Dagblaðið - 19.12.1977, Blaðsíða 26

Dagblaðið - 19.12.1977, Blaðsíða 26
30 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1977. OVENJULEG BÖRN —tveir gíraff ar sem eru ástúðlegir og forvitnir Ji«*t vtu fójut? #•*«!< Hftjj Í íbúð sinni i New York hafa Betty og Jock útskorið afríkanskt iikan af gíraffa tii þess að minna sig á fósturbörnin heima í Nairóbí. Allir vinir Jocks og Bettyar Leslie-Menville eru orðnir ósköp þreyttir á þeim miklu áhyggjum sem hjónin hafa af afkvæmum sínum.Uti á meðal manna fást þau ekki til að tala um annað en það hvernig „börnin" hafi hagað sér. Þetta finnst líklega flestum merki um að börnin séu lítil og foreldr- arnir ekki ennþá orðnir vanir um- stanginu. Það fyrra er rangt en hið seinna rétt. „Börnin" eru eng- in smásmíði. Þau eru tveir gír- affar, annar tveggja ára og hinn átján mánaða. Sá minni er þrir metrar og þrjátíu sentimetrar og vegur 375 kíló en sá stærri er 3.98 metrar og vegur hálft tonn. Uppeldið á þessum afkvæmum hlýtur því alltaf að verða svoiítið öðruvísi en á öðrum „börnum" enda vinna þau hjónin fyrir sér með því að halda fyrirlestra um það mál. Þau hafa einnig gefið út Þeir sem aia upp gíraffa verða að venja sig við að láta ekkert koma sér á óvart. Ekki heldur að fá ekki að vera í friði við morgunverðarborðið. Til þess að hægt sé að vernda giraffana þarf að ná þeim og það gengur ekki aiitaf of vel. Daisy var náð með því að snara hana. bók sem nefnist Að ala Daisy Rotschild upp. Daisy er sá eldri af gíröffunum. Rotschild nafnið er eftir brezkum dýrafræðingi sem fyrstur fann þennan gíraffastofn og gaf honum nafn sitt. Aðeins eru 130 gíraffar eftir af þessari tegund í Afríku og þeir eru í mikilli lífshættu. Stofninn smáþynnist einnig með blöndun við aðra stofna. Stjórnvöld í Kenýa hafa tekið 23 stykki undir sina vernd en aðrir eru upp á sjálfa sig komnir. Leslie Melvilles hjónin hafa því hafið mikla áróðursherferð til að vernda ’þessa vini sína og telja ekki eftir sér að ferðast vítt um lönd í þeim tilangi. Fólk er hvatt til þess að taka gfraffa í fóstur. Nokkrir hafa þegar orðið við þessum óskum, meðal þeirra leikarinn Richard Chamberlain sem nefnt hefur gír- affa eftir þeim hjónum. Hjónin hafa keypt sér 130 ekra landsvæði í Nairóbí sem þau nota sem uppeldissvæði fyrir gíraffa. Þau skulda þó ennþá mestan part- inn og hafa lítið getað byggt á landinu. Jock er öllu vanur því hann ólst upp á búgarði í Kenýa. Þrjú börn Bettýar af fyrra hjóna- bandi hjálpa líka til. Gíraffarnir eru að sögn hjón- anna sérlega yndisleg dýr og til- finninganæm. Ef hjónin skilja þá eftir eina þá snökta þeir tímunum saman og eru ekki mönnum sinn- andi. Þeir eru mjög forvitnir og vill oft fara lítið fyrir skrautmun- unum þegar þeir eru búnir að athuga þá að vild. En sparki þeir frá sér er voðinn vís. Gíraffar reyna aldrei neitt slíkt nema þeir séu áreittir. Komi það fyrir þarf líka ekki nema eitt spark til þess að drepa mann. - DS þýddi og endursagði /ANTIK AAvAAAAy V GLER 4 SIMÍ 16820 ^yy^XYVYY^ SÍGTUNÍ 1 REYKJAVIK $ériicröinn ntcb bltfotctnt ^lcr ofl lomfia. X '' \ á . ...ri1 h -"• VIÐARLÍKISBITAR ÚR POLIURETAN GEFA ÓTRÚLEGUSTU MÖGULEIKA VID INNRÉTTINGU ÍBÚÐA EÐA VINNUSTAÐA. SVO AUÐVELDIR Í UPPSETNINGU AÐ ÓTRÚLEGT ER. PANTANIR ÓSKAST SÓTTAR. GJÖRIÐ SVO VEl AD LÍTA INN. ''úu' Antili Siþtiuii 1 Siini lfiBSn. > DORA STEFANSDO^t!R

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.