Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 13.01.1978, Qupperneq 12

Dagblaðið - 13.01.1978, Qupperneq 12
 Það var hart barizt i körfunni í gærkvöid — og myndin raunar týpísk, KR-íngar hata netur í baráttu undir körfunni. DB-m.vnd Hörður Vilhjálmsson. Komar varpaði rúmum 3 m skemur en íslandsmet Hreins! — en sigraði samt a f r jálsíþróttamóti í Melbourne Olympíuhafinn frá Munchen ’72, Pólverjinn Wladyslaw Komar sigraði í kúluvarpi á miklu frjáls- íþróttamóti á ólympíuleikvangin- um í Melbourne í gær, varpaði kúlunni, 17.88 — eða 3,21 metra skemmra en islandsmet Hreins Halldórssonar og sigraði Komar þó með miklum yfirburðum, varpaði rúmum hálfum þriðja metar lengra en næsti maður. Ölympíuhafinn Don Quarrie sigraði bæði í 100 og 200 metra hlaupi á ólympíuleikvanginum þar sem Vilhjálmur Einarsson hreppti silfur fyrir íslandshönd ‘56. Quarrie hljóp á 10.4 og 20.5. I 800 metra hlaup sigraði John Higman á 1:47.1, á undan John Walker, 1:47,7. Finninn Ari Paurenon sigraði í 1500 metrunum á 3:46.0 og Pólverjinn Malinowski sigraði í 3000 metra hindrunarhlaupi á 8:38.3. Eamonn Coghlan, Irlandi sigraði í tveggja mílna hlaupi á 8:25.2. Pólverjinn Slursarksi sigraði í stönginni — 5.40. Olympíuhafinn frá Munchen og Montreal, Finn- inn Lasse Viren tók þátt í 800 metra hlaupinu og hann varð 11. — á 8:54.8. I 200 metra hlaupi kvenna sigraði brezka blökku- stúlkan Boyle Irenu Swewinska, Boyle hljóp á 23.1 en Swewinska ólympíuhafi á 23:8. V. V. =HÓLASPORT= HÓLAGARÐI - BREIÐH0LTI Nýkominn Sundfatnaður frá SPEED0 ogARENA Merkin sem allirþekkja Allar stærdir, margirlrtir VERÐ: Sundbolir fró 2.060—3.100 Sundskýlur frá 900—1.670 Einnig sundgleraugu, sundhettur, sundspaðar, sundboltaro.fi. o.fl. Póstsendum um land allt HÓLASP0RT Hólagarði —lóuhólum 2-6 Sími 75020 Sigurvilji KR færði tvö stig gegn stúdentum — Reykjavíkurmeistarar KR sigruðu ÍS107-104í 1. deild íslandsmótsins í gærkvöld Reykjavíkurmeistarar KR unnu ákaflega þýðingarmikinn sigur í 1. deild Islandsmótsins í körfuknattleik í gærkvöld gegn stúdentum, 107-104. Baráttan um meistaratign er í algleymingi — Njarðvík hefur tapað tveimur stigum, KR, ÍS og Valur öll fjór- um. — Þó verður að hafa fyrir- vara með KR, þar sem meir en hugsanlegt er, að þeir vinni kæru gegn Þór og hafi því í raun aðeins tapað tveimur stigum. Hvað um það — viðureign KR og stúdenta í íþróttahúsi Kennaraháskóla Islands í gær- kvöld var ákaflega jöfn allan ieik- inn — skorað grimmt á báða bóga. Mikils taugaóstyrks gætti meðal leikmanna í upphafi, sannkölluð úrslitaleiksstemmning. Stúdentar byrjuðu betur — komust í 6-2 í byrjun fyrri hálfleiks en síðan fylgdi í kjölfarið góður kafli KR — að sama skapi slakur hjá IS og KR komst í 17-8 — leikkafli sem reyndist ákaflega afdrifaríkur því stúdentar voru ávallt að elta uppi þennan mun , náðu aldrei frum- kvæðinu úr höndum KR-inga. | Þeim tókst þó að jafna 33-33, og síðan 42-42 og raunar komast yfir 44-42 — en KR var þó yfirleitt fyrri til að skora — og staðan