Dagblaðið - 19.12.1977, Side 23
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 19. DESEMBER 1977.
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 19. DESEMBER 197,7.
a
Fjörefni—A+
Ófullgerða hljómplatan
Á þessum tveimur gömlu myndum af .hljómsveitinni Dögg má finna meirihluta meðlima
Fjörefnisins. A myndinni til vinstri er Nikulás Róbertsson hljómborðsleikarií efri röð fyrir
miðju. Jóhann Þórisson bassaleikari er iengst til v.instri i fremri röð og Páll 'Páisson söngvari
við hlið hans Á myndinni að ofan er Páli lengst til hægri í efri röð en Jón Þór Gislason til
vinstri í fremri röð. DB-myndir Björgvin Pálsson.
Fiörafni — A +
Útgaffandi: Stainar hff. (Stainar-019
Stjórn upptöku: Tony Cook og Fjöroffni.
Upptökumaöur: Tony Cook.
Hljóöritun: Hljóðriti i sapt. '77.
Yrkisefnin á hljómplötunni A+
eru nokkuð öðruvísi og nær fólki en
gerist og gengur. önnur hlið plöt-
unnar er öll lögð undir Hallæris-
planið margumtalaða. Á hinni hlið-
inni er til dæmis sungið um Læra-
lækinn — heilsulindina góðu sem
mjög var til umræðu síðastliðið
sumar. Þar má einnig finna lagið
Diskódans sem hefur álíka inni-
haldsríkan texta og tónlistin sem
hvað mest glymur í eyrum á
diskótekum.
Það heyrir til undantekninga að
tónlistarmenn geri nánasta
umhverfi sitt að yrkisefni. Miklu
frekar kjósa þeir að syngja um ástir
sínar, fortiðina eða uppdiktaða
atburði og persónur. Aó þessu leyti
er A+ fersk undantekning á
markaðinum.
Lög og textar á plötunni eru að
mestu leyti-eftir þá Pál Pálsson og
Jón Þór Gíslason. Við tex.tagerðina
njóta þeir aðstoðar manns sem kýs
að kalla sig Loka og einnig á Halldór
Gunnarsson einn texta eða miklu
heldur ljóð, Meiri sól:
Þegar morgunregnið malar
við giugga
og músum vatnar himinn á gler,
hver kann ráð?
Kannski finnur einhver þörf
tii að hugga hann
og hljómasúpu fyrir hann ber
meó von um bros.
Fingur hans falia á hljómboro
falleg hugsun kailar á orð
með von um bros.
Uppí nefið alveldið sýgur,
augun þerrar, strýkur burt ský
og gefur bros.
Tónn og geisli faðmast og fagna,
flögra um stofu í áköfum leik.
Orð og hljómur minnast og magna,
meiri sól.
Lög þeirra Jóns Þórs og Páls eru
öll áheyrileg og sum góð. Þeir félag-
arnir eru ólíkir tónsmiðir — lög
Páls eru auðgripin en þegar frá
líður fer maður að veita lögum Jóns
meiri athygli. Svo er til dæmis um
lögin í Læralæk og Meiri sól.
í upphafi átti A+ að vera sóló-
plata Jóns og Páls. Þeir fengu með
sér tvo fyrrverandi félaga Páls úr
hljómsveitinni Dögg, Þá Nikulás
Róbertsson og Jóhann Þórisson.
Síðar bættust við tveir meðlimir
hljómsveitarinnar. Eikar, Tryggvi
HUbner og Asgeir Öskarsson. Allir
standa þessir hljóðfæraleikarar sig
óaðfinnanlega á A+.
Ég get þó ekki stillt mig um að
minnast á bassaleik Jóhanns. Hann
hefur aðeins stundað hljóðfæraleik
öðru hverju og með löngum hléum
síðustu ár en þrátt fyrir það gæti
hann gengið inn í hvaðí hljómsveit
sem er, strax í dag. Sömuleiðis á
Tryggvi Hiibner hrós skilið fyrir
gítarleik sinn. Tryggvi hefur alltaf
látið litið á sér bera en er mjög fær
gltarleikari. Vera hans í hljómsveit-
inni Eik ætti að vera næg sönrfhn
fyrir þvi.
