frostið var enn meira á Sauðár-
króki, 22 stig, en þar var veðrið
fallegt eins og á Akureyri og ekki
teljandi vandræði vegna kuldans.
Stöku bíll vildi þó ekki þýðast
eiganda sinn, en snjór er nú
fremur lítill norðanlands.
Sömu kuldasögu er að segja af
öllu landinu. í Reykjavík var
frostið 16 stig í gær en 10 í
morgun. Lögregla hafði nóg að
gera við að aðstoða borgarana sem
áttu víða í vandræðum. Sérstak-
lega varð það þó aðfaranótt
sunnudags er leigubílar hættu að
ganga og fjöldi fólks sem var á
heimleið af dansiballi leitaði á
náðir lögreglunnar, sem brást vel
við að vanda. Gert er ráð fyrir
áframhaldandi frosti næsta
sólarhring, austankalda og
skýjuðu veðri.
JH
Jóla- og nýársgetraun Dagblaðsins:
Hverjum færir Boggi
litsjónvarpstækið?
Hvern verðlaunar Boggi
blaðamaður með litsjónvarps-
tæki á þrettándanum? Það
verður einhver heppinn — og
athugull — lesandi Dag-
blaðsins.
I samvinnu við Bogga
blaðamann og Nesco h.f. efnir
.Dagblaðið nú til verðlaunasam-
keppni meðal lesenda sinna.
Keppnin sjálf er einföld: Boggi
blaðamaður verður i þessari
viku á flakki um síður blaðsins,
alls fimm sinnum. Lesendum er
ætlað að hafa uppi á honum,
klippa út myndirnar og setja í
umslag ásamt nafni og heimilis-
fangi, og senda síðan til rit-
stjórnar Dagblaðsins, Siðumúla
12, 105 Reykjavík. Sendið alla
miðana í einu umsiagi — og
gætið þess að það verði fyrir 6.
janúar 1978.
Verðlaunin eru stórglæsileg:
20 tommu litsjónvarpstæki af
gerðinni Grundig, Supercolor,
frá verzluninni Nesco h.f. , að
verðmæti um 280 þúsund
krónur.
í tækinu er einingaverk
(tölvu-bilanaleit), línumynd-
lampi, sjálfvirk stöðvarstilling,
sjálfvirk tíðnistilling og mynd-
stilling. Þá er fjarstýring
með innrauðum geisla, þannig
að væntanlegur eigandi þarf
ekki annað en að beina vasa-
tæki sínu að sjónvarpinu og þá
getur hann hækkað og lækkað í
tækinu, stillt liti og mynd —
eða hreinlega slökkt á þvi.
Grundig sjónvarpstækin eru
ónæm fyrir spennusveiflum
allt frá 180V upp í 250V. Við
það er hægt að tengja mynd-
segulband og hvers konar auka-
tæki og á myndlampanum er
þriggja ára ábyrgð.
Dagblaðið og Boggi blaða-
maður bjóða alla lesendur
velkomna í þennan skemmti-
lega feluleik — sem hefst í dag
og lýkur á föstudaginn.
Spurningin er: Hvar er Boggi í
felum — annars staðar en i
sínum venjulega ramma á Dag-
bókarsíðunni?
Birgir Helgason, sölustjóri hjá Nesco með Grundig Supercolor
litstjónvarpstækið góða sem einhver athugull lesandi Dagblaðsins
fær senn að launum. — DB-mynd Hörður.
Opið bréftil
ríkissaksóknara
f rá Kristjáni
Péturssyni
— Sjá bls. 9
Hugarfarsbreyt-
inguþarfhjá
stjómmála-
mönnunum
— Sjá kjallaragrein
Sigurðar Helga-
sonarábls. 14-15
•
Minkurvið
Tjörnina
-Sjábls.8
•
HRUNl
HEIMAKLETTI
Um h5degisbili«5 h 'undi
stórt 3tyk!:i úr Heiraa-
kletti í Eyjuin. Eiclci- er
enn vitað hvercu stórt
það er, en flóðalda 3kall
á hofnargarðínum og gerði
6r6a í h:;fninni. 3royting
á Heimokletti eftir hrun-
ið er vel sjáanler eð sögn
fréttaritara DB í fyjum