Dagblaðið - 19.12.1977, Page 3

Dagblaðið - 19.12.1977, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1977. „Spillingin er að drepa þjóðfélagið” — segirbréfritari Guömundsson virðist ekki vera á sama máli. Grein hans snerist um tvo heiðursmenn, Vilmund og Jón H. Guðmundsson. Greinilegt er að G.G. virðist ekki vera búinn að fá nóg af spillingunni í þessu þjóðfélagi. Vert er að benda á nokkrar staðreyndir. Vilmundur hefur nú í tvö ár skrifað hverja stór- greinina á fætur annarri í DB þar sem hann hefur vakið at- hygli á þeirri gífurlegu spillingu sem á sér stað í þessu þjóðfélagi, spillingu þar sem öllu á að halda leyndu fyrir okkur. Hvaða maður hefur þor- að að halda uppi gagnrýni á kerfið, eins og Vilmundur? Mér er spurn. Máli mínu til staðfestingar ætla ég að vitna í nýlegt les- endabréf: Vilmundur Gylfaso'n er ekki óþekkt nafn. Hin skeleggu skrif hans í DB hafa vakið þj'óðarat- hygli. Vilmundur hefur opin- berlega ságt spillingunni stríð á hendur og boðar nýjar, áður óþekktar aðgerðir til úrlausnar. Ber þar hæst að mínu mati tillaga hans um opinberar rannsóknarþing- nefndir. Gagnrýni hans á Geir- finnsmálinu, Kröflu og Víðis- húsinu, svo dæmi séu tekin, er hressilega opinská og málefna- Ieg. Þetta hefur að vonum vak- ið mikla ólgu hjá „fimmta flokknum" sem vart hefur vatni haldið á síðum pólitísku málgagnanna. Vilmundur nýtur mikillar lýðhylli, einkum meðal frjálslynds ungs fólks, þannig að óhætt er að spá þvi að hann komist á þing. Tilvitn- un lokið. Já, Vilmundur er sannarlega rétti maðurinn til að berj- ast gegn spillingunni. Mörg þúsund kjósendur styðja hann. Jón H. Guðmundsson skrifaði stórgðða grein i DB fyrir skemmstu. Grein hans var vel skrifuð og " studdi hann Vilmund. Gunnar Guðmundsson segir orðrétt: ,,Er það raunveruleg skylda Alþýðuflokksins að krefjast þess að Jón H. Guðmundsson segi- sig úr flokknum þegar í stað.“ Þetta er náttúrlega algjör vit- leysa. Ef menn mega ekki hafa sínar skoðanir á hlutunum er ekki ritfrelsi í landinu. Ég vil einnig benda G.G. á enn eitt. Gagnrýni á Björgvin Guð- mundsson á rétt á sér. Maður sem stjórnað er af Framsóknar- flokknum á ekki heima í Alþýðuflokknum. Vilmundur Gylfason hefur sannarlega sýnt að hann vill aðeins sannleikann um spillinguna. Greinar hans um spillinguna í þessu þjóðféiagi hafa vakið menn til um- hugsunar. Enginn lætur grein- ar hans og skoðanir fram hjá sér fara. Enda sýnir fylgi hans í prófkjörinu að fólkið vill Vil- mund Gylfason. VILTU HAFA SNJÓ Á JÓLUNUM? Sverrir Einar E.vjólfsson. 6 ára: Nei, ég vil ekki hafa snjó, þá sekk ég í hann og bílarnir komast ekk- ert áfram. Svo getur verið að ég komist ekki á jólaballið. Spurning dagsins msm SllJl u - • psgBifeBal gB9S , . ■ NYJAR VÖRUR TEKNAR UPP DAGLEGA FRAM TIL JÓLA TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS Laugaveg 20 Laugaveg 66 Austurstræti 22 Glæsibæ Simi 28155 Grímur Atlason, 6 ára: Já. jólin eiga að vera þegar það er fullt af snjó. Þá er skrautið líka miklu fallesra. Andri Memonson, 8 ára: Já, mér finnst ekkert hátíðlegt nema það sé mikill snjór á götunum og líka í trjánum. Ef það væri enginn snjór finnst mér bara eins og það sé venjulegur tími. Steinþór Darri Þorsteinsson, 7 ára: Já. það er miklu betra fyrir jólasveinana. ef það er snjór. því þeir koma núna á sleða ofan úr fjöllunum. Svo er miklu skemmti- legra að leika sér úti í jólafríinu ef það er snjór. Guðni Sigurbjörnsson, 8 ára: Já, það finnst mér svo fallegt og hátíðlegt, svo er miklu hreinna úti. Mér finnst líka miklu fallegri jólaskreytingin þegar það er snjór. Hrafnkell Öskarsson, 8 ára: Já, helzt, því þá er miklu jólalegra. Ég vildi nú alls ekki hafa sól, þá sjást nú engin jólaljós, en þau lýsa svo vel þegar það er dimmt.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.