A+ er fyrir margra hluta sakir
áheyrileg plata. Helzti galli hennar
er sá að hún er ekki fullunnin
ennþá. ÖIl aukahljóðfáeri vantar og
sömuleiðis eru raddanir I lágmarki. ■
Vegna tfmaskorts í Hljóðrita hefur
ekki unnizt tími til að lagfæra ýmis
smáatriði — atrið sem eru til komin
vegna reynsluleysis sum hver.
Hljóðblöndun er vönduð og viróisl
talsverðum tíma hafa verið varið til
hennar, gagnstætt því sem gert var
við upptökuna.
Næsta plata Fjörefnis á að fjalla
um nokkra stráka i sveitaþorpi sem
slá sér saman í hljómsveit. Ég er
farinn að hlakka til að heyra þí
plötu. AT
Gamlar, góðarlummur:
Hin fullkomna söluplata
GAMLAR, GÓÐAR LUMMUR -
Gunnar Þoröarson og Lummurnar.
Útgofandi: Ýmir (Ýmir-005).
Stjórn upptöku, hljóðblöndun og útsetning-
•ar: Gunnar Þóröarson.
Upptökumaöur: Tony Cook.
Hljóðritun: Hljóöriti í okt. '77.
Gamlar, góðar lummur hafa
flest það til að bera sem ein-
kennir góða söluplötu. Lögin
eru mátulega gömul og öll gríp-
andi. Utsetningarnar eru líf-
legar, söngur kraftmikill og
hljóðfæraleikur smekklegur.
Neytendur eru sem sagt teknir
með trukki. Gunnar Þórðarson
veit alveg hvað hann er að gera,
hvað sem hann tekur sér fyrir
hendur.
Til er fjöldi fólks sem finnur
þessari Lummuplötu flest til
foráttu. Sumir þola hana ekki
af því að hún rýkur út eins og
heitar lummur. Öðrum þykir
hún heldur.létt og að sjálfsögðu
líkar ekki öllum við lög eins og
Anna í Hlíð, Viltu með mér
vaka í nótt eða Lóa litla á Brú,
svo að þrjú af ellefu lögum plöt-
unnar séu nefnd. Þá eru þeir
ófáir sem telja það fyrir neðan
virðingu Gunnars Þórðarsonar
að fást við tónlist eins og lumm-
urnar.
Það er ekki fyrir neðan virð-
ingu Gunnars að gera neitt sem
á annað borð er vel gert. Hvers
vegna ætti hann ekki að mega
gera plötur fyrir fjöldann eins
og aðrir, ef hann langar til á
annað borð? Sem betur fer er
nú svo komið að Gunnar er
sjálfur hættur að taka mark á
þeim sem úthrópa hann mesta
óvin íslenzkrar tónlistar og
öðrum ónöfnum fyrir starf
hans með Ríó, aðild að Vísna-
bókárplötunni og þess háttar.
Hann hefur líka sýnt það og
sannað með verkum sínum að
slíkt hjal er marklaus þvæla.
Ég játa það fúslega að ég hef
ekkert sérstaklega gaman af
Gömlum, góðum lummum, það
er einum of mikið tyggjóbragð
af þeim. Én platan er jafn vel
gerð fyrir því og þeir, sem
þykir hún skemmtileg, eru ekk-
ert verri menn fyrir bragðið.
Ég vona að Gamlar, góðar
•lummur skili af sér góðum
.ágóða. Þá er tilganginum náð.
- ÁT -
^PIata sem móðgar engan
Silfurkórinn — HVÍT JÓL
Útgefandi: SG-hljómplötur (SG-110).
