Dagblaðið - 19.12.1977, Side 36
40
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 19. DESEMBER 1977.
Kópavogsbúar!
Verið velkomin í nýju
fataverzlunina f miðbænum
Tfunda bók Francis
Clifford á íslenzku
— Skæruliðar í skjóli
myrkurs heitir sú nýjasta
Rithöfundurinn Francis Clif-
ford hefur skipað sér fastan sess á
íslenzkum bókamarkaði með bók-
um eins og Njósnari á yztu nöf,
Flótti f skjóli nætur og í eldlín-
unni. Nú er komin út tfunda bók
hans á íslenzku, Skæruliðar í
skjóli myrkurs.
Utgefandi bóka Francis Clif-
fords er Hörpuútgáfan á Akra-
nesi. Þýðingu Skæruliða í skjóli
myrkurs annaðist Skúli Jensson.
Hún er 181 blaðsíða að stærð og
kostar kr. 3.120.-
★ A götuhæd er sérdei/d med geysimikið
úrval afharnafatnadi
★ A neöra palli ersvofull búð af a/ls
konarfatnadi a' alla fjölskylduna
ásamt sængurverasettum,
handklædasettum o.fl.
Gjörið svo vel að Ifta inn til að
sannfærast um að ekki er
hagstætt að leita lengra
Viltu vita hvernig kynlífið getur
veitt þér meiri unað en þig hef ur
nokkurn tíma dreymt um?
Er kynlífið í lagi? Ef svo er, þá
er allt annað í lagi. Sé svo ekki, þá
getur ekkert annað verið í lagi. —
Til þess að allt falli nú í ljúfa löð
hefur bókaútgáfan Örn og Örlyg-
ur sent á markaðinn bókina
Hvernig kynlífið getur veitt þér
meiri unað en þig hefur nokkurn
tíma dreymt um.
Höfundur bókarinnar er banda-
rískur læknir, David Reuben, —
sá sami og reit bókina Allt, sem
þú hefur viljað vita um kynlífið.
Nýju bókina tileinkar hann Bar-
böru konu sinni, ,,sem kennir mér
á ný á hverjum morgni hið sanna
eðli ástarinnar," eins og segir í
bókinni.
Hvernig kynlífið getur veitt þér
meiri unað er safn af spurning-
um, sem Reuben leitast svo við að
svara. Spurningar þessar fékk
læknirinn aðsendar eftir að fyrri
bók hans kom út.
Það er Loftur Guðmundsson,
sem þýddi Hvernig kyniífið getur
veitt þér meiri unað. Yfirlestur
handrits annaðist Guðsteinn
Þengilsson læknir. Bókin er
prentuð í prentsmiðjunni Viðey.
Vérð hennar út úr búð er kr.
2900.-
- AT-
Hamraborg - Fataverzlun
Hamraborg 14 — Kópavogi
Norðurlandstrómet eftir Petter Dass:
„Landlýsing f rúmum skilningi”
— segir þýðandinn, dr. Kristján Eldjárn
Helgafell hefur sent á markað-
ín bókina Norðurlandstrómet.
Bókin er kvæðabálkur í sextán
köflum, „landlýsing í rúmum
Síml 53534
VERZLUNINNI
I v
Strandgtftu 31 — Hafnarf irél
Fyrir hana:
Prjónakjólar -
Peysur-
Hanzkar - Sjöl -
Blússur - Pils -
Innisloppar velúr
Fyrirhann:
Peysur - Buxur -
Mittisúlpur -
Skyrtur - Bindi
s
skilningi“ eins og þýðandinn dr.
Kristján Eldjárn kemst að orði i
formála að bókinni. Hann ritar
einnig skýringar í bókarlok og
birtir staðanöfn í Noregi bæði á
norsku og íslenzku.
Á frummálinu nefnist Norður-
iandstrómet Nordlands Trompet.
Höfundur bálksins er séra Petter
Dass. Hann var uppi um svipað
leyti og Hallgrímur Pétursson á
íslandi. Norðurlandstrómet
samdi hann á siðasta fjórðungi
sautjándu aldar, en það kom ekki
fyrir almennings sjónir fyrr en
árið 1739 — rúmum þremur ára-
tugum eftir dauða skáldsins.
Norðurlandstrómet er 175 blað-
síður að stærð. Teikningar í bók-
inni eru eftir Kjartan Guðjóns-
son. Verð bókarinnar með sölu-
skatti er kr. 5.598,-
I ríki hestsins:
Bók fyrir
fólk sem
ann stóðlffi
í ríki hestsins nefnist nýútkom-
in bók eftir Ulf Friðriksson. Ut-
gefandi er Skuggsjá. A hlífðar-
kápu segir útgefandinn:
„Höfundur þessarar bókar
hefur unnið þrekvirki með samn-
ingu hennar. Hann leiðir fram
fræðimenn, skáld og rithöfunda
og lætur þá vitna um samskipti
hestsins, mannsins og landsins og
víða er vitnað til erlendra ferða-
manna ?em landið gistu.“
Sem lítið dæmi um efni bókar-
innar er rétt að nefna nokkur
kaflaheiti hennar: Járnjórinn, á
stroki, illt er að hefta heimfúsan
klár, dæmalaust var drottinn
góður að drepa hrossið en ekki
mig, bjargvætturinn, litfari minn
lúinn er.
I ríki hestsins-er 192 blaðsiður
að stærð, prentuð í Víkingsprent.
Verð hennar út úr búð er kr.
4.320,-
TANJÁ:
— nýr bókaf lokkur
f rá Æskunni
Nýr bókaflokkur virðist vera í
uppsiglingu hjá Æskunni en nú
er komin út bókin Tanja vinnur
sigur.
Tanja er ný í bekknum og öll-
um ráðgáta. Hvers vegna er hún
svona sérkennileg? Þarf hún ein-
hverju að leyna? Krakkarnir f
bekknum ákveða að leysa gátuna,
en þau bjuggust aldrei við að hún
væri sú sem hún reyndist vera.
Bókin er 105 blaðsíður og
kostar 1.680 krónur.