Dagblaðið - 19.12.1977, Blaðsíða 10
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 19. DESEMBER 1977.
10
VAL 4
LEIKJA
FJARSTÝRING
Binatone sjónvarpsmeistarinn Mk IV
Leiklist
Utvarp:
HVERNIG HELGI BENJAMÍNSSON BIFVÉLA-
VIRKI OOLAOIST NÝJAN TILGANG i LÍFINU
eftir Þorstein Marelsson
Leikstjori: Holgi Skúlason.
Nýtt leikrit með löngu nafni
Hvernig skyldi það nú vera? Þeir
sem hlustuðu komust að raun um
að líkt og stundum ber við hafði
Þorsteinn Marelsson fengið
smellna hugmynd að byrja með
leikrit. Það var bæði upphaf og
l\ytt leiKrii meo longu naini leiKru. eao var Dæoi uppnai
líkt og i sjónvarpinu á dögunum. endir á útvarpsleikriti hans
fimmtudagskvöld. En það sem í
milli átti að vera, það vantaði því
miður að mestu.
Maður nokkur vaknar í rúmi
sínu einn góðan veðurdag og neit-
ar að fara á fætur. Esjan er ekki
lengur falleg. Og lífið ekki þess
Binatone leiðandi fyrirtæki
í gerð sjónvarpsleiktækja
Knattspyma
HLJÓÐ
RO
HRAÐI
STÆRÐ
MANNA
GEFA
ro
u-o
Tennis
Squash
Æfing
INNSTUNGUR
virði að halda áfram að lifa því.
Best að liggja bara kjur! Hver
kannast ekki við þessa tilfinningu
og hugarástand á einhverjum
skammdegismorgni ævinnar?
Þessi hugmynd var líka það besta
i leikriti Þorsteins Marelssonar.
En því miður nægði hún honum
ekki eða þá hann hafði ekki afl og
úrræði til að halda henni áfram
og ráða fram úr henni eins og hún
kemur fyrir. Endilega þurfti
hann að gera Helga Benjamíns-
syni upp ásetning að ráða sig af
dögum með þessum hætti — eins
og það sé ekki tvennt ólfkt að hafa
sig ekki á fætur og vilja endilega
farga sér.
Svo byrjuðu rökræður um þetta
áform hans og rekistefna að hafa
hann með illu ef ekki góðu ofan
af því, og komu kona hans og
síðan börn, tengdamóðir, vinnu-
veitandi, sálfræðingur tilkvaddur
að sjúkrabeðinu og kvensnipt
nokkur á hans vegum við þá sögu,
sem varð æ því óskemmtilegri
sem lengur gekk á henni. Uns
kom að hinni góðu hugmynd
Þorsteins Marelssonar sem
kannski fylgdi þeirri fyrri i
kaupunum: lokum leiksins. Þar
kemur að allir eru orðnir leiðir á
fyrirtektinni í Helga Benjamíns-
syni og nenna með engu móti að
sinna henni lengur eða snúast í
kringum karlinn. Það var þá bara
það sem hann vildi! Hann sér
þann grænstan að snauta þá á
fætur. Og þegar Helgi er að hafa
sig í buxurnar, afþreyttur og
hress, reiðubúinn að halda áfram
að lifa og starfa, hvað skeður þá?
Þá er það konan hans, sem búin
er að fá nóg, farin að tína af sér
spjarir, hún vill nú ekkert lengur
nema leggjast fyrir. Búið leikrit.
Árni Tryggvason var Helgi
Benjamínsson og gerði víst það
fyrir karlinn sem hann gat, ansi
gaman að honum í upphafi leiks.
Jóhanna Norðfjörð held ég að sé í
verunni góð gamanleikkona, en
hafði úr engu að spila i hlut-
verkinu, sjálfur Róbert Arnfinns-
son átti heldur engan sjans í hlut-
verki sálfræðingsins. Af öðrum
þátttakendum hafði ég langhelst
gaman af Valdimar Helgasyni í
gervi vinnuveitanda, Önnu
Guðmundsdóttur tengdamóður
Helga Benjamínssonar: þau
brugðu hvort um sig upp alveg
skýrum skoplýsingun úr sínum
einfalda efnivið.
Þegar kemur að sjónvarpsleiknum,
reiknaðu þá með Binatone skrefi
framar.
Binatone sjónvarpsmeistarinn býður
upp á allt en er samt ódýrastur.
'’essi jól mun atla i fjölskyldunni
langa i sjónvarpsleik og þá er Bina-
tone siónvarosmeistarinn bestur.
Missið ekki af lestinni, verið
með frá byrjun
í sjónvarpsleiknum.
Verð kr.
22.920
íXdaiooær nr.
Ármúla 38, simi 31133
(Gengið inn frá Selmúla)
WlRÍNATDNL
Biantonc International
Gjafavörur
Njótió hess aó gefa góöa gjöf-fallega gjöf frá Rosenthal
A tlNARSSON & FUNK
Laiiiínveiíi 85
Gjafavörur frá Rosenthal
hafa hlotið
heimsviðurkenningu fyrir
afbragðshönnun og
framúrskarandi gæði!
Þess vegna hafa Rosenthal
vörurnar tvenns konar gildi
— jafnt fyrir þann sem
gefur og þann sem þiggur.
Njótið þess að gefa góða
gjöf — fallega gjöf, sem
segir meir en orð fá lýst.