í leikhléi var 52-51 KR í vil. Það stefndi því í baráttu í síðari hálfleik — og svo varð. KR náði undirtökunum í byrjun síðari hálfleiks en um miðjan síðari hálfleikinn náðu KR-ingar 13 stiga forustu og úrslit í raun ráð- in, 94-81. Þetta var stúdentum of- viða — þó þeim tækist að minnka muninn í lokin áttu þeir aldrei raunhæfan möguleika að ná KR. Það er staðan breyttist úr 78-76 KR í vil í 94-81 gerði endanlega útslagið. Endanlegar tölur — 107-104, baráttuleik lokið með sigri Reykjavíkurmeistara KR. Jón Sigurðsson var allt í öllu hjá KR, stjórnaði öllu spili og skoraði margar snilldarkörfur. Þá var HALLUR HALLSSON S0VET SIGRAÐI SPÁNVERJA18-14 ífimm landa keppni á Spáni. Sovétmenn sigruðu f öllum leikjum sínum Sovétmenn sigruðu Spánverja 18-14 í iandsleik á Spáni í fimm þjóða móti. Sovétmenn sigruðu í mótinu — hlutu 8 stig. Heims- meistarar Rúmena hlutu 6 stig. ~Þá komu Spánverjar með 4 stig — Japanir hlutu 2 stig en lestina ráku Frakkar, með ekkert stig. Arangur Sovétmanna á Spáni er athyglisverður. Þeir byrjuðu með stórsigri gegn Japan og í kjölfarið fylgdi öruggur sigur gegn heimsmeisturum Rúmeníu, 24-19-. Frakkar voru og ekki mikil hindruri, átta marka sigur, 23-15. Spánverjar sigruðu bæði Frakka og Japani — en töpuðu gegn Sovétmönnum, 18-14 og Rúmenum 16-21. Yfirburðir Sovétmanna eru því umtalsverðir og greinilegt að þeir verða sterkir í Danmörku. Ekki er DB kunnugt um, hvaða leikmenn Sovétmenn voru með á Spáni né heldur Rúmenar — þessar tvær þjóðir hafa viðhaft mikla leynd yfir öllum undirbúningi sínum fyrir HM. ísland leikur eins og kunnugt er með Dönum, gestgjöfunum í HM, ólympíumeisturum Sovét, og Spánverjum í c-riðli HM í Dan- mörku. Annars er riðlaskiptingin í Danmörku: A-riðill: V-Þýzkaland, Júgóslavía, Tékkóslóvakía og Kanada, full- trúi Ameríku. B-riðill: Rúmenía, Ungverjaland, A-Þýzkaland og Frakkland, sem kom í stað Túnis, fulltrúa Afriku. C-riðill: Sovétríkin, Danmörk, Island og Spánn. E-riðill: Pólland, Svíþjóð, Japan og Búlgaría. | Andrew Piazza drjúgur, þekking hans og leikreynsla í körfuknatt- leik reyndist þung á metunum — og alls ekki má gleyma þætti þeirra Bjarna Jóhannssonar og Einars Bollasonar — Bjarni I skoraði margar ákaflega þýðing- armiklar körfur i síðari hálfleik — og Einar, já gamli maðurinn stendur ávallt fyrir sínu. En það sem raunverulea skildi milli liðanna var sigurvilji KR- inga, barátta þeirra. Það var sigúrviljinn, sem fleytti KR yfir marga erfiða hjalla. KR hafði vissulega gæfuna með sér í leikn- um í gærkvöld — meðan flest virtist ganga upp hjá KR, jafnvel í annarri til þriðju tilraun, var ekki það sama uppi á teningnum hjá ÍS — sér í lagi var það í síðari hálfleik, að hlutirnir heppnuðust ekki sem skyldi — en stúdentar gáfust aldrei upp þó móti blési. Unnu iðulega upp forskot KR — en ætluðu sér beinlínis um of — það voru of margir slakir kaflar er riðu baggamuninn. Dirk Dunbar var allt í öllu hjá stúdentum, svo og var Kolbeinn Pálsson drjúgur — en alls ekki kom nóg út