Upptökumaður: Siguröur Ámason.
Útsetningar og hljómsveitarstjórn: Magnús
Ingimarsson. Hljóöritun: Tóntækni.
Búið er að gefa út svo
margar jólaplötur hér á landi
að erfitt er orðið að gera plötu,
sem líkist ekki neinni annarri.
Það var því ágætis lausn að
velja sosum fjörutíu jólalög,
skipta þeim í syrpur og taka
síðan allt upp. — Þannig er
plata Silfurkórsins, Hvit jól,
upp byggð.
Þetta er ekki ný hugmynd.
Áður höfðu Fjórtán fóst-
bræður sungið inn á .þriár
plötur með þessu sniði. Magnús
Ingimarsson, útsetjari Ilvitra
jóla, útsetti einnig að minnsta
kosti tvær af plötum Fjórtán
fóstbræðra, svo að ekkert
undarlegt er við það ])ó að
handbragðið sé svolítið
keimlíkt.
Þó er mikill munur á plötum
Fjórtán fóstbræðra og Silfur-
kórsins. Silfurkórinn er frekar
tilþrifalaus kór. Sér í lagi
þykir mér lítið til karlmanna-
raddanna koma. Ég heyri ekki
betur en að allar bassaraddir
vanti, — að minnsta kosti fer
ákaflega litið fvrir þeim. Þá er
lítill kraftur í kórnum, en það
var einmitt krafturinn sem var
einkenni Fjórtán fóstbræðrá.
Kannski er ég voðalega
óréttlátur að hera þessa tvo
kóra saman Fóstbræðurnir
starfa stöðugt. en Silfurkórinn
mun aðeins einu sinni hafa
komið saman i heild. Það var
ekki einu sinni til að s.vngja
heldur til að hlusta á eigin
söngl
Silfurkórinn er nefnilega
dðeins nokkurra mánaða
gamall. Utgefandi Hvítra jóla
auglýsti eftir kórfólki og af
umsækjendum voru 24 valdir.
Síðan var tekið upp, væntan-
lega hver rödd fyrir sig. Þetta
eru ákaflega ópersónuleg
Ivinnubrögð, sem hljóta að
koma niður á heildarútknm-
unni.
Hvít jól eru ákaflega látlaus
plata. Litið ber á undirleik-
urum heldur fer kórinn með
aðalhlutverkið. Notkun slag-
verkshljóðfæra er alveg mátu-
leg. Oft hefur viljað brenna við
að jölaplötur hafi verið
ofhlaðnar með þeim. — Sem
sagt plata sem kemur ekki á
ovart að neinu levti, -— jóla-
plata fvrir alla fjölskvlduna
AT
Loksins
áíslandi
FOTBOLTAR
HANDBOLTAR
KÖRFUBOLTAR
Búningar:
ENGLAND —
WEST HAM —
LEEDS —
M. UNITED —
0. FL.
einnig
ADMIRAL
ÆFINGABÚNINGAR
ARMBÖND, HRINGAR,
FÁNAR, PRJÓN-
MERKI O.FL.
MOON-
BOOTS
KR. 4.770.
TIL 5.270.
ÆFINGABÚNINGAR
VERD FRA
KR. 3.895—8.800.
PUMA
ÆFINGASKÓR
ÍÞRÓTTATÖSKUR
FRAM, VALUR, LIVERPOOL,
KR, MAN. CITY O.FL. GERÐIR
VERÐ KR. 1.840.
PUMA
ÍÞRÓTTATÖSKUR
20 GERDIR
HANZKAR, HUFUR,
PEYSUR, HNÉHLÍFAR
OG OLNBOGAHLÍFAR
CHARLTON
OG YONEX—SPAÐAR
SKÓR, PEYSUR
OG BOLTAR
PÓSTSENDUM
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 — Sími 11783
RADI0ST0FA VILBERGS OG ÞORSTEINS - LAUGAVEGI80 - SÍMI10259