Dagblaðið - 19.12.1977, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1977.
Utgefandi Dagblaðið hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson.
Frettastjori: Jon Birgir Pótursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar:
Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Aðstoðarfróttastjóri: Atli Steinarsson. Handrit:
Ásgrímur Pálsson.
Blaðamenn: Anna Bjarnason. Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stpfánsdóttir. Gissur
Sigurðsson, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Jonas Haraldsson, Katrín Pálsdóttir, Ólafur Geirsson,
Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár.
Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Sveinn Þormóðsson.
Skrifstofustjóri: ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þrainn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M.
Halldórsson.
Ritstjórn Síðumúla 12. Afgreiðsla Þverholti 2. Áskriftir, auglysingar og skrifstofur Þverholti 11.
Aðalsími blaðsins 27022 (10 línur). Áskrift 1500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr
eintakið.
Setning og umbrot: Dagblaðið og Steindórsprent hf„ Ármúla 5.
Mynda og plötugerð: Hilmir hf. Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 19.
Of langt gengið
Sums staðar erlendis, þar sem
ríkisstofnanir eru betur reknar en
hér á landi, er algengt, að nýir
embættismenn séu fundnir utan
viðkomandi stofnunar. Til dæmis
eru hæfustu embættismennirnir
færðir milli stofnana á f jögurra til
fimm ára fresti. Einnig eru fengnir menn úr
atvinnulífinu til að taka að sér embættisstörf
um f jögurra til fimm ára skeið.
Með þessum hætti er reynt að vinna gegn
stöðnun opinberra stofnana. Talið er, að utan-
aðkomandi embættismenn, sem hafa á sér gott
orð, geti blásið nýjum lífsanda í slíkar stofnanir
ög rutt til hliðar kerfislægum vinnubrögðum.
Enn frekar gildir þetta sjónarmið um þá menn,
sem koma úr atvinnulífinu.
Hér á landi hefur lítið verið um tilfæringar
af þessu tagi, enda hafa æviráðningar í emb-
ætti gert sumar opinberar stofnanir að stein-
gervingum. í nokkrum tilvikum hafa þó menn
úr atvinnulífinu verið gerðir að ráðuneytis-
stjðrum.
Einstaka embættismaður hefur haft hugsun
á að staðna ekki. Guðlaugur Þorvaldsson há-
skólarektor var um tíma ráðuneytisstjóri fjár-
mála. Jón Sigurðsson, forstjóri málmblendi-
félagsins, var áður ráðuneytisstjóri fjármála og
í annan tíma bankastjóri Alþjóðabankans.
Björn Friðfinnsson, fjármálastjóri Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, hefur verið bæjarstjóri á
Húsavík og framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar.
Flestir geta verið sammála um, að slíkar
tilfæringar hafi oftast gefizt vel. Þeir, sem færa
sig, öðlast víðtækari reynslu og meiri víðsýni
en ella og reynast oft dugmeiri embættismenn
en hinir, sem rótgrónir eru innan stofnunar-
innar.
Hins vegar gilda þessar röksemdir alls ekki
um afleysingar embættismanna í tvo-þrjá mán-
uði. Hvergi erlendis tíðkast, að menn séu
fengnir utan stofnunar til aðstjórna henni í
tvo-þrjá mánuði í fjarveru embættismanns.
Nýr stjórnandi er yfirleitt um ár að setja sig
inn í embætti. Tveggja til þriggja mánaða
afleysing er alveg út í hött. Afleysingamaður-
inn fer jafn ringlaður og hann kemur. Þess
vegna ber að gagnrýna þá ákvörðun Gunnars
Thoroddsen orkuráðherra að setja Þórodd Th.
Sigurðsson vatnsveitustjóra sem orkumála-
stjóra í tveggja mánaða leyfi Jakobs Björns-
sonar.
1 þessu felst engin gagnrýni á Þórodd. Hins
vegar er enginn íslenzkur embættismaður svo
snjall, að hann geti náð tökum á stórri ríkis-
stofnun á tveimur mánuðum, né skilið þar eftir
sig umtalsverð spor.