úr leikmönnum eins og Bjarna Gunnari, Steini Sveins- syni og Jóni Héðinssyni. Jón ávallt sterkur í vörn, þó hann ætti í erfiðleikum með Bjarna IJóhannsson — en þessir leik- reyndu leikmenn IS náðu ekki að hleypa í sig þeirra hörku, baráttu sem til þarf að vinna mikilvæga leiki. Andrew Piazza var stigahæstur KR-inga með 26 stig. Jón Sigurðs- son skoraði 25 stig, Bjarni Jóhannsson 24 og Einar Bollason 16. Dirk Dunbar var stigahæstur stúdenta með 42 stig — þrátt fyrir að þessi snjalli leikmaður.eigi erf- itt uppdráttar vegna meiðsla, beinlínis stingur við, hefur hann sýnt með leikjum sínum í vetur að þar fer snjall leikmaður, mikil hugsun í leik hans. Kolbeinn Kristinsson skoraði 21 stig fyrir stúdenta — en þeir Bjarni Gunnar og Steinn Sveinsson skoruðu hvor um sig 11 stig. Staðan í 1. deildinni er nú: Njarðvík KR Valur ts IR Fram Þór Ármann 1 651-545 12 2 550-439 10 615-556 10 619-603 10 576-635 6 558-614 4 447-503 4 546-683 0 - h halls Holland í efsta sæti 4. riðils ; Fylgið mér. Ætla að sýna ykkur íþróttavöllinn. Q /iL'J.LS — i HM i knattspyrnu i Argentínu um efsta sætið í 4. riðli var ákaf- lega hörð — þjóðirnar lita á þessi sæti sem ákaflega mikilvæg svo þær lendi ekki gegn sterkari þjóðum. ítalir voru þó settir á stað — þeir skipa annað sætið í 1. riðli, sem fer fram í höfuðborg- inni, Buenos Aires. Riðill V- Þjóðverja fer fram í Cordoba, 3.1 riðill með Brassana fer fram í Mar Del Plata, upp við brasilísku landamærin við strendur Argen- tínu. Riðill Hollendinga fer fram í Mendoza, við ræður Andesfjalla. Fjölmargir Argentínumenn af ítölsku bergi brotnir búa í Buenos Aires, og því var ákveðið að setja þá þar. Síðan var þeim 11 liðum er eftir voru skipað í þrjá riðla — Skotar, Spánverjar og Pólverjar lenda í riðlum 2, 3 og 4 — eitt lið í hvern riðil. Mexíkó og Perú lenda í riðlum 1 og 3. Svíar og Ungverjar lenda í riðlum 1 og 3 — það er dregið verður um hvor þjóðin fer í hvorn riðil. Loks verður Iran, Túnis, Austurríki og Frakklandi raðað í riðlana fjóra — það er þessar fjórar þjóðir skipa 4. sæti í hverj- um riðli. Vissulega flókið — en nauðsyn- legt og nánast hefð svo sterkustu þjóðir heims lendi ekki saman í riðlakeppninni og þannig nánast geri út um möguleika hver ann- arrar þegar í riðlakeppninni. Nú hefur verið raðað í efstu sæti riðlakeppninnar í heims- meistarakeppninni i Argentinu í sumar. Fyrsta sætið í 1. riðli skipar Argentína, gestgjafarnir. Fyrsta sætið í 2. riðli skipa heims- meistarar V-Þýzkalands. Fyrsta sætið í 3. riðli skipa Brasilíu- menn og. fyrsta sætið í 4. riðli skipa Hollendingar, silfurhaf- arnir frá Múnchen ’74. Keppni ítala og Holiendinga Hinn skemmtilegi línumaður Fram, Birgir Jóhannsson, hefur þarna snúið á vörn landsliðsmanna og skorar. DB-mynd Hörður Vilhjálmsson. FRAMLAGÐILANDSLIÐIÐÁ 70 ÁRA AFMÆLISHÁTÍÐINNI Fram hélt í gærkvöld velheppn- aða afmælishátíð — 70 ára af- mæli Fram í Laugardalshöll. Á , annað þúsund manns komu í 1 Laugardalshöll. Að sjálfsögðu bar hæst viðureign íslenzka