Dagblaðið - 19.12.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 19. DESEMBER 1977.
9
Opið bréf til ríkissak-
sóknara Þórðar Bjömssonar
frá Kristjáni Péturssyni, deildarstjóra
1. apríl 1976 kröfðust þér
dómsrannsóknar á hendur
undirrituðum og Hauki Guð-
mundssyni, rannsóknarlög-
reglumanni í Keflavík, skv.
kröfu Arnar Clausen hrl.,
vegna handtöku varnarliðs-
mannanna Charles E. Burrel og
James William Hand. Krafist
var rannsóknar á handtöku
þeirra, skýrslutökum, fram-
komu rannsóknaraðila við sak-
borninga og því hvort rannsókn
þessi hafi verið framkvæmd í
heimildarleysi.
Með bréfi dómsmálaráðu-
neytis dags. 30. apríl 1976 var
Sigurberg Guðjónsson, fulltrúi
bæjarfógeta í Kópavogi,
skipaður setudómari í máli
þessu. Rannsókn stóð yfir eins
og yður mun kunnugt í fulla 14
mánuði. 12. þ.m. móttók ég bréf
frá embætti yðar dags. 8. þ.m.
þar sem mér voru tilkynnt
málalok, en þar segir orórétt:
„Af ákæruvaldsins hálfu skal
fram tekið að eins og mál þetta
liggur-nú fyrir, þykir eigi næg
efni til frekari aðgerða í
málinu."
í greinargerð undirritaðs
dags. 12. janúar sl„ sem yður
var framsend, segir m.a.
orðrétt: „Skömmu eftir að örn
Clausen, hrl. gerði kröfu um
rannsókn á hendur okkur
Hauki Guðmundssyni til varn-
armáladeilda'r utanríkisráðu-
neytis, skýrði Örn Clausen hrl.
mér og Þorgeiri Þorsteinssyni,
lögreglustjóra á Keflavíkur-
flugvelli frá því á skrifstofu
varnarmáladeildar, að ástæðan
fyrir framkominni kröfu um
rannsókn á hendur okkur
Hauki Guðmundssyni væri
einungis sú að reyna með þeim
hætti að tefja fyrir brottför
varnarliðsmannanna úr landi.
Örn Clausen ítrekaði fyrri
ummæli sín við mig og Hauk
Guðmundsson á skrifstofu
sinni fyrri hluta nóvember-
mánaðar 1976. Vegna framan-
greindra ummæla lögmannsins
í þessu máli tel ég forsendur
fycir rannsókn á kröfunni ekki
vera fyrir hendi, þar sem hún
er gerð á röngum forsendum.
Haukur lét einnig bóka eftir
sér efnislega samskonar yfir-
lýsingu fyrir dómi þann 15.
janúar sl.
t þágu rannsóknarinnar telj-
um við Haukur Guðmundsson,
mjög áríðandi að örn Clausen
hrl., verði yfirheyrður í þessu
máli, vegna framangreindra
ummæla þar sem þau hljóta að
teljast mjög alvarlegs eðlis,
þegar beiðst er rannsóknar
ríkissaksóknara á sakarefni að
því er virðist á alröngum for-
sendum, sé miðað við ummæli
og yfirlýsingar hans í þessu
máli."
Það vekur sérstaka athygli og
undrun, herra ríkissaksóknari,
að þér skuluð ekki ennþá hafa
látið fram fara opinbera rann-
sókn á greindum ummælum
Arnar Clausen hrl. Eigi verður
annað séð en lögmaðurinn hafi
gerzt brotlegur við 148. gr. al-
mennra hegningarlaga, sem
hljóðar svo: „Hver sem með
rangri kæru, röngum
framburði, rangfærslu- eða
undanskoti gagna, öflun fals-
gagna eða á annan hátt leitast
við að koma því til leiðar, að
saklaus maður verði sakaður
um eða dæmdur fyrir refsi-
verðan verknað, skal sæta varð-
haldi eða fangelsi allt að 10
árum.“ Ég ítreka því fyrri
kröfu um að áðurnefnd um-
mæli Arnar Clausen hrl. verði
rannsökuð til hlítar án frekari
tafar.
Það er í meira lagi óeðlilegt
að rannsaka aðeins hlutdeild
okkar Hauks Guðmundssonar í
málinu, en ekki framkomna
kröfu vegna meints hegningar-
lagabrots hæstaréttarlög-
mannsins.
Þá er rétt að vekja athygli
yðar á því að ennþá liggur óaf-
greidd hjá embætti yðar rann-
sókn vegna rógskrifa dag-
blaðsins Tímans, en rannsókn
lauk hjá Sakadómi Reykjavíkur
sl. vor.
Ég vil í þessu sambandi
benda yður herra ríkissaksókn-
ari á yfirlýstan vilja hæstvirts
dómsmálaráðherra um að flýta
almennt meðferð dómsmála í
landinu frá því sem nú er.
Allir hljóta að vera fylgjandi
þessari stefnu dómsmála-
ráðherra, sem vakið hefur verð-
skuldaða athygli þjóðarinnar,
vegna sinna alkunnu afskipta
af hvers konar dómsmálum.
