Dagblaðið - 13.01.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 13.01.1978, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JANUAR 1978. Danmörk: LYKTIN YFIR- BUGAÐIHÚS- VÖRÐINN OG NÁGRANNANA Dómstóll í Kaupmannahöfn 'hefur úrskurðað að kona ein skuli rýma íbúð sem hún hefur haft á leigu síðan 1974. Þykir þetta tíðindum sæta í Danmörku því íbúðin er í eigu samvinnufélags, sem sér meðlimum sínum fyrir leiguíbúðum sem þeir yfirleitt þurfa ekki að yfirgefa nema að eigin ósk. Konan hefur unnið sér það til sakar að lyktin sem berzt frá ibúð hennar í sambýlishúsi einu hefur orðið nágrönnunum um megn. Hófu þeir að kvarta yfir lyktinni skömmu eftir að konan flutti í íbúðina en án árangurs. Stjórn samvinnufélagsins reyndi þá að skerast í leikinn en fékk ekki einu sinni að koma inn í íbúðina. Var kónunni þá sagt upp en hún lét sig það engu skipta. Að sögn húsvarðar sem kom til konunnar var sóðaskapurinn óskaplegur og gólfið meðal annars þakið fuglasaur enda leigjandinn greinilega mikill unn- andi gæludýra. Að sumarlagi hefur hún haft svaladyr opnar til að lofta út en því hefur fylgt fnykur eins og frá búrum rán- og hrædýra i dýragörðum. Vitað er að bæði húsvörðurinn og iðnaðarmaður einn hafa neitað að lagfæra hurðarlæsingu í íbúð konunnar vegna ótta við að sýkjast af óþverranum. Kortsnoj sigraöi og mætir Karpov Kortsnoj sigraði í einvíginu við Spasský í Belgrad í gær. Hann hefur þar með öðlazt rétt til þess að skora á Karpov heimsmeistara í skák. Spasský gaf biðskákina úr 18. umferð þegar eftir biðleikinn enda stefndi hann beint til taps. Lokastaðan varð því sú að Kortsnoj hlaut 10.5 vinninga, en Spasský 7.5 vinninga. Þetta er í fyrsta sinn sem Kortsnoj vinnur sér réttinn til þess að skora á heimsmeistarann. Hann hefur tvívegis áður keppt um áskorendaréttinn en tapað. Nýkomið! Jumbo-quick, Cabel-sportog Jakobsdalsgamið vinsæla. Fjölbreytt úrval af hannyrðavörum. Norsku kollstólarnir komnir aftur. HOF -Ingólfsstræti 1 — Sími 16764 Bílamálarinn hf. auglýsir. Erum fluttir að Skemmuvegi 10 Kópavogi. Almálum og blettum allar tegundir bifreiða. BÍLAMÁLARINN H/F Skemmuvegi 10 Kópavogi, Sími 75323 Smurbrauðstofan BJORNINN NjáEsgötu 49 — Sími 15105 Hnetumjöl í brauðið eykur eggjahvítuna Shakespeare og Dickens aftur i náð í Kína Ráðstefna þeirra sem vinna að útgáfumálum í Kína, en hún var haldin nýlega í Peking, hvatti til að hafizt yrði handa á nýjan leik að gefa út sígild verk í kínverskum bókmenntum og einnig erlend bókmenntaverk en þau hafa meira og minna verið bönnuð i því stóra landi síðasta áratuginn. Fyrir nokkrum dögum var tilkynnt að banni sem verið hefur á höfundum eins og William Shakespeare, Charles Dickens og Mark Twain hefði verið aflétt í bókasafni Peking- borgar. Er það stærsta safn í Kína. Eins og flest sem úr lagi þykir hafa gengið að undan- förnu er bókabannið kennt „hinum fjórum“ undir forustu ekkju Maos formanns. Hvatt er til aukinnar útgáfu á sósialískum ritum eftir Marx, Engels, Lenin, Stalin og Mao formann. Einnig er hvatt til út- gáfu og rannsókna á fornum kínverskum bókmenntum auk erlendra góðbókmennta. Jimmy Carter Bandaríkjaforseti og fjölskylda hans hefur haft ótaldar milljónir dollara upp úr hneturækt- inni. Hið kunna vikurit Newsweek sá ástæðu til að birta þessa teikningu af honum á forsíðu sinni 9. janúar. Brauð sem bandarískir visinda- menn hafa bakað í tilraunaskyni og blandað er mjöli gerðu úr jarð- hnetum þykir smakkast vel og auk þess vera fimmtán af hundr- aði eggjahvituauðugra en venju- legt brauð. Hlutfall jarðbaunamjöls er fimmtán af hundraði af því mjöli sem notað er við baksturinn og segja vísindamenn að ekki þurfi að hækka verð brauðsins þrátt fyrir það. Tilraunir þessar eru meðal annars gerðar til að finna lausn á vanda margra bænda í norður- vesturhéruðum Bandaríkjanna. Vegna mikillar og langvarandi nýtingar á ökrunum er jarðvegur- inn orðinn svo snauður af nauðsynlegum efnum að upp- skera venjulegs hveitis hefur dregizt verulega saman. Telja visindamenn á land- búnaðarsviði að ef bændurnir mundu rækta jarðhnetur á móti hveitiræktuninni hefði jarðvegur- inn tækifæri til að jafna sig.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.