lands- liðsins og Fram — með Axel Axelsson I broddi fylkingar. Fram sigraði 29-28 — og nú aðeins hálfum mánuði fyrir HM er greinilegt að íslenzku lands- liðsmennirnir eiga erfitt upp- dráttar. — Varnarleikurinn er mikill höfuðverkur og þá ekki síður markvarzlan — hún hefur í undanförnum Ieikjum verið nánast i lágmarki. Þeir Kristján Sigmundsson og Gunnar Einars- son hafa verið í miklum öldudal sem þeir beinlínis verða að ná sér uppúr þar sem með hverjum deg- inum verður ólíklegra að Olafur Benediktsson geti tekið þátt í bar- áttunni i Danmörku vegna meiðsla. Islenzka landsliðið gengur nú í gegnum svipað timabil og skömmu fyrir HM í Austurríki fyrir tæpu ári. Leikmenn virka þungir, seinir að hugsa og staðir í vörninni. Þeir hafa ekki náð sam- stillingu í vörninni og greinilegt að bjartsýni sú er einkenndi liðið fyrir ári er ekki fyrir hendi. En er í raun við öðru að búast — íslenzku landsliðsmennirnir æfa tvívegis á dag, erfiðar æfingar. Danir ganga nú í gegnum svipað tímabil, tímabil þreytu og meiðsla hjá ýmsum leikmönnum. Við eigum og við okkar vandamál að stríða — Ólafur Benediktsson á erfitt uppdráttar vegna meiðsla í olnboga. Þá verðum við án Ólafs H. Jónssonar, leikmanns er með krafti sínum og dugnaði hefur reynzt liðinu ákaflega mikil- vægur. Nú en það var góð stemmning í Höllinni í leik Fram og landsliðs- ins — Fram hafði ávallt undirtök- in gegn íslenzku landsliði án Geirs Hallsteinssonar. Leikmenn Fram börðust vel, greinilega stað- ráðnir í að vinna sigur. Þegar 13 mínútur voru til leiksloka hafði Fram yfir 24-20. Landsliðinu tókst að minnka muninn, í 24-22 og síðan jafna 26-26. Svo virtist sem landsliðið mundi síga framúr þrátt fyrir að leikmenn væru ein- um færri. En leikmenn Fram settu hörku í sig — og þegar 25 sekúndur voru til leiksloka komust þeir yfir 29-28. Landsliðið fékk víti — Jón Karlsson tók það, hans níunda — átta sinnum hafði hann áður skorað. En hinn ungi markvörður Fram, Einar Birgis- son, gerði sér lítið fyrir og v-arði frá iandsliðsfyrirliðanum — og sigur Fram í höfn. Áhangendur Fram streymdu fram til að fagna sínum mönnum. Axel Axelsson sýndi vissulega gamla skemmtilega takta með sín- um gömlu félögum — snjallar línusendingar ásamt 9 mörkum. Birgir Jóhannsson skoraði 3, Pétur Jóhannsson, Árni Sverris- son, Gústaf Björnsson, Sigurberg- ur Sigsteinsson, Arnar Guðlaugs- son og Jens Jensson skoruðu allir 2 mörk hver. Hjá landsliðinu skoraði Jón Karlsson 15 mörk, Gunnar Einars- son 4, Bjarni Guðmundsson 4, Björgvin Björgvinsson og Viggó Sigurðsson 2, Þorbjörn Guð- mundsson, Ólafur Einarsson og Árni Indriðason 1 mark hver. H Halls Keppni í nútíma- fimleikum í fyrsta sinn á Islandi Keppni í nútímafimleikum var haldin I fyrsta skipti hér á landi laugardaginn 7. janúar sl. í íþróttahúsi Kennaraháskóla Islands. Keppt var samkvæmt sænsku æfingakerfi sem tíðkast á öllum Norðurlönd- .unum fyrir byrjendur. Fimleikakerfi þetta er í 5 stigum allra áhalda nútíma fimleika, þ.e. bolta, sippu- banda, gjarða, keilna, og