Hið eina rétta í þessu máli var að setja
næstráðandi innan Orkustofnunar til að gegna
embætti forstjórans þessa tvo mánuði. Engin
skynsemi er í öðru, nema næstráðandi sé bæði
óalandi og óferjandi, enda ætti hann þá ekki að
vera næstráðandi. í versta tilviki er unnt að
setja hinn þriðja í röðinni sem forstjóra.
Líklega býr hér að baki spenna, sem að
undanförnu hefur myndazt milli ráðherra og
ýmissa embættismanna Orkustofnunar út af
ágreiningi um Kröfluvirkjun. Og með setningu
vatnsveitustjórans hefur ráðherra gengið of
langt í ágreiningnum.
t
Undirbúningur
Olympíuleikanna
í Moskvu 1980
Hér á eftir fara ýmsar
upplýsingar um undirbúning
Olympíuleikanna í Moskvu
1980.
I. Novikov, aðstoðarforsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, er for-
maður undirbúningsnefndar-
innar, sem skipuð var í mars
1975. A vegum hennar starfa 20
undirnefndir undir forustu
háttsettra embættismanna í
ráðuneytum og stjórnardeild-
um Sovétríkjanna. Fjallar hver
þeirra um einstaka málaflokka,
s.s. byggingu iþróttamann-
virkja og iþróttavalla, tækni-
þjónustu, byggingar gistihúsa
og annarra þjónustumiðstöðva,
samgöngumál, skipulagningu
íþróttakeppninnar, fjarskipta-
mál, upplýsingar, lista- og
menningardagskrár o.s.frv.
DAGSKRÁ LEIKANNA
í Moskvu mun fara fram
keppni í eftirtöldum íþrótta-
greinum: Körfuknattleik,
hnefaleikum, glímu, júdó, hjól-
reiðum, blaki, fimleikum, róðri,
kappreiðum, frjálsíþróttum,
sundi, dýfingum, sundknatt-
leik, handknattleik, nútima
fimmtarþraut, bogfimi, skot-
Forsenda betri
stjórnskipunar er
hugarfarsbreyting
stjómmálamanna
Þ ... 4
UNDIRBÚNINGSNEFND
22. OLYMPÍULEIKANNA
fimi, lyftingum, skylmingum,
knattspyrnu og hokkí.
Siglingakeppnin verður
haldin í Tallin og Leningrad.
Kiev og Minsk verða einnig
olympíuborgir, því þar fer fram
undankeppni í knattspyrnu.
Aðalnýjungin frá leikunum
í Montreal er sú að tekin verður
upp keppni í hokkí kvenna. t
Moskvu og Tallin verður keppt
um 201 samstæðu gull-, siifur-
og bronsverðlauna.
ÍÞRÓTTAMANNVIRKI
Unnið er nú að endurbygg-
ingu þeirra íþróttamannvirkja,
sem fyrir eru í Moskvu, svo og
byggingu nýrra íþróttaleik-
vanga. Verið er að reisa nýja
320 metra langa og 110 metra
breiða íþróttamiðstöð við
Leningradskí breiðgötu, rétt
við íþróttahöll sovézka hersins.
Þar verður keppt í glímu og
skylmingum. Olympíuleik-
vangur er tekur 5000 manns í
sæti er að rísa i hinum gamla
Izmailovskígarði. Þar verður
keppt í lyftingum. Fyrsta
innanhússhjólreiðabraut lands-
ins verður reist í Krjlatskoje
skammt frá róðrarskurðinum.
Brautin sem er 333.33m og
hallast 42° verður gerð úr
völdum innlendum viði.
Áhorfendapallarnir tveir munu
rúma 6.000 áhorfendur, undir
þeim verða búnings- og hvíldar-
herbergi með öllum þægindum,
herbergi fyrir dómara og blaða-
mannamiðstöð.
Á Kjimki-Kjovrinosvæðinu
verður reist íþróttahöll fyrir
handknattleikskeppnina er
tekur 5000 manns i sæti. önnur
slík höll verður reist á Lusjniki
fyrir keppni í blaki kvenna. í
Bitsaþjóðgarðinum í grennd við
Moskvu er verið að koma á 45
hektara landsvæði miðstöð
fyrir keppni í reiðmennsku-
íþróttum hvers konar svo og
fyrir keppni í nútima fimmtar-
þraut.