Frekari dráttur á afgreiðslu
Tímamálsins er honum því
örugglega ekki að skapi.
Kristján Pétursson
deildarstjóri.
Atkvæðagreiðslu um
Víðishússkaupin
frestað til 3. umræðu
fjárlagafrumvarpsins
Atkvæðagreiðslu um Víðishús-
kaupin var frestað til 3. umræðu
fjárlaganna á Alþingi. Lúðvík
Jósepsson og Ragnar Arnalds
fluttu tillögu um það, að fellt yrði
niður heimildarákvæði fjárlaga-
frumvarpsins um húsakaup þessi.
Vitað er að ýmsir alþingismenn
hafa lýst sig andvíga kaupunum.
Eru það bæði þingmenn úr stjórn-
arliðinu og eins stjórnarand-
stæðingar.
Tillaga nokkurra þingmanna
um hækkun fjárveitingar til
byggingar sundlaugar við
Grensásdeildina var einnig til at-
kvæðagreiðslu við aðra umferð
fjárlagaumræðunnar. Var þeirri
atkvæðagreiðslu einnig frestað.
Fjárlagafrumvarpið gerir ráð
fyrir 3 milljóna króna framlagi til
sundlaugarinnar. Jóhann Haf-
stein, Sverrir Bergmann, sem er
varamaður Einars Ágústssonar,
Magnús Kjartansson, Eggert G.
Þorsteinsson og Albert Guð-
mundsson gerðu tillögu til
hækkunar framlagsins upp í 50
milljónir króna. Að ósk flutnings-
manna var atkvæðagreiðslu frest-
að til 3. umræðu. Fjárveitinga-
nefnd Alþingis óskaði einnig að
frestað yrði atkvæðagreiðslu um
sína 3 milljón króna tillögu.
-BS.
Grímsárvirkjun þolir
ekki snjókorn þá
verða Austfirðingar
rafmagnslausir
Enginn póstur hefur komið
hingað á Eskifjörð síðan á
þriðjudagskvöld. Ekki hefur
verið hægt að fljúga vegna
óveðprs. í fyrradag gerði hér
aftaka veður með norðvestan-
roki og stóð það yfir í nokkra
klukkutíma. Ekki urðu neinir
stórskaðar sem betur fór en
nokkrar plötur fuku af Hrað-
frystihúsi Eskifjarðar. Bóas
Sigurðsson, sem er að byggja
sér íbúðarhús að Bleiksásshlíð
10 var nýbúinn að kaupa
einangrunarplast fyrir 80
úsund og fór helmingurinn af
ví út í veður og vind. Viða
annars staðar urðu smáskaðar
þar sem rúður brotnuðu í hálf-
byggðum húsum, þar sem verið
var að glerja.
Rafmagnið fór oft af í fyrra-
dag eftir að veðrið skall á.
Skólastjórinn keyrði yngstu
börnin heim og forstöðukona
barnaheimilisins lét sækja
börnin því þau voru mjög
hrædd 1 ljósleysinu. Það
heyrðist mjög mikið á barna-
heimilisbyggingunni sem er úr
timbri. alifi s nulsiav ot
1 dag er bezta veður á. Eski-
firði, jörð alauð og mikið verzl-
að. í gærkvöldi kom aðeins smá-
slydda og var þá Ijóslaust frá kl.
hálfsjö til klukkan að ganga
ellefu.
Krap hafði komizt í Grímsár-
virkjun, sem virðist ekki þola
nokkurn snjó eða slyddu.
Sennilegast er að byggja verði
yfir hana til þes að Austfirðing-
ar hafi öruggt rafmagn.
-Regína Thor./abj.
Áður ósögð saga af heimskauíaferð
Vilhjálms Stefánssonar
• •
Om&Oriygur
Vesturgötu 42 simi:25722
í þessari bók er í fyrsta sinn rakin öll
saga Karluks, forystuskips í leiðangri
Vilhjálms Stefánssonar tii norðurhafa á
árunum 1913—1918, en það brotnaði
og sökk í ísnum, áður en leiðangurinn
var raunverulega hafinn. Tuttugu og
fimm menn voru skildir eftir skipreika á
ísnum, meðan foringi þeirra fór í fimm
ára landkönnunarferð norður.
Við þessar aðstæður gat ekkl hjá þvf
farið að endir sögunnar yrði hörmuleg-
ur. Átta manns létust á leið yfir ísinn,
einn skaut sig, tveir sveltu í hel og hinir
drógu með naumindum fram lífið, uns
hjálpin barst. Frásagnirnar um jjol-
raunir þeirra eru átakanlegar, en bera
vott um ótakmarkaðan lífsvilja.
í bókinni eru einstakar Ijósmyndir,
teknar í leiðangrinum og hafa flestar
þeirra aldrei blrst áður.
Hina næsta ótrúlegu sögu um örvænt-
ingarfulla lífsbaráttu fákunnandl og
forystulausra manna, seglr segul- og
veðurfræðingur leiðangursins, William
McKinlay, sem þá var hálfþrítugur
kennari.