langbanda (vimpils) auk gólfæfinga, án handaáhalda, en í öllum atriðum eru æfingarnar gerðar eftir tónlist. Æfingarnar eru stigþyngjandi og samdar af fremstu þjálfurum, alþjóðlegum dómara og meistara Svía í nútíma fimleikum. Fimleikasamband ísiands hefur unnið að útbreiðslu og kynningu á þessari fögru grein fimleikanna sl. 4—5 ár, og einnig haldið nokkur stutt námskeið fyrir kennara, áhuga- fólk og nú nýlega fyrir dómara. Aðeins eitt félag, íþróttafélagið Gerpla, Kópavogi, tilkynnti þátttöku að þessu sinni. Það voru 25 stúlkur á aldrinum 9—16 ára. Keppt var í 4 aldursflokkum og urðu úrslit þessi: I. fl. 1. Berglind Pétursdóttir 45.49 2. Ásta tsberg 43.05 3. Elín Viðarsdóttir 42.89 II. fl. 1. Björk Ólafsdóttir 42,97 2. Jódís Pétursdóttir 42.93 3. Vilborg Nielsen 42 72 III. fl. 1. Aslaug Óskarsdóttir 41.18 2. Gunnlaug Ingvadóttir 31.54 3. Guðrún ísberg 16 13 IV. fl. 1. Halldóra Ingþórsdóttir 16.69 2. Hlíf Þorgeirsdóttir 16.65 3. Katrin Guðmundsdóttir 16.18 Það er von stjórnar F.S.I. að þessi fyrsta keppni verði til að auka áhugann á nútíma fimleikum og að fleiri félög sjái sér fært að vera með í framtíðinni. Stjórn Fimleikasambands Islands Ólafur Benedikts- son ekki til Danmerkur? Flest bendir nú til að ísland verði án Ólafs Benediktssonar markvarðar í úrslitum HM í Danmörku. Olafur gekkst undir uppskurð, eins og DB skýrði frá á sínum tíma, á olnboga vegna liðamúsar. En batinn hefur látið á sér standa — Ölafur hélt utan til Svíþjóðar í gær með handlegginn í gipsi. Vissulega áfall fyrir ísland — ölafur sannaði enn einu sinni hve góður markvörður hann er með ágætri mark- vörzlu sinni í Austurríki. Þeir Kristján Sigmundsson og Gunnar Einarsson verða því aðalmarkverðir liðsins I Danmörku ef að líkum lætur. Báðir ágætir markverðir — en hafa undanfarið verið I mikilli lægð og því brýnt að þeir nái sér upp úr henni. Þá hefur landsliðsnefnd valið tvo markverði til æfinga með liðinu — þá Pétur Hjálmarsson KR og Þorlák Kjartansson Haukum. McQueen settur á sölulista og úr liðinu Skozki landsliðsmaðurinn Gordon McQueen hjá Leeds United hefur verið settur út úr liði Leeds gegn Birmingham á morgun og Leeds hefur fallizt á að selja hann. Fari McQueen frá Leeds — og annað virðist vart koma til greina — er hann annar leikmaðurinn sem fer frá hinu fræga Yorks- hirefélagi á stuttum tíma. Aður hafði annar skozkur landsliðsmaður, Joe Jordan, verið seldur til Manchester United. Allar líkur benda til að McQueen feti í fótspor Jordan — það er fari til Man- chester United og þá fyrir stóran pening. Astæða þess, að McQueen fer frá Leeds er fyrst og fremst atvik það er gerðist á EUand Road i Leeds á laugardag. Þá mætti Leeds Manchester City í FA bikarnum — og McQueen réðst þá að landa sínum, markverð- inum David Harvey og sló hann. Þetta atvik vakti mikla athygli — McQueen var sektaður og sú óánægja sem virðist hafa kraumað í Lc,eds undanfarnar vikur brauzt upp á yfir- borðið.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.