Nú hafa verið talin upp
nokkur hinna nýju olympiu-
mannvirkja í Moskvu. Olymípu-
þorpið, sem á að rúma 10-12
þúsund gesti, er að risa á yfir
100 hektara landsvæði skammt
frá Luzjnikileikvanginum.
Keppendurnir á Olympíuleik-
unum munu búa í tveggja til
þriggja herbergja íbúðum í
átján 16 hæða byggingum.
íþróttamennirnir munu geta
æft þarna í næði. Þeir munu
hafa til umráða heila samstæðu
íþróttamannvirkja. í þorpinu
verður einnig sérstök
menningarmiðstöð, m.a. leik-
hús og tónleikasalur, tveir kvik-
'myndasalir fyrir 350-400 manns
hvor, bókasafn, og mörg önnur
þægindi.
í Tallin er verið að reisa
stóra siglingamiðstöð og endur-
Ég skrifa þessa grein í tilefni
af athyglisverðri ábendingu
EMerts Schram alþingismanns,
sem birtist í Morgunblaðinu
þann 16. nóv. sl. og bar heitið
'Verðbólga er hættulegasti óvin-
ur lýðræðisins. Fjallaði þessi
grein hans m.a. um mjög við-
kvæm og mikið rædd vandamál
í dag, svo sem um gagnrýni á
stjórnmálaflokkana, pólitíska
spiMingu, fíokksræðið, sam-
tryggingu flókkanna, breytt
vinnubrögð alþingis og getu-
leysi alþingis við stjórnun
landsins og hverju þar helst er
um að kenna.
Setur EMert ákveðið fram
skoðanir sínar i þessum efnum
og enda þótt við séum ósam-
mála í flestum atriðum þá virði
ég hreinskilni hans og dirfsku
við að reyna að taka á þessum
vandamálum. i
Flestir stjórnmálamenn vilja
því miður leiða allar umræður
hjá sér og flokka þær gjarnan
undir neikvætt nöldur eða róg
óábyrgra afla i þjóðfélaginu.
Hafa verður þó í huga að fáum
er tamara en einmitt mjög illa
spilltum stjórnvöldum að beita
slíkum röksemdum.
Stutt er síðan fjöldi emb-
ættismanna og ráðherra í
Bandaríkjunum undir stjórn
Nixons varð að segja af sér og
þola dóma fyrir misbeitingu
valds og margskonar spillingu,
en þessir sömu aðilar gripu
stöðugt til þessara slagorða sér
til varnar. Reynslan sýnir
okkur að góð stjórnvöld taka
tillit til réttmætrar gagnrýni og
virða hana, en kveða niður og
takast á við ósómann og ræða
umfram allt vandamálin ef
hreinskilni.
I öllum mannlegum viðskipt-
um verður og að hafa í huga, að
flest sem gert er orkar tvímælis
og reynslan verður oft um síðir
besti dómarinn.
STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR
SKARA ELD AÐ SINNI
KÖKU
Það er öllum ljóst að í lýð-
ræðisríkjum eru stjórnmála-
flokkarnir nauðsynlegir og
hafa mikilvægu hlutverki að
gegna, en þeir mega ekki sölsa
undir sig fjármagn, sem ætlað
er til starfrækslu ríkisbúsins
eða til almenningsþarfa.
Við hlutlausan samanburð á
fjárlögum i dag og fyrir 10 ár-
um kemur í ljós að stjórnmála-
flokkarnir hafa síðustu árin
staðið saman á alþingi í fjöl-
mörgum málum sem hafa haft í
för með sér aukin völd og mikið
fjármagn til þeirra sjálfra.
Nokkur dæmi skulu hér rakin:
í frumvarpi til fjárlaga 1978’
er gert ráð fyrir 40 millj. króna
ti! blaðanna skv. nánari ákvörð-
un ríkisstjórnar